Þjóðólfur - 25.01.1905, Blaðsíða 2
i8
lengra áleiðis að sinni. Miklu sennilegra
er aö hann snúi við, eða bíði að minnsta
kosti um kyrt, þar til hann fær liðsauka
heirnan frá Rússlandi. Þar er nú i óða-
önn verið að búa út nýjan flota, sem senda
á af stað innan fárra daga. En það er
auðvitað efamál, h\ort Japanar gefa um,
að láta flota Roshdestvenskys fá næði til
að bíða hans. Menn þykjast að minnsta
kosti hafa orðið varir við japönsk herskip
í Indlandshafi.
Heima í Rússlandi er fridafhreyfingin
orðin allsterk, svo sem áður er getið, og
er hún samfara stjórnbreytingahreyfing-
unni. Það er nú talið áreiðanlegt, að
Sviatoþolk-Mirski muni víkja úr ráðherra-
sessi og Witte verða eptirmaður hans, og
er þá talið sennilegt, að hann muni reyna
að semja frið sem allra fyrst, ef til vill
með vorinu, enda hefur hann alla tíð ver-
ið stríðinu andstæður. Hann á einnig að
koma í verk umbótunum, sem lofað var
< boðskap keisara.
Frakkland. Þingið var sett io. þ. m.
og hófst það með því, að stjórnarliðið
varð undir við forsetakosninguna. Brisson,
er áður var formaður, fékk ekki nema 241
atkv., en forseti var kosinn Doumer með
265 atkv. Doumer þessi var áður talinn
einn með helztu mönnum framsóknar-
manna, en flaut nú á styrk apturhalds-
manna og annara stjórnarandstæðinga.
Hyggja margir, að nú séu dagar Combes-
ráðaneytisins taldir.
Enn þá er málið út af dauða Syvetons
hæst á dagskrá meðal Parísarbúa. Nú
þykjast þeir fullvissir um, að hann hafi
verið myrtur, og er kona hans grunuð um
að hafa ráðið honum bana. Sumir segja
jafnvel, að sögurnar um samfarir hans við
stjúpdóttur sína sé tómur tilbúningur, sem
kona hans hafi fundið upp.
Rvík 2j. jan.
Nýjustu ensk blöð frá 17. þ. m. full-
yrða, að Rússakeisari hafi ákveðið að
kalla ekki Eystrasaltsflotann heim apt-
ur, lieldur skuli hann bíða í Indlands-
hafi eptir fleiri herskipum heirnan að.
Telja margir það óráð og ætla að Japan-
ar muni ekki bíða þessa flotaauka, heldur
leita rússneska flotann nú þegar uppi og
ráðast á hann. Því er nú fleygt, að
Frakkar og Þjóðverjar muni ætla að ganga
1 samband við Rússa til að koma í veg
tyrir, að Japanar hafi nokkuð upp úr sig-
urvinningum sínum, þá er væntanlegur
friður verður gerður. Það væri þá sams-
konar hnykkur Og Japönum var gerður
eptir ófriðinn við Kína. En sennilegt er,
að England láti hér eittbvað til sín taka,
og láti það ekki viðgangast, að Japanar
gangi svo að segja slyppir frá, við friðar-
skilmálana, ef þeim tekst að hlaðá Rúss-
um til fulls á vígvellinum, því að það
væri hin mesta svívirðing. — Nú eru sum
blöð farin að halda því fram, að ástand-
ið í Port Arthur hafi ekki verið svo bág-
borið eins og sagt var, og að uppgjöfin
sé undarleg, Rússar hefðu getað varizt
þar miklu lengur. En líkiega er ekki
mikið á þeim sögum að byggja. Haldið
er, að Stössel verði stefnt fyrir herrétt í
Pétursborg að minnsta kosti til mála-
mynda, og eru rússnesk blöð gröm yfir
því, segja að það eigi líklega að verða þakk-
irnar fyrir hina drengiiegu vörn hans, að
hann verði dæmdur til dauða, en þeir sem
hengjast ættu sleppi, en með því er átt
við þá, er áttu að sjá um varnarvirkin í
Port Arthur, að þau væru örugg og allt í
góðu lagi til varnar, áður en ófriðurinn
hófst. — Skrydloff admíráll í Vladivostok
hefur verið kvaddur heim til Rússlands,
þykir lítii afrek hafa unnið þar eystra. —
Japanar hafa nú haldið hátíðlega innreið
sína í Port Arthur, og var „prósessían" 5
mílur enskar á iengd.
