Þjóðólfur - 01.01.1905, Side 3
3
til að fleyga og kljúfa fylkingu óvinanna,
pjóðfjandanna, sem þeir kalla og valdir
kvað vera að þvl, að þessi háskasamlega
og heimskulega heimastjórn hafðist fram
i stað Hafnarstjórnarinnar sælu og sár-
þráðu, sem Valtý og hans líðum heppn-
aðist ekki að srnella á þjóðina. Og með
þvi að Þjóðólfur hefur verið s\ o ósvífinn,
að meta jafnan heimastjórn þ;t, sem nú
er fengin afarþýðingarmikla stjórnarbót,
þá hafa atlögurnar leynt og ljóst beinzt
mest að honum, alveg eins og hann væri
pottur og panna i, að þessi heimastjórn-
aróstjórn(!) er nú komin á laggirnar. Öðru-
vísi verður það ekki skilið, hversvegna
þessif virðulegu herrar láta sér svo afar-
annt um Þjóðólf. Það er eins og þeir
ímyndi sér, að baráttu þeirra sé lokið
og að þeir hafi unnið algerðan sigur, ef
þeir geta komið Þjóðólfi fyrir kattarnef.
En það verkefnið þvælist liklega fyrir þeim
fyrst um sinn, þótt þeir jafnvel leggi svo
mikið í sölurnar og leggist svo lágt, að
senda launaða hlaupadrengi út um land
til að prédika herferð gegn honum. Al-
þýða manna vill heldur dæma sjálf um
hlutina, hefur sína eigin skoðun á þeim,
sem ekki verður Haggað, hversu margir
æsingaseggir, sem hrópa í eyru hénnar
að hún skuli gera þetta og þetta. Al-
meríningi er það einnig nokkurnveginn
ljóst, að lúalegur atvinnurógur og persónu-
legt níð um pólitiska mótstöðumenn sé
ekki heiðarleg, pólitisk vopn, og að sá
málstaður, sem ekki kynoki sér við að
beita þeim muni vera eitthvað seyrður.
Þessvegna eru slík vopn jafnan alveg bit-
laus, og þeir sem með þeim vega komast
jafnan skammt áleiðis. Sú hefur og raun-
in á orðið gagnvart Þjóðólfi með öllum
þeim undirróðri og æsingarógi, sem beitt
hefur verið gegn honum næstl. tvö ár
sérstaklega. Svarið hefur verið þannig,
að næstl. haust hefur Þjóðólfur svo að
segja engar uppsagnir fengið utan afland-
inu, en mjög marga nýja kaupendur síð-
asta hluta ársins. Og hér í Reykjavík
hefur uppskeran orðið svo sáralítil, að af
nokkrum hundruðum kaupenda hafa að
eins i x áskrifendur — segi og skrifa ellefu
— sagt blaðinu upp, flest allt gamlirVal-
týsliðar og Landvarnarmenn. Og var þó
ekki tilsparað eptir kosningarnar hér í
haust að prédika krossferðina gegn Þjóð-
ólfi, en smeygja inn Landvarnarmáltólinu.
En svona rýr varð árangurinn og sýnir það
Ijósast, að bæjarbúar eru upp úr því
vaxnir, að láta framhleypna og ofstækis-
fulla æsingapilta umhverfa sannfæringu
sinni og hafa hausavíxl á réttu og röngu.
Þess skal samt getið, að ekki eru það
nema nokkrir menn í Landvarnarliðinu,
sem gengið hafa ötullega fram í svona
löguðum leiðangri. Vér höfum minnst á
þetta nú til þess, að menn geti betur
varað sig á þessum piltum eptirleiðis, er
þeir koma í húsvitjunarferðir, hvort held-
ur hér í bænum eða upp til sveita. En
annars stendur Þjóðólfi alveg á sama um
þennan róður, því að hann verður ekki
róinn í kaf af þessum herrum. Svo mik-
ið er víst. Hann heldur þeirri stefnu, sem
hann hefur haldið hingað til, hversu há-
værir og illorðir, sem mótstöðumenn hans
gerast. Hann mun láta það flest eins og
vind um eyrun þjóta, telja það eins og
annað markleysu- og illkvitnishjal, eins
og hann hefur ávallt gert í seinni tíð,
gagnvart Landvarnarærslunum.
