Þjóðólfur - 14.08.1903, Side 1

Þjóðólfur - 14.08.1903, Side 1
55, árg. Reykjavík, föstudaginn 14. ágúst 1903. M 33. Hér með tilkynnist almenningi, að öllum óviðkomandi mönnum er stranglega bannað að skjóta fugla i iandareign jarðanna Ártúns, Ár- bæjar og Breiðholts. Reykjavík 19. júlí 1903. Jón Jakobsson. Skýrsla um hag manna og landsgæði í Snæfellsnessýslu. Mörgum er kunnugt, að búnaðarástand- ið 1 Snæfellsnessýslu er mjög bágborið, og að jarðir leggjast þar í eyði, bæði lands- jarðir og bændajarðir. Oddviti sýslunefndarinnar 1 Snæfellsnes- sýslu fékk því einhvern hinn langdugleg- asta og reyndasta búfræðing landsins, Hermann Jónasson bónda á Þingeyrum, til þess að fara um Snæfellsnessýslu á síðasta hausti að kynna sér landshagi og búnaðaihætti í sýslunni. Hermann ritaði síðar skýrslu til sýslunefndarinnar í Snæfellsnessýslu um ferð sína og athug- anir, og hefur oddviti sýslunefndarinnar látið prenta hana. Skýrsla þessi inniheldur mikinn fróðleik um landskosti og hag manna í Snæfells- nessýslu, einkum í sveitunum fyrir sunnan Snæfellsnesfjallgarðinn, Staðarsveit og Breiðuvíkurhrepp; er hún sannarlega þess verð, að almenningur gefi gaum að henni, Og má mikið á henni græða. Menn skyldu ætla, að landsgæði væru eigi mikil í Staðarsveit og Breiðuvíkur- hrepp, þar sem jarðir eru ávallt að leggj- ast þar í eyði, en þó eru landskostir þar nógir og veðráttufar gott. Sveitir þessar horfa við sólu og eru grasgefnar mjög; á meðalmaður hægt með að slá tíu til tuttugu hesta á dag á engjum, og er slíkt sjaldgæft, enda í þeim sveitum sem beztar þykja, svo sem vlða í Árnessýslu. En beztu engjar þar vestra liggja ónotað- ar og túnin þar víða í órækt. Fjárhagar eru góðir í sveitum þessum og sauðfé vænt. Veturgamlar kindur, sem ganga undir fyrsta sumarið, skerast með 60 punda falli. Svona kjarngóðar eru sveitir þess- ar, og þó leggjast þær í eyði. Á síðustu 20 árum hafa 17 jarðir lagzt í eyði í Staðarsveit einni. Mótak er á hverjum bæ, svo hægt er með eldivið. Silungsveiði er víða, útræði þar vestra er eða var þjóðkunnugt, og eggver er þar sumstaðar. Jarðir 1 sýslunni eru lágt metnar og leigumáli hinn bezti. Eignir sýslubúa eru litlar og skuldir miklar, og ber það hvort- tveggja vitni um ráðdeild þeirra og dug. Höfundurinn minnist á ástæðurnar til þess, að hagur manna er svo bágur þar vestra. Utræði var áður fyrri meira »und- ir Jökli« en annarsstaðar á landinu. 1703 var miklu meira fjölmenni að tiltölu í Snæfellsnessýslu en nokkursstaðar annar- staðar hér á landi. Menn stunduðu sjó- inn og slæptust þess 1 milli, en lögðu litla rækt við landbúnaðinn. Þá er harðn- aði í ári á 18. öldinni, varð miklu meiri vesaldómur og neyð á meðal manna í Snæfellsnessýslu en annarsstaðar; margir fóru á vergang og margir dóu af hungri og vesaldóm, og hvergi fækkaði þá fólk- inu svo mikið sem í Snæfellsnessýslu. Þá er menn hættu að sækja sjóróðra »undir Jökli», minnkuðu svo mjög öll viðskipti Snæfellinga við menn i öðrum héruðum landsins, að heita má, að þau hættu. Sveitir þessar komust þá út úr sambandi við önnur héruð. En hinsvegar var meira los komið þar á almenning en annars- staðar í sveitum, svo að menn höfðu hvorki dug né manndáð til þess að stunda þar sveitabúskap með þeirri iðni, sem þurfti og menn gerðu í öðrum sveitum. Snæ- fellsnessýsla rétti því aldrei við, og meira ólag hefur þar verið á búskap, en víða annarsstaðar. Auk þess hafa sýslubúar átt optast nær við hið versta verzlunar- ástand að búa, og á síðustu árum hafa mannsmalar farið um sveitir þessar og smalað þar vinnandi mönnum saman á þilskipin; hafa smalar þessir fengið 10 kr. fyrir hverja mannkind. Þannig hafa um 200 karlmenn farið úr sýslunni á þilskip, sem eru eign