Þjóðólfur - 11.11.1904, Blaðsíða 4
192
Lærisveinn.
Plantari.
I fjárlögunum um árin 1904—05 var
veittur styrkur ( 3 ár til þess að kenna
ungum mönnum gróðursetningu plantna,
300 kr. handa hverjum lærisveini. Handa
einum er styrkurinn óveittur enn.
Umsóknir urn þennan styrk ber að
stíla til ráðherra Islands, en senda
okkur, er hér ritum nöfn vor undir. I
sóknarskjalinu verður að skýra greinilega
frá aldri og skólalærdómi umsækjanda,
Og hverja iðn hann að undanförnu hefur
rekið og því um líkt; sókninni verður að
fylgja heiibrigðisvottorð og önnur vottorð
málsmetandi manna um hæfiieika um-
sækjenda Og annað, sem hann snertir.
Sá, er hiýtur styrkinn, er þar með skyld-
ur til að nema nátn sitt þar sem tiltekið
verður, og fær hann síðar gróðursetjara-
stöðu við skóggræðsluna á íslandi, ef
hann að afloknu námi er talinn fær um
það.
Umsóknir eiga að vera komnar til okk-
ar til Kaupmannahafnar innan 31. desem-
ber þ. á.
Kaupmannahöfn, í október 1904.
I stjórn skóggræðslumála Islands.
C. W. Prytz. C. Ryder.
Laugardaginn 12. nóv. sýndar lif—
andi myndir.
Nýtt úr Japanska stríðinu.
Sjá götuauglýsingar.
Ól. Johnson & Co.
Alþýðufræðsla stúdentafélagsins.
Fyrirlestur í Iðnó sunnud. 13. þ.
m. kl. 5 e. h.
Bjarni Jónsson frá Vogi: Leikur.
Handelsakademiet
„Kjöbenhavn“
Östergade 54.
Bestyrer \ P. Bokkenheuser. Inspektör '. C.
A. Harvig. (Efterslægtens Skole).
Nye 12, 6 og 4 Mdrs. Kursus i alle
Handelsfag saasom: Sprog, Bogholderi,
Stenograji, Maskinskr. etc. begynder i
JVovbr., Ðecbr. og Januar. 12 og 6 Mdrs.
Kursus 15 Kr. pr. Md. 4 Mdrs. Kursus
jj Kr. for et helt Kursus. Akademiet er
Repræsentant. for Pitman’s Metropolitan
School, London.
Herr Bankdirektör E. Schou, Reykjavik
udleverer Program samt meddeler nær-
mere Oplysninger.
Vel skotna
Fálka og Himbrima
kaupir
Júlfus Jörgensen.
Proclama.
Hér með er skorað á alla þá, er
telja til skuldar í dánar- og félagsbúi
mínu og manns mfns heitins, héraðs-
læknis Tómasar Helgasonar á Fossi í
Skaptafellssýslu, að koma fram með
kröfur sínar og sanna þær fyrir mér
innan 6 mánaða frá síðustu (3.) birt-
ingu þessarar auglýsingar.
Reykjavík 22. október 1904.
Sigríður Helgason.
Proclama.
Samkvæmt opnu bréfi 4. jan. 1861
sbr. skiptalög 12. apríl 1878, er hér
með skorað á alla þá, er til skulda
telja í dánarbúi Halldórs snikkara
Halldórssonar frá Vatneyri við Patreks-
fjörð, er lést á sjúkrahúsinu á Geirs-
eyri hinn 19. september þ.á. að gefa
sig fram og sanna skuldakröfur sínar
fyrir undirrituðum innan 6 mánaða frá
síðustu (3.) birtingu auglýsingar þess-
arar
Skrifstofu Barðastrandarsýslu
31. okt. 1904.
Halldór Bjarnason.
