Þjóðólfur - 27.03.1903, Side 2
50
foringjar ísafoldarflokksins ekki líta við
J. J. til þingmennsku, og voru þá að fala
aðra bæjarbúa. Forkólfarnir uppgötvuðu
þessa miklu þingm.hæfileika J. J., þegar
þeir gátu engan annan fengið, og höfðu
von um liðsauka frá »Landvarnar«mönn-
um.
Mörgum mun í fersku minni hvellur-
inn, sem átti að verða, þegar Einar Bene-
diktsson hélt tvo fundi síðastliðið sumar,
annan almennan og hinn með stúdentum
til að þröngva þinginu að samþykkja ekki
stjórnarskrárftv. óbreytt. Þrjá daga fyrir
fundina gengu þeir E. B. og Valtýr Guð-
mundsson á eintali, en þegar fundirnir
urðu árangurslausir og til athlægis, þá
létust liðsmenn Valtýs og Isafoldar hvergi
hafa komið nærri, og lögðu fæð á Jón
Jensson fyrirþað, að hann varð of bermáll
á fyrri fundinum um það, sem leynt átti
að fara.
I stet'nuskrá Valtýs eða Isafoldarflokks-
ins er sagt, að hann vilji engan greinar-
mun gera eptir undanfarinni flokkaskipt-
ing; allir nýtir menn séu jafn velkomnir,
og í friðarboðskapnum var blásið í sömu
pípuna. En jafnskjótt og kjósendur eins
kjördæmis ráðgera, að skora á Hannes
Hafstein til þingsetu, þá hættu flokksblöð-
in fagurgalanum og telja H. H. flest til
foráttu. Munu þó flestir óvilhallir menn
telja hann með nýtustu og hæfileikamestu
þingmannsefnum.
Sama er að segja um undirróður Isa-
foldarhöfðingjanna móti kosningu Tryggva
Gunnarssonar í Reykjavtk og Eggerts
prests Pálssonar í Rangárvallasýslu m.m.
Allt þetta sýnir, hversu friðarboðið var
einlæglega meint, og hversu forkólfum
Isafoldarflokksins er tamt að nota »tung-
ur tvær, og tala sitt með hvorri«.
I fyrnefndri Isafoldargrein, 14. tölubl.,
segir ritstj.: »Það er þó kunnugra en frá
þurfi að segja, að frumvarp það (1902),
er Framsóknarflokksins verk, hvert atriði
í því nema ríkisráðssetan« — og hún er
þó smiklu ■samkvæmari því, er Framsókn-
arflokkurinn hafði óskað eptir, en hinn
flokkurinn hafði stungið upp á, — þetta
vita allir að er satt«.
Getur hugsazt meiri dirfska eða óskamm-
feilni en þetta, að tyggja upp sömu ósann-
indin mánuð eptir mánuð, þegar liggur
opið fyrir í ritum og ræðum frá fyrirlið-
um og öðrum flokksmönnum, að þeir með
öllu megni börðust á móti búsetu ráð-
gjafans í landinu, og vijdu flytja bæði
stjórn og peningaumráðin til Kaupm.hafnar,
og svo mikið kapp lögðu þeir á þetta, að
þeir fengust eigi til að fresta atkvæða-
greiðslu í stjórnarskrármálinu 1901, eptir
að fréttin kom um stjórnarráðsskiptin í
Danmörku. Þeir treystu því, að ef þeir af-
greiddu málið, þá mundu hinir nýju ráð-
gjafar ekki verða svo frjálslyndir og velvilj-
aðir þjóðinni, að bjóða betra, en þingið
sjálft óskaði eptir.
Þótt Isafold treysti því, að hún geti
villt sjónir nútíðarmanna, þá tekst henni
ekki að glepja sýn þeirra) sem seinna
skrifa söguna, svo að þeir eigi sjái, hver
öfugmæli ogósannindi Isafold og fylgifiskar
hennar hafa borið fram, bæði í stjórnar-
skrármálinu og bankaroálinu.
