Þjóðólfur - 11.09.1903, Qupperneq 4
148
Proclama.
Hér með er samkvæmt lögum 12.
apríl 1878 og opnu bréfi 4. janúar
1861, skorað á alla, er telja til skuld-
ar í dánarbúi Jóns heitins Jónssonar,
fyrrum hreppstjóra á Narfeyri, að lýsa
kröfum sínum og færa sönnur á þær
fyrir skiptaráðandanum hér í sýslu áð-
ur en liðnir eru 12 mánuðir frá sein-
ustu birtingu auglýsingar þessarar.
Með sama fyrirvara er skorað á erf-
ingja hins látna að gefa sig fram.
Erfingjar hafa eigi gengizt við arfi
og skuldum.
Skrifstofu Snæfellsness- og Hnappa-
dalssýslu.
Stykkishólmi 1. sept. 1903.
Lárus H. Bjarnason.
2ÞILSKIP í ágætu
standi, með allri útreiðslu, eru
tii sölu með mjög góðum kjör-
um. — Kristján Þorgrímsson semur
um kaupin.
Kvöld- og síðdegiskennsla.
Unglingar (og fullorðnir) geta fengið hjá
mér mjög ódýrar kvöld- og síðdegiskennslu-
stundir fyrst um sinn, í öllum venjulegum
alþýðuskólagreinum, einkum mannkynssögu
(Isl. Norðurl. bókm. og lista), náttórusögu,
eðlisfræði og landafræði, kristilegum fræð-
um o. fl. Kennslan verður aðallega munn-
leg (líkt eins og á lýðskólum) og þarf því
engan undirbúningslestur. Heppileg tilsögn
fyrir iðnaðarnema. Unglingar úr barnaskól-
anum geta einnig notað kennslu þessa. Nán-
ar verður ákveðið hvar og hvenær kennslan
fer fram.
Laugaveg 49. fiuðm. Magnússon,
FJármark Árna Jónssonar, Gríms-
stöðum við Reykjavík er: 2 standfj. apt.
h., sneiðrif. fr. v. biti aptan.
Uppboðsauglýsing.
Samkvæmt kröfu L. Popps verzl-
unar á Sauðárkrók og að undangengnu
fjárnámi, verður íbúðarhús Tómasar
söðlasmiðs ísleikssonar í Kolkuósi selt
við 3 opinber uppboð, er haldin verða
laugardagana 29. ágúst, 5. ogi2. sept-
ember. næstk..
Uppboðin byrja kl. 2 e. h. og verða
2 fyrstu uppboðin haldin á skrifstofu
sýslunnar, en hið þriðja í sjálfri hús-
eigninni.
Söluskilmálar verða til sýnis á upp-
boðunum.
Skrifst. Skagafj.sýslu IO. ág. 1903.
Eggert Briem.
Skiptafundur
í dánarbúi fröken Þuríðar Asmunds-
dóttur Johnsen, sem dó 7. okt. f. á.
að Bjóluhjáleigu í Rangárvallasýslu,
verður haldinn á bæjarþingstofunni
mánudaginn 9. nóvember þ. á. á há-
degi.
Skorað er á erfingja að mæta á
skiptafundinum eða láta mæta með
umboði fyrir sig, til að skera úr, hvort
arfleiðslugerningur hinnarlátnu til handa
systur hennar, sem er glataður, verði
tekinn gildur.
Bæjarfógetinn í Reykjavik
3. septbr. 1903.
Halldór Danielsson.
A T V I N N A
óskast við skrifstofustörf, barnakennslu eða
eitthvað því um líkt fyrri partinn í vetur.
Maðurinn er reglusamur og vel hæfur og hef-
ur áður stundað þessi störf. Ritstj. vísar á.
l~vG leyfi mér hér með að tilkynna mínum heiðruðu viðskiptavinum, að
eg hef selt og afhent syni mínum, herra Jes Zimsen, verzlun mína í Hafnar-
stræti nr. 23 hér í bænum með húsum, vörubirgðum og útistandandi skuldum
frá I. janúar þ. árs og heldur hann framvegis verzluninni áfram undir sínu
nafni. Sömuleiðis hefur hann tekið að sér að greiða skuldir þær, er hvíla á
verzluninni utanlands og innan.
Um leið nota eg tækifærið til að þakka öllum viðskiptavinum mínum
nær og fjær, fyrir þá velvild og tiltrú, sem þeir hafa auðsýnt mér umliðinn
tíma og sem jeg vona að þeir framvegis láti son minn verða aðnjótandi.
Reykjavík 7. september 1903.
V irðingarfyllst.
C. ZIM8EN.
SaMKVÆMT ofanritaðri auglýsingu hef eg nú tekið við verzlun föð-
ur míns, sem heldur óbreytt áfram undir mínu nafni.
Eins og kunnugt er, hef eg í nokkur ár veitt þessari verzlun forstöðu,
og vona því, að hinir heiðruðu viðskiptavinir verzlunarinnar láti mig sjálfan
framvegis njóta hinnar sömu velvildar og tiltrúar, er eg hef hlotið sem forstöðu-
maður hennar.
Reykjavík d. u. s.
Vi rðingarfyllst.
JES ZIMSEN.
Þad kostar ekkert
að líta á hin nýjustu sýnishorn frá
Varde klæðaverksmiðju,
sem vinnur alls konar fataefni, bæði úr ALULL ogull og tuskum
Tauin hafa fallegt Útlit, eru mjög sterk og með ekta lit.
Að láta þessa verksmiðju vinna fyrir sig er því BEINN GRÓÐI.
