Þjóðólfur - 07.08.1903, Side 4
128
um byggt, því rjúpum hefur fækkað, og auk
þess er búið að styggja þessa litlu aumingja
mjög mikið, svo þeir halda optast til uppi
á fjöllum, þegar hægt er veðurs og jarðar
vegna; en auðvitað verður líklega ekki ráð-
in bót á því, að rjúpur verði gæfari nema
helzt með því, að friða þær lengur, eins og
t. d. eg hef bent á hér að framan.
Árið 1894 ritaði Norðlendingur einn í
„Stefni" um þetta mál, og sýndi rækilega
fram á, hve skaðlegt það væri, að friða rjúp-
una ekki lengur en gert væri, en síðar mun
litið hafa verið gert til verndar rjúpunni, og
er sorg að vita til þess. En það er vonandi
að þetta lagist, því að það er þess vert að hugs-
að verði um það, og vonandi að næsta þing
samþykki lög um friðun fugla og bæti þá
við friðunartíma rjúpna, því er eg hef bent
á. Ef þessu heldur áfram, þá getur rjúpan
eyðzt fljótlega, og það væri mjög tilfinn-
anlegt. Það er nógu opt búið að leggja
okkur Islendingum það út til skammar, að
vér eyddum geirfuglinum, þó vér gerðum
eigi hið sama við rjúpuna.
Áður en eg skilst við þetta mál, vil eg
lítið eitt minnast á rjúpnadráp á sunnudög-
um. Það mun því miður allvíða eiga sér
stað, að gengið sé lil rjúpna á sunnudögum,
en slíkt er’ engum ærlegum manni sam-
boðið. Það er nær því hneyksli, að menn
á helgum dögum, þegar þeir eiga að hvíla
sig, skuli drepa blessaða saklausu rjúpuna,
en sem betur fer, eru margir, sem aldrei
skjóta rjúpur á sunnudögum, og hryggjast
af því að vita aðra níðast á rjúpum þann
dag. Það ættu því allir að afleggja slíkan
sið, eða öllu heldur ósið, og í lögum ætti
helzt að leggja sekt við, ef upp kæmist, að
einhverjir gerðu það. Eg ætla svo ekki að
fjölyrða meir um þetta, þótt margt fleira
mætti um það rita. En fái þessi tillaga
mín góðan byr, og geti rutt sér til rúms,
sem eg vona, þá er tilgangi mínum að
nokkru leyti náð.
Ritað í marzm. 1903.
Not ðlendingur.
Ósýnilegir bankamenn,
Vonbrigði allmikil munu það hafa orð-
ið fyrir ýmsa, að hvorugur hlutabanka-
mannanna Arntzen eða Warburg komu nú
með „Ceres". Með síðustu skipsferð frá
Höfn var sú fregn látin berast út um bæ-
inn, að það væri alveg víst, að nú kæmi
Warburg að minnsta kosti með „Ceres“,
og er svo að sjá, sem vinir hans hafi trú-
að. því, en nú brást það. Nú verður sjálf-
sagt sagt, að hann komi áreiðanlega(l) með
„Laura" næst. Svona gekk það allt sum-
arið í fyrra og sumarið 1901, að þá átti
Warburgs að vera von með hverju skipi.
Nú hjálpa ekki lengur neinar blekkingar
í þessu. Þingið verður nú þegar að
taka til sinna ráða og búa sig undir, að
ekkert verði af þessari hlutabankastofnun,
eins og helzt lítur út fyrir, þvíað í næsta
mánuði er frestur þeirra W. og A. loks
útrunninn, og þá er ofseint fyrir lands-
bankann að afla sér þeirra peninga, er
hann nauðsynlega þarfnast, ef ekkert verð-
ur úr þessu hlutabankafyrirtæki. Þingið
getur ekki verið og má ekki vera vonbið-
ill manna þessara lengur.
