Þjóðólfur - 22.02.1905, Side 3
35
einkennilegum húsgögnum. Samt geta
þeir, sem vilja, sent til sýningarinnar ís-
lenzka gripi og iðnaðarmuni (Produkter«).
Jafnframt hefur nafni sýningarinnar verið
breytt þannig, að hún nú heitir: »Dönsk
nýlendusýning og sömuleiðis (»samt«)sýn-
ing frá (áður stóð: fyrir) Islandi og
Færeyjum«. Vill aðalnefndin með þess-
ari breytingu gefa betur í skyn, en áður
var gert, að fyrirtæki þetta sé einstaklegs
eðlis. Talað er um, að sýningin eigi að
opnast 31. maí, en vitanlega verður hún
lítilsháttar, að því er til íslands kemur.
Þó segir svo í dönskum blöðum, að nefnd-
in geri sér von um einhverja hluttöku
frá Eyjafirði.
Þilskipaábyrgðarfél. við Faxaflóa
hélt aðalfund 11. þ. m. Formaður félags-
ins, bankastj. Tryggvi Gunnarsson, var
fundarstjóri, og skrifari kaupm. Agúst
Flygenring.
Formaður skýrði frá því, að hagur fé-
lagsins Stæði nú í blóma. Ekkertafþeim
skipum, sem var í ábyrgð næstl. ár, hefði
strandað, að eins fáar smáviðgerðir bætt-
ar, en tekjur miklar, þar sem 66 þilskip
væru í ábyrgð félagsins. Nýir félagsmenn
hefðu greitt inngöngueyri til félagsins
fyrir 13 skip.
Af skipum þeim, sem vátryggð voru,
voru 33 í fyrsta flokki, virt 471,400 kr.
en tekin í ábyrgð fyrir 328,500 kr.; ann-
ars flokks skip voru 33, virt á 292,900
kr., vátryggð fyrir 210,770 kr. Voru þessi
66 skip þá virt samtals 764,300 kr., og í
ábyrgð fyrir 539,270 kr.
Af því félagið þurfti að borga árið 1903
32,000 kr. fyrir 4 skip, sem strönduðu og
viðgerð á 8 skipum, sem löskuðust, þá
átti félagið ekki eptir í fastasjóði við árs-
byrjun (1904) nema 10,200 kr., en (lok árs-
ins var hann orðinn 25,000 kr. Séreigna-
eða varasjóður var við byrjun ársins
28,670 kr., en við árslok 32,000 kr. Sjóð-
ur félagsins var þannig við árslok samtals
57,000 kr., sem er 6000 kr. meira en
nokkru sinni áður, þrátt fyrir hið mikla
tap, sem varð árið áður.
Reikningar félagsins voru framlagðir,
endurskoðaðir og samþykktir í einu hljóði.
Rætt var um, hvort félagið ætti að taka
á sig þá hættu, að vátryggja gufubátinn
»Reykjavík« til ferða um Faxaflóa næsta
sumar og vetur, komu fram nokkur mót-
mæli, en var þó samþykkt með meiri
hluta atkvæða, að hætta ekki eptir eitt
ár, þar sem reynsla væri fengin fyrir þvl,
að skipið væri mikil samgöngubót yfir
veturinn, en yrði annars að hætta vetrar-
ferðum, þar sem ekkert útlent ábyrgðar-
félag vildi vátryggja skipið á þeim árs-
tfma.
Þá kom fram sú tillaga, að breyta lög-
um félagsins við komandi fllokkaskipting
skipanna, og var samþykkt að fela stjórn
fél. undirbúning þess máls til næsta aðal-
fundar.
Á aðalfundi í fyrra voru réttindi tekin
af 3 skipstjórum, til að stjórna 2 og 3
ár skipum þeim, sem félagið ábyrgist. 2
af skipstjórum þessum sóttu til fundarins
um eptirgjöf á ákvæðum þessum, og var
þeim eptir langar umræður veitt eins árs
uppgjöf, svo annar þeirra á 1 ár eptir
ennþá.
Tryggvi Gunnarsson bankastj. átti eptir
lögunum að ganga úr stjórninni, en var
endurkosinn í einu hljóði.
Endurskoðunarmenn voru einnig endur
kosnir, Ágúst Flygenring kaupm. og Þor-
steinn Þorsteinsson skipstj. En aðalvirð-
ingamenn voru kosnir 3 skipstjórar: Þor-
steinn Þorsteinsson, Runólfur Ólafsson og
Edilon Grímsson.
