Þjóðólfur - 07.11.1902, Side 4
i8o
Skipstjórar.
Tveir duglegir og reglusamir skip-
stjórar geta fengið atvinnu næstkom-
andi ár. Þeir, sem óska eptir að fá
þessar stöður, eru beðnir að senda
skriflega umsókn og meðmæli til Jes
Zimsen í Reykjavík fyrir hinn 20.
þessa mánaðar. Ennfremur er óskað
eptir, að umsækjendur tiltaki þau kjör,
sem þeir vilja fá.
og vönduð stúlka, getur
fengið vist nú þegar. Ritstj.
vísar á.
Leir eldfastur
fæst í verzlun
Sturlu Jónssonar.
Haustull tzz
borguð í verzlun
Jóns Helgasonar,
Aðalstræti 14.
r
Islenzkir bændur
ættu að kaupa og lesa „Plóg“ — eina
landbúnaðarblaðið, sem gefið er út í
landinu. Það munar engan um 75 a.
á ári. Búnaðarfélög hreppanna ættu
að kaupa nokkur eintök hvert ti! út-
býtingar í hreppnum.
Eldri árgangar fást ekki sendir n^ma
borgvn fylgi p'óntuninni. 1. árg. kostar
1 kr. 50., 2. árg. 1 kr., 3. árg. 75 a.,
alls 3 kr. 25 a. fyrir 3 fyrstu árg. —
Skorað er á alla, sem skulda fyrir
blaðið frá fyrri eða síðari tíð, að greiða
skuldir sínar hið fyrsta til undirritaðs,
er annast útsendingu blaðsins. Ein-
stök númer úr 1. eða 2. árg. fást ekki
sérstaklega, með því að upplagið af
þeim árgöngum er svo að segja þrotið.
Rvík 18. okt. 1902.
Hannes Þorsteinsson.
þAR EÐ verzlunin „NÝHÖFN“
í Reykjavík er nú lögð niður,
áminnast allir, er skulda henni,
að greiða hið allra fyrsta skuldir
sínar til undirskrifaðs, sem hefur
fyrst um sinn á hendi alla inn-
heimtu á útistandandi skuldum
og útborganir á inneign við sömu
verzlun, Skrifstofa mín er í
húsi frú Thordals (Sivertsenshús).
Reykjavik 3. nóv. 1902.
Matthías MatthíassoH
fyrv. verzlunarstjóri
— Fataef n i ZZ
falleg, haldgóð og ódýr,
fá menn frá Varde-klæðaverksmiðju.
Allir, sem þekkja til, koma þangað með
sínar ullarsendingar. Og öllum líkar
tauin mæta vel.
Komið því sem fyrst að skoða sýnis-
hornin hjá umboðsm.
Jón Helgason.
Aðalstræti 14.
I haust voru mér dregnar 3 kindur: 2
lambgeldingar og 1 ær, með mínu marki:
standtj. framan hægra, sýlt vinstra, sem eg
ekki á. Eigandi gefi sig fram við mig
sem fyrst, og borgi auglýsingu þessa og
hirðingu.
Snæfoksstöðum í Grímsnesi 30. okt. 1902.
Þórdls Gísladóttir.
Þeir fríkirkjumenn,
sem hafa borgað presti safnaðarins gjöld
sín í ár, eru hér með beðnir að láta mig
vita það hið alira fyrsta.
Reykjavík 6/„ 1902.
Arinbj. Sveinbjarnarson
féhirðir Fríkirkjusafnaðarins.
Klæðaverzlunin í Bankastræti 12.
Mikið úrval af:
KAMGARNI, KLÆÐI, BÚKSKINNI, CHEVIOT, einnig fjölbreyttog fall-
eg BUXNAEFNI og sérstakt Úrval í VETRARFRAKKA og ULSTERA,
Verð frá 2 kr 25—ý kr. al.
er nú nýkomið og selzt með góðu verði eptir venju. Komið og gerið kaup við mig.
Virðing'arfyllst.
CUÐM. SIGURÐSSON
klæðskeri.
Hálslín af ölliini stœrðnm HVERGI ÓDÝRARA, og allt þvi til-
heyr a ndi fœst þar einnig.