\ Heimsins fullkomnustu fjaðraorgel ;
• og ódýrustu eptir gæöum, $
fást hjá undirrituðum frá: Mason & Hamlin O., Yocalion Organ O., W. W. J
Kimbail O., Cable C°., Beethoven Organ C°. og Cornisii & C°. o. fl. {
Til dæmis má taka: 1. Orgel úr hnottré, sterkt og vel gert, 45V2” á lengd, •
22” á þýkkt, með 5 áttundum, tvöföldu hljóði (122 fjöðrum) áttundatengslum •
(„kúplum"), 10 hljóðfjölgunum, kostar hjá mér komið til Kaupmannahafnar k
150 kr. 2. Stofuorgel úr hnottré, mjög laglegt, með háu baki og stórum, j
slípuðum spegli (, 3 al. á hæð, 45V=” á breidd og 22” á þykkt, með 5 áttundum, ♦
159 fjöðrum, áttundatengslum, Vox humana, 13 hljóðfjölgunum, kostar hjá Ý
mér á sama stað 200 kr. 3. Kapelluorgel úr hnottré, mjög sterkt og fall- ♦
egt, 48V2” á lengd, 24” á þykkt, með 5 áttundum, 318 fjöðrum, áttundatengslum, Y
Subbas (13 fjaðrir) Vox humana, 17 hljóðfjölgunum, kostar hjá mér á sama stað •
350 k r. I ofangreindu verði orgelanna er innifalinn flutningskostnaður til •
Kaupm.hafnar og umbúðir. J
(Til samanburðar leyfi eg mér að setja hér verð á hinum ódýrustu orgelum af Á
sömu tegund frá K. A. Andersson í Stokkhólmi, samkvæmt þessa árs verðlista verksmiðj- ♦
unnar og leiðbeining umboðsmanns hennar hér á iandi: 1. Orgel úr „ekimitation", *
fremur viðagrannt, 38” á Iengd. 19” á þykkt, með 5 áttundum, 122 fjöðrum, áttunda- •
tengslum, 8 hljóðfjölgunum, kostar dti umbúða í Stokkhólmi 205 kr. 2. Stofu- •
orgel úr „imiterad valnöt", snoturt, 65” á hæð, 42” á beidd, 19” á þykkt, með 5 ,
áttundum, 159 fjöðrum, áttundatengslum, 12 hljóðfjölgunum, kostar dn umbúda ( J
Stokkhóimi joo kr. 3. Salonorgel úr „imtterad valnöt", fallegt, 46” á lengd, 22” •
á þykkt, með 5 áttundum, 305 fjöðrum, áttundatengslum, Vox humana, 17 hljóðfjölg- j
unum kostar dn umbúda í Stokkhólmi J2J kr. — Mjög svipað þessu mun verðlista-
verð á orgelum J. P. Nyström’s í Karlstad vera, og enn hærra hjá Petersen & Stenstrup).
Þessi þrjú ofangreindu orgel, sem eg sel, eru frá hinni frægustu hljóð-
færaverksmiðju í Bandaríkjunum, sem, auk fjölda fyrsta flokks verðlauna, fékk
allrahcestu verðlaun á heimssýningunni í Chicago 1893, og sel eg öll önnur hljóð
færi hennar tiltölulega jafnódýrt. — Kirkjuhljóðfæri, bæði fjaðraorgel, með „túb-
um“ og án þeirra, og pípnaorgel af allri stærð og gerð; sömuleiðis fortepiano og
Flygel sel eg einnig miklu ódýrara eptir gæðum, en nokkur annar hér á landi.
Verðlista með myndum og allar upplýsingar fær hver sem óskar.
Andvirði hljóðfæranna þarf að fylgja hverri pöntun til mín. Flutning frá
Kaupmannahöfn borgar kaupandi við móttöku. ♦
Einkaumboðsmaður félagsins hér á landi: 4
Þorsteinn Arnljótsson, J
Sauðanesi. •
-♦-♦•♦•♦•♦-♦-♦•♦•♦•♦-♦-♦•♦•♦^•♦-^♦•♦•♦^-♦•♦•♦•♦-♦-♦•♦•♦•♦-^a
Aflæt 00 ódýr
ORGEL
frá <J. J*. Nyström í Karlstad í Svíþjóð, elztu og helztu hljóð-
færaverksmiðju á Norðurlöndum, pantar aðat-
umboðsmaður hennar
Markús Þorsteinsson
i Reykjavík,
sem hefur hljóðfæri til sýnis. — Verðlistar tneð myndum fást ókeypis og
kostnaðarlaust sendir.
Orgel frá þessari verksmiðju eru seld svo hundruðum skiptir á hverju ári.
Skiptafundir
verða haldnir á skrifstofu Gullbringu-
og Kjósarsýslu í Hafnarfirði í eptir-
greindum dánarbúum:
x. Guðrúnar Stefánsdóltur frá Möðru-
völlum í Kjós, mánudaginn 12.
des. þ. á., kl. 11 f. h.
2. Halldórs Helgasonar frá Engey
mánudaginn 12. des. þ. á., kl. 12
á hádegi.
3. Gunnlaugs Gunnlaugssonar frá
Eyvindarstöðum mánudaginn 12.
des. þ. á., kl. 4 e. h.
4. Valdemars H. Jónassonar frá
Keflavík sama dag kl. 5 e. h.
5. Jóns G. Breiðfj'órðs, hreppstjóra
frá Brunnastöðum þriðjudaginn 13.
des. þ. á., kl. 12 á hádegi.
6. Guðrúnar Guðmundsdóttur í Kefla-
vík þriðjudaginn 13. des. kl. 4 e. h.
7- Tómasar Nikulássonar úr Njarðvík-
um þriðjudaginn 13. des. kl. 5 e. h.
8. Þórarins Eiríkssonar frá Löndum
í Miðneshreppi miðvikudaginn 14.
des., kl. 11 f. h.
9. Ólafs Magnússonar frá Narfakoti
og ekkju hans, er fyrst sat í
óskiptu búi, miðvikudaginn 14. des.
kl. 12 á hádegi.
Það væntist að skiptum í öllum þess-
um búum verði lokið.
Skrifstofu Gullbringu- og Kjósarsýslu
5. nóv. 1904.
Páll Einarsson.
Firma-tilkynningar.