Þilskipaábyrgðarfél. er nú 10 ára gam-
alt, og hefur reynzt mjög þarft fyrirtæki.
Það mun óhætt að fullyrða, að hefði fé-
lagið ekki verið stofnað, þá væri ekki
helmingur hér af þeim skipastól, sem þot-
ið hefur upp á fám árum. Fyrir félagið
hefur margur efnilegur en efnalítill sjó-
maður getað eignazt skip, þegar hann gat
vátryggt skip sitt og þannig sett trygging
fyrir láninu,- þá varð margur til að hjálpa
um lán og ábyrgð, sem annars hefði ver-
ið ótáanlegt, þegar ekki var hægt að gefa
nokkra trygging, og svo væru nú nokkrir
sem hafa mist skip sín 'öreigar hefði félag-
ið ekki greitt þeim af skaðanum. Enn-
fremur hefur allur útbúnaður skipanna
við Faxaflóa mikið batnað, síðan félagið
var stofnað, því félagið lætur árlega skoða
hvert skip, sem það tekur 1 ábyrgð, af
þar til kosnum mönnum, og neitar að
taka skipið í ábyrgð, nema fyllilega sé
uppfyllt sú viðgerð á skipinu og útbún-
ingi þess, sem virðinga- eða skoðunar-
menn félagsins mæla fyrir.
Þess virðist skylt að geta, að félag þetta
er eitt þeirra mörgu nytsemdarfyrirtækja,
er Tryggvi bankastj. hefur verið aðal-
hvatamaður að og stofnandi.
Mannalát.
Hinn 17. þ. m. andaðist á Landakots-
spítalanum frú Stefanía Siggeirs-
dóttir, ekkja Sæmundar prófasts Jóns-
sonar 1 Hraungerði (•)• 8. nóv. 1896).
Hún var fædd 2. des. 1842 á Kolfreyju-
stað og voru foreldrar hennar: Siggeir
stúdent Pálsson, síðar prestur á Skeggja-
stöðum (J* 6. júlf i866)og f. k. hans Anna
Ólafsdóttir prests á Kolfreyjustað Indriða-
sonar. Frú Stefanía giptist 2i.sept. 1864
séra Sæmundi í Hraungerði og áttu þau
saman 3 sonu: séra Ólaf, eptirmann föð-
ur síns í Hraungerði, séra Geir á Akur-
eyri og Pál cand. phil. f Kaupmannahöfn.
— Frú Stefanfa var vel gáfuð og vel
menntuð sæmdarkona, höfðinglynd og
trygglynd, ástríkasta og umhyggjusamasta
eiginkona og tnóðir, og fyrirmyndar hús-
móðir. Var heimili þeirra hjóna alkunn-
ugt fyrirmyndarheimili í snyrtimannlegri
umgengni utan húss og innan. — Kptir
lát manns síns dvaldi hún hjá séra Ólafi
syni sfnum. Banamein hennar varð krabba-
meinsemd innvortis. Lfk hennar verður
flutt héðan austur að Hraungerði.
Hinn 19. þ. m. andaðist á Landakots-
spítalanum eptir miklar þjáningar af
krabbameini í innýflum Filippus F i 1-
ippusson óðalsbóndi frá Gufunesi, á
53. aldursári, fæddur á Bjólu f Holtum
27. september 1852. Voru foreldrarhans
Filippus bóndi Þorsteinsson á Bjólu og
s. k. hans Sigríður Jónsdóttir frá Baugs-
stöðum Einarssonar og Sesselju Ámunda-
dóttur snikkara Jónssonar, systur Halldórs
prófasts á Melstað. Filippus heit. var
kvæntur Guðrúnu dóttur merkismannsins
Guðmundar óðalsbónda Brynjólfssonar á
Keldum á Rangárvöllum, og lifir hún
mann sinn, ásamt 4 börnum þeirra; er
hið elzta þeirra, Þuríður, gipt séra Jóni
N. Johannessen aðstoðarpresti á Kolfreyju-
stað, nýskipuðum presti að Sandfelli í
Öræfum. — Filippus heitinn var mesti
dugnaðar- og atorkumaður og hinn harð-
gervasti, græddist honum og vel fé.
Hann var mjög hjálpsamur við alla, er
bágt áttu og raungóður.
Embættispróf 1 lögfræði
við háskólann hafa tekið Einar Jónasson
og Halldór Júlíusson, báðir með 2.einkunn.