I dag er flutt frv. inn á þingið af 4
þingm. í n. d. (Tr. G., L. H. Bjarnason,
H. Hafst., H. Þorst.) þess efnis, að lands-
bankinn megi gefa út allt að 1 miljón kr.
í seðlum gegn tryggingu í gullforða o. fl.
Eins og tekið er beinlínis fram í frv. sjálfu
er þetta að eins gert til vonar og vara,
svo framarlega sem ekkert skyldi verða
af hlutabankastofnuninni, svo að lands-
bankinn verði þá ekki alveg á flæðiskeri
staddur.
Nýr landsyfirréttur. Það er
nýlunda, að allur yfirrétturinn verði að
víkja sæti, og nýir menn setjist í öll dóm
arasætin í þessum virðulega rétti. Eins
og menn ef til vill muna sýndu meðdóm-
endurnir í þeim rétti, Jón Jensson og Krist-
ján Jónsson þá óvenjulegu rögg af sér að
höfða mál gegn ábyrgðarmanni þessa blaðs
í vetur út af öldungis meinlausum ummælum,
áhrærandi hið svonefnda veiðlagsskrármál
úr Snæfellsnessýslu. Undirdómarinn (Halld.
Dan.) hefur nú dæmt í báðum þessum
málum fyrir sitt leyti, enafþvíað stefnda
þótti ástæða til að láta endurskoða þá
dóma fyrir æðra rétti, þá kvað nú vera
skipaður splunkurnýr yfirréttur til þeirrar
skoðunargerðar, og í hann skipaðir: Júlí-
us Havsteen amtm. (form.), Árni Thor-
steinsson landfógeti og Eggert Claessen
cand. jur. Er mál Jóns þegar lagt í dóm,
en Kr. kemur síðar.
„Hólar“
komu hingað 3. þ. m. Meðal annara
farþega voru séra Jón Jónsson á Stafafelli,
Karl Einarsson cand. jur. og læknisfrú
Ragnhildur Thorlacius frá Búlandsnesi.
„Ceres“ kom frá Kaupm.höfn í gær.
Með henni komu Halldór Gunnlaugsson
cand. med. & chir., Jakob Havsteen (amt-
manns) og nokkrir enskir ferðamenn.
Innköllun.
Hér með ínnkallast þeir, sem til skulda
eiga að telja í dánarbúi Erlendar Krist-
jánssonar frá Vatnsleysu í Biskupstungum,
er drukknaði 11. apríl þ. á., að lýsa kröf-
um sínum, og færa sönnur á þær við
undirritaðan innan 6 mánaðá frá síðustu
birtingu þessarar auglýsingár. Innan sama
tíma eru þeir sem skulduðu Erlendi heitn-
um, einnig beðnir að gefa sig fram.
Höfða í Biskupstungum 14. júlí 1903.
Viglundur Helgason.
Penlngar hafa fundizt á vinnustofu
minni.
Eyiólfur Porkelsson úrsmiður.
Proclama,
Samkvæmt lögum 12. apríl 1878 er
hér með skorað á alla þá, sem til
skuldar hafa að telja í dánarbúi hrepp-
stjóra Jóns G. Breiðfjöjðs frá Brunna-
stöðum, að lýsa kröfum sínum og sanna
þær fyrir undirrituðum skiptaráðanda
áður en liðnir eru sex mánuðir frá
síðustu birtingu þessarar auglýsingar.
Skrifstofu Gullbr,- og Kjósarsýslu
1. ágúst 1903.
Páli Einarsson.
Heimsins vöndnðnstn og ódýrnstu
Orgel og Piano
fást íyrir milligöngu undirritaðs frá:
Mason & Hamlin Co, Vocalion Organ
Co, W. W. Kimball Co, Cable Co, Beet-
hoven Piano & Organ Co, og Messrs. Corn-
ish & Co.
Orgel úr hnottré með 5 áttundum, tvö-
földu hljóði (122 fjöðrum). o. s. f. kostar í
umbúðum á „Transit" í Kaupmannahöfn
150 krónnr. Enn vandaðra orgel úr hnot-
tré með 5 áttundum. þreföldu hljóði (177
fjöðrum. þar af 28 Contrabassafjaðrir) o. s.
f. kostar í umbúðum í K.höfn 230 krónnr.
