Þjóðólfur - 14.04.1905, Blaðsíða 2
68
«itthvert yrkisefni leiðir næst »inn í
gripasöfn andans« (þ. e. skáldsins)
»f u 11 ágætra mynda og þjóð-
legra sjóna**), takist honum að melta
þær betur og verða töluvert gagnorðari
og sléttorðari en í kvæði þessu.
Þorleifur H. Bjarnason.
Nýr fengur.
Enn hefur varðskipið »Hekla« höndlað
tvö enska botnverpla við ólöglegar veið-
ar í landhelgi við Portland (Dyrhólaey)
5. þ. m. og flutti þá til Vestmanneyja.
Annað skipið »Calabria« (skipstj. Carr-
ington) var sektað um 60 £, en hitt
»Atlanta« (skipstj. Frederik Woldemar,
danskur) um 80 Það er alls í sektum
2,520 kr. auk afla og veiðarfæra, er upp-
tækt var gert. »Hekla« hefur þá alls |
höndlað 6 botnverpla, síðan hún kom
hingað, og nema sektirnar frá þeim öll-
um 6,480 kr. Má kalla, að hér sé all-
vasklega að gengið af varðskipinu og á
yfirforingi þess (kapt. Schack) heiður og
þökk skilið fyrir dugnaðinn.
Afmælisdagur konungs
vors Kristjáns 9. var haldinn hátíðlegur
hér í bænum 8. þ. m., bæði með dans-
leik í lærða skólanum og með samsæti
á »Hotel Island«, er um 40 bæjarbúar
tóku þátt í. Var yfirmönnunum á »Heklu«
boðið þangað. Hélt ráðherrann H. Haf-
stein þar fyrst mjög laglega og hlýlega
ræðu á íslenzkti fyrir konunginum, sem
nú er 87 ára gamall og þó frábærlega
ern. Þá talaði Klemens Jónsson landrit-
ari langt mál á dönsku um viðskipti Dana
og Islendinga með sérstöku tilliti til sjó-
liðsins danska og starfsemi þess hér við
land. Því næst talaði Júlíus Havsteen
amtmaður sérstaklega fyrir minni kapt.
Schacks, og minntist þess með þakklæti,
hversu fengsæll hann hefði þegar orðið í
skipatöku, og myndu Islendingar kunna
vel að meta þann dugnað yfirforingjans
og áhuga. Fórust amtm. einkar Iaglega
orð um þetta og var að ræðu hans gerð-
ur hinn bezti rómur. Síðast talaði kapt.
Schack fyrir minni Islands. Um kveldið
skaut »Hekla« flugeldum á höfninni.
eignast þá bók, en þar fá menn ágætt
sýnishorn af hinum einkennilega fagra
skáldskap Andersens, er náð hefur alstað-
ar svo mikilli hylli, bæði hjá börnum og
fnllorðnum.
Strandferðabátarnip
»Hólar« og »Skálholt« komu hingað
annar ; snemma morguns 9. þ. m., hinn
12. þ. m., og hefja strandferðir sínar héð-
an í fyrra málið.
Með »Hólum« kom frá Vestmanneyj-
um skipshöfn af frakkneskri fiskiskútu, —
25 manns, —er enskt botnvörpuskip hafði
siglt á og sökkt hér fyrir sunnan land,
og síðan haldið burt án þess að bjarga,
en skipshöfnin komst í bát, er önnur
frakknesk fiskiskúta fann og flutti menn-
ina til eyjanna. Væntanlega verður reynt
að klekkja á sökudólgunum fyrir jafn
glæpsamlegt atferli, því að líklega verður
unnt að komast fyrir það, hver að því
sé valdur.
InnbrotsþjófnaOur og brunl.
Aðfaranóttina 10. þ. m. brann tvílypt
geymsluhús, er Edinborgarverzlun átti nið-
ur við sjó, fyrir innan Skuggahverfi, hérna-
meginn við Rauðarárvíkina. I.húsi þessu
var skrifstofa verzlunarinnar sú, er annast
fiskikaup öll, og allt það er að fiskverk-
un og skipaútgerð lýtur. Ennfremur
brann smiðja og salthús, er voru áföst
við geymsluhúsið. Hestur brann inni í
smiðjunni. F.ldsins varð ekki vart fyr en
kl. 4 um morguninn, og orðinn þá ó-
slökkvandi.
Bruni þessi stafar auðsjáanlega af manna-
völdum, því að mölvuð var upp sterk
járnhurð fyrir múruðum klefa, en í klef-
anum var peningaskápur og ýms skjöl.
En í skápinn komust þjófarnir ekki, gátu
að eins sk'emmt og beyglað dálftið skáp-
hurðina, og hafa svo lagt eld í allt sam-
an. Að sjálfsögðu hafa fleiri en einn ver-
ið að þessu verki, en enginn veit, hverjir
að glæpnum eru valdir, og það þarf naum-
ast að vænta, að það verði nokkru sinni
uppvíst. Á sama stað brann geymsluhús
fyrir 2 árum og af mannavöldum þá, að
því er virtist. Húsin voru vátryggð og
það sem í þeim var.
