Þjóðólfur - 22.02.1905, Blaðsíða 2
34
allmiklar ákærur á hendur Kuropatkin
fyrir það, að senda sér ekki hjálparlið,
sem hann hefði búizt við. Annars hefur
þaö líka heyrzt, að Kuropatkin mundi
ætla að láta af herstjórn, síðustu fréttir
segja, að hann sé sjúkur og agaleysi mik-
ið í liði hans.
Eptir því sem símritað hefur verið til
„Politiken" í nótt frá Lundúnum, hefur S í-
b erí u br a u t i n verið ro fi n á tveim-
ur stöðum, 20 enskar mílur fyrir
austan Irkutsk og á nokkru svæði
milli Charþin og Mukden. Hjá
Irkutsk hefur hún verið skemmd afverka-
mönnum, en fyrir sunnan Charbin ætla
menn, að hún hafi verið skemmd að til-
hlutun Japana. Þetta hlýtur að hindra
mjög aðflutninga til herstöðvanna af vist-
tim og nýju liði.
Stössel er nú kominn á heimleið.
Fréttaritari „Times" hefur verið í Port
Arthur. Segir hann, að frásagnirnar um
það hafi verið mjög orðum auknar og það
sé algerlega rangt, að gera Stössel að
þjóðhetju, þó að hann hafi ekki gefizt
upp fyr, enda hafi það ekki verið honum
að þakka; hann hafi viljað gefast upp langt-
um fyr, en Kontratenko herforingi
hafi varnað því, en hann féll viku áður
en bærinn gafst upp; segir hann, að sjald-
an hafi nokkur borg gefizt upp á jafn ó-
heiðarlegan hátt, vistir hafi verið og nóg
af ósárum liðstnönnum og mörg sterk vígi
alveg óskemmd.
Togo og Kamimura, sem um htíð
hafa verið heima 1 Japan, hafa nú aptur
tekið við flotastjórninni. Beitiskipin rúss-
nesku í Vladivostok, (Bogatyr, Gromoboi
og Russia) kváðu nú aptur vera orðin
vígfær. Floti Rostdestwensky held
ur enn kyrru fyrir í nánd við Madagask-
ar. í ráði er, að senda innan skamms 3.
Kyrrahafsflotann af stað frá Rúss-
landi; heyrzt hefur, að hann ætti að leggja
af stað 14. þ- m. frá Libau. Ennfremur
hefur heyrzt, að senda ætti þar á eptir 4.
flotann í aprílmánuði.
Það hefur flogið fyrir nú upp á slðkast-
ið, að nokkurt útlit kunni að vera fyrir,
að friður verði saminn innan skamms.
Stjórn Bandaríkjanna kvað hafa gert tölu-
vert til þess, að fá því komið til leiðar,
og Rússastjórn kvað jafnvel ekki vera al-
veg fjarri því. En allt hvílir þetta þó í
lausu lopti enn þá og er lítt áreiðanlegt.
Finnland. 6. þ. m. var einn af helztu
mönnunum f finnsku stjórninni „senats-
prókúrator" Eliel Johnsson skotinn
til bana heima hjá sér um hábjartan dag.
Hann var um fimmtugt. Hann komst inn
í stjórnina eptir stjórnlagarofið og fylgdi
svo dyggilega fram inálstað Rússa, að
Bobrikoff gerði hann að aðalsmanni.
Hann var líka hataður mest allra Finn-
lendinga. Sá sem skaut hann, hét K a r 1
Lennart Hohenthal, 27 ára gamall
stúdent. Hann varð að hætta háskólanámi
í Helsingfors í haust af pólitiskum ásfæð-
um.
Svíþjóð og Noregur. I langa hríð hafa
verið á döfinni samningar milli Svía- og
Norðmanna-stjórna, er miðuðu að því, að
skipaðir yrðu sérstakir verzlunarerindrek-
ar fyrir Noreg. Gerðu Norðmenn sér
hinar beztu vonir um heillavænleg mála-
lok, með því að utanríkisráðherra beggja
landanna, Lagerheim, var þeim vel-
viljaður og studdi þeirra mál. En það
var ætlun manna, að ráðaneytisforseti
Svía, B o s t r ö m, væri þetta miður geð-
felt og þegar Lagerheim varð að fara frá
um miðjan desember, var öllum ljóst, að
konsúlamálið var alveg strandað. Boström
kom með nýjar kröfur af Svía hálfu, sem
Norðmenn gátu ekki gengið að. Norð-
menn eru ákaflega gramir yfir þessu, sem
von er. Allur flokkarígur er horfinn og
allir eru sammála um, að láta hart mæta
hörðu og hafa sitt mál fram, hvað sem
Svíar segi. Krafan um algerða uppleys-
ingu sambandsins milli landanna verður
æ háværari og ræða Hagerups ráða-
neytisforseta, sem hann hélt í stórþinginu
í gær, getur ekki skilizt á annan veg, en
að hann sé henni alveg samþykkur, ef
Norðmenn ekki fá breytt sambandinu svo,
að þeir megi við una.