Samkvæmt lögum 13. nóvember
1903 um verzlanaskrár, firmu og
prókúru-umboð, hafa eptirnefndar firm-
ur verið tilkynntar til innfærslu í verzl-
anaskrána fyrir Norður-Múlasýslu og
Seyðisfjarðarkaupstað.
1. Þórarinn kaupmaður Guðmundsson
á Seyðisfirði rekur verzlun í Seyð-
isfjarðarkaupstað með ótakmarkaðri
ábyrgð undir firmanafninu: „V. T.
Thostrups Efterfölger". Hann rit-
ar sjálfur firmað með sínu eigin
nafni, en hefur firmanafnið prentað
eða skrifað á reikninga, umslög
o. s. frv.
2. Sigurður kaupmaður Jónsson á Seyð-
isfirði rekur verzlun með ótakmark-
aðri ábyrgð í Seyðisfjarðarkaupstað
undir firmanafninu: „Framtíðin".
Hann ritar einn firmað með sínu
eigin nafni, en hefur firmanafnið
prentað á reikninga, umslög o. s. frv.
3. Firmað „O. Wathnes Arvinger",
hlutafélag, rekur skipaútgerð, verzl*
un og fiskiveiðar. Lög félagsins
eru dagsett 16. desbr. 1898. í stjórn
félagsins eru : Peter Dines Petersen
í Kaupmannahöfn, Tönnes Chr.
Wathne og Carl Martin Wathne f
Stavangri og Fredrik Ferd. Wathne
á Seyðisfirði. Rétt til þess að rita
firmað hefur P. D. Petersen einn
og tveir af hinum stjórnendunum
saman. Hlutaféð er 420,000 krón-
ur, skipt niður á 420 ioóo króna
hlutabréf, sem hljóða á handhafa,
en mega þó hljóða upp á nafn.
Hlutaféð er innborgað að fullu.
Birtingar til félagsmanna skulu vera
í ábyrgðarbréfi eða í Berlingatíð-
indum. Heimili félagsins er í
Kaupmannahöfn, en það rekur verzl-
un á Seyðisfirði.
4. Firmað „Örum & Wulff“, hlutafé-
lag, rekur verzlun á íslandi og með
íslenzkar vörur. Lög félagsins eru
dagsett 22. febr. 1895. í stjórn
félagsins eru: Johannes Henrik
Emil Zöylner, Carl Winther og Sören
Christjan Knudtzon og hafa þeir
rétt til að rita firmað í félagi.
Prókúru hafa þeir Gustav Iver’sen
og Vilhelm Martin Bache hver fyr-
ir sig. Hlutaféð er 462,000 krón-
ur, skipt niður á hlutabréf, sem
hljóða upp á nafn og eru 5000 kr.
og IOOO kr. að upphæð. Hlutaféð
er innborgað að fullu. Birtingar
til félagsmanna skulu settar í blað
það, er flytur opinberar auglýsing-
ar. Heimili félagsins er í Kaup-
mannahöfn, en það rekur verzlun á
Vopnafirði og víðar hér á landi.
5. Hlutafélagið „Gránufélag" rekur
verzlun á íslandi. Núgildandi lög
þess eru dagsett 8. sept. 1876 og
breytingar og viðauki 12. sept. 1898.
í stjórn félagsins eru sem stendur:
Davíð Guðmundsson, Friðbjörn
Steinsson og Björn Jónsson. Fram-
kvæmdarstjóri og kaupstjóri félags-
ins er Christen Havsteen og eru
samningar þeir, er hann gerir fyrir
félagið skuldbindandi fyrir það.
Hlutaféð er 100,000 krónur, skipt
niður á 2000 hlutabréf á 50 kr.
hvert, er hljóða upp á nafn og eru
að fullu innborguð. Féiagið á heima
á Akureyri, en rekur verzlun á
Vestdalseyri í Seyðisfjarðarkaupstað
og víðar.
6. Firmað „Pöntunarfélag Fljótsdals-
héraðs" pantar útlendar vörur fyr-
ir félagsmenn og annast um sölu á
innlendum vörum þeirra og hefur
auk þess söludeild á Seyðisfirði.
Lög þess eru dagsett 22. nóvem-
ber 1899. í stjórn félagsins eru
sem stendur : Einar prófastur Jóns-
son á Kirkjubæ formaður og með-
stjórnendur Jón sjálfseignarbóndi
Bergsson á Egilsstöðum og Gunnar
hreppstjóri Pálsson á Ketilsstöðum
og þarf undirskript þeirra allra til
að skuldbinda félagið. Pöntunar-
og söludeildarstjóri er Jón Stefáns-
son. Meðlimir hinna einstöku deilda
félagsins ábyrgjast einn fyrir alia
og allir fyrir einn skuldir deildar-
innar. Stjórnin kveður til funda í
félaginu á þann hátt, er henni sýnist.
Skrifstofu Norður-Múlasýslu og
bæjarfógeta á Seyðisfirði 2i.okt. 1904.
Jöh. Jóhannesson.
Eigandi og ábyrgðarmaður:
H innes Þorsteinsson, cand. theol.
l'i entsmiðja Þjóðólis.