Ef landsmenn sæju nú eins glöggt og
seinni tlðar menn munu sjá, hverjum brögð-
um þeir hafa verið beittir, og hver meðul
hafa verið notuð, þá mundu þeir ekki
kjósa í vor á þing einn einasta þeirra
manna, sem greiddu atkv. með stjórnar-
skrárfrv. 1901, eptir að fréttirnar bárust
þinginu um stjórnarfarsbreytinguna 1 Dan-
mörku, og engan af þeim, er gengust fyrir
þvf, að leggja niður landsins eigin stofnJ
un — landsbankann — og gefa útlendum
mönnum einkarétt til seðlaútgáfu, og allrar
peningaverzlunar landsins í 30 ár. Þeir
mundu þá eigi heldur kaupa nokkurt af
blöðum þeim, sem barizt hafa f þessum
málum með sömu vopmim sem Isafold.
Kveldúlfur.
Nýtt ,Landvarnar‘-flogrít.
Pési nokkur, saminn af þingmannsefni
»hinna sameinuðu« (Valtýinga ogLandv,-
manna) Jóni Jenssyni, hefur nýlega verið
prentaður í mesta pukri í Félagsprent-
smiðjunni, og laumað út um land með
póstunum síðast. Pési þessi er uppsuða
úr ritlingum Eiríks Magnússonar og Ein-
ars Benediktssonar um hina margþvældu
ríkisráðssetu ráðherra vors, sem lögfræð-
ingarnir eru að elta eins og hrátt skinn
á milli sín með kringilyrðum og lögfræði-
legum hártogunum, sem þjóðin hefur fengið
meir en nóg af, og orðið engu fróðari
fyrir þann hræring. Og hún verður
það sannarlega ekki við þetta flogrit Jóns
Jenssonar, er hann kallar »Uppgjöf lands-
réttindanna samþykkt á alþingi 1902«.
Þeir eru ekki í vandræðum með nöfnin
á króana sína þeir herrar. Jón Jensson
lifir og hrærist; í valtýskunni frá 1897,
þess vegna er nauðsynlegt að kveða þetta
búsetuhumbug niður, þess vegna finnur
höf. það út, að með samþykkt orðanna
»í rlkisráðinu« sé fólgin viðurkenning um
gildi grundvallarlaganna dönsku í sérmál-
um vorum, og að »ráðgjafi vor verði sjálf-
ur danskur ráðgjafi, settur til að- gæta
hagsmuna (!!) Dana aðallega(!!), með ábyrgð
fyrir ríkisþingi Dana (bls. 47), það (rfkis-
þingið) sé hjarta hans og herra» (bls. 33)
o. s. frv. í þessum tón, alltsaman byggt
á þeirri einu kórvillu, að vinstri manna
stjórnin (eins og hægri manna stjórnin) á-
líti, að ráðherra vor eigi sæti í ríkisrað-
inu, samkvæmt grundvallarlögum Dana,
en vanti viðurkenningu fyrir því af Is-
lendinga hálfu, og þess vegna þurfi að
taka það fram í stjórnarskránni. En
þetta er allt tómur reykur og vitleysa.
Vegna þeirrar öldungis ómótmælanlegrar
sérstöðu, er búsettur ráðherra hér á landi
hefur fengið við það, að vera skilinn frá
hlið konungs í 300 mílna fjarlægð og
Iaunaður af landsjóði Islands, vegna þess
verður að fá heimild í stjórnarskránni,
til þess að hann megi koma í ríkisráðið.
Þessu var allt öðruvísi varið með valtýska
ráðgjafann, sem með réttu mátti kallast
danskur ráðgjafi. Fyrir hann hefoiDön-
um ekki komið til hugar, að leita þess-
arar heimildar, þvf að þess þurfti ekki
frá þeirra sjónarmiði.
