Þjóðólfur - 01.01.1905, Page 1
57. árg.
Reykjavik, sunnudaginn l.janúar 1905.
1.
Lífið í Höfn.
Ur riti M. J. »Um Danmörku«.
Fögur er hún Höfn gegnum
hugmyndanna gler,
en allra fegurst óséð — og
eins mun reynast þér.
— Seint flýgur krumminn á kvöldin. —
Fögur er hún Höfn þegar
sólin signir grund,
Og skrautið nóg 1 skógunum
við skínandi sund.
Fegri þó á kveldin, þá
glymur gleðin full
og gluggarnir tindra sem
logandi gull.
Uoi strætin þú stikar með
státsmeyja sveim
og fagurprúðum sveinum,
sem fylgja þeim heim.
Og hljóðfærin dillandi
dansana slá •,
allt er tómur unaður —
utan til að sjá.
Og allt er í boði, sem
augu girnast manns —
nema auðnan sjálf, er leynist
1 hjartarótum hans.
Laushent er lánið og
lukkunnar vald:
illgirnin leynist við
liljunnar fald.
Fögur er hún Höfn með
sinn hlægjandi seim ;
cn margur kom fáráður
frá henni heim.
Og gullin hennar Hafnar
er gaman að sjá;
en heim kom margur hryggur
sem hugðist þeim að ná.
Ýmsir kvöddu fagnandi
feðra sinna reit,
sem entu líf í álnum svo
enginn sá né leit.
Og margur fór til Hafnar
svo mannvænn og stór,
sem hrumari og heimskari
heim kom en fór.
Gættu þín smásveinn,
því gatan er hál,
og haltu þlnum hraustleik
1 heilbrigðri sál.
Sárt er gömlum föður,
er sendi þig um haf,
ef soninn veit hann sitja
við svínanna draf.
Far ei til Hafnar, þótt
hjartað sé frómt,
ef að það er óstillt og
alvörutómt.
Far þú til Hafnar ef
finnurðu þrótt,
og elskar þú hið hreina
en hatar allt ljótt.
Gæt þín, ungi svanni,
sá glaumur er flár,
ekki heyrir Höfn þó að
hrynji nokkur tár.
Varastu vélar og
villandi draum
fyr en þú ert fallin
og flýtur með straum.
Freistarinn finnst þér svo
frámuna hýr,
en hryggðu ekki Hann,
sem í hjartanu býr.
Ein ertu aldrei, svo innir
hyggjan mín,
verur eru nærri, sem
vilja gæta þín.
— En seint flýgur krumminn á kvöldin. —
Landsreikningurinn
1903.
Tekjur landsjóðsins voru á árinu alls
1,011,900 kr, en fyrir nokkrum árum voru
þær að jafnaði 800 þús. kr. árlega. Sú
hækkun á landstekjunum, sem slðan er
orðin, kemur af því, að lögleitt hefur verið
áfengissölu- og veitingagjald, að vínfanga-
tollurinn hefur verið hækkaður töluvert
með lögum frá 1901, að jafnframt var
leiddur í lög tollur á tegrasi, súkkulaði
og brjóstsykri, og að ýmsar tekjugreinar
aðrar en þessar hafa hækkað. Aptur á
móti hefur engin tekjugrein lækkað, svo
teljandi sé. Tekjur af umboðsjörðum eru
lítið eitt minni, en þær voru áður, vegna
þess, að töluvert af jörðum hefur verið
selt fyrir nokkrum árurn, en þess gætir
lítið í reyndinni.
Tekjugreinar, sem mest hafa farið fram
úr áætluninni 1 fjárlögunum 1902 og 1903,
hafa verið þessar: Vínfangatollurinn varð
42,000 kr. hærri, en áætlað var, það stafar
af tolllögunum 1901; annars var sú tekju-
grein 1 rénun fyrir aldamótin slðustu. Út-
flutningsgjald af fiski, lýsi o. fl. fór 28
þús. kr. yfir áætlun. Kaffi- og sykurtoll-
ur varð 57 þús. kr. meiri en áætlað var,
eða 252 þús. í stað 195 þús. krónur.
