Þjóðólfur - 03.02.1905, Qupperneq 2
22
börn, Sigvaldi Árnason 28 ára kvæntur,
1 barn, Jón Bjarnason (frá Hjörsey) 38
ára, kvæntur, bl., Einar Bjarnason 26
ára, nýkvæntur, Guðm. P. Torfason skip-
stjóri 25 ára, ókv., allir af Isafirði.
Annar báturinn, sem fórst,‘var úr Hnífs-
dal, en reri úr Bolungarvík. Á honurn voru
einnig 6 menn: formaðurinn Magnús
Eggertsson úr Hnífsdal, 41 árs, kvæntur,
átti 4 börn, Helgi Þorleifsson úr Hnífs-
dal 35 ára, ekkjumaður, bl., Valdimar
Björnsson af Isafirði 27 ára, nýkvæntur,
bl., Jóhannes Finnbogason af Isafirði, 22
ára, ókv., Guðmundur Guðbrandsson úr
Strandasýslu, rúml. þrítugur, kvæntur, 2
börn og Þorsteinn unglingspiltur norðan
úr Steingrímsfirði.
Þriðji báturinn var úr Bolungarvík, en
kom innan á ísafirði. Á honum voru 3
menn : Teitur Jónsson, áður veitingamað-
ur á ísafirði, en sfðar bóndi í Viðey um
hríð, átti nú heima í Bolungarvík, Ás-
geir Einarsson bóndi á Hvítanesi í Ög-
urssveit, bróðursonur Helga lektors Hálf-
danarsonar, um 38 ára, kvæntur, átti 5
börn ung, og hinn 3. Guðmundur ungl-
ingspiltur á 17. ári frá Hamri á Langa-
•dalsströnd.
Öll þessi skip fórust nálægt lendingu
I Bolungarvík, og þar fundust rekin flök
af þeim morguninn eptir. Mörg önnur
skip voru hætt komin þar, og þetta kveld
var bjargað þar f lendingu báti frá Látr-
nm f Aðalvfk, fyllti hann fyrir framan
lendinguna, en barst svo að landi með
skipverjum í, er náðust allir óskemmdir
nema einn, er meiddist töluvert, enda
var hann að velkjast í brimgarðinum fram
undir hálftíma, en það bjargaði honum,
að hann hafði náð í ár og mastur til að
halda sér á. [Eptir »Vestra«j.
Lárus H. Bjarnason
sýslumaður frá Stykkishólmi kom hing-
að snöggva ferð með »Kong Inge« 25.
f. m., en fór aptur heim til sfn með
»Lauru« 28. f. m.
,,Kony Inge“
fór héðan til útlanda 27. f. m. Með
honum fór Sighv. Bjarnason bankastjóri,
kaupmennirnir Gísli Helgason ogjónatan
Þorsteinsson úr Rvík, Gísli Johnsen frá
Vestmanneyjum og Guðm. Jónasson frá
Skarðstöð, ennfremur sýslumannsfrú Kam-
illa Torfason frá ísafirði. Til Leith fóru :
húsfrú Petrea Ólafsdóttir og ungfrúrnar
Guðrún Sigurðardóttir (frá Seli) og Ágústa
Ólafsdóttir.
„Vesta“
lagði af stað héðan til útlanda að
kveldi 26. f. m. í ofsaveðri, en komst
ekki lengra en suður undir Skaga, og
hleypti svo inn á Keflavík. Var því þá
veitt eptirtekt, að skipið mundi ekki hafa
næg kol til að komast leiðar sinnar og
var þá snúið aptur til Reykjavíkur um
kveldið hinn 27. Svo komst skipið ekki
af stað héðan aptur fyr en snemma dags
29. f. m. Farþegar með því voru kaup-
mennirnir Pétur Hjaltested og Filippus
Amundason, fyrv. kaupm. Valdimar Otte-
sen, frk. Thit Jensen, frú Guðríður Guð-
mundsd., frk. Þuríður Sigurðard. o. fl.
Mannalát.