Fyrri hluta lagaprófs hefur Bjarni
Jónsson (frá Unnarholti) tekið með 2.
einkunn.
„Kong Trygvo“
kom hingað í fyrrakveld seint. Far-
þegar með honum alls 28, þar á meðal
kaupmennirnir Gísli Helgason og Filipp-
us Ámundason, Valdimar Ottesen fyrv.
kaupm., Jóhannes Reykdal snikkari úr
Hafnarfirði, Jón Auðunn Jónsson fiski-
matsmaður frá Isafirði og Einar Bjarna-
son þaðan, Páll Halldórsson skósmiður
(frá Skotlandi), D. Davfðsson ljósmyndari
Sveinn Brynjólfsson Kanadastjórnaragent
o. m. fl. — Frá Vestm.eyjum kom Hall-
gr. Hallgrímsson fjárkláðaumboðsmaður
frá Rifkelsstöðum.
Suðnr-Þingeyjarsýslu (Höfðahverfi) 27.
des. 1904:
Héðan fátt að frétta um þessar mundir.
Tíðin fremur stirð það sem af er vetrinum
og nú má heita jarðbann. En sumarið var
hið bezta, er menn muna eptir. Grasspretta
hin bezta á túnum og dágóð á útengjum;
heyskapur víðast hinn bezti; jarðepla-upp-
skera einnig góð í haust. Aflaleysi hið
mesta nú f haust og vetur, enda sjaldan
gefið á sjó fyrir drífum. Um tíma í sumar
góður fiskafli utan við land, en það er langt
að sækja það á smábátum frá Grenivík og
út f Fjörðu, svo nokkrir ætla að halda til
úti í Fjörðum næsta sumar við fiskiróðra,
bví þar er aflasæld mikil, en sveit þessi
(Firðirnir) hafa ekki byggst nerna illa nú
upp á síðkastið, en nú eru menn óðum að
flytja þangað aptur, enda mun mörg sveitin
óálitlegri, þó snjóþungt sé þar, þvf kunnug-
ir segja þar fullt af sfld og fiski á sumrin.
f sumar sem leið ferðaðist hér um betlari,
sem sagðist vera frá Litlu-Asíu, kom nær
því á hvern bæ og mun hafa fengið víðast
hvar gefins ögn af skildingum (Armeníu-
rnann kölluðu surnir hann). Með sér hafði
hann bók og var í henni beðið mjög vel
fyrir honum og beðið að hjálpa honum hvar
sem hann kæmi. Sagt var, að hann segði
Tyrki hafa brennt hús sitt og drepið 2
bræður sína, og að hann stæði uppi hjálp-
arlaus með konu og mörg börn. Sagðir
voru þeir 4 þessir félagar, en eigi kom hing-
að nema þessi eini. Margar getgátur voru
um, hvort gustuk mundi að gefa mönnum
þessum og sumir héldu, að þetta mundu
vera letingjar, sem ekki nenntu að vinna
sér brauð, en um það mun ekki gott að
segja, þar lítið skildist það sem þeir töluðu.
En stjórnin ætti að reyna að sjá um, að
ekki flæktust hingað óþarfa betlarar, sem
alþýða veit ekki, hvort gustuk er að gera
gott eða ekki1).
Sigurður læknir Hjörleifsson flutti alfarinn
héðan 14. sept. s.l. og hefur enginn læknir
verið hér síðan; ekki frétzt um, hver hreppa
muni læknishéraðið. Samsæti var honum
haldið á Höfða nokkru áður en hann fór
alfarinn.
Nautgriparæktunarfélag stofnuðu
Höfðhverfingar, Látrarstrendingar og Ut-
1) Bréfritarinn hefur alveg rétt fyrir sér
í þessu. Það verður að bægja þessum
snfkjugestum frá landinu sem allra fyrst,
því að annars má búast við heilum hóp af
slíkum flökkulýð. Það er heldur enginn
vafi á, að menn þessir eru alls ekki ar-
menskir, og hafa aldrei sætt illum búsifjum
af Tyrkjum, en hafa fundið upp á því snjall-
ræði, að flakka út um heim og biðja hjálp-
ar í blóra við Armeníumenn. Það er að
minnsta kosti víst, að tveir, sem nú eru hér
í bænum og þykjast vera Armenar, geta
ekki lesið armensku, og kannast alls ekki
við málið. Þeini hefur verið sýnt það á
bók, án þess þeir væru látnir vita, að það
væri armenska, og á því vöruðu þeir sig
ekki, en sýrlenzku kölluðu þeir armensku,
og þóttust geta lesið hana. Lögreglustjór-
inn ætti að yfirheyra þessa pilta nákvæm-
lega og vísa þeim svo á bug. Það hefur
verið gert f Danmörku og víða annarsstað-
ar. En danskir prestar og enda íslenzk
kennivöld hafa glæpzt á þeim og gefið þeim
meðmæli(l). Ritstj.
