Þjóðólfur - 10.07.1903, Blaðsíða 4

Þjóðólfur - 10.07.1903, Blaðsíða 4
112 15. Fundurinn skorar á alþingi, að reisa skorður við því, að ótollað áfengi sé selt á skipum í landhelgi. Fundi slitið. Ari Brynjólfsson. Þ. Þ. Mýrmann. Hinn 22. júnf síðastl. var haldinn þing- málafundur að Hólmavík í Steingrímsfirði að tilhlutun alþingismanns Guðjóns Guð- laugssonar, var fundur sá allvel sóttur. — Á fundinum voru allmörg þingmál tekin til umræðu, og tilögur bornar undir atkvæði kosningarbærra manna, er á fundinum voru mættir, að því er sum þeirra snerti. 1. Stjórnarskrármálið. Svohljóð- andi tillaga var borin undir atkvæði og sam- þykkt í einu hljóði: „Fundurinn skorar á alþingi, að samþykkja óbreytt stjórnarskrárfrumvarp það, sem sam- þykkt var á síðasta þingi". 2. Bankamálið. Tillaga samþykkt með 15 atkv. gegn 1 : „Fundurinn skorar á alþingi, að hlynna sem mest að landsbankanum og tryggja sem bezt tilveru hans, en synja hlutafélagsbank- anum um frekari réttindi, en þegar er búið að veita". 3. Samgöngumálið. Bornar upp eptirfarandi tillögur og samþykktar í einu hljóði: a. „Fundurinn skorar á alþingi, að leggja allt kapp á að ná sem haganlegustum samn- ingum, að því er snertir samgöngur á sjó, og að ganga ekki fram hjá tilboðum frá öðrum félögum en hinu sameinaða danska gufuskipafélagi, þótt þau séu ekki jafn-öflug. Og sérstaklega skorar fundurinn á þing- manninn, að reyna að koma því til leiðar, að skip komi hingað inn í febrúarmánuði ár hvert". b. „Fundurinn skorar á alþingismanninn, að fylgja því fram, að vegabætur verði gerð- ar á póstleiðinn úr Hrútafjarðarbotni í Gils- fjarðarbotn, og að leitast við að fá eptirgef- ið lán það, er hvílirá sýslunni út af brúnni á Laxá f Hrútafirði — þar sem sú brú er nú á póstleið". „Ennfremur óskar fundurinn, að sem minnstu fé sé varið til akbrauta". 4. Fríkirkjumálið. Eptir nokkrar umræður var eptirfarandi tillaga borin und- ir atkvæði og samþykktmeð 15 atkv. gegn 1: „Fundurinn skorar á alþingi, að greiða sem bezt fyrir fríkirkjuhreyfingunni hér á landi, annaðhvort með þvf að samþykkja frumvarp það, er lá fyrir þinginu 1901 um sjálfstæð kirkjufélög, eða annað frumvarp, er gangi í sömu átt. — En sjái þingið sér það ekki fært að sinni, þá að breyta svo núgildandi lögum um utanþjóðkirkjumenn, að þeir að minnsta kosti verði algerlega lausir við að greiða nokkur gjöld til presta og kirkna þjóðkirkjunnar, ef þeir eru í sér- stokum söfnuði, sem hefur guðsþjónustuhús og kjörinn prest, og geri mönnum á annan hátt léttarafyrir að halda uppi fríkirkjusöfn- uðum en nú er“. 5. A 1 þýðum e nn t am ál ið. Borin upp tillaga og samþykkt f einu hljóði: „Fundurinnn skorar á alþingi, að hlynna sem bezt að alþýðumenntuninni og sérstak- lega að styrkja unglinga og barnaskóla til sveita, ekki síður en í sjóþorpum". Ýms fleiri mál voru tekin til umræðu, en ekki voru gerðar neinar ályktanir í þeim af fundinum. Hólmavík 22. júní 1903. Jón Brandsson. Guðm. G. Bdrðarson. fundarstj. ritari. Á fundum, sem haldnir voru á Óspaks- eyri 26. júní og á Bæ í Hrútafirði hinn 27. voru samþykktar flestar hinar sömu tillögur og á Hólmavíkurfundinum. í kjðrl um Útskála eru séra Einar Þórðarson í Hotteigi, séra Kristinn Daníelsson á Sönd- um og séra Ólafur Finnsson í Kálfholti. ,,Bothnia“ kom frá Vestfjörðum í morgun. Með henni komu: Halldór Bjarnason sýslumað- ur frá Patreksfirði ogjón Laxdal verzlun- arstj. frá Isafirði. Með skipinu kom og Ásgeir Sigurðsson kaupm., er brugðið hafði sér snögga ferð til Isfjarðar. Mannalát. Nýdánar eru merkiskónurnar Agnes Þor- steinsdóttir í Bjarnanesi, ekkja séra Bene- dikts Eggertssonar Guðmundsen í Vatns- firði (f 1871) en móðir séra Þorsteins í Bjarnanesi og Eggerts í Laugardælum, og Guðrún Halldórsdóttir (prófasts á Melstað Ámundasonar), ekkja Egils Jónssonar bók- bindara í Rvík (f 1877), tengdamóðir Hall- dórs Bjarnasonar sýslumanns og Jóns Lax- dals verzlunarstj. á ísafirði. Hún andað- ist á Patreksfirði hjá dóttur sinni, og var lik hennar flutt hingað suður til greptrun- ar nú með „Bothniu", og fer jarðarförin fram á morgun (laugard. 