Hinn 29. f. m. andaðist í Hafnarfirði
*rú Sigríður Árnadóttir (landfógeta
Thorsteinsson) kona Páls sýslumanns Ein-
arssonar. Veiktist hún skyndilega nóttina
áður, og var meðvitundarlaus upp frá því,
en hafði lengi verið óhraust til heilsu.
Það var krampi, sem leiddi hana til
bana. Hún var komin nokkuð á fert-
ugsaldur, og eiga þau hjón 2 börn á lífi,
nokkuð stálpuð. Hún var mesta sæmd-
.arkona og mjög vel þokkuð.
Að morgni x. þ. m. andaðist hér á
Landakotsspítalanum Halldór Bjarna-
s o n sýslumaður Barðstrendinga, úr krabba-
meini innvortis, á 42. aldursári. Var flutt-
ur hingað á spítalann með »Kong Inge«
25. f. m. Hann var fæddur á Ulfagili í
Húnavatnssýslu 25. september 1863, og
voru foreldrar hans Bjarni Jónsson frá
Rútsstöðum í Svinadal Markússonar um-
boðsmanns í Lóni Markússonar á Hlöð-
um Markússonar á Skútum Ólafssonar og
Halldóra Jónsdóttir frá Kolugíli Sigurðs-
sonar, en móðir Halldóru var Þórvör
Eldjárnsdóttir stúdents á Háleggsstöðum
í Deildardal (J- 1825) Hallgrímssonar
prófasts á Grenjaðarstað Eldjárnssonar.
Halldór heit, var útskrifaður úr lærða
skólanum 1887 með 1. einkunn. tók próf
í lögum við háskólann 1894 með 2. eink-
unn, var svo á skrifstofu bæjarfógeta í
Rvík og við málfærslustörf, unz hann
var settur sýslumaður í Barðastrandar-
sýslu haustið 1899, en fékk veitingu fyrir
sýslunni 13. jan. 1900. Bjó hann þar á
Vatneyri. Hann var kvæntur Margréti
dóttur Egils bókbindara Jónssonar í Rvík.
Halldór heit. var vel gáfaður maður og
drengur góður.
Lausn
frá prestskap hefur séra Páll E. Sivert-
sen á Stað í Aðalvík fengið frá næstu
fardögum.
Veltt ppestakall.
Sandfell í Öræfum er veitt séra Jóni
N. Johannessen aðstoðarpresti á Kol-
freyjustað.
Skipstrand.
Enskt botnvörpuskip (frá Aberdeen)
strandaði 26. f. m. á grynningum vestan
til við útfall Þjórsár, fram undan Fljóts-
hólum. Mannbjörg varð, enda var þetta
svo nærri landi, að kaðli varð kastað til
skipshafnarinnar og komst hún á honum
til lands — 10 menn alls. Mikill fiskur
kvað hafa verið í skipinu, enda hafði það
verið á heimleið.
Lausafregn hefur borizt hingað um,
að botnvörpuskip hafi farizt við Krísu-
vlkurbjarg, og hafi þar rekið ýmislegt
\ár því.
Hollenzkur konsúll
hér í Reykjavík er skipaður Jes Zimsen
kaupmaðttr.
Nýjar bækur.
setidar Þjóðólfi frá Gyldendalsbókaverzlun
í H'ófn.
Sværmere. Eptir Knut 'Hamsun 133
bls. 8™.
Höf. sem er talinn langfremstur hinna
yngri norsku skálda, og orðinn þegar all-
frægur, hefur með þessari bók sinni frem-
ur hnekkt áliti stnu en aukið það, því að
hún ber þess óvíða vott, að nokkur meist-
arahönd hafi þar um fjallað. Þó eru nátt-
úrulýsingarnar í bókinni allgóðar, en
söguefnið sjálft lítilsháttar og atburðirnir
harla óeðlilegir, enda hefur Hamsun litla
viðurkenningu fengið fyrir þennan skáld-
skap sinn. En menn vænta þess, að hann
sæki í sig veðrið aptur, því að hann hef-
ur ótvíræðilega sýnt, að hann hefur mikla
skáldskaparhæfileika. Til þess nægir að
eins að benda á eldri bækur hans sumar
t. d. „Sult“, „Mysterier" og sérstaklega
„Pan" o. m. fl.
