Þjóðólfur - 28.08.1903, Page 3
139
og að útvega bækur þær, er getur um í 2.
gr., greiðist úr landssjóði.
44. Lög um stofnun lagaskóla d íslandi.
1. gr. í Reykjavík skal stofnaður laga-
skóli.
2. gr. Við skóla þennan skal vera einn
fastur kennari, skipaður af konungi, og hef-
ur hann 4000 kr. árlega að launum. Er
hann jafnframt forstöðumaður skólans. Dóm-
arar landsyfirréttarins skulu hafa kennslu á
hendi við skólann, og hafa hvor um sig 500
kr. árlega þóknun fyrir þann starfa, til við-
bótar við laun sín. Fyrst um sinn, þangað
til yfirdómaraembættin losna, má verja allt
að 2,500 kr. til aukakennslu.
3. gr. Ráðherrann semur reglugerð fyrir
skólann.
4. gr. Þeir einir, sem leysa af hendi próf
við skólann, eiga aðgang að embættum þeim
hér á landi, er lögfræðingar skipa. Þó nær
ákvæði þetta eigi til þeirra manna, sem tek-
ið hafá lögfræðispróf við Kaupmannahafnar-
háskóla, áður en 3 ár eru liðin frá því, er
lagaskólinn tekur til starfa.
5. gr. Öll útgjöld til skólans greiðast úr
landssjóði.
Skólinn tekur til starfa, þegar fé er veitt
til hans á fjárlögum.
45. L'og um leynilegar kosningar og hlutfalls-
kosningar til bcejatst/órna í kaupstödum.
46. Lög um fólksinnflutning til íslands.
1. gr. Stjórninni veitist heimild til að verja
úr landssjóði allt að 5,000 kr. til þess að
greiða fyrir innflutningi útlendinga til íslands,
einkum frá Norðurlöndum.
2. gr. Þeim innflytjendum, er setjast vilja
að á íslandi og byrja þar búskap, má stjórn-
in veita til eignar og umráða ákveðna tölu
dagsláttna af óræktuðu landi á íslenzkum
þjóðjörðum, sér í lagi eyðijörðum, samkvæmt
ákveðnum reglum, sem stjórnin sjálf setur
um ræktun landsins og auglýsir fyrir fram.
47. Lög um breytingar d 1. gr. í lögurn nr.
24 frd 2. okt. i8qi (um að laun bókara
við landsbankann séu 3500 kr.).
48. Lóg um heimild til að kaufa lönd til
skógarfriðunar og skóggrceðslu (jörðina
Hallormsstað f Suður-Múlasýslu, jörðina
VagliríFnjóskadalog Hálsskógí Fnjóska-
dal).
49. Lög um lífsdbyrgð fyrir sjómenn, er
stunda fiskiveiðar d pilskipum.
1. gr. Það skal eptirleiðis vera skylda að
vátryggja líf hérlendra sjómanna, er fiski-
veiðar stunda á þilskipum hér við land, á
þann hátt, er segir í lögum þessum.
2. gr. Þegar lögskráð er til skiprúms á
þilskipum, er til fiskiveiða ganga, skal skrán-
ingarstjóri á sérstaka skrá rita nöfn, heim-
ili, aldur og stöðu skipverja þeirra, er i.gr.
nær til, hvort heldur þeir eru ráðnir háset-
ar, stýrimenn eða skipstjórar og skal hann
svo fljótt, sem unnt er, senda skrána vátrygg-
íngarstjórn þeirri, sem nefnd er í 4. gr. laga
þessara.
3. gr. Hver sá sjómaður, sem vátryggður
er eptir lögum þessum, er skyldur að greiða
í vátryggingarsjóð þann, er síðar getur um,
gjald er nemur 15 aurum fyrir hverja viku
vetrarvertíðar, sem hann er lögskráður fyrir,
og 10 aura fyrir hverja viku vorvertíðar og
sumarvertíðar, og reiknast gjaldið frá lög-
skráningardegi. Utgerðarmaður greiðir skrán-
ingarstjóra gjald þetta fyrir skipverja sína,
gegn endurgjaldi af hlut þeirra eða kaupi,
en auk þess greiðir hann frá sjálfum sér til
vátryggingarsjóðsins helming á móts við gjald
skipverjanna allra, og innheimtir skráning-
arstjóri einnig það gjald. Gjald þetta greið-
ist, þegar lögskráningin fer fram, og má taka
það lögtaki. Skráningarstjóri skilar gjald-
inu í vátryggingarsjóð fyrir lok september-
mánaðar ár hvert að frádregnum 2% inn-
heimtulaunum.