11. júlí) kl. 1. Yeðuráttufar í Rvíkíjúní 1908. Meðalhiti á hádegi. + 9-4 C. n „ nóttu . + 5-4 n Mestur hiti„ hádegi. + 15 „ (27.). Minnstur — ' n n • “P 7 (19Á Mestur — „ nóttu . + 9 „ (29Á Minnstur— n n • 2 „ (10.). Framan af mánuðinum var optast út- synningur með kalsa og snjóaði niður alla Esju h. 9. Síðan batnaði veðrið og kom mesta veðurhægð með talsverðri úrkomu við og við. Síðustu dagana um það logn og fagurt veður. J/7—'03 J- Jónassen. Islenzk frimerki kaupir háu verði Ólafur Sveinsson. Austurstræti 5. Áskorun til bindindisviua frá drykkjumannakonum. Munið eptir því, að W. Ó. Breiö- fjörö hætti áfengissölunni einungis fyrir bindindismálið, og kaupið því hjá honum það, sem þið fáið þareins gott og ódýrt og annarstaðar, sem flest mun vera nú af hans fallegu, miklu og margbreyttu vörubirgðum. Tilboð frá Frfhöfninni í Kaupmannahöfn. Cognac 73/4°— 8° — fín tegund — býðst fyrir 96 kr. hálf „pípa“ að meðtöldu ílátinu. Sýnishorn ókeypis. Chr. Funder. Eg undirritaður hef síðastliðin 2 ár þjáðst af mjög mikilli taugaveikl- u n, og þótt eg hafi leitað ýmsra lækna, hef eg ekki getað fengið heilsubót. Síðastliðinn vetur fór eg því að neyta Kína-1 ífs-e 1 ixírs frá hr. Walde- mar Petersení Frederikshöfn, og er það sönn ánægja fyrir mig að votta, að eg eptir brúkun þessa ágæta bitt- ers, finn á mér mikinn bata, og von- ast eptir að verða albata með stöð- ugri notkun Kína-lífs-elixírsins. Feðgum (Staðarholti) 25. apríl 1902. Magnús Jónsson. KÍNA-LIFS-ELIXÍRINN fæst hjá flestum kaupmönnum á fslandi, án nokkurrar toll- hækkunar, svo að verðiðeröldungis sama sem fyr, 1 kr. 50 a. flaskan. Til þess að vera vissir um, að fá hinn ekta Kína-lífs-elixír, eru kaupendur beðnir V.P. að líta vel eptir því, að -þ-1 standi á flösk- unum í grænu lakki, og eins eptir hinu skrá- setta vörumerki áflöskumiðanum: Kínveiji með glas í hendi, og firmanafnið Walde- mar Petersen. Eigandi og ábyrgðarmaður: Hannes Þorsteinsson, cand. theol. Prentsmiðja Þjóðólfs. Tilboð frá Frihöfninni i Kaupmannahöfn. býðst fyrir 40 krónur rUI LYlll hálf „pípa" að með- töldu ílátinu. Sýnishorn ókeypis. Chr. Funder. NÝKOMNIR Hattar og Húfur og mikið af allskonar HÁLSLÍNI og mörgu fleira. Einnig margskonar til fata. ________▲________ 44 Hvergi ódýrara. ►► 12 BANKASTRÆTI 12. Guðm. Sigurðsson klæðskeri. Umboðsmaður óskast, Prjónlesverksmiðja í Kaupmannahöfn óskar eptir umboðsmanni fyrir ísland til þess að selja ullarboli, nærbuxur og karlmanns- og kvennmannssokka. Um- boðsmaðurinn verður að skýra verk- smiðjunni frá, með hvaða skilyrðum hann vill takast umboðsmennskuna á hendur, og verða honum þá send sýnis- horn. Sá, sem getur veitt tryggingu, verður látinn sitja í fyrirrúmi. Menn snúi sér til: Trikotagefabrikken Valby Valby Kj öbenhavn. Tilboð frá Fríhöfninni í Kaupmannahöfn. Sjúkravín, áreiðanlega hrein drúfu- vin, 1 kr. flaskan, kirsuberjavin 70 aura, sólberjaromm 70 aura, hindberja- og jarðarberjalíkj'ór 85 aura, Cacao líkjór 125 aura, sœnskt banco 75 aura, Roborrans bitter 60 aura, Angostura bitter 85 aura flaskan. — Flöskur og aðrar umbúðir fást ókeypis efkeyptar eru 24 flöskur Sendist kaupanda að kostnaðarlausu með tollálagi 25 au. fl. og af bitter 75 au. fl. Chr. Funder. Til leigu frá 1. október næstkomandi 4 herbergja íbúð. Ritstj. vísar