í Serbíu eru óeirðir allmiklar, og vilja
menn gera konungsmorðingjana landræka
eða láta hegna þeim, svo að Pétur kon-
ungur er í óþægilegri klípu.
Norður um Noreg.
eptir
Mattii. Þórdarson.
I.
Þann 1. nóv. kl. 2 um nóttina lagði
»Kong Tryggve« af stað frá Reykjavík
til Kristjansand í Noregi. 2 Isl. fyrir ut-
an mig, voru sem farþegar með skipinu
þangað, þar fyrir utan voru 8 Norðmenn,
sem höfðu liðið skipbrót, og urðu því
líka á þennan hátt að komast til heim-
kynna sinna.
»Kong Tryggve« er lftil og lagleg
skúta, og hefur honum verið lýst og hrós-
að 1 blöðunum, svo að eg vil hvorki við það
bæta né af því draga, því viðleitnin að
keppa við »hið sameinaða« er lofsverð,
í hvað litlum mæli sem það er gert.
Ferðin gekk vel, vindurinn hagstæður
alla leið — af NV — og gerði því vél-
in, vindurinn og Atlantshafsaldan allt til
að hraða ferðinni.
Að morgni þess 4. nóv. sáum við bláa
fjallatoppa við sjóndeildarhringinn í austri,
þeir voru í fyrstu að sjá sundurlausir, en
eptir því sem við nálguðumst, urðtt þeir
skýrari og runnu að neðanverðu saman í
eina heild.
Þetta var Noregur.
I fyrstu þegar eg leit Noreg, datt mér
í hug kvæði séra Matthfasar: »Nú hefeg
litið landið feðra minna«, o. s. frv.
Noregur er hálendi, fjallaland með ó-
tal tindum, hæðum og hálsum, ogereins
og öll vesturströndin hafi fyrir afarlöngu
sigið og sjórinn þá þrengt sér inn á milli
í lægðirnar, og við það myndað hinn
feiknastóra eyja- og skerjaklasa, sem ligg-
ur meðfram allri ströndinni frá sttðri til
norðurs, og veitir svo mikið skjól og
hlífð fyrir ágangi Atlantshafsins, og er
því Noregur með þessum sínum varnar-
garði hið merkilegasta !and í heimi. F.n
að ferðast innan urn þetta þarf kitnnugleik
til, og er enginn þeim vanda vaxinn
svo vel sé, nema hinn nafnkunni »norske
Lods«.
Eptir að hafa tekið »lóðsinn« um borð,
sem lá og beytti á sinni léttsigldu snekkju
í leiðinni fyrir okkur, komum við til
Kristjanssand; það er mjög fagur bær
með 15.000 íbúum. Hann var fyrst reist-
ur af Kristjáni IV., en varð fyrir því
happi fyrir nokkrum árum, að brenna
því nær allur til ösku, en reis svo jafn-
harðan úr rústum aptur nýr og fagur.
Þegar vlð komitm inn á höfnina, var hið
stóra Ameríkuflutningaskip »HekIa« að
létta akkerttm og leggja af stað til Amer-
íku, þar voru fleiri hundruð um borð af
útflytjendum, sem nú voru að yfirgefa
föðurlandið, en nú ætluðu að vitja gæf-
unnar í ókunna landinu, Ameríku. Kristj-
anssand er aðalútflutningsstöð fólks sem
fer til Ameríku, og hefur því margur
röskur Norðmaður stigið þaðan síðast fæti
af norskri jörð, áður hann fór til Amer-
íku. í sfðustu 2 ár hafa 50,000 Norð-
menn flutt vestur um haf, og nú er á við
og dreif í Ameríku i'/» miljón Norðm.
Að kveldi sama dags yfirgaf eg »kon-
unginn«, og fór ásamt hinum 2 félögum,
prentara Jóni Helgasyni og stýrimanni
Pétri Jónssyni um borð í annan konung,
»Kong Hakon«, sem þá um nóttina ætl-
aði til Stavanger. Þegar upp á þilfarið
kom, mátti sjá, að mikill var munur á
öllum glæsibrag og r/kidæmi, og fannst
mér þá, að Tryggve mætti kotungur heita
hjá slíkurn öðlingi, enda var hann á æsku-
skeiði, ekki nema 6 mánaða gamall, og
höfðu Norðmennirnir ekkert til sparað, að
gera hann sem bezt úr garði.