4. gr. Vátryggingarfélaginu skal stjórnað
af 3 mönnum undir yfirumsjón landstjórn-
arinnar. Landstjórnin útnefnir einn mann í
stjórn félagsins; fjölmennasta útgerðarmanna-
félag landsins kýs annan, en fjölmennasta
hásetafélagið hinn þriðja. Á ári hverju fer
einn nefndarmanna [frá, f fyrsta skipti eptir
hlutkesti, og er þá kosinn eða skipaður mað-
ur f hans stað, en endurkjósa eða skipa má
þó hinn sama. Deyi stjórnarnefndarmaður
eða fari frá af öðrum ástæðum milli kosn-
inga, skipar landstjórnin mann til bráða-
birgða í nefndina í hans stað, þangáð til
nýr nefndarmaður getur orðið löglega skip-
aður. Landstjórnin getur og vikið nefndar-
manni frá, en gerir þá jafnframt ráðstafanir
til, að nýr maður komi í hans stað. I ó-
makslaun og til kostnaðar má með samþykki
landstjórnarinnar verja allt að 400 kr. á ári
i
úr vátryggingarsjóði.
5. gr. Nú drukknar sjómaður eða deyr
-r*
af slysförum á því tímabili, er hann greiðir
vátryggingargjald fyrir, samkvæmt 3. gr., og
skal þá vátryggingarsjóður greiða til eptir-
látinna vandamanna hans, ekkju, barna, for-
eldra eða systkina 100 kr. á árijnæstu 4 ár.
Séu engir slíkir vandamenn til, eignast
vátryggingarsjóður upphæðina, nema öðru
vísi sé ákveðið í lögmætri erfðaskrá.’,
Séu engir slíkir vandamenn til, fgreiðist
árgjaldið þeim, sem maðurinn hefur ákveð-
ið fyrir skráningarstjóra eða í lögmætri erfða-
skrá, að þess skuli njóta, en hafi hann enga
ákvörðun gert í þessu tilliti, eignast vátrygg-
ingarsjóður upphæðina.
50. Lög um verzlunarskrdr, firmu 'og prók-
úru-umboð.
51. Lóg um eptirlaun. Þau eru prentuð ann-
arsstaðar f þessu blaði.
52. Lög urn breyting d lögum 11. nóv. 18QQ
um útflutningsgjald af hvalafurðum.
Af hverri tunnu hvallýsis skal greiða út-
flutningsgjald kr. 1,00.
53. Lög um gagnfræðaskóla d Akuteyti.
1. gr. Gagnfræðaskóla skal reisa á Ak-
ureyri, og má verja til skólahússbyggingar
og muna allt að 67,000 kr. úr landssjóði.
3. gr. Kennarar skólans eru 3, og er einn
þeirra jafnframt skólastjóri. Hefur hann á
hendi aðalumsjón með nemendum skólans,
húsum hans og áhöldum. — Hann hefur að
launum 3000 krónur á ári, og auk þess leigu-
lausan bústað í skólahúsinu. Fyrsti kennari
hefur 2000 kr. óg annar kennari 1600 kr. að
launum á ári. Fyrsti og annar kennari
Möðruvallaskólans hafa 400 kr. árlega upp-
bót hvor fyrir flutninginn til Akureyrar.
4. gr. I skólanum skulu vera allt að 45
—50 heimavistir. Skulu nemendur greiða
sanngjarna borgun fyrir þær eptir þvf, sem
nánar verður ákveðið í reglugerð skólans.
54. Lög um skyldu embcettismanna til að
safna sér ellistyrk eða kaupa sér geymd-
an Rfeyri.
1. gr. Hver sá, er fengið hefur konungs-
veitingu fyrir embætti og fær laun úr lands-
sjóði, svo og læknar í 4. og 5. flokki, skal
safna sér ellistyrk eða kaupa sér geymdan
lífeyri, svo sem lög þessi ákveða.
2. gr. Til að safna sér ellistyrk skal em-
bættismaðurinn árlega verja 2% af launum
sfnum, en ef hann kýs heldur að kaupa
geymdan lffeyri, er allur missist, efkaupandi
lífeyrisins deyr áður en til hans er tekið,
skal hann árlega verja til þess U/3% af
launum sínum.
3. gr. Ellistyrkur sá, er safnast, skal geym-
ast og ávaxtast í einhverjum þeim sjóði, er
landstj-órnin telur gildan, en sé keypt trygg-
ing fyrir lífeyri, þá skal gera það f lífsábyrgð-
arstofnun ríkisins. Eignarskírteini fyrir elli-
styrknum eða lífeyristryggingunni geymist
lijá landstjórninni.
4. gr. Upphæð þeirri, sem embættismað-
ur á að gjalda eptir lögum þessum, skal
halda eptir af launum hans.