Þetta sama orgel kostar hjá Petersen &
Steenstrup f umbúðum 347 krónur og 50
aura. Önnur enn þá fullkomnari orgel
tiltölulega jafn ódýr.
Orgelin eru í minni ábyrgð frá Ameríku
til Kaupmannahafnar, og verða að borgast
í peningum fyrirfram, að undanteknu flutn-
ingsgjaldi frá Kaupm.höfn hingað til lands.
Verðlistar með myndum, ásamt nákvæm-
um upplýsingum, sendast þeim sem óska.
Einka-umboðsmaður á Islandi.
Þorsteinn Arnljótsson.
Sauðanesi.
Leiðarvísir til lífsábyrgðar
fæst ókeypis hjá ritstjórunum og hjá dr J.
Jónassen, sem einnig gefur þeim, sem vilja
tryggja líf sitt, allar nauðsynlegar upplýs-
ingar.
Uppboðsauglýsing.
Þriðjudagana 25. ágúst, i. og 15.
septbr. næstkomandi, verður jörðin
Eyjar í Breiðdalshreppi, 8,4 hndr. að
nýju mati með húsum boðin upp og
seld við síðasta uppboðið.
Uppboðin byrja á hádegi, tvö hin
fyrstu hér á skrifstofunni, hið þriðja á
jörðinni. —
Uppboðsskilmálar verða til sýnis hér
á skrifstofunni degi fyrir fyrsta upp-
boðið. —
Skrifstofa Suður-Múlasýslu.
Eskifirði, 9. júlí 1903.
A. V. Tulinius.
TI L S Ö L U hálf jörðin Hrís-
hóll í Reykhólahreppi í Barðastrandar-
sýslu. 011 jörðin er að fornu mati
16 hundruð. Ágætt tún og góðar út-
heysslægjur. Lysthafendur snúi sér til
hr. hreppstjóra Snæbjarnar Kristjáns-
sonar í Hergilsey eða
Önnu Pétursdóttur
Kristjánsshúsi í Reykjavík.
íslenzk frimerki
kaupir háu verði
Ólafur Svelnsson.
Austnrstræti 5.
NÝKQMNIR
Hattar og Húfur og mikið af
allskonar HÁLSLINI og mörgu fleira.
Einnig margskonar til fata.
44 Hvergi ódýrara. ^
12 BANKASTRÆTI 12.
Guðm. Sigurðsson
klæðskeri.
Til almennings!
Ullarsendingum til tóvinnuvél-
anna við Reykjafoss í Ölfusi veitir
móttöku í Reykjavík hr. kaupm.
Bjorn IKristjánsson,
\
(Vesturgötu 3).
m*~ Sendingrarnar verða að
vera vel merktar.
UNDIRRITAÐUR tek-
ur að sér að innheiinta skuldir,
annast lántöknr í bankanum, kaup og sölu
á fasteigrnum og skipum, gera samninga
og flytja mál fyrir undirrétti.
Heima kl. 11 — 12 og 4 -5.
Lækjargötu 8.
Eggert Claessen.
Cand. Jur.
Uppboðsauglýsing.
Eptir kröfu Guðmundar Jakobsson-
ar trésmiðs hér í bænum, og að und-
angengnu fjárnámi verður húseignin
nr. 59 við Laugaveg, eign Runólfs
Þorsteinssonar, boðin upp við 3 opin-
ber uppboð, sem haldin verða kl. 12
á hádegi laugardaginn 1. ágúst og
föstudagana 14. og 28. s. m., og seld
við síðasta uppboðið ti! lúkningar 1300
kr. veðskuld með vöxtum og kostnaði.
Tvö fyrstu uppboðin verða haldin
hér á skrifstofunni, en hið síðasta á
húseigninni sjálfri.