Ráðherrann
tekur sér far til Hafnar með »Kong
Trygve« á morgun til að leggja fyrir kon-
ung frumvörp þau, er stjórnin hefur sam-
ið og ætlar að leggja fyrir þingið í sum-
ar. Eru þau mjög mörg (um 40) ogsum
þeirra allmiklir lagabálkar, svo að þingið
fær engin smáræðis verkefni að fjallaum.
Mun þá sjást, hvort stjórnin hefur verið
svo aðgerðalítil og áhugalaus um lands-
ífis mál, eins og fjandmenn hennar hafa
verið að telja fólkinu trú um. Ráðherr-
ann er væntanlegur hingað aptur með
»Lauru« 5. júní.
Æflntýri H. C. Andersens
er Gyldendalska-forlagið í Höfn byrj-
að að gefa út til minningar um 100 ára
afmæli þessa fræga æfintýraskálds. Út-
gáfa þessi verður mjög vönduð og með
mörgum myndum. Yfir 10,000 áskrifend-
tir að bókinni fengust þegar fyrstu vik-
una og upplagið á fyrstu heptunum er
80,000, og er það stærra upplag, en áð-
ur hefur verið prentað í einu afnokkurri
danskri bók. Hún er mjög ódýr, 5—6 a.
örkin. Verður um 60 arkir.
Þess skal getið, að þótt alþýða hér á
landi geti ekki keypt skrautverk þetta eða
haft fullt gagn af því málsins vegna, þá
er sú bót í máli, að nýprentuð er ágæt
íslenzk þýðing af hinum frægustu æfintýr-
um Andersens, kostnaðarmaður Guðm.
Gamalíelsson. Og er fæstum ofvaxið að
'*) Auðk. af höf.
Skipstrand.
Aðfaranóttina 10. þ. m. strandaði frakk-
nesk fiskiskúta »Pierre Loti« frá Paimpol,
fram undan Stóra-Hrauni á Eyrarbakka,
sigldi þar upp á sker. Menn björguðust
allir (24 alls). Allmikið af fiski (um 6000)
var f skipinu, og náðist hann að mestu
leyti.
Laust prestakall. Hvammur í
Dalaprófastsdæmi (Hvamms og Staðarfells-
sóknir). Metið kr. 1357.62. Prestsekkjít
nýtur Vio af vissum tekjum brauðsins. Á
því hvfla þessi embættislán : 1600 kr. til
kirkjubyggingar tekið 1882, ávaxtast og
endurborgast á 28 árurn með 6% af presta-
kallinu, að því leyti sem tekjur kirkjunnar
hrökkva ekki til þess, en þær gera það nú
að mestu eða öllu leyti. Lán samkv. lhbr.
18. apríl 1894 (Stjórnartíðindi B bls. 58),
3000 kr. til íbúðarhúss-byggingar, ávaxtast
og endurborgast á 28 árum með 6%.
Prestakallið veitist frá fardögum 1905.
Auglýst 10. aprtl 1905. Umsóknarfrestur
til 25. maí 1905.
«i«i«i«i»i«i«jjj«ijnin«i«nm«.rrrTrm'«<«'«'«'«i«'rrr7rrrrrrrrrrr»'»<«i«n’««
\
►
►
Smiðatól, Taurullur,
saumavélar, oliumaskínur ^
og allskonar önnur járnvara ^
| 25—50 í
◄ ódýrari en annarsstaðar. ►
| Verðlisti með heild- £
^ sölu verði ókeypis. ▲
i C. & L. Lárusson ►
Þingholtsstr. 4. ►
Sj^T’ Af Þjóðólfi kemur
í dag 1‘/2 blað (16 A og 16
B). Næsta blað, miðviku-
daginn 19. þ. m. Aug-
lýsingar í það blað verða
að vera komnar fyrir kl.
4 e. h. á mánudag.
Firma-tilkynning
frá bæjarfógetaskrifstofunni í Reykjavík.
Eðvald Friðriksson Möller rekur
sápugjörð og annan kemiskan verk-
smiðjuiðnað í Reykjavík, með firma-
nafninu: „Sápuverkið í Reykjavík".
Undirskript: Eðvald F. Möller.
Uppboðsauglýsing.
Samkvæmt ályktun skiptafundar í
þrotabúi Casper Hertervigs gosdrykkja-
sala, verður húseign búsins nr. 14 við
Grjótagötu hér í bænum, boðin upp þris-
var á opinberum uppboðum, sem haldin
verða á hádegi, þriðjudagana 25. þ. m.
9. og 23. maí þ. á. Tvö hin fyrri upp-
boðin fara fram hér á skrifstofunni, en
hið sfðasta í húsinu sjálfu. Verður
eignin seld á sfðasta uppboðinu, ef
viðunanlegt boð fæst.
