Þjóðólfur - 05.05.1905, Blaðsíða 2
82
Mislingar í bænum.
Höfuðstaðurinn í sóttkvíun.
111 tíðindi mega það teljast, að misl-
inga hefur orðið vart hér í bænum, og
verður enn ekki sagt, hversu víðtæk sótt-
in muni verða, en eptir því sem hún hag-
ar sér venjulega má naumast vænta, að
hún taki ekki fleiri en þá 2 unglings-
pilta, sem enn hafa sýkzt. Hinn fyrri,
er átti heima í Vesturgötu nr. 44, kenndi
veikinnar 27. f. m., en tveim dögum síð-
ar þóttist héraðslæknir viss um, að hér
væri um mislinga að ræða, enda þótt
enginn viti, hvaðan eða hvar pilturinn
hefur fengið sýkina, er hefur verið á
pálmasunnudag eða mánudaginn næstan
eptir, þvl að undirbúningstími veikinnar
er 10 dagar. Hinn 1. þ. m. gaf héraðs-
læknir út bráðabirgðarviðvörun gegn sýk-
inni og skýrði frá, hver hætta væri á
ferðum. Degi síðar (2. þ. m.) veiktist
annar unglingspiltur (í Holtsgötu nr. 8)
með sömu sjúkdómseinkennum, sem hinn
fyrri, og var hann þegar fluttur á sótt-
varnarhús, eins og hinn og heimili hans
sótthreinsað á sama hátt.
Eptir tillögum landlæknis og héraðs-
læknis hefur nú stjórnarráðið (í fyrra kveld)
gefið út bráðabirgðarauglýsingu um ráð-
stafanir til varnar gegn útbreiðslu misl-
inganna og fyrirskipað þar, að fyrst um
sinn skuli loka hinum almenna mennta-
skóla (lærða skólanum gamla) og öllum
lægri skólum bæði opinberum og þeim,
er einstakir menn halda, að almenn guðs-
þjónustugerð og allir opinberir mannfund-
ir skuli bannaðir, að enginn, sem ekki
hefur áður fengið mislinga megi fara
nokkuð burtu úr Reykjavík eða Seltjarn-
arnesi, hvorki á sjó né landi, og varðar
það sektum eða fangelsi, ef á móti er
brotið. Önnur ítarlegri auglýsing urn
þetta efni, gefin út í gær, birtist í dag
hér í blaðinu.
Höfuðstaðurinn er því í algerðri sótt-
kvíun nú sem stendur, en sennilegt er,
að hún verði ekki nerna til bráðabirgðar
næstu 10—1 * daga, eða þangað til séð
verður, hversu margir sýkjast. En hvort
sem sýkin verður almenn aða ekki bólar
að mun meira á henni en orðið er, þá
verður hér um bil frágangssök að hafa
bæinn í sóttvarnarhaldi lengur en þessa
10—12 daga tilreynslu, og fullerfitt þann
tímann t. d. nú um lokin. Hérgeturþví
naumast verið nema um bráðabirgðarráð-
stöfun að ræða, er sjálfsagt var að gera.
Eru nú varðmenn skipaðir bæði við
Elliðaár og í Fpssvogi og eins við lend-
ingar allar hér til að hepta för allra burtu
úr bænum, sem yngri eru en 23 ára.
Mannalát.
Hinn 22. f. m. andaðist hér í bænum
húsfrú Sigríður Skúladóttir (lækn-
is Thorarensen frá Móeiðarhvoli) kona
Jóns Árnasonar fyrrum bónda 1 Garðs-
auka á 49. aldursári (f. 19. nóv. 1856),
vel gáfuð kona og vel að sér. Eru 3
börn þeirra hjóna á llfi.
Látin er og 27. f. m. Þorgerður
Gunnlaugsdóttir Clausen, tengda-
móðir H. J. Bartels verzlunarmanns, nær
84. ára gömul (f. 22. júlí 1821), ættuð af
Vatnsleysuströnd, ekkja Marteins A.