Framan af var þessi tekjugrein áætluð 120
þús. krónur, en óx fljótt langt upp úr
því. Kaffi er þjóðdrykkur í landinu, og
var það áður en tollurinn var lagður á
það. En það sem kafifi- og sykurtollur-
urinn samanlagður hefur vaxið, kemur
miklu meira af því, að landsmenn eyða
alltaf meiru og meiru af sykri, en áður
var. Lifnaðarhættir manna eru nú óðum
að breytast á landinu. Eptir landshags-
skýrslunum 1903 (bls. 407) fluttust hingað
af kaffi og kaffibæti:
1891—95 83/4 ® á mann
1902 112/s ‘ffi - —
en af allskonar sykri og strópi fluttust
hingað á mann:
1891—95 23 ® á mann
1902 37 ® - —
Margar tekjugreinar hafa farið lítið eitt
yfir áætlun; flestar eru þær smáar.
Húsask. var áætl. 6 þús. kr., varð 9.2 þús. kr.
Tekjusk. - — 14.5 -- — — 17.4 - -
Aukatekj. - — 30 -- - urðu4i - --
og aðflutningsgjald af tegrasi, súkkulaði
og brjóstsykri varð nær 8 þúsund krónur,
en hafði ekki verið tekið í tekjuáætlun
síðustu fjárlaga.
Að síðustu verður að geta þess, að
pósttekjurnar 1903 urðu alls 105 þús. kr.,
en voru áætlaðar 35 þús., og fóru þannig
með 70 þús. kr. fram úr áætlun. Þessi
tekjuáætlun er samt ekki varanleg, því
hún er þvínær öll komin inn fyrir gömul
frímerki, sem voru seld á árinu. Gömlu
frfmerkin eru nú öll seld, svo samskonar
tekjuauki kemur ekki fyrst um sinn.
Fyrir neðan áætlun hafa orðið: Erfða-
fjárskattur fyrir hér um bil 1 þús. kr.,
leyfisbréf fyrir árgjöld af verzlun og veit-
ingum áfengra drykkja með hér um bil
7 þús. kr., og leigur af viðlagasjóði með
4 þús. kr. Þetta síðasta kemur af því,
að Ræktunarsjóðurinn var numinn burt úr
viðlagasjóði 1. janúar 1901.
Viðlagasjóðurinn var 1,105 þús. kr.
f árslokin 1903.
Þess er ekki að vænta, að tekjur land-
sjóðsins fari svo langt fram úr áætlun '
1904 og 1905, eins og þær gerðu 1902
og 1903. Pósttekjurnar næsta ár fara
naumast yfir 40 þús. kr. árlega, og flestar,
ef ekki allar tekjugreinar landsjóðs eru
áætlaðar svo hátt í fjárlögunum, að svo
að segja engar líkur eru til þess, að þær
fari fram yfir áætlunina 1 reyndinni. Ein
tekjugrein kemur þó 1905 ogeinkum 1906,
sem ekki hefur verið, svo teljandi sé, áð-
ur, en það eru vextir af peningum, sem
landsjóður á í sjóði. Stjórnin notar bank-
ana hér og erlendis til að ávaxta þá, að
svo miklu leyti, sem þeirra ekki þarf til
daglegra úrgjalda.
Ú t g j ö 1 d i n 1903 voru alls 936 þ ú s .
krónur. Af því gengu til hinnar æztu
innlendu stjórnar og alþingis 53 þús. kr.
Til umboðsstjórnar dómara og sýslumanna
gengu 97 þús. kr. Til læknalauna gengu
73 þús. kr. Til andlegu stéttarinnar gengu
liðugar 23 þús. kr., laun biskups, brauða-
uppbætur og árstillag til brauða eptir
prestakallalögunum frá 1880, og síðari
breytingum á þeim.
Mjög mikill hluti af útgjöldum land-
sjóðsins var veittur til samgöngumála og
gekk til þeirra.
Til póststjórnar og póstgangna
gengu......................70 þús. kr.
Til vega, vegaviðhalds og Lag-
arfljótsbrúarinnar gengu . .115 — —
Til gufuskipaferða .... 63 — —
Til vitanna ekki fullar . . 9 — —
Alls 257 þús. kr.
Þess utan voru veittar til ritsíinans milli
Islands og útlanda 35 þús, kr., semspör-
uðust. En hefði þurft að borga þær út
líka 1903, hefðu gengið til samgangna
292 þús. kr., eða næstum þvf einn þriðji
hluti af öllum útgjöldunum.