Óskar konungur fékk í gær Gústafi
krónprinz í hendur stjórnarforstöðuna.
Konungur er þó ekki sjúkur, en finnur
hjá sér vanmátt til að hafa stjórnina á
hendi á þessum erfiðu tímum, og ætlar
því að dvelja nokkra hríð við Saltsjö-
baden.
Nefnd sú, er standa átti fyrir hluttöku
Norðmanna í norrænu íþróttaleikun-
um í Stokkhólmi, sem haldnir eru
um þessar mundir, hefur nú með dr. Frið-
þjóf Nansen í broddi fylkingar lýst því
yfir, að Norðmenn taki alls ekki þátt í
þeim.
Að kvöldi hins 15. jan. kom voðamikil
s k r i ð a úr Hrafnafjalli skammt fyrir
norðan Bergen. Skriðan féll niður í vatn,
sem heitir Loenvandet, en við það
hófst upp geysimikil vatnsbylgja, sem
skolaðist með feiknaafli yfir allann dal-
inn og hreif með sér allt sem fyrir var.
Tveir bæir voru við fjallsræturnar og þeir
skoluðust gersamlega burtu með öllu, sem
í þeim var, bæði hús, menn og fénaður.
Alls biðu 68 manns bana.
Banmörk. Christensen ráðaneytis-
forseti hefur nú birt stefnuskrá slna í þing-
inu og þykir sumum hún fara í bága við
stefnu vinstrimanna áður viðvíkjandi her-
málunum. Hann býst ekki við neinni
niðurfærslu á herkostnaðinum. Nokkrir
af vinstrimönnum (radikale) greiddu því
ekki atkvæði með traustsyfirlýsingu til
hans. Þeir hafa nú verið útilokaðir úr
vinstrimannaflokk-num (Venstre Reform-
partiet) og hafa nú myndað nýjan flokk,
sem þeir kalla „Folk etingets Venstre".
I flokknum eru 14 manns og C. Th.
Zahle yfirréttarmálaflutningsmaður er
formaður hans. Meðal þessara 14 voru
bæði formaður fólksþingsins, Herm.
Tri er og 1. varaformaður þess, K r i s t-
ofer Krabbe og sögðu þeirnúþessum
veg af sér. I stað þeirra voru kosnir for-
maður Anders Thomsen skólakennari
og varaform. Anders Nielsen endur-
skoðandi og formaður vinstriflokksins,
Þýzkaland. í Þjóðólfi hefur áður verið
getið um verkfajlið í kolanámun-
um t Westfalen. 16. jan. var hafið
allsherjarverkfall og síðan hafa um 200
þús. verkamenn verið vinnulausir. Þeir
krefjast 8 stunda vinnutíma, hækkuð laun
og betri aðbúnað og getur víst ekki kall-
azt ósanngjarnt, því að vinnan er afarill.
En vinnuveitendur segjast ekkert geta
sinnt þeim, en skora á þá, að taka upp
vinnuna aptur, því að annars verði að
flytja inn ensk kol(I) Verkamönnum er
nú auðvitað nokkurn veginn sama um það,
en stjórninni er það aptur á móti ekki og
fyrir því hefur hún reynt að miðla mál-
um, svo aó vinnan verði upptekin aptur
sem fyrst, en það hefur ekki tekizt enn-
þá. Kolin eru þegar farin að hækka tölu-
vert í verði og hækka enn meir, ef fram-
hald verður lengi á verkfallinu.
Belgía. Allmikið verkfall hefur ver-
ið hafið í kolanámum í Belgíu. Um 40
þús. manns hafa lagt niður vinnuna. Á-
greiningsatriðin eru þau, að verkamenn
viljá fá launahækkun.
Frakkland. Loks tók C o m b e s það
ráð í miðjum janúar, að fá lausn fyrir
ráðaneyti sitt. Hann hafði að vísu aldrei
beðið ósigur við atkvæðagreiðslu, en meiri
hlutinn var orðinn svo óviss, að hanngat
ekki fullkomlega treyst á hann lengur.