Og svo þökkum vér löndum vorum fyr-
ir hina stöðugu tryggð og velvild, er þeir
hafa sýnt blaðinu öll þau 13 ár, er vér
höfum nú haft það í höndum, og vænt-
um að oss megi auðnast ‘að láta það vera
eptirleiðis, eins og hingað til: merkisbera
þess, sem satt er og rétt og þjóð vorri
miðar til rnestra heilla. Fyrir því einu
mun Þjóðólfur berjast, hvað sem á dynur.
Og hann er ekki lífhræddur, þótt kominn
sé hatin hátt á sjötta tuginn.
Nýjar bækur
sendar Þjóðólfi frá Gyldendalsbókaverzlun
í Höfn:
Folkets Lærere. Eptir Edv. Egeberg.
316 bls. 8^2; Nútíðarsaga um danskan
skólakennara, er á í höggi við „innra trú-
boðið", trúir ekki á eilífa útskúfun, eilífar
kvalir, og er fyrir þær sakir sviptur em-
bætti, en vinir hans stofna þá handa
honum skóla, er ekkert á saman við rík-
ið að sælda, og þar eru engin höpt lögð
á trúarsannfæring kennarans. Bókin er
vel og skynsamlega rituð.
Vredens Börn. Saga vinnumanns eptir
Jeþþe Aakjær. 275 bls. Saga þessi
er um hina hörðu baráttu margra manna
fyrir tilverunni og um það, hvernig gæð-
um Hfsins er misskipt hér f heimi, hvern-
ig hver treður annan niður 1 sorpið og
hversu kjör verkalýðsins eru optast bág-
borin. Allar sögur Aakjær’s gerast á Jót-
lándi og lýsa jpzku bænda- og vinnumanna-
lífi, sérstaklega þó frá dökku hliðinni. Það
eru olnbogabörn tilverunnar, sem Aakjær
optast nær ritar um.
Voksen 1 Skáldsaga eptir Anna Grane.
x6i bls. 8^2: Veigalítil bók og smásmyglis-
leg, í raun réttri alls enginn skáldskapur,
og miklu lakari en „Irmelin Borg" eptir
sömu skáldkonu, því að í þeirri bók voru
þó töluverð tilþrif, en hér engin.
Födt Dreyer. Skáldsaga eptir Johanne
Madsen. 199 bls. 822 Ekki ólaglega rit-
uð bók, en fremur efnislítil.
Absalons Saga. Söguleg skáldsaga eptir
Laurids Brtiun. 2. hluti, 455 bls. 8^2; Höf.
hefur fengið allmikið hrós fyrir hinar sögu-
legu skáldsögur sínar og hafa sumar kom-
ið út í 2 útgáfum sama árið t. d. „Alle
Synderes Konge", er kom út í fyrra (1903).
Absalonssaga er vel rituð bók og efnis-
mikil.
JarOskjálfta
varð hér vart kl. 5 að morgni 27. f. m.
Ekki var það þó nema einn snöggur
kippur.
Ný prentsmiöja
tekur til starfa hér í bænum nú eptir
nýárið. Fyrir prentsmiðjustofnun þessari
gengst prentarafélagið hér, en í þvl eru
nær allir prentarar bæjarins, og vinna þeir
1 prentsmiðju þessari, er verður stærsta
prentsmiðja landsins. Verður því mikill
hörgull á vinnukrapti í gömlu prentsmiðj-
unum, að minnsta kosti fyrst um sinn.
Prentsmiðja Þorv. Þorvarðarsonar (a: prent-
smiðja »Reykjavíkur«) gengur inn í þetta
nýja fyrirtæki, og mun hann verða aðal-
forstöðumaður þessar nýju prentsmiðju,
er verður algerlega prentaranna eign. En
þeir liafa myndað hlutafélag innbyrðis til
að koma þessu fyrirtæki á fót. Á þenn-
an hátt verða fyrv. vinnuþiggjendur, vinnu-
veitendur og atvinnurekendur í stórum
stíl, og er það fyrsta skipti, sem slík
samtök eru gerð hér á landi: að verka-
menn í einni iðnaðargrein taki sig saman
um að reka iðnina í félagi með eigin
áhættu og á eigin ábyrgð.