Við komum um morguninn til Egesund,
það er dálítill verzlunarstaður, og liggur
járnbraut þaðan yfir Jaðarinn til Sta-
vanger, og kusum við að fara með henni.
Jaðarinn er hrjóstrug flatneskja, eins og
dálítill olnbogi út úr landinu og ólíkur
Noregi. Bændabýlin liggja á víðogdreif
í smáhverfum með mýrarræmum, holtum
og túnum á milli, en þetta eru Jaðar-
byggjarnir smátt og smátt að rækta upp,
því þeir eru þrautseigir og fylgnir sér,
bæði við að rífa upp grjótið og rækta
skóga, því hér er sá eini staður í Noregi,
sem ekki er skógur, en eptir nokkur ár
verður hér skógur eins og annarsstaðar.
Jaðarbyggjar hafa hænsnarækt mjög mikla,
svo þeir selja í þúsundum egg til ýmsra
bæja 1 Noregi og til annara landa, og af
því Jaðarinn liggur fyrir opnu hafi, þá
rekur hér mjög mikið af þara, sem brennt
er til ösku, og fá þeir árl. fyrir hann um
90,000 kr.1,
• Járnbrautina, sem liggur hér yfir, hefur
orðið að leggja gegnum holt og hæðir,
eða réttara sagt að sprengja sundur nær
því samanhangandi granítklappir, og sum-
staðar grafa göng í gegnum þær, og hef-
ur þetta fyrirtæki kostað ógrynni fjár,
þótt ekki sé lengri vegur en um 6 mflur.
A miðjum Jaðri skildi Jón við okkur,
því hann ætlaði á lýðháskóla, þar sem
hann hafði verið á einn vetur áður, svo
við urðum þá 2 eptir til Stavanger.
Stavanger er eiginlega mest þekktur
allra norskra bæja af íslendingum sfðan
Otto sál. Wathne tengdi ísland og Noreg
saman með Seyðisfirði og Stavanger sem
endastöðvum.
Stavanger hefur 30,000 íbúa, það er
gamall bær, og vitna göturnar um það,
því þær eru fiestar þröngar og bognar.
Bærinn liggur á hæðadrögum, og gerir
það umferðina með vagna sumstaðar tor-
velda. I miðjum bænum er dómkirkja
frá 12. öld, mjög merkileg. í byrjun 19.
aldar var vorsíldarafli, hinn helzti at-
vinnuvegur hér, en nú er hér mikil skipa-
ferð, útflutningur á síld og lifar.di sauðfé,
og má það ýkjulaust segja, að síldin frá
íslandi hefur ekki hvað minnst stutt að
verzlun og siglingum bæjarins. Hér eru
miklar verksmiðjur, ullarverksmiðjur, nið-
ursuða á fiski o. fl., svo ekki eru færri
en roo, og veita þær atvinnu um 5,000
manns. Hér skammt fyrir sunnan liggur
Hafursfjörður, þar sem Haraldur hárfagri
barðist og vann undir sig Noreg, og
skammt þaðan Sóli, þar sem Erl. Skjálgs-
son bjó.
Einn hinna nafnkunnustu og merkustu
manna í Stavanger er konsúll Þjóðverja
T. Falk, hann er forstöðumaður stórra
segl- og guíuskipafélaga, sem bæði drífa
fiskiveiðar og vöruflutninga. Á seinni ár-
um hefur hann beygt sig upp undir ís-
land og hefur það gefið honum góðan
árangur.
Eg átti lengi tal við hann og var það
auðheyrt, að þar var maður reyndur og
gætinn; hann hefur sterka trú á framtíð
Islands — fiski- og síldarveiðunum — og
að þar sæi hann verkefni, sem gæfi arð
og vert væri að stunda með árvekni og
ástundun. Hann sagðist fjölga skipunum
næsta ár við ísland, og senda bæði kvenn-
fólk og karlmenn upp til að vinna að
hirðingu og verkun á síld og fiski. Hann
sagði, að aflinn í sumar hefði skemmzt
svo mikið vegna þess, að fólk vantaði til
að hirða um hann þegar á Iand var kom-
inn; en þó höfðu Norðmennirnir fiskað
síld á Siglufirði frá 25. júií til síðasta
ágúst fyrir 1,125,000 kr. Hann var í
óðaönn að útbúa 3 af gufuskipurn sínum
til síldarveiða í Norðursjónum.