á. Peningabudda með enskum pen- ingum í hefur fundizt hér á götunum. Rétt- ur eigandi getur vitjað hennar á skrifstofu Þjóðólfs gegn fundarlaunum. Auglýsing. Þau dagblöð, sem eg er skuldlaus við og hef sagt mig úr, borga eg ekki, þómérséu send þau framvegis. Tungu í Fljótsblíð 21. júlf 1903. Guðjón Jónsson. í Ingólfsstræti 9 fæst til kaups í septbr. kýr af góðu kyni með þriðja kálfi ; kýrin á að bera í 3. viku vetrar. KLOFIÐ GrRJÓT fæst til kaups á Steinstaðabletti við Smiðjustíg. — Menn snúi sér til kaupm. Sturlu Jónssonar. Bærinn Lækjarbakk'i í Reykjavík fæst nú þegar til leigu. Semja má við kaupm. Sturlu Jónsson. Tilboð frá Fríhöfninni í Kaupmannahöfn. Fínt * * * cognac 8° SS aura, St. Croix romm 8° 60 aura, whisky 8° 80 aura pottinn í 40 potta kvartilum. Kvartil, vörumiðar, tappar og hylki ókeypis. Sendist kostnaðarlaust, toll- að á allar gufuskipahafnir á íslandi með 75 álagi á pottinn. Borgunin af- hendist þeim, sem vöruna flytur til Reykjavíkur. Sýnishorn ókeypis. Chr. Funder. Proclama. Með því að Árni bóndi Einarsson á Hróaldsstöðum í Vopnafjarðarhreppi hér í sýslu hefur framselt bú sitt til gjaldþrotaskipta, er hér með samkvæmt lögum 12. apríl 1878 og opnu bréfi 4. janúar 1861 skorað á alla þá, er til skuldar telja hjá honum, að lýsa kröfum sínum og færa sönnur á þær fyrir skiptaráðandanum hér í sýslu áður en liðnir eru 6 mánuðir frá birt- ingu þessarar innköllunar. Skrifstofu Norður-Múlasýslu, Seyðisfirði 15. júní 1903. Jóh. Jöhannesson. Proclama. Með því að Magnús bóndi Eyjólfs- son á Torfastöðum í Hlíðarhreppi hér í sýslu hefur framselt bú sitt til gjald- þrotaskipta, er hér með samkvæmt lögum 12. apríl 1878 og opnu bréfi 4. janúar 1861 skorað á aila þá, er til skuldar telja hjá honum, að lýsa kröfum sínum og færa sönnur á þær fyrir skiptaráðandanum hér í sýslu áður en liðnir eru 6 mánuðir frá birt- ingu þessarar innköllunar. Skrifstofu Norður-Múlasýslu, Seyðisfirði 15. júní 1903. Jóh. Jóhannesson. Proclama. Með því að Jón hreppstjóri Jónsson frá Sleðbrjót, nú til heimilis áVopna- firði, hefur framselt bú sitt til gjald- þrotaskipta, er hér með samkvæmt lögum 12. apríl 1878 og opnu bréfi 4. janúar 1861 skorað á alla þá, er til skuldar telja hjá honum, að lýsa kröfum sínum og færa sönnur á þær fyrir skiptaráðandanum hér í sýslu áð- ur en liðnir eru 6 mánuðir frá birtingu þessarar innköllunar. Skrifstofu Norður-Múlasýslu, Seyðisfirði 15. júní 1903. Jóh. Jóhannesson. Proclama. Með því að Skúli þurrabúðarmaður Torfason á Vopnafirði hér í sýslu hef- ur framselt bú sitt til gjaldþrotaskipta, er hér með samkvæmt lögum 12. apríl 1878 og opnu bréfi 4. janúar 1861 skorað á alla þá, er til skuldar telja hjá honum, að lýsa kröfum sínum og fæfa sönnur á þær fyrir skiptaráðand- anum hér í sýslu áður en liðnir eru 6 mánuðir frá birtingu þessarar inn- köllunar. Skrifstofu Norður-Múlasýslu, Seyðisfirði 15. júní 1903. Jóh. Jöhannesson. Her er Penge at tjenelíí Erihver, som kan onske at faa sin Livsstilling forbedret, blive gjort be- kjendt med fortjenstfulde Ideer, komme i Forbindelse med Firmaer, der giver höi Provision og gode Betingelser til Agenterne og i det hele taget altid blive holdt bekjendt med hvad der kan tjenes store Penge paa, bor sende sin Adresse og 10 0re i Frimærker til Skandlnavisk Korrespondanceklub, Kjobenhavn K. Lauritz Iversen, Christiania. Telegr. Adr. „Liversen", kaupir fyrir borgun út í hönd og tekur til umboðssölu : Allskonar þorskalýsi og hvallýsi, saltaðan lax, þorsk, heilagfiski, kola, karfa, löngu, keilu og síld; saltað kindaket; allskonar villidýraket; ís- bjarnarhúðir, rostungstennur o. fl. o. fl.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.