Jarðapför
Páls Briems fór fram 30. des., og var
allfjölmenn, enda veður hið bezta. Séra
Ólafur Ólafsson hélt húskveðjuna, en dóm-
kirkjupresturinn ræðu ( kirkjunni.
Af 19 börnum Eggerts Briems sýslu-
manns og frú Ingibjargar Eiríksdóttur eru
nú 9 á Jífi, og er eitt þeirra Halldór Briem
kennari á Akureyri, en nafn hans féll
óvart burtu úr upptalningunni í síðasta
blaði.
Óveitt prestaköll. Sauðanes í
Norður-Þingeyjarþró/astsdæmi (Sauðaness-
sókn): — Mat: kr. 1506. 74.
Landsjóðslán hvílir á prestakallinu. til að
byggja íbúðarhús úr steini, samkv. Ihbr. 16.
sept. 1881 (Stj.tíð. B., bls. 79), að upphæð
4000 kr., sem afborgast og ávaxtast með
6% á 28 árum frá 17. mars 1883.
Veitist frá næstu fardögum. — Auglýst
16. desbr. 1904. Umsóknarfrestur til 31.
janúar 1905.
Hruni i Arnessþrófastsdeemi (Hruna og
Tungufellssóknir). — Mat: kr. 1294. 27.
Prestsekkja er í brauðinu, sem næsta ár
nýtur náðarárs af því og þar eptir ( eptir-
laun kr. 94. 27.
Lán úr landsjóði til íbúðarhússbyggingar
hvílir á brauðinu, að upphafi 2800 kr., sam-
kv. lhbr. 21. okt. 1897, sem afborgast með
100 kr. árlega á 28 árum. (Stj.tíð 1897 B.,
bls. 247).
Veitist frá næstu fardögum. — Auglýst
16. desbr. 1904. Umsóknarfrestur til 31.
janúar 1905.
28
henni upp — ofurlitla stund hélt eg hún ætlaði að súpa á henni, en eptir eina
sekúndu þeytti hún henni í gegnum gluggann út á malargötuna í garðinum og
við heyrðum, þegar hún molaðist í sundur.
„Svona Jim, sagði hún, „ert þú nú ánægður?" Það er langt síðan að nokk-
ur hefur beðið mig um að hætta að drekka. Það kærir enginn sig um mig“.
„Þér eruð alltof góðar og ástúðlegar til þess, að þetta geti verið rétt", and-
æpti Jim.
„Góð og ástúðleg", endurtók hún. „Það gleður mig, að eg fell þér í geð.
Þætti þér virkilega vænt um það, að eg drykki eigi framar konjak ? Er það satt?
Já, eg skal þá lofa þér því, ef þú aptur á móti vilt lofa mér öðru“.
„Hvað ætti það að vera ungfrú?
„Eg lofa þér því Jim, að eg aldrei skal bragða dropa af áfengi, ef þú vilt
heimsækja mig tvisvar í viku, hvernig svo sem veðrið er, svo eg geti séð þig
og talað við þig. Stundum finnst mér sem eg sé svo hræðilega einmana og yfir-
gefin af öllum".
Jim lofaði því og hann hélt það dyggilega, því opt var það síðar, þegar eg
bað hann að koma með mér á fiskiveiðar eða kanínuveiðar, að hann mundi,
að liann þann dag átti að heimsækja ungfrú Hinton, og þá labbaði hann á stað
til Anstey, hvort sem það var rigning eða bálviðri.
í fyrstu hélt eg, að þessari góðu konu veitti erfitt að halda loforð sitt. Og
opt hef eg séð Jim koma heim allþungbúinn á svipinn, eins og hann væri óá-
nægður, annaðhvort með sjálían sig eða aðra.
En tíminn leið og ungfrú Hinton vann sigur, eins og ætíð er, þegar menn
eru staðfastir og þrautseigir í orustunni, og áður en árið var liðið var hún öll
önnur manneskja.