Heimsins vöndnðustn og ódýrustn
Orgel og Fortepiano
fást með verksmiðjuverði beina leið frá
Beethoven Piano & Organ Co og frá Com-
ish & Co, Washington, N. J. U. S. A.
Orgel úr hnottré með 5 áttundum, 13
tónfjölgunum, 2 hnéspöðum, með vönduð-
um orgelstól og skóla, kostar í umbúðum
ca. 125 króimr. (Orgel með sama hljóð-
magni og líkri gerð kostar í hnottréskassa
minnst 244 krónur í umbúðum hjá Peter-
sen & Steenstrup). Flutningskostnaður frá
Ameríku til Kaupmannahafnar er frá 26—
40 krónur eptir verði og stærð orgelsins.
Oll fullkomnari orgel og fortepiano til-
tölulega jafn ódýr og öll með 25 ára á-
byrgð.
Allir væntanlegir kaupendur eiga að
snúa sér til undirritaðs. Einkafulltrúi fé-
laganna hér á landi:
Í’orsteinn Arnijótsson.
Sauðanesi.
VÁTRYGGINCARFÉLAGIÐ
,sun‘
í Lundúnum (stofnað 1710) tekur að
sér með sanngjörnum kjörum ábyrgð
á húsum, allskonar áhöldum og inn-
anstokksmunum, fénaði, er inni brenn-
ur og skipum, sem í höfn eru eða á
land eru sett.
Aðalnmboðsinaðnr á íslandi
Dr. Jón Þorkelsson yngri
í Reykjavík.
í síðastliðin 6 ár hef eg þjáðst af
alvarlegri geðveiki og hef árangurs-
laust neytt við henni ýmsra meðala,
þangað til eg fyrir 5 vikum síðantók
að nota Kína-lífs-elixír frá Waldemar
Petersen í Frederikshavn og veitti það
mér þegar í stað reglubundinn svefn,
og er eg hafði neytt 3 flaskna af elix-
írnum fann eg töluverðan bata og vona
eg þvf, að eg nái fullri heilsu, ef eg
held áfram að neyta hans.
Staddur í Reykjavík.
Pétur Bjarnason
frá Landakoti.
Að ofanskráð vottorð sé gefið af
fúsum vilja og að vottorðsveitandi sé
með fullu ráði og rænu vottar
L. Pálsson.
prakt. læknir.
KÍNA-LIFS-ELIXÍRINN fæst hjá flestum
kaupmönnum á íslandi, án nokkurrar toll-
hækkunar, svo að verðið er öldungis sama
sem fyr, 1 kr. 50 a. flaskan.
Til þess að vera vissir um, að fá hinn
ekta Klna-lffs-elixír, eru kaupendur beðnir
v.P.
að líta vel eptirþví, að —pg standi á fiösk-
unum f grænu lakki, og eins eptir hinu skrá-
setta vörumerki áflöskumiðanum: Kínverji
með glas í hendi, og firmanafnið Walde-
mar Petersen.
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Hannes Þorsteinsson, cand. theoi.
Prentsmiðja Þjóðólfs.
58
hvítur í framan, og um leið þeytti hann drösulnum ofan af sér, eins og
fisi, spratt upp, þreif til hans, hristi hann og fleygði honum niður, svo
að dundi í vellinum. Menn horfðu á þetta forviða, en þyrptust svo að,
og tóku Þorstein burtu. Allur hópurinn gekk svo hlæjandi inn í tjald
til konungs, en morguninn eptir voru gerð boð eptir Þorsteini, og þá
gaf konungur honum fallegan innsiglishring, þakkaði honum fyrir vikið
og hældi honum mjög.
Eptir þetta varð Þorsteinn mikill á lopti. Allir herforíngjarnir urðu
nú að fá sér neðan í því með honum, og bann var alstaðar aufúsugest-
ur; hann varð helzti danzarinn í dansskálunum, og það var opt sent
eptir honum frá konungshöllinni og frá heldra fólki í borginni til að láta
hann danza „haddingja" („halling"r)) hjá því. Svona gekk nú um hríð,
en þa er fram í sótti, gerðist Þorsteinn svo uppivöðslusamur, að enginn
gat gert honum til hæfis, og það sem lakara var: hann fór að súpa á.