Combes hafði verið lengur við völdin en
flestir ráðaneytisforsetar á undan honum
og sýnt af sér hina mestu rögg, einkum
gagnvart klerkum í skólamálum. Eptir
nokkra vafninga myndaði Rouvier hið
nýja ráðaneyti. Hann var fjármálaráð-
herra í ráðaneyti Combes, og var einn
hinna gætnari meðlima þess. Auk hans
gengu 3 aðrir meðlimir þess inn 1 þetta
nýja ráðaneyti: C h a u m i é kennslumála-
ráðherra, er nú verður dómsmálaráðherra,
Delcassé utanrfkisráðherra og Berte-
a u x hermálaráðherra. Rouvier er 63 ára
gamall; hann hefur verið fjármálaráðherra
í mörgum ráðaneytum og þótt með beztu
fjármálamönnum Frakka; 1887 var hann
einnig ráðaneytisforseti í 7 mánuði. Jafn-
aðarmenn munu ekki ætla að styðja þetta
ráðaneyti svo sem hið fyrra.
Ungverjaland. Þingkosningarnar
eru nú um garð gengnar. Stjórnin hefur
beðið algerðan ósigur. Mestan styrk með-
al stjórnarandstæðinganna hefur sjálfstæð-
isflokkurinn undir forustu Franz Kossuth’s.
T i s z a hefur sótt um lausn fyrir ráðaneyti
sitt, en nýtt ráðaneyti er ennþá ekki
myndað.
Á Spáni befur V i 11 a v e r d e myndað
nýtt ráðaneyti.
í Arg’entínu hófu nokkrir herfonngjar
uppreisn í byrjun þ. m., en hún var kæfð
niður á einum degi.
Viðauki. Iivík 22. febr.
Við hinar ítarlegu fréttir hér á undan er
fáu nýju að bæta. Þó rná geta þess, að ó-
eirðir voru að nýju byrjaðar í Rússlandi og á
Póllandi (í Varsjá og Lodz). I Péturs-
borg lögðu 23,000 manna niður vinnu 9.
þ. m. í Moskva einnig viðsjár. — Sagt er
að Gorki hafi verið sendur til Riga til að
dæmast þar. — En það sem mesta eptirtekt
vakti þessa síðustu daga, var það, að
Bologin, nýi rússneski innanríkisráð-
herrann, lét það verða fyrsta verk sitt að
senda lögregluþjóna í hús Witte fyrv. fjár-
málaráðherra, og rannsaka það allt hátt
og lágt. Var þar gert upptækt mikið af
skjölum og prívatbréfum Witte’s, og höfðu
lögregluþjónarnir það burt með sér. Or-
sökin til þessa óvenjulega tiltækis kvað
vera sú, að Witte er grunaður um að
vera hlynntur umbótastefnu í stjórnarfar-
inu m fl., og það er mælt, að þá er
Plehve var myrtur hafi hann haft í vas-
anum skjal handa keisara til undirskriptar
til að gera húsrannsókn hjá Witte. Það
er enn óséð, hvað af þessu getur leitt.
Witte er talinn einhver allra merkasti
stjórnmálamaður Rússa, sem nú er uppi,
en hann er ekki í náðinni hjá keisaran-
um, er mun þykja hann frjálslyndur um
of. — Ritað er frá Pétursborg, að Kuro-
patkin rauni verða kallaður heim, en
Grodekoff hershöfðingi skipaður í stað
hans.
Látinn er hinn frægi þýzki málari
Adolf Menzel á 90. aldursári, nafn-
kunnur fyrir sagnamálverk sín, einkum
frá tfmum Friðriks mikla. Á 80. afmælis-
degi hans veitti Vilhjálmur keisari hon-
um aðalstign og mörg fleiri virðingarmerki.
Menzel var talinn jafnfrægur þeim Böcklin
og Lenbach.
Sérstaða íslandsráðherrans
viðurkennd til fullnustu.
Nú er komin ótvíræð staðfesting áþví,
sem fyr hefur verið skýrt frá í Þjóðólfi,
að ráðaneytisskiptin í Danmörku hafa alls
engin áhrif haft á stöðu ráðherra vors.