Allar hyggnari húsfrúr kynna sér verðlista og sýnishorn verksmiðjunnar,
áður en þær senda sínar ullarsendingar á aðra staði. — Mörg vottorð um á-
gæti tauanna, úr fjarlægum sveitum.
Aðalumboðsmaður beztu klæðaverksmiðju er
Jón Helgason.
kaupmaður.
öll afgreiðsla á Laugaveg 27, Rvík.
Motor-bátar.
Undirskrifa.ður smíðar og selur lysthafendum báta til fiskiveiða með mótor-vél-
um af sömu stærð og afli vélanna og tíðkanlegir eru í Danmörku, og eru vélarnar
frá áreiðanlegri vélaverksmiðju í Friðrikshavn.
Menn geta fengið bátana af ýmsri stærð, en taka verður fram, hve mikinn
krapt vélarnar eigi að hafa, og verða þeir seldir með uppsettum vélunum í, ogsend-
ir á hverja þá höfn, sem strandferðaskipin koma á.
Bátarnir verða sérstaklega vandaðir að verki og lagi, og vildi eg leiða athygli
ísfirðinga, að snúa sér til Árna kaupmanns Sveinssonar, sem gefur frekari upplýs-
ingar og tekur á móti pöntunum og annast um sölu og andvirði bátanna. Trygging
er fyrir, að bátarnir eru mjög örskreiðir.
Reykjavík 13. ágúst 1903.
Vesturgötu Æ 51 b.
Bjarni Þorkelsson,
skipasmiður.
Til almennings!
Ullarsendingum til tóvinnuvél-
anna við Reykjafoss í Ölfusi veitir
móttöku í Reykjavík hr. kaupm.
Björn Kristjánsson,
(Vesturgötu 3).
WF~ Sendingarnar verða að
vera vel merktar.
Hér með auglýsist, að eg banna öll-
um að setja upp skip til aðgerða ámínu
landi eða leggja skipum við akkeri fyrir
mlnu landi, nema leyfis hjá mér sé áður
leitað til þess.
Gufunesi 4. sept. 1903.
Filippus Filippusson.
Proclama.
Hér með er, samkvæmt lögum 12.
apríl 1878 og opnu bréfi 4. janúar
1861, skorað á alla, erteljatil skulda í
dánarbúi séra Jóseps K. Hjörleifssonar
frá Breiðabólsstað, er andaðist 6. maí
þ. á., að lýsa kröfum sínum og sanna
þær fyrir skiptaráðandanum hér í sýslu
áður en liðnir eru 6 mánuðir frá sein-
ustu birtingu auglýsingar þessarar.
Erfingjar gangast ekki við arfi og
skuldum.
Skrifstofu Snæfellsness- og Hnappa-
dalssýslu.
Stykkishólmi 1. sept. 1903.
Lárus H. Bjarnason.
Nýjar birgðir af
Mustads norska Margarine
komu í verzlun mína með s/s »Laura«
um daginn, og mæli eg mjög með
því þar eð það er hið bezta.
Gunnar Einarsson.
Elegant Reiðhúfur
fyrir DÖMUR eru nýkomnar. Einnig
töluvert af Drengja- og Telpu-
húfum.
Guðm. Sigupðsson,
klseðskeri.
NÝKOMNIR
Hattar og Hiifur og mikið af
allskonar HÁLSLÍNI og mörgu fleira.
Einnig margskonar til fata.
44 Hvergi ódýrara. ►►
--------yr--------
12 BANKASTRÆTI 12.
Guðm. Sigurðsson
klæðskeri.
Herbergi til leigu nú þegar í Veltu-
sundi 3.
Fortepiano mjög vandað og gott er
til sölu með mjög góðu verði. Ritstj. vis-
ar á.
M USTADS
M
1 T 1ARGARINE
er viðurkennt hið bezta. Það fæst
ætíð í verzlun.
Jóns Þórðarsonar.
V o 11 o r ð .
Undirrituð hefur um mörg ár þjáðst
af taugaveiklun, höfuðverk,
svefnieysi og öðrum skyldum sjúk-
dómum ; hef eg leitað margra lækna
og notað ýms meðul, en allt árang-
urslaust. Loksins fór eg að reyna hinn
ekta Kína-lífs-elixír frá Valdemar Pet-
ersen í Frederikshöfn og varð eg þá
þegar vör svo mikils bata, að eg er
sannfærð um, að þetta er hið eina lyf,
sem á við þesskonar sjúkleika.
Mýrarhúsum 27. jan. 1902.
Signý Ólafsdóttir.
*
* *
Ofannefndur sjúklingur, sem að minni
vitund er mjög heilsutæp, hefur að
minni hyggju fengið þá heilsubót,
sem nú er farið að brydda á hjá
henni, að eins með því að nota Kína-
lífs-elixír hr. Vaidemars Petersen-
Öll önnur læknishj-álp og iæknislyf haia
reynzt árangurslaus.
Reykjavík 18. jan. 1902.
Lárus Pálsson.
prakt. læknir.
KÍNA-LIFS-ELIXÍRINN fæsthjá flestum
katipmönnum á íslandi, án nokkurrar toll-
hækkunar, svo að verðiðeröidungis sama
sem fyr, 1 kr. 50 a. flaskan.
Til þess að vera vissir um, að fá hinn
ekta Kína-lífs-elixír, eru kaupendur beðnir
V.P.
að líta vel eptirþví, að F standi á fiösk-
unum í grænu lakki, og eins eptir hinu skrá-
setta vörumerki áflöskumiðanum: Kínveiji
með glas 1 hendi, og firmanafnið VValde-
mar Petersen.
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Hannes Þorateinsson, cand. thcol.
Prentsmiðja Þjóðólfs.