Söluskilmálar verða ti! sýnis hér á
skrifstofunni degi fyrir hið fyrsta upp-
boð.
Bæjarfógetinn í Reykjavík
23. júlí 1903.
Halldór Danielsson,
Uppboð.
Samkvæmt kröfu H. Th. A. Thom-
sensverzlunar í Reykjavík og að und-
angengnu fjárnámi verður jörðin Eiði
í Seltjarnarneshreppi 7,8 hndr. u.m.
seld við þrjú opinber uppboð, sem
haldin verða mánudagana 7. og 21.
sept. og 5. okt. þ. á. Tvö fyrstu
uppboðin verða haldin á skrifstofu
sýslunnar í Hafnarfirði kl. 12 á hádegi,
en 3. uppboðið á eigninni sjálfri og
byrjar ki. 1 e. h. —
Söluskilmálar verða lagðir fram á
fyrsta uppboðinu.
Skrifstofu Gullbr,- og Kjósarsýslu
31. júlí 1903.
Páll Einarsson.
Skiptafundur
í dánarbúi Páls Jónassonar frá Vör-
um verður haldinn á skrifstofu sýsl-
unnar í Hafnarfirði þriðjudaginn þ. 8.
sept. þ. á. kl. 12 á hádegi. Verður
þá lögð fram skrá yfir eigur og skuld-
ir búsins og skiptum búsins væntan-
lega lokið. Allir skuldheimtumenn
og erfingjar eru aðvaraðir um að mæta.
Skrifstofu Gullbr.- og Kjósarsýslu
1. ágúst 1903.
Páll Einarsson,
Undirritaðir óska áð komast í samband
við einhvern, sem vill senda út góða, ís-
lenzka hesta til þess að selja þá í Dan-
mörku. Meðmæli frá Iðnaðarmannabank-
anum og Verkmannabankanum í Kaup-
mannahöfn.
Chr. Jonsen & J. C. Westergaard
Kvægtorvet, Kjöbenhavn.
Vélataurullurnar
eptirspurðu
komu aptur nú með s/s „Ceres" til
verzlunar
B. H. Bjarnason.
V o 11 o r ð.
Undirrituð hefur um mörg ár þjáðst
af taugaveiklun, höfuðverk,
svefnleysi og öðrum skyldum sjúk-
dómum ; hef eg leitað margra lækna
og notað ýms meðul, en allt árang-
urslaust. Loksin sfór eg að reyna hinn
ekta Kína-lífs-elixír frá Valdemar Pet-
ersen í Frederikshöfn og varð eg þá
þegar vör svo mikils bata, að eg er
sannfærð um, að þetta er hið eina lyf,
sem á við þesskonar sjúkleika.
Mýrarhúsum 27. jan. 1902.
Signý Ólafsdóttir.
*
* *
Ofannefndur sjúklingur, sem að minni
vitund er mjög heilsutæp, hefur að
minni hyggju fengið þá heilsubót,
sem nú er farið að brydda á hjá
henni, að eins með því að nota Kína-
lífs-elixír hr. Valdemars Petersen-
Oll önnur læknishjálp og læknislyf haía
reynzt árangurslaus.
Reykjavík 18. jan. 1902.
Lárus Pálsson .
prakt. læknir.
KÍNA-iTFS-ELIXÍRINN fæst hjá flestum
kaupmönnum á íslandi, án nokkurrar toll-
hækkunar, svo að verðið er öldungis sama
sem fyr, 1 kr. 50 a. flaskan.
Til þess að vera vissir um, að fá hinn
ekta Kína-iífs-elixír, eru kaupendur beðnir
V. P.
að líta vel eptirþví, að -þg standi áflösk-
unum í grænu lakki, og eins eptir hinu skrá-
setta vörumerki áflöskumiðanum: Kínverji
með glas í hendi, og firmanafnið Walde-
mar Petersen.
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Hannes Þorsteinason, cand. theol
Prentsmiðja Þjóðólfs.