1) Hvers virði er þarinn, sem liggur við
bryggjurnar í Rvík á haustin og veturna?
Eptir að hafa verið 2 daga í Stavanger
hélt eg einn míns liðs norður með landi,
þ. e. a. s. orðinn viðskila við þá, sem
eg hafði verið saman við og þekkt, en
sá nú bara ókunn andlit í kringum mig.
Það er í fyrstu mjög leiðinlegt, að
vera á ferð í ókunnu landi, hvort heldur
er á sjó eða landi og þekkja engan af
samferðamönnunum, og ef ferðin er stutt
frá einum áfangá til annárs, þá verður
það optast tilfellið, að flestir eru þag-
mælskir og gefa sig ekki neitt við öðr-
um, og þannig var það fyrir mér.
Skip það, sem eg fór með frá Stavang-
er var stórt og vandað og tilheyrandi
gufuskipafélagi þar samnefndu, sem hefur
póstferðir þar á milli og til Bergen. Skip
þessi eru mjög vel vönduð og vel útbúin
og ekki sparað skraut og þægindi á 1.
farrými, sem er mjög stórt, nær að minnsta
kosti yfir 2/3 af öllu farþegarúmi í skip-
unum, og aðallega útbúin svona með til-
liti til Englendinga og annara ferða-
manna á sumrin.
Að ferðast meðfram Noregi finnst mér
dýrt, og allt það sem neyta skal um borð
sömuleiðis. Þetta mikla verð á öllu hlýt-
ur mikið að stafa af því, að kostnaður
við siglingar hér er mikill. AUirþeirvit-
ar og smáleiðarljós, dufl og ýmiskonar
siglingarmerki, sem Norðmenn hafa svo
vel og rækilega fyrirkomið í sínum mjög
svo ógreinilegu sundum oggrynningum hlýt-
ur óbeinlínis meðfram að vera borgað úr
vasa ferðamannsins. Af því leiðir, að
2 Ieiðsögumenn (Lodser) þurfa að vera
með skipunum fram og aptur fram
yfir hina venjulegu skipshöfn, sem líka
verður kostnaðarauki, sem hér um bil
hvergi annarsstaðar á sér stað. — Með
flestum þessum skipum gengur kvennfólk
um beina og eru allt að 5 og 6 með
hverju skipi.
Það var um nótt, sem við sigldum fram
með ströndinni frá Stavanger til Bergen,
svo mér gafst ekki tækifæri til að koma
við í Haugasundi, sem er þar mitt á rnilli
og er uppvaxandi fiskibær og hefur sér-
staklega á seinni árum eflzt og aukizt af
fiski- og síldarveiðum við Island, eins
og fleiri fiskibæir Norðurálfunnar bæði
fyr og síðar. — Eg hef þessvegna ekkert
merkilegt að segja fyr en komið er til
Bergen.
Látlnn
er á Akureyri 2. þ. m. Bernhard
Agúst Laxdal cand. phil., einkason
Eggerts kaupmanns Laxdals. Hann var
rúmlega 28 ára gamall (f. 6. sept. 1876),
útskrifaður úr skóla 1897 og sigidi þá
til háskólans, tók þar heimspekispróf, en
kom svo heim aptur og var við verzlun-
arstörf á Patreksfirði og síðan á Akur-
eyri. Stofnaði 1902 blaðið »GjaIlarhorn«
ásamt Jóni Stefánssyni, og var ritstjóri
þess með honum nokkra hríð. Hann
lézt úr lungnatæringu, hafði legið 15
mánuði samfleytt. Þeir sem þekktu hann
báru honum bezta orð.
Embættisvelting.
Sigurður Thoroddsen landsverkfræðing-
ur hefur nú fengið konungsveitingu fyrir
kennaraembætti því við lærða skólann,
er hann var settur til að gegna næstl.
sumar.
Rannsóknardómari.
Snemma í þ. m. fór cand. jur. Guð-
mundur Eggerz vestur í Stykkishólm sam-
kvæmt skipun stjórnarráðsins, ekki að
eins til að dæma í máli þeirra Lárusar
Bjarnason’s sýslumanns og séra Helga
Árnasonar, eins og valtýsku blöðin hafa
skýrt svo gleiðgosalega frá, heldur jafn-
fraint til að rannsaka tíundarsvikamál gegn
séra Helgn og illyrðamál, er sýslumaður
neyddist til að höfða gegn einhverjum