5- gr. Þegar embættismaður fær lausn
frá embætti, getur hann farið að fá alla vexti
af ellistyrknum og farið að taka til lífeyris-
ins. Svo getur hann þá og keypt sér æfi-
langan lífeyri fyrir ellistyrkinn allan eða
hluta af honum. Sá ellistyrkur, sem maður
á, er hann deyr, gengur til dánarbús hans
sem önnur eign.
6. gr. Lög þessi ná ekki til þeirra em-
bættismanna, sem komnir eru í embætti,
þegar þau öðlast gildi.
55. Lög um túngirðingar. Verður getið síðar.
56. Lög utn heitnild til Idntöku fyrir land-
sjóð.
Landstjórninni veitist heimild til að taka
bráðabirgðarlán fyrir landsjóð allt að 500,000
kr. gegn tryggingu í eignum eða tekjum
íandsjóðs.
57. Fjdrlög IQ04 og IQ05.
Alþingi var sagt upp kl. 5 síðdegis
í fyrra dag. Hefur það afgreitt alls 57
lagafrumvörp, og er það meira, en nokkru
sinni hefur áður verið. Mun tala frum-
varpanna frá þinginu áður hafa orðið hæst
54. Af þessum 57 frv., er samþykkt hafa
verið eru 15 stjórnarfrumvörp, en 42 þing-
mannafrumvörp. Auk þess hefur þingið
afgreitt 8 þingsályktunartillögur. 4 stjórn-
arfrumvörp hafa verið felld og 19 þingm.-
frumvörp, en 8 hafa ekki órðið útrædd
og 1 tekið aptur,
Þá er á allt er litið verður ekki annað
sagt, en að þetta þing hafi verið mjög af-
kastamikið, ekki að eins að því, er mála-
fjölda þann snertir, er það hefur .haft til
meðferðar, heldur að því leyti, hversu mjög
þýðingarmikil mál nú voru afgreidd, auk
stjórnarskrárinnar, er þetta þing bar gæfu
til að samþykkja til fullnaðar eptir langa
og stranga baráttu. Og hvað sem ann-
ars kann að ver8a sagt um afrek þessa
þings, og hversu margt, sem því verður
fundið til foráttu, þá verður því ekki neit-
að, að það hafi unnið margt og mikið
gott, landinu til hags og heilla, og mun
þess nánar minnst síðar.
„Ceres“
kom úr hringferð sinni kringum land
22. þ. m. og með henni fjöldi farþega,
þar á meðal Guðm. héraðslæknir Björns-
son og Jón kaupm. Þórðarson, er brugðið
höfðu sér snöggva ferð með skipinu, séra
Bjarni Þorsteinsson frá Siglufirði, séra
Þorleifur Jónsson á Skinnastað, Jón Jóns-
son kaupstj. (frá Múla), Guðm. Guðmunds-
son héraðslæknir frá Stykkishólmi, frú
Guðlaug Jensdóttir, séra Magnús Magnús-
son frá Isafirði, frk. Ingveldur Matthíasd.
(skálds) frá Akureyri o. fl.
»Ceres« fór aptur héðan áleiðis til
Hafnar í gærkveldi, og með henni um
xoo farþega, þar á meðal margir stúdent-
ar, bæði ýmsir, er hingað komu frá Höfn
í vor, og aðrir, er útskrifuðust úr lærða
skólanum í vor. Ennfremur fóru með skip-
inu dr. Valtýr Guðmundsson, Bogi Mel-
steð cand. mag. og Jón Hermannsson assi-
stent á stjórnarskrifstofunni.
„Laura“
kom hingað frá Höfn 23. þ. m. og með
henni margir farþegar, þar á meðal frú
Sigríður Magnússon frá Cambridge, frk.
Ingibjörg Bjarnason, frk. Ingibjörg Guð-
brandsdóttir og Sigurbjörg Þorláksdóttir,
Kristján O. Þorgrímsson kaupm. með dóttur
sinni, frú Erica Gíslason, Sigvaldi stúdent
Stefánsson úr för til Danmerkur og Sví-
þjóðar, Árni Einarsson verzlunarm., Karl
Lárusson verzlm. og frá Vesturheimi frk.
Guðrún Indriðadóttir (endurskoðara). Frá
Englandi kom dr. Jón Stefánsson og í för
með honum nafnkenndur enskur skáld-
sagnahöfundur Hall Caine, frá eyjunni
Mön. Er hann einna frægastur núlifandi
enskra skáldsagnahöfunda, og hefur ritað
margar bækur, er fengið hafa mjög mikla
útbreiðslu og verið þýddar á önnur tungu-
mál, þar á meðal margar á dönsku. Ein
saga hans gerist að rniklu leyti á íslandi.