Hann sat einn kyr, þótt allir dönsku ráð-
gjafarnir færu frá. í »Statstidende«, hinu
opinbera auglýsingamálgagni stjórnarinn-
ar, er 16. f. m. skýrt frá þvf, hverjirhafa
fengið lausn frá ráðherrastöðunni og hverj-
ir séu skipaðir í hið nýja ráðaneyti. Ráð-
herra vor er ekki meðal hinna fráfarandi,
og þar af leiðandi fær hann heldur ekki
nýja útnefningu. Hann er sá eini ráð-
herra, sem ekkert er hróflað við. Það
er t. d. tekið mjög skýrt fram í blaðinu,
að Deuntzer hafi beiðst lausnar fyrir sig
og þá félaga sína í ráðaneytinu, er eigi
heima í Kaupm.höfn (»herværende
Kolleger«).
Hvað skyldu valtýsku málgögnin nú
taka til bragðs til að lýsa þetta ósatt og
klórayfir vonbrigði sín? Skárra að taka
ekki munninn eins fullan í upphafi, og láta
ekki bera eins mikið á hinni sáru þrá
sinni eptir að fá það staðfest, sem aðrir
en pólitiskir óþokkar einir geta ekki ósk-
að eptir, nfl. því, að frelsi og réttur ís-
lands væri fyrir borð borinn og þingræði
vort myrt í fæðingunni. Atferli hinna
valtýsku málgagna virðist sýna það ber-
lega, að þau hafi ekki haft nokkra heitari
ósk en þessa, og lýsir það hraparlega af-
vegaleiddum skilningi á stöðu sinni gagn-
vart þjóðinni í sambandi við öidungis
ósæmilegt flokksofstæki.
Brottrekstur dr. Valtýs.
Þau tíðindi gerðust í íslenzka stúdenta-
félaginu í Höfn 10. þ. m., að dr. Valtýr Guð-
mundsson var rekinn úr félaginu með
atkvæðagreiðslu (með 22 atkv. gegn 17).
Er skrifað frá Höfn, að það hafi verið
bæði»fyrirframkomuhansgagnvaitféIaginu
og fyrir framkomu hansgagnvait ísl. þjóð-
inni í sýningarmálinu«. Hann kom sjálf-
ur á fundinn til að verja sig, hélt að hann
væri liðsterkari þar en hann var, því að
annars hefði hann hklega sagt sig úr fé-
laginu, heldur en að láta reka sig. Það
hafði fyrir löngu kvisazt hitt og þetta um
miður heppileg afskipti hansaf þessu sýn-
ingarrnáli og tvöfeldni gagnvart stúdent-
um, er og grunaður um að hafa allmikil
mök við blaðið »Vort Land«, sem frek-
ast allra danskra blaða hefur flutt hinar
heimskulegustu og illgjörnustu æsinga-
greinar ( r orn garð, út af sýningarmálinu,
með hatursfullum árásum á ráðherra vorn
og hið nýja stjórnarfyrirkomulag. Hinn
7. þ. m. flutti blaðið eina slíku grein f
ritstjórnarnafni(I) og eiga það að vera
andmæli gegn greininni í »ÞjóðóIfi« 20.
f. m. um »nýlendusýninguna« og úrsögn
ráðherrans úr sýningarnefndinni. Greinin
er mjög naglalega rituð og full af rang-
færslum, en sýnilega með mjög mikilli
viðleitni til að berja það inn í dönsku
þjöðina, að flokksbræður ráðherrans eða
»ÞjóðóIfs-flokkurinn« sem blaðið svo kall-
ar, séu eindregnir Danaféndur(I), og ráð-
herrann þá Kka að sjálfsögðu. Jafnframt
er varpað hnútum að Alberti fyrir eptir-
látssemi hans við Danaféndurna(I), er hann
lét þá fá sérstakan ráðherra búsettan hér
á landi. Það er svo sem auðséð til hvers
refarnir eru skornir, með öllum þessum rógi,
sem danskur maður mundi naumast
hafa getað sett saman.
»*Nýlendusýningin“.
Með »Kong Trygve« komu þær fréttir
um sýninguna í Kaupmannahöfn, að aðal-
nefndin þar, þrátt fyrir það þó að svar
nefndarinnar hér væri rniklu fremur letj-
endi en hvetjandi, hefði afráðið, að sýn-
ing skyldi fram fara að þvf er ísland
snerti, þó f nokkuð smærri stil, en upp-
haflega var ákveðið. Er nú til ætlazt,
að sýningin sé mest fólgin i myndum
(»Panoramaer, Lysbilleder«) og svo á að
sýna fallega íslenzka stofu með gömlum,