Og svo reikaði hann hingað og þangað, og stærði sig af öllum þeim
aflraunum, er hann hafði verið í, sagði frá hryggspennunni á Oxarvöll-
um, og sýndi ávallt hringinn, konungsnaut, er hann hafði fengið. En
þá er loksins rak svo langt, að hann fannst drukkinn á verði, þá varð
ekki hjá því komizt, að vísa honum á bug sem óhæfum. Daginn, sem
hann var rekinn brott, fékk hann bréf að heiman, og í því var honum
óskað til hamingju, með öll þau afreksverk, sem hann ynni í höfuðstaðn-
um. Þorsteinn varð þa svo gramur, að hann fleygði bréfinu á gólfið,
gekk burtu og inn á vínknæpu. og drakk sig svo peðfullan, að hann lá
þar alla nóttina. Nú var hann ekki neitt í neinu, hafði ekkert handa
á milli, en hann ásetti sér, að sýna Svíum samt sem áður, að hann gæti
verið þar sem hann vildi, og svo hélt hann kyrru fyrir í Stokkhólmi
hálft ár. Hann átti afgangs nokkra skildinga af launum sínum, og þeim
eyddi hann í fyrstu, en svo fór hann í grjótvinnu endrum og sinnum, og
ef honum áskotnaðist þá aptur skildingur, fór hann fyrir brennivín. Jafn-
framt jós hann óbótaskömmum yfir Svía, hvar sem hann gat þvf við
1) Norskur dans með einkennilegu hoppi og stökki.
59
komið, og barði á þeim, hvenær sem þeir fóru að láta mikið yfir sér,
og hann var aldrei glaðari, en þá er hann sofnaði eptir slíkt dagsverk
með þeirri sannfæringu, að hann, Norðmaðurinn, væri þó hraustasti karl-
inn. Þetta slarkaðist svona áfram fyrir honum um hríð, hann varð óþokk-
aður af öllum, er hann kynntist, gömlu vinirnir hans, herforingjarnir, vildu
ekki líta við honum, ekki kannast við hann framar, og innan skamms
stóð Þorsteinn einn uppi og svaf á hálmpoka í litlum óþrifalegum klefa.
Um það leyti fékk hann bréf heiman að, og þar var honum skýrt frá,
að faðir hans væri látinn, og að hann hefði erft býlið. Þorsteinn sett-
ist á hálmpokann og fór að hugsa um heiminn og forlögin, og þá komst
hann að þeirri niðurstöðu, að sambandsríkið (Svíþjóð) væri í raun og
veru lubbaríki, og að það ætti ekki við, að annar eins maður og hann
eyddi þar æfi sinni lengur. Svo var það einn dag, að menn sáu Þor-
stein labba burt úr Stokkhólmi í slitinni treyju og götóttum buxum, með
fyrirferðalítinn malpoka á bakinu. Hann sneri sér við einu sinni, horfði
til borgarinnar, hrækti frá sér í áttina þangað, sneri sér aptur á hæli, og
hélt leiðar sinnar föstum fetum.
Fyrsta fréttin, er Þorsteini barst til eyrna, þá er hann kom í sveit-
ina sína, var sú, að unnusta hans væri öðrum föstnuð. Undir eins og
hann frétti það, hélt hann af stað til Bröttuhlíðar.
„Hefur þú látið annan fá heitmey mínaf" sagði hann við Bratta-
hlíðarbóndann.
„Er það kurteist, að vaða inn í hús manna á þennan hátt?“ svaraði
bóndinn.
„Eg hef það eins og mér sýnist", mælti Þorsteinn. „Hefur þú látið
annan mann fá heitmey mína, spyr eg aptur?"
„Þú hefðir getað komið heim nógu snemma, sem áreiðanlegur mað-
ur, þá hefði ekki farið, eins og nú er komið", svaraði Brattahlíðarbónd-
inn, „en hafir þú ekkert annað erindi hingað en að skattyrðast, þá get-
ur þú spígsporað þar, sem þú átt heima".
„Ætlar þú að banna mér að vera hér?“ svaraði Þorsteinn, hló
kuldahlátur, og stappaði hælunum svo hart niður í gólfið, að glumdi í.