I orðum stjórnarskrárinnar, um að landið
hafi »stjórn út af fyrir sig« er fólgin næg
trygging fyrir því, að þótt ráðgjafi vor
væri að rgafninu meðlimur ríkisráðs-
sins, gæti hann ekki borið neina á-
byrgð fyrir rfkisþingi(I) Dana, eða verið
háður sömu lögum, sem hinir dönsku
ráðgjafar konungs, og farið t. d. frá völd-
um með þeim. Slfkt nær engri átt, enda
þótt fullkomið samræmi sé þar ekki
milli grundvallarlaganna og stjórnarskrár-
innar, að þvf er rlkisráðssetu sérmála-
ráðherra vors snertir, sem stafar einmitt
af þeirri sérstöðu, sem hann hefur n ú
fengið, og ekki er gert ráð fyrir í grund-
vallarlögunum, og gat ekki verið gert þar
ráð fyrir á þeim tíma, er þau voru samin.
Stjórnarskrá vor þarf ekki fyrir það að
vera nein yfirlöggjöf yfir grundvallarlög-
unum, eins og Jón Jensson er að skopast
að. Sérréttindi og sérstjórn Iandsins er
viðurkennt í stjórnarskránni, og þvl getur
danskt löggjafarvald ekki svipt oss, hvern-
ig sem lögfræðingarnir teygja það og toga
á milli sín, og hvernig sem þeirrlfastum
það, að rlkisþingið (en ekki konungur)
hafi af náð sinni veitt oss stöðulögin, og
þar af leiðandi afhent oss þennan sjálf-
stjórnarvísi, sem vér nú höfum, en geti
tekið gjöfina aptur er því sýnist. Slíkar
öfgar falla um koll af sjálfu sér.
Nú er því spurningin að eins sú, hvort
nokkur hætta sé á að veita ráðherra vor-
um þessa ríkisráðssetuheimild, og hvort vér
séum einmitt ekki betur farnir með því,
að geta haft málsvara 1 ríkisráðinu, held-
ur en að liafa þar engan og láta dönsku
ráðherrana eina um hituna, því að ertg-
inn þarf að hugsa sér, að konungur skrifi
undir öll fslenzk lagaboð með ráðberran-
um fslenzka, án þess að bera hin vanda-
samari að minnsta kosti undir ráðherra
sína. Og að hverju leyti værum vér þá
betur farnir? Er það tilvinnandi að láta
sjálfstjórnarmál vort stranda á lagaflækj-
um og orðkringilshætti út af atriði, sem f
reyndinni getur ekki haft nein ísjárverð
eptirköst í för með sér, því að fyrst og
fremst eru Danir ekki Rússar, þeirmundu
ekki hegða sér gagnvart oss, eins og
Rússar gegn Finnum, og vildu þeir gera
það, þá þýddi lítið fyrir oss að hrópa á
»gamla sáttmála«. En nú eru ýmsir að
róa að því, að koma því inn hjá fólki,
að Danir sitji á svikráðum við þjóðfrelsi
vort, þeir séu að brugga sjálfstæði voru
banaráð, og teygja Islendinga eins og
asna á eyrunum til'að gerast undirlægjur
Dana. Og allur þessi voði á að vera fólg-
inn í 2 orðum, »í ríkisráðinu«. Það er
grýlan, sem nú er brugðið upp fyrir þjóð-
inni til að gera nú allt ónýtt, sem búið
er að vinna til að koma stjórninni inn í
landið. Nú áað greiða valtýskunni braut. Til
þess eru refirnir skornir. Til þess kemur
þessi stæki Valtýingur Jón Jensson fram
á sjónarsviðið í Landvarnargerfi, með voða-
legum gusti og svigurmælum um sréttinda-
afsal«, landsréttindauppgjöf o. s. frv., hánd-
hæg »slagorð« til að rugla og villa þá,
sem ekki skilja eða vilja skilja þann mun,
sem er á afstöðu ráðherra vors gagnvart
rlkisráðinu eptir valtýskunni 1897 og stjórn-
arskrárfrumvarpi síðasta þings. En vilji
menn sporna gegn því um langan aldur,
að vér fáum hér alinnlenda, óháða stjórn
(landstjóra), þá er langsnjallasta ráðið til
þess, að drepa stjórnarskrárfrumvarp síð-
asta þings hreint og beint, og falla aptur
í arma valtýskunnar — Hafnarstjórnarinn-
ar. Það er Iíka haft eptir sumum val-
týskum þingmönnum frá síðasta þingi, að
þeir telji ekki búsetuna 10 aura virði,
og grfpa því auðvitað fegins hendi þetta
Landvarnar-hálmstrá til að hanga á, og
drepa búsetuna, ef þeir sjá sér það fært,
þvert ofan í allar hátíðlegar yfirlýsingar.