Hr. Arues Penge. Eptir Sehnu Lagerlöf
119 bls. 8™.
Sænska skáldkonan Selma Lagerlöf er
nú frægust skáldkona á Norðurlöndum.
Hún varð fyrst nafnkennd af skáldsög-
únni „Gösta Berlings Saga“, og síðan hef-
ur hver einasta bók eptir hana farið sigri
hrósandi yfir öll Norðurlönd og víðar.
Sérstaklega er fyrri hlutinn af bók henn-
ar „Jerúsalem" aðdáanlega vel ritaður.
Styrkur skáldkonu þessarar liggur í því,
hversu skáldlega og frumlega hún fer með
fornar sagnir frá liðnum öldum, og hvern-
ig henni tekst að gera persónurnar lifandi
fyrir hugskotssjónum lesandans 1 sam-
bandi við hina dularfullu náttúrukrapta
umhverfis þær, svo að þær myndir hljóta að
festast í rninninu. Saga þessi „Hr. Arnes
Penge" er einskonar draugasaga allhrika-
leg, en ágætlega vel með efnið farið og
mjög frumlega. Og sagan er engu veiga
minni en hinar allra kjarnmestu í íslenzk-
um þjóðsögum. Frk. Lagerlöf málar með
sterkum litum og er ekki smeik við að
gefa hugmyndaflugi slnum lausan tauminn
þá er um yfirnáttúrlega hluti er að ræða.
Þeir sem lesa þessa sögu hennar gleyma
henni trauðla næsta dag. Myndirnar í
henni eru gerðar af hinum fræga finnska
málara Albert Edelfeldt.
Jaröskjálptar í Reykjavík 28. og
29. janúar.
Það ber mjög sjaldan við, að jarðskjálpt-
ar séu eins tíðir eins og nú átti sér stað siðustu
dagana. Að jafnaði var skjálptinn ekki mik-
ill, en snarpur var hann með köflum. O-
mögulegt að segja úr hvaða átt hann kom,
(til þess vantar hér mælir); ekkert tjón varð
að honum hér í bæ, hvað sem orðið hefur
hefur annarstaðar. Hef eg skrifað upp, hvenær
hreyfingarnar voru, og var það þannig:
Hinn 28. laugardagur
kl. 3.10 lítill
— 5.32 talsverBur
— 5.40 lítill
— 7.12 lítill
— 7.13 lítill
— 7.17 lítill
-■ 7.39 lítill
— 7.42 allsnarpur
— 7.46 tnjög snarpur
— 7.52 litill
— 7.53 talsverður
— 8.25 snarpur
— 9.17 lítill
— 9.24 lítill.
Samtals 14. skjálftar.
h. 2<p. sunnudagur
kl. 11.7 mjög snarpur
— I 1.14 lítill
— 1 I.21 lítill
— 11.47 lítill
— 11-49 lítill
— 12 lítill
— 1.17 nokkur
— 1.21 nokkur
— 2.15 snarpur
— 2.57 fremur lítill.
— 2.59 talseetður
— 3 fremur lítill
— 4.15 lítill
— 5-34 lítill
— 5.47 lítill.
Samtals ip skjálftar.
Rvfk 31. jan. 1905.
f. Jónassen.
Laust ^prestakall. Staðuri Aðalvik
í Norður-ísajjarðarprófastsdœmi. (Staðar-
sókn með 2 kirkjum: á Stað og Hesteyri) Mat:
kr. 1202,27. Af brauðinu greiðast til uppgjafa-
prests kr. 2,27. Á því hvílir embættislán til
vatnsveitu heim að staðnum, samkv. lhbr,
8. marz 1902 (Stj.tíð B. bls 54), upprunalega
600 kr., sem afborgast með 50 kr. árlega á
12 árum. — I matinu er fólgin 600 kr. föst
uppbót úr landsjóði. Brauðið veitist frá far-
dögum næstu. Auglýst 25. janúar 1905. Um-
sóknarfrestur til 12. marz 1905.