Uppboðsskilmálar, veðbókarvottorð
og önnur skjöl, snertandi húseigina,
verða til sýnis hér á skrifstofunni, degi
fyrir fyrsta uppboðið.
Bæjarfógetinn í Reykjavík,
12. apríl 1905.
Halldór Daníelsson,
QWrnasklner i sterste
A Udvalg til ethvert Brug,
Fagmands Garanti. — Itigen
Agenter. Ingen Filialer, derfor
billigst i Danmark. — Skriv
straks og forlang stor illustreret
Prisliste, indeholder alt om
Symaskiner, sendes gratis.
G. J. Olsen, Ksbenhavn.
Nikolajgade 4, Ti?si7eolide
Hið alþekkta, góða norska
Mustads margarine
er ágætisvara.
Guðm. Olsen.
Andatrú og dularöfl.
Laugardagskvöld kl. 9 heldur
Bjarni Jónsson frá Vogi
fyrirle^tur í Bárubúð um þetta efni. —
Athugunarskekkja. — Rannsóknir um það.
— Andavitranir og loddarar. — Auður
þeirra hluta, sem gera andann fátækan. —
Húsið opnað kl. 8‘/». Aðgöngnmiðar 25
au. við innganginn.
Firma-tiikynning
frábæjarfógetaskrifstofunni í Reykjavík.
Hlutafélagið ,,Steinar‘' f Reykjavík
rekur þá atvinnu að steypa steina úr
sandi og cementi til húsagjörðar.
Hlutaféð er 8000 kr., er skiptist í 40
hluti að upphæð 200 kr. hver, sem
hljóða uppá handhafa. Hlutaféð er
að fullu greitt. Stjórn félagsins má
auka hlutaféð upp í 12,000 kr. Félag-
inu stjórnar þrigga manna nefnd p. t.
Jón Þorláksson ingeniör, Eggert Briem
skrifstofustjóri og Magnús Blöndal
snikkari, Halldór Jónsson gjaldkeri
varamaður. Auglýsingar til félags-
manna skal birta í blaði því, er flytur
stjórnvaldaauglýsingar. Lög félagsins
voru samþykkt á stofnfundi 27. jan.
1905. Heimild til að rita firmað
hefur aðeins stjórnin í heild sinni.
jRegnkápur
♦ < ►
• Stærsta og ódýrasta úrval á Islandi. \ [
; C. & L. Lárusson ;;
; Þingholtsstræti 4, J >
♦
■<♦•♦•♦•♦•♦•♦:•:♦•♦•♦•♦•♦•♦>■
Engir skakkir hælar framarl!
Patent grúmmíliæliii 11 „The safety l’ad„
má setja á hvern hæl sem er. Ódýr og
endingargóður. Endist á við 4 leðurhæla
Snýst þegar gengið er, svo hællinn verður
aldrei skakkur. Er stöðugur og þægilegur
að ganga á, og ekki sleipur í hálku. Er
til af öllum stærðum. Útsölumenn óskast
hvarvetna. Einkasala H. Emmecke 10
Colbjörnsensgade. Köbenhavn.
Brauns verzlun ,Hamburg‘
Aðalstræti 9. Telef. 41.
Karlmannafatnaðir 12.00—17.00—24.00—30.00—32.00—35.00
Drengjajakkaföt 10.30—13.80—14.40—15.00—17.00
Drengjablússuföt 4.50— 5.00— 5.50—6.00— 6.50—7.00—7.50—8.00
Buxur 3.50— 4.55—5.00— 5,50—6.50—7.00—8.00—9.50
Jakkar 13.45—18.40 Reiðjakkar 9.00—14.00
Yfirfrakkar 17.00-—20.00-—45.00 Regnkápur 27.50
Hattar 2.75—5.50 Enskar húfur 0,60—1.00
Kaskeiti 2.25—2.50 Drengjakaskeiti 1.00
Verkmannajakkar 2.50—3.00—3.30—4-20—6.00
Verkmannabuxur 2.00—2.50—3.2C—3.50—3.70—4.00—4.50—6.00
Brauns páskavindlar,
O. Mustad & Sön
Christiania, Norge.
Kontorer i Norge, Sverige, England og Frankrige.
Þabrikanter af:
Maskinsmedede Bygnings- og Skibsspiger, Smaaspiger, Roer (Klinkplader),
Skonud, Hæljernstift, Öxer, Biler, Hammere, Hesteskosöm, Brodsöm, Hæg-
ter, Haarnaale, Buxehager, Vestespænder, Knappenaale, Synaale, Strikkepin-
der, Ftskekroge, Fiskefluer, Kroge med Fortow, Pilke, Vormgut. Ovne, Kom-
furer. Gorojern, Vafifelmaskincr, Gravkors, Gravplader og alleslags Smaastöbe-
gods samt
Margarine.