Hvað gerir það til, þá er blessuð valtýsk-
an er í bakhöndinni. Valtýingar hér í
höfuðstaðnum eru þegar riðnir á vaðið
með Jón Jensson. Og Landvarnarmenn
segja, að hann standi ekki einn uppi, því
að Björn Kristjánsson, Skúli Thoroddsen
og Jens Pálsson o. fl. ætli að verða m^ð hon-
um. Þessir herrar ganga því líklega hreint
framan að kjósendum í vor, en svíkjast
ekki inn á þá undir fölsku flaggi. En
ekki er óhugsandi, að þetta sé að eins
veiðibrella hinna svonefndu »Landvm.«,
og að þeir telji sér fylgi þessara manna
vfst í heimildarleysi. Það getur verið
»praktiskt«, að láta það berast út, að fylg-
ið sé gott og mikið víða, þótt það sé
harla lítið og óvíða.
En að þvf er snertir þetta »uppgjafar«-
flugrit Jóns Jenssonar má búast við, að
menn þeir, er það snýst aðaHega að (H.
Hafstein og Klemens Jónsson) finni hvöt
hjá sér til að elta ólarnar um það við
Jón. Ef þeir þá álíta það þess vert.
Deilan.
Það var hörð rimma um 2 orð. Orðin
voru »í ríkisráðinu«.
Landvörn og Jón Jensson* sögðu:
Það má enginn vera inni og sjá kon-
unginn skrifa undir. Vér skiljum lögin.
Ráðgjafarnir sögðu: Vér verðum inni,
enginn getur rekið okkur út. Vérskiljum
lögin.
Kongur sagði: Síðan eg gaf ykkur
viðurkenning fyrir landsréttindunum með
stöðulögunum 1871 og síðan eg með stjórn-
arskránni 1874 gaf ykkur reglur fyrir þvf,
hvernig skyldi nota landsréttindin — alla
tíð síðan eg hef skrifað undir lögin frá
alþingi í viðurvist ráðgjafanna minna. Mér
dettur ekki í hug að fara nú að taka upp
á því, að reka þá út.
Landvörn og Jón Jensson sögðu:
Landsréttindin eru þá eyðilögð og upp-
gefin!
Ef nokkur fær að sjá konginn skrifa
undir login frá alþingi, þá eru landsrétt-
indin eyðilögð og gefin upp, því að það
*) Hann sauð eitt sinn súpu, tók bækling
eptir Einar Benediktsson, og annan eptir
Eirík meistara og sauð þá í mauk. Vatnið
lagði hann sjálfur til.
eru landsréttindin og ekkert annað, að
enginn fái að sjá konginn skrifa undir
lög alþingis. Ef nokkur fær að sjá það,
annar en ráðgjafi Islands, þá eru allir Is-
lendingar orðnir danskir.
Þá sagði fslenzka þjóðin:
Þér megið þrátta eins og þér viljiðum
lagaskýringar, og vefja hverjir aðra í laga-
flækjum. En heilbrigð skynsemi segir
mér, að sú kenning Jóns Jenssonar sé
hauga-vitleysa, að grundvallarlög Dana
verði gildandi á Islandi y>9 Þa9> a9 þýð-
ing á einu orði, sem kemur fyrir 1 þeim
lögum, sé tekin inn í stjórnarskrána, því
að tvenn grundvallarlög, stjórnarskrá mín
og grundvallarlög Dana, sem komalbága
hver við önnur í flestum atriðum, geta
ekki gilt bæði á sama tíma í sama landi.