Jarðarför sýslumannsfriiar Slgriðar
Einarsson fer frain á flinintiidaginn
keninr 0. þ. 111. II1/* f. h. og hefst á
heimili foreldra liennar hér í hæniiui.
Daginn áður kl 3 verður húskveðja liald-
in á heimlii liinuar látnu í Hafnnrftrði.
Hús til sölu á Kaplaskjólsstíg. Semja
má við Jón Magnússon á Kaplaskjólsstíg
nr 29.
M.Thomsen timburverzlun.
(II. Kongevej C. Kjöbenhavn B.
hefur á boðstólum danska, þýzka og
ameríska eikar-, birki- og eskiplanka,
mahóní, hnottré, teaktré og pokken*
holt. 5/4'' X 6" hv. & misl. bikfuru,
óslítanlega í gólf, 3 ára gamla c. 90%
kvistalausa in. m.
Vel skotna
Fálka og Himbrima
kaupir
Júlíus Jörgensen,
Undirritaðir hafa keypt og notað Kína-
lífs elixir hr. Valdimar Petersen’s, og vér
erum svo ánægðir með hann, að vér teljum
oss skylt að lýsa opinberlega viðurkenn-
ingu vorri á þessum óviðjafnanlega og á-
gæta bitter. Hann er vissulega hinn bezti,
áhrifamesti og mest styrkjandi heilsubitter
sem til er, og hefur í ríkulegum mæli alla
þá eiginleika, sem óskað verður og krafizt
af hinum frábærasta bitter.
Vegna meðbræðra vorra viljum vér bæta
því við, að Kína-lífs-elixírinn ætti að vera
á hverju heimili.
Marie DahJ J. Andersen, Laust £end-
sen, Laust Nielsen, Lyngby, P. Mörk,
Dover. Pedet Nielsen umsjónarmaður,
Agger. Niels Christensen, Jestrup, Chr.
Joscphsens ekkja, Koldby. Thotnas Chr.
Andetsen, Helligsöe, Niels Olesen, Sinne-
rup. Mariane Andersen, Dover. Poul
Slcet, Ginnerup. Jesper Madsen, Refs.
M. Jensen, Ginnerup. Matthin Petersen,
Bjerggard, Hurup. J. Svendborg, Dover.
Peder Thygesen, Ydby. Jens Hommelse,
Dover. Peder Kjær, Ginnerup. Anders
Dahlgaard Nielsen, Mads Christensen,
Vesterby, og J. K. P. Eriksen, Dover.
Bezt kaup
á
Skófatnaði
í
Aðalstræti 10.
Verzlun
Matthíasar Matthíassonar
er flutt i hina nýju búð i Aust-
urstræti — vesturendann á
Jensens bakaríi.
Uppboð.
Samkvæmt beiðni Björns Þorsteins-
sonar, bónda í Bæ í Borgarfirði; og
að undangengu fjárnámi verður jörðin
Lágafell í Mosfellshreppi ásamt hjá-
leigunni Lækjarkoti; 28,7 hundr. að
dýrl., með íbúðarhúsinu og öllum hús-
um á jörðunni, sem eru eign jarðar-
eiganda, boðin upp við þrjú opinber
uppboð, er haldin verða laugardagana
18. marz, 1. og 15. apríl næstkomandi
og seld, ef viðunanlegt boð fæst. Tvö
fyrstu uppboðin verða haldin á skrif-
stofu sýslunnar, í Hafnarfirði, en hið
síðasta á eigninni sjálfri, sem selja á.
Uppboðin byrja öll kl. 1 e. h.
Söluskilmálar verða til sýnis á skrif-
stofunni degi fyrir fyrsta uppboðið.
Skrifstofu Gullbr,- og Kjósarsýslu
21. jan. 1905.
Páll Einarsson.