utanhéraðsmanna, og er auðsætt, hve þetta hefur hnekkt sveitabúskapnum og velmegun manna þar í sýslunni. Uppeldi barna er líka allt annað en gott þar vestra við sjávarsíðuna, og minn- ist höfundurinn rækilega á það. í stað þess að venja börnin á starfsemi og kenna þeim alla nauðsynlega vinnu venjast þau á slæpingsskap og verða fákunnandi ; kveður svo ramt að þessu, að höfundur- inn getur þess, að æskulýðurinn, einkum í Ólafsvík, kunni eigi almenna heyvinnu. Til þess að ráða bót á þessu leggur höf. til, að reynt sé að bæta uppeldi barna með því, að sumarskóli sé haldinn í Ól- afsvík handa börnum, og þeim sé kennd þar vinna og vanin á starfsemi. Höfundurinn bendir einnig á nokkur önnur góð ráð til þess að koma upp sveitum þessum: 1. Að hraðað verði sem mest lagningu þjóðvegarins frá Hítará vestur í Stykkishólm. 3. Að sýsluvegurinn frá þjóðveginum vestur að Hellurn verði bættur sem fyrst. 3. Að ungir menn sæki búnaðarskólana úr þessum sveitum, og kynni sér búnaðarhætti í öðrum héruðum. 4. Að duglegir menn úr öðrum héruðum séu hvattir með hagfelldum ábúðarkjörum til að flytja inn 1 sýsluna og búsetja sig þar. 5. Að afgjald af sumum þjóðjörðum gangi til jarðabóta. 6. Að á næstu sumr- um vinni eigi færri en níu menn stöðugt að jarðabótum í sýslunni, og að ábúend- ur þeirra jarða, sem unnið er á, þurfi fyrst 1 stað íítið eða ekkert annað að leggja til, en að fæða mennina. Þess skal getið, að tveir bændur hafa flutt austan úr Mýrdal og vestur í Breiðu- vík; þeim vegnar vel, og komu þó þang- að fátækir; segja þeir betra að búa þar en í Skaptafellssýslu og víða annarsstaðar. , Það þarf nýtt blóð og nýjan anda inn í sveitir þessar, nýja menn til þess að um- skapa sveitarandann og vekja þar dug og starfsemi meðal manna. Duglegir menn, sem búskap ætla að byrja, eiga að athuga það, að þar geta þeir fengið góðar landsjóðsjarðir með beztu kostum til ábúðar. Það eru bráðum lagð- ir góðir vegir þangað vestur, og það verður gott að búa í sveitum þessum, þáermann- dáð vex þar í mönnum. Svo var það í forhöld, þá er dáðríkir menn bjuggu þar. B. Th. M. Upp við fossa. Saga eptir Þorgils gjallanda. Akureyri IQ02. Yrkisefni höf. er í þetta skipti hvorki hugðnæmt né fagurt. Það er ást í rneinum og syndir foreldra, er koma í koll börn- unum. Aptur á móti eru náttúrulýsingar höf. og sumar mannlýsingar hans svo frá- bærar, og ritsnillin víða hvar svo mikil og frumleg, að vér teljum oss skylt að vekja athygli þeirra manna á bókinni, sem unna íslenzkri tungu og íslenzkum skáldskap. Margt er það, er bendir á, að aðalkjarni skáldsögunnar sé sannsögulegur í mörgum greinum. Hjúskapur Brands og Gróu mun til skamms tíma ekki hafa verið svo óalmennur hér á landi. Þá munu og margir þeir, sem komnir eru til vits og ára, einhvern tíma á æfinni hafa rekið sig á brot af séra Jósteini eða ef til vill líka hans. Hann hefur á yngri árum verið lítill stillingarmaður og hneigður til ásta og víns, en á fullorðinsárunum gerist hann siðavandur og vel metinn. Geirmundur, launsonur prests með konu einni þar í sókninni, sem hann hefur ekki haft þrek til að meðganga, er lakasta lyndiseinkunn- in í bókinni. Honum er margt vel gefið og lesendurnir ætla lengi vel, að hann muni rétta við eptir hina siðferðislegu skip- reiða, sem eru honum að sumu leyti sjálf- ráðir, sumpart ósjálfráðir. En svo lendir hann á lltt eðlilegum margra dagra brenni- vlnstúr í fjarlægum kaupstað, og dreymir loks draum, sem knýr hann til þess að yfir- gefa sollinn í kaupstaðnum. Því næst rýkur hann út í svartnættið og hverfur sjónum vorum eins og neistarnir undan hófum Rauðs hans. Lýsingin á Þuríði prestsdóttur, ástmey Geirmundar, sem reyn- ist síðarmeir hálfbróðir hennar, er víðast