Það var ekki eingöngu í framkomu og háttsemi, heldur og í útliti, því 1
fyrsta skipti, er við heimsóttum hana árið eptir, hefði enginn þekkt, að þessi fagra og
tfgulega kona væri hin sama og fyrirgengilega konan, er við sáum þá í hinu
fagra skrauthýsi.
Jim var hreyknari af þessari breyting en nokkru öðru, er hann hafði gert
fyr, en um þetta efni talaði hann einungis við mig, því hjá honum ríkti sönn
vinátta til þeirrar konu, er hann hafði hjálpað og stutt.
Á sinn hátt hjálpaði hún honum einnig, því með samræðum sínum við hann
víkkaði hún sjóndeildarhring hans, svo hann sá meir en þorpið og smiðjuna,
hafði þroskaðri skoðanir á lífinu og heiminum.
Þannig var ástatt, þegar friðurinn var saminn og pabbi kom heim frá stríðinu.
25
njóta fullkomins réttlætis, en auk þess var húsmóðirin alltaf að fylla bolla og
diska vora.
Tvisvar sinnum stóð hún upp frá borðinu og gekk að skáp, er stóð 1 einu
stofuhorninu, og í hvert skipti sá eg, að Jim varð þungbúinn á svipinn. — Því
við gátum vel heyrt hringl í glösum og flöskum.
„Nú, nú börn“, sagði hún, þegar búið var að taka af borðinu, „hvernig líst
ykkur á hér inni? Hversvegna horfið þið svo mikið í kringum ykkur?"
„Vegna þess að það eru svo margir fallegir hlutir á veggjunum".
„Á hvað líst ykkur bezt ?“
„Á þetta þama!" svaraði eg og benti á málverk, er hékk á móti okkur.
Það sýndi unga, háa og granna stúlku með yndislegum hörundslit og þeini
fallegustu augum, er eg hef nokkru sinni séð. Auk þess var hún 1 skrautlegum
og fallegum búningi og hélt blómsveig í hendinni, en annar blómsveigur lá fyr-
ir framan fætur hennar.
„Svo, líst þér bezt á það, drengur minn", sagði hún og allt andlitið varð
eitt bros, „farðu þá fast að því og lestu hvað stendur skrifað neðan undir því".
Eg gerði sem hún sagði og las upphátt:
„Ungfrú Polly Hinton sem „Peggy" í „Sveitastúlkan", leikið á leikkveldi
hennar á Haymarket-leikhúsinu hinn 14. september 1782".
„Það er þá af leikmærl" varð mér að orði.
„O — litli álfurinn þinn — þú segir þetta í einkennilegum tón, eins og
leikmær sé ekki eins heiðarleg og aðrir kvennmenn. Það eru ekki margir mán-
uðir síðan, að hertoginn af Clarence, sem einhverntíma getur orðið kongur yfir
Englandi, kvæntist frú Jordan, sem ekki er annað en leikmæi! En hver held-
urðu að þetta sé?“
Hún stóð uödir myndinni, krosslagði hendurnar framan á hinum gríðarstóru
brjóstum sínum og horfði á mig með hinurn stóru, myrku augum sínum.
„Nú — hvar hefurðu hin heimsku augu þín?“ kallaði hún óþolinmóðlega.
„Geturðu ekki séð það, að ungfrú Polly Hinton frá Haymarket er engin önnur
en vinkona ykkar? En hafið þið aldrei heyrt talað um mig?“
Við urðum að játa, að þetta væri virkilega svo, en það, að vinkona vor
var leikmær það gerði okkur dauðskelkaða — við vorum bara óupplýst sveitabörn.
Fyrir hugskotssjónum vorum voru leikarar menn, er maður tæplega vogaði
að tala um — menn, er lifðu undir reiði himinsins eins og undir þrumu.
Og þegar vér stóðum þarna og sáum hversu þessi kvennmaður hafði breyzt,
þá sýndist okkur, að við gætum glöggt séð, hversu þungt hönd hins almáttuga
hafði hitt hana.
„Já, já", sagði hún ( ergilegum tón. „Þið þurfið ekki að segja neitt. Eg