Útgjaldaliður, sem töluvert fer fyrir nú
orðið, eru útgjöldin til skóla og kennslu.
Þessi útgjöld voru alls 125 þús kr., og
sundurliðast þannig:
Til æðri skólanna gengu . . 52 þús, kr.
Til gagnfræðaskóla,barnaskóla
og umgangskennslu . . . 63 — —
og til búnaðarskóla . . . 10 — —
Að Kkindum gæfi sú upphæð, sem veitt
er til barnakennslu, betri árangur, ef hún
væri veitt eptir öðrum grundvallarreglum,
enda hefur alþingi veitt fé til þess að at-
huga fyrirkomulagið á unglingakennsl-
unni, til þess að geta bætt það.
Ýmsar opinberar stofnanir, sem ekki
hafa verið taldar að framan, kosta landið
48 þús. kr. Þær eru:
Holdsveikraspítalinn ... 28 þús. kr.
Hegningarhúsið..............5 — —
Landsbókasafn og bókasöfn
amtanna...................9 — —
Landskjalasafn og forngripa-
safnið....................6 — —
Alls 48 þús. kr.
Til eptirlauna gengu árið 1903 alls 40-
þús. kr., eða '/23 hluti af öllum útgjöld-
unum; mikill hluti af þeirri upphæð geng-
ur til ekkna eptir embættismenn og presta,
og af því gengur aptur nokkur hluti til
styrktarfjár embættismannabarna, þangað^
til þau verða 18 ára. Til styrktar land-
búnaðinum beinlínis og óbeinlfnis hafa
verið greiddar á árinu 125 þús. kr., þar
af hafa verið greiddar til útrýmingar fjár-
kláða yfir 72 þús. kr. Hve há sú upp-
hæð verður á endanum, er ekki hægt áð
segja enn sem komið er; en verði til-
kostnaður landsjóðsins, eins og menn vona,
til þess, að fjárkláðanum verði útrýmt, þá
verður fjárkláðinn, sem nú hefur gengið,
miklu ódýrari landsmönnum en fjárkláð-
inn, sem gekk yfir landið frá 1856—79,
þótt 300 eða 400 þús. kr. færu til þess
að útrýma honum. Jón Sigurðsson sagði,
því þá voru flestir niðurskurðarmenn, að
það kostaði minna að drepa maurinn, en
að drepa kindina, og landsmenn fá von-
andi sönnunina fyrir þvf, f reyndinni.
Tekjuafgangurinn var bæði árin
1903 alls 230 þús. kr. Þar af komu
29 þús. kr. fyrir Möðruvallaskólann, þeg-
ar hann var brunninn, þær eru ekki eigin-
legar tekjur, Viðlagastjóðurinn var, eins
og áður er sagt, 1,105 þús. kr. í sjóði
átti landsjóður við árslokin 1903 yfir
600 þús. kr. Jarðeignir landsjóðsins
munu hafa verið 750 þús. kr. virði, eða
eitthvað nálægt því. Húseignir, sem hann
átti á sama tíma, voru virtar til bruna-
bóta á minnst 530 þús. krónur. Öll þau
húsnæði hefði landstjórnin orðið að taka
á leigu, ef þau hefðu ekki verið til sem
almanna eign. Fyrir utan þessar eignir
eru bókasöfn og söfn, sem ekki skulu
hér metin til peninga. En það verður
að taka það fram, að allt sem landsjóður
á, er óveðsett, hver þúfa í jörðu og hver
steinn eða spíta í húsi, er veðbandalaus
að öllu leyti.
Stjórnin og óYinir hennar.
Árið 1904 hefurað því leyti verið merk-
isár í sögu þjóðar vorrar, að það er fyrsta
árið, sem vér getum talizt sjálfum oss ráð-
andi síðan á þjóðveldistímanum. Á þessu
ári höfum vér tengið æzta stjórnanda lands-
ins — ráðherrann — búsettan f landinu
sjálfu, ráðherra, sem ber ábyrgð fyrir full-
trúaþingi þjóðarinnar, alþingi. Og eins
og hann var skipaður samkvæmt þing-