Fnjóskdælir í sumar fyrir forgöngu lektors
Þórh. Bjarnarsonar. Tilgangur þess er að
auka og bæta kúakynið, sem og þörf var á,
en kynbótafélag fyrir sauðfé hefði átt að
fylgja með. Séra Þórh. taldi víst, að eigi
mundi Iíða á löngu, áður en við fengjum
eða kæmum upp rjómabúi, og víst mætti
það ekki dragast lengi, en góðan undirbún-
ing þarf það og væri nauðsyn að brúa Fnjóská
áður í svonefndum Gerðum. Margir eru
hér hættir við fráfærur og þurfa þessvegna
gott kúabú til að fylla upp það skarð.
Gott verð var á sauðfé hér í haust: kjöt-
pundið lægst 17 aura (hæst 23), gærur 30
a. @, mör 22 a. ffi. Rjúpur hafa veiðst dá-
lítið í vetur, því margir hafa sinnt veiðinni
fyrir aflaleysið (úr sjónum), en kaupmenn á
Akureyri hafa víst tekið sig saman um, að
gefa eigi hærra verð en 20 a. fyrir rjúpuna
(stykkið) eða frétzt hefur það, en hvað um
það, þá er það vfst, að kaupmenn hafa
dyfígilega gastt sín að gefa eigi hærra verð
en þessa 20 aura og er það lofsvert hvað
þeir hafa staðið sig vel með þá efndina.
Það er sorglegt að sjá „ísafold" blað ept-
ir blað flytja skammir um nýju stjórnina
að ástæðulausu, eins Og allir viti ekki, að
það er persónuleg óvild og hefndargirni fyr-
ir að verða undir í stjórnarbaráttunni, enda
dettur vfst engum f hug, að taka það öðru-
vfsi en hefndarárás og er undarlegt, að mað-
urinn (Björn gamli) skuli ek'ki fá óbeit á
slíku. Eg er satt að segja hissa, ef „ísa-
fold" missir ekki kaupendur nú um nýárið,
því ólfklegt er, að alþýða vilji til lengdar
kaupa skammir fyrir peninga, eitthvað væri
þarflegra hægt með þá að gera.
Misprentað í síðasta bl. í grein Matth.
Þórðarsonar um Bergen: Tyrkegaden,
Tyrkebryggen, Tyrkekirken fyrir: Tyske-
gader., Tyskebryggen o. s. frv.
Þetta blað kemur
í stað föstudagsblaðsins.
Eg kaupi mikið af brúknðnm
(stimpluðum) frímerkjum frá íslaudi
og Danmiirkn gegn eptirkröfu. Tilboð
sendist
0. E. Simoii, Anssig
Oesterreicli.
Á síðastliðnu hausti var mér dregin
rauðskjótt hryssa 3 v. með mínu marki:
blaðstýft aptan hægra, sýlt vinstra og biti
aptan. Þar eg á ekki hryssu þessa, getur
réttur eigandi vitjað hennar og borgað á-
fallinn kostnað.
Deildartungu 2. jan. 1905.
Vigdís Jónsdóttir.
Ötuli umboðsmaður eða einka-
sali fyrir Island óskast til að selja vörur
vorar. Umsækjendur snúi sér tíl
Nordstróm & Due.
sápu, ilmefnaog kemisk-teknisk verksmiðja.
Christiania. Norge.
Sjóstlgvél og landstígvél
vel vönduð, selur
M. W. Biering
Laugaveg 6. •
Frá 14. maí 1905
fást leigðar 2 stórar fbúðir, hver 7 herb.
auk 2 geymslu kl. Mikið gólfrými. Lofthæð
4*/» al. Ódýr leiga.
Gtsli Þorbjarnarson.
J. C. Poestion:
Eislandbliiten.
Ein Sammelbuch.
neu islándischer Lyrik
fæst hjá
Guðm. Gamalíelssyni.