Og landsréttindi mín eru þau, að enginn
getur sett mér lög í mlnum sérstaklegu
málefnum nema eg sjálf; eg gef þau aldrei
upp, og hef aldrei gefið þau upp. Skrifa
þú, kongur minn, ásamt ráðgjafa mínum
undir lög þau, sem alþingi semur, hvar
sem þú vilt, og hver svo sem á þig horfir,
meðan þú ert að gera það.
Halldór Jónsson.
,,Bessastaða-Góðviljinn“,
er menn svo kalla, er svo kátur núna síð-
ast, að það hlær á honum hver tuska yfir
því, að Jón jensson yfirdómari hefur farið
í mál við ritstjóra þessa blaðs, fyrir engar
sakir. Nú er gjafsóknarfarganið gott og gilt
hjá „Góðvilja“ ritstjóranum, þá er það kem-
ur niður á mótstöðumanni hans. Núgleðst
hann mjög yfir því, að útlit sé fyrir, að þetta
verði ,,allkostnaðarsamt“(!) fyrir ritstj. Þjóð-
ólfs. O, jæja. Vesæll er vonlaus maður.
Ekki er furða, þótt Skúli hafi verið hátalað-
ur á þingi um það, hvílíkt hneyksli gjaf-
sóknir embættismanna væri. Honum ferst
að hrækja þar braustlega eða hitt þó held-
ur. Siðalögmál „Bessastaða-góðviljans" er
svona á litinn : Gjafsóknarhneykslið á að af-
nemast, þegar því er beitt gegn vorum
mönnum, sem ávallt er gert ranglega og á-
stæðulaust, en það er ágætt að hafa þessa
svipu á mótstöðumenn vora, til að baka
þeim- útgjöld, ,enda eiga þeir alltaf marg-
faldlega skilið, að þeir séu ofsóttir með
gjafsóknum, svo að þeir finni til kostnaðar-
ins. Þá er svona stendur á er gjafsóknar-
réttur embættismanna ágætur og má því
ekki niðurfalla. Svona góðviljaður og sjálf-
um sér samkvæmur er nú þessi „pólitíkus"
inn við beinið. Það hefði einhverntíma orð-
ið busl í blaðinu hans, ef jafn hégómlegt og
hlægilegt gjafsóknarmál hefði verið höfðað
gegn honum sjálfum. Þá hefðu gjafsóknirn-
ar fengið vitnisburðinn sinn! En nú . er
hann samtaka ísafold í því, að spana Kr. J.
til að fylgjast með Jóni Jenssyni í þessari
málsóknarfásinnu, hvort sem hann verður
nú við þessum brennheitu óskum þeirra fé-
laga eða ekki. En hann mundi hafa orðið
samferða Jóni, og fengið gjafsókn eins og
hann, efhonum hefði fundizt nokkur ástæða
til þess. En fremur mögur ánægja má það
vera fyrir „Góðvilja“ritstjórann að hafa ekkert
annað sér til skemmtunar en þetta gjafsókn-
armálshumbug J. J., sem flestir eru stein-
hissa á. Og vel má ritstjóri Þjóðólfs muna
þá tíð, er Skúla var ekki hlátur í hug, og
það var 1893, erhann beygður á sál og iík-
ama, aumur og úrvinda var að þvælast í mála-
ferlum sínum. Hann var þá ekki jafn
hnakkakertur sem nú, enda þá ekki farinn
að róa á vegum Isunnar, er á þeim árum
hrækti á hann svo herfilega.
Póstskipið „Laura"
fór héðan áleiðis til Hafnar 20. þ. m.
Með því fóru Jón Brynjólfsson skósmiður,
Gísli Finnsson járnsmiður, frú Laura Niel-
sen, Vilhjálmur Þorvaldsson kaupm. af