Mjög hljótt er um þá Warburg og Arnt-
zen, heyrist hvorki stun né hósti frá þeim.
Mannalát.
Hinn 24. f. m. dó á Akureyrarspítala
FriðrikSigurðsson 24 ára, mesti
efnispiltur, hafði gengið um tíma hér í
lærða skólann, og var útskrifaður af Möðru-
vallaskóla með ágætiseinkunn. Hann dó
úr berklaveiki.
Hinn 27. f. m. dó Sigfús Einarsson
Thorlacius bóndi í Núpufelli í Eyja-
firði, faðir Jóhannesar kennara í Flensborg
og Einars bónda á Stokkahlöðum, greind-
ur maður og merkur í sinni stétt. Hann
var áttræður að aldri.
Hinn 7. þ. m. dó á Akureyri Skúli
S k ú 1 a s 0 n, maður skurðhagur, og talinn
af sumum listamaður. Hann^ dvaldi um
tíma í Höín og hafði þá styrk frá alþingi.
Hann varð 36 ára gamall.
Frá 1. septbr. næstkomandi verð-
nr landsbankinn opinn kl. 11 f. h.—
kl. 2. e. li. hvern virkan dag. Banka-
stjórnin er til viðtals kl. 12—1.
Landsbankinn, Reykjavík 27. ágúst 1993.
Tr. Gunnarsson,
m — n « ■!—— ■■—■■■■■—iTiTnmn—
Herbergi fyrir einhleypan til leigu frá
1. sept. í Austurst. 10.
HÚS tll sölu á bezta stað í
AUSTURSTRÆTI. Semja
má við cand. jur. Jón Þorkelsson.
Elegant Reiðhúfur
fyrir DÖMUR eru nýkomnar. Einnig
töluvert af Drengja- og Telpu-
húfum.
Guðm. Sigurðsson,
klæðskeri.
Samkvæmt lögum 12. apríl 1878
og opnu bréfi 4. janúar 1861 er hér
með skorað á alla þá, sem telja til
skuldar í dánarbúi Erlendar Hákonar-
sonar, sjómanns hér í bænum, er fórst
á fiskiskipinu „Orient“ í síðastl. apríl-
mánuði, að lýsa kröfum síunrn og sanna
þær fyrir skiptaráðandanum í Reykja-
vík innan 6 mánaða frá síðustu birt-
ingu þessarar auglýsingar.
Með sama fyrirvara er skorað á erf-
ingja nefnds sjómanns, að gefa sig
fram og sanna erfðarétt sinn.
Bæjarfógetinn í Reykjavík
20. ágúst 1903.
Halldör Danielsson.
NÝKOMNIR
Hattar og Húfur og mikið af
allskonar HÁLSLÍNI og mörgu fleira.
Einnig margskonar til fata.
4i Hvergi ódýrara. ►►
w
12 BANKASTBÆTI 12.
Guðm. Sigurðsson
klæðskeri.
Samkvæmt lögum 12. apríl 1878
og opnu bréfi 4. janúar 1861 er hér
með skorað á alla þá, sem telja til
skuldar í dánarbúi Sigtryggs Sigurðs-
sonar lyfsölumanns hér í bænum, sem
dó 15. f. m., að lýsa kröfum sínum
og sanna þær fyrir skiptaráðandanum
í Reykjavík innan 6 mánaða frá síð-
ustu birtingu þessarar auglýsingar.
Með sama fyrirvara er skorað á erf-
ingja nefnds lyfsölumanns, að gefa sig
fram og sanna erfðarétt sinn.
Bæjarfógetinn í Reykjavík
20. ágúst 1903.
Halldór Danielsson.
VOTTORÐ.
Eg undirritaður, sem í mörg ár hef
þjáðst mjög af sjósóit og árangurs-
laust leitað ýrnsra lækna, get vottað
það, að eg hef reynt Kína-lífs-elixír
sem ágætt meðal við sjósótt.
Tungu í Fljótshlíð 2. febr. 1897.
Guðjón Jónsson.
KÍNA-LIFS-ELIXÍRINN fæsthjá flestum
kauptnönnum á fslandi, án nokkurrar toll-
hækkunar, svo að verðiðeröldungis sama
sem fyr, 1 kr. 50 a. flaskan.
Til þess að vera vissir um, að fá hinn
ekta Kína-lífs-elixír, eru kaupendur beðnir
V.P.
að líta vel eptirþví, að —þ ’ standi á flösk-
unum 1 grænu lakki, og eins eptir hinu skrá-
setta vörumerki á flöskumiðanum: Kínverji
með glas í hendi, og firmanafnið Walde-
mar Petersen.
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Hannes Þorsteinsson, cand. theol.
Prentsmiðja Þjóðólfs.