hvar mjög góð, og ber vott um, að höf. hefur átt því láni að fagna um æfina að kynnast sanngöfugum og góðum konum. Frásögnin af ástalífi hennar og döfnun þess er viðkvæm og nærfærnisleg. Þó virðist oss, að ástarhót Geirmundar og Þuríðar í þinghúsinu komi ekki vel heim við lynd- iseinkunn hennar, en aptur á móti hefðu þau hrósað sér prýðisvel á Geirmundi og Gróu. Að vorum dómi tekst höf. einna bezt þar sem hann lætur geðblæ og skaps- höfn karla þeirra og kvenna, er sagan greinir frá, fallast í faðm við íslenzka náttúru og náttúrufyrirbrigði, svo að hvort- tveggja rennur saman í eitt. Þar hefur hann komizt lengst allra íslenzkra sögu- skálda. Sem dæmi má nefna lýsinguna á vornóttunni og ferðalagi Geirmundar og Gróu (35.—36. bls). Það eru og mikil tilþrif í lýsingunni á andvökunótt Gróu og síðustu ástarfundum hennar og Geirmund- ar. Lýsingin á því, hvernig fjallalæðan leggur á flótta fyrir sunnanandvaranum og morgunsárinu er svo forkunnar fögur, að leitun mun á annari betri á íslenzkri tungu. Lestrarmerki í bókinni eru allvíða óeðli- lega sett og prófarkalesturinn miður en skyldi. Réttritunin er og sumstaðar óvið- kunnanleg. Það ber ekki vott um næman lista- smekk bókaútgefenda vorra, að höf. hefur sjálfur orðið að gerast kostnaðarmaður bókarinnar, einkum þegar þess er gætt, hver rit sumir þeirra gefa út. Nú þegar útlit er fyrir, að alþingi ís- lendinga ætli að fara að veita skáldum vorum skáldalaun og framfærslueyri í stór- um stíl, hefði höf. skáldsögu þessarar átt einhverja viðurkenningu skilið af þingi og þjóð ekki síður en flestir hinir, að séra Matthíasi einum undanskildum. En höf. kann auðsjáanlega ekki að bera sig eptir björginni og mun yrkja af því að andinn blæs honum því í brjóst, en ekki til þess að komast á landsjóðinn. Haukur. Frá Höfn. Aíheimsmál. Hvað eptir annað hafa menn reynt að búa til alheimsmál myndað með hljóð- t á k n u m , en tilraunir þessar hafa mis- heppnazt, og þótt sú stund einhverntíma kæmi, að allir töluðu sama mál, myndi ekki á löngu lfða, þar til fjarskyld lífs- kjör og mismunandi menningarstig mundu greina málið sundur í flokka. Aptur á móti gæti það mál, er myndað væri með táknum fyrir hugmynd- ir, staðizt þessa raun, því fráupphafi ver- aldar hefur maðurinn hugsað sér t. d. sól- ina sem sól, þótt hann hafi nefnt hana ýmsum nöfnum á ýmsum tungumálum. Kínverska, sem er æfagamalt mál, er byggð af hugmyndatáknum, en þeim svo afarmörgum (c. 50 þúsund), að engar lík- ur eru til, að hún geti nokkru sinni orð- ið alheims-ritmál. Það er fyrir grúsk í austurlandamálum og þáeinkum kínversku, að Islending- urinn Páll Þorkelsson hefur nú um nokkur ár gert tilraunir til þess að semja þess háttar alheimsmál, eða »ideo- g r a f i « . Fyrir nokkru voru hér 1 blöðunum tals- verðar umræður — í Danmörku — um þessa »ideografi«, en síðan hefur Páll endurbætt hana að miklum mun, gert hana auðlærðari og að öllu óbrotnari. Með því að hann nú sækir um styrk til þingsins til þess að koma máli sínu á framfæri, og hér er ef til vill að ræða um mjög »interessant« efni, virðist sjálf- sagt, að lesendum Þjóðólfs gefist kostur á að kynna sér mann og málefnið nánar. Aðaltáknið er hringurinn og byggist allt málið á honum. Frumtáknin eru fimm: hringúrinn, hálfhringur, tveir hálf- hringar (co), lína og depill. Alls eru tákn- in 65 að tölu. Við höfuðtáknin eru svo sett merki, er sýna hvort um naínorð, sögn og hvaða tíð sagnar er að ræða. Hringurinn t. d. þýðir byrjun eða upphaf (hið »alnæma«). Skipti menn nú hringnum í fjóra jafna höfuðparta, koma fram 4 hlutar hrings, er hver um sig táknar eitt af höfuðtilveru- skilyrðum: hafa, vera, byrja og enda.

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.