Clausen kaupm. 1 Keflavík og Hafnarfirði
<f 1882).
Hinn 30. marz dó á Akureyri Ásgrlm-
ur Johnsen verzlunarmaður, sonur
Jóns heit. Ásmundssonar Johnsen sýslu-
manns á Eskifirði. Hann dó úr lungna-
tæringu. Var um hríð í lærða skólanum
cg kominn upp í 4. bekk, er hann hætti
við nám.
Helðurssamsæti
fjölmennt var J. F. Aasberg, r. af
dbr. skipstjóra á »Laura« haldið hér f
Iðnaðarmannahúsinu 29. f. m. í minn-
ingu þess að hann hefur farið 100 ferðir
hingað til lands, eins og áður hefur ver-
ið getið um hér í blaðinu. Var hon-
um afhent heiðursgjöf: vandað gullúr með
gullfesti og ennfremur ágæt mynd af
Þingvöllum eptir Þórarinn B. Þorláksson
málara auk skrautritaðs ávarps frá ýms-
um borgurum bæjarins, er heiðursgjöfina
gáfu, 90—100 manns. Hr. Aasberg hefur
kynnt sig hér að dugnaði, lipurð og
samvizkusemi, framar flestum eða öllum
dönskum skipstjórum, svo að hann átti
sæmd þessa fyllilega skilið.
Prestkosning
er um garð gengin 1 Stokkseyrarpresta-
kalli. Hlaut þar kosningu kand. Gísli
Skúlason með 153 atkv. Séra Páll
Stephensen á Melgraseyri, er verið hafði
um tfma þar eystra og staddur var á
kjörfundi, fékk 95 atkv., en 3. umsækj-
andinn, séra Helgi Árnason f Ólafsvík
fékk ekkert atkvæði.
Aflabrögð
á opnum bátum hér við Faxaflóa hafa
verið í bezta lagi þessa vertíð, mest 1
net, og fiskurinn því vænn. Hæstur hlut-
ur f Garði á 6. hundrað eða um 600, f
Leiru um 400, en minna eptir því sem
innar dregur, í Njarðvíkum, Vogum og á
Vatnsleysuströnd. Á Miðnesi hefur og
verið bezti afli, en í Höfnunum frábær-
lega góður, hæstu hlutir þar u m 1200,
mestallt þorskur.
Botnverpill sektaður.
Enn hefur »Hekla« náð einu ensku
botnvörpuskipi við ólöglegar veiðar l
Miðnessjó 2. þ. m., og flutti það hingað.
Sektin 1400 kr. og afli og veiðarfæri gert
upptækt. Skipið heitir Chrydolite og er
frá Hull. Skipstjóri þýzkur, H. Dittmann
að nafni. Þetta er 7. botnverpillinn, er
»Hekla« hefur höndlað sfðan hún kom,
og er það allvasklega gert.
„Vesta“
kom hingað frá útlöndum norðan og
vestan um land I gær, og með henni
allmargir farþegar, þar á meðal: Guðm.
Guðmundsson héraðslæknir frá Stykkis-
hólmi. Tveir föru-agentar fyrir Kanada-
stjórn, íslenzkir að nafni, Páll og Sveinn,
kvað og hafa verið með skipinu.
„Kong Inge“
kom einnig 1 gær frá útlöndum, norð-
an og austan um land.
Skipstrand.
Frakkneska fiskiskútu sleit upp hér á
höfninni f fyrri nótt og rak á land í
Efifersey.
Frakkneskt herskip
»Lavoisier« kom hingað í fyrra dag.
Hafði farið frá Englandi 28. f. m., en
færði engar markverðar útlendar fréttir.
1 snJóflóOi
fórust tveir menn á Þórdalsheiði eystra
5. f. m. Þeir hétu Gunnar Sigurðsson
og Guðjón Sigurðsson.
Hár aldur.
Nýdáinn er bændaöldungurinn Jón
P á 1 s s o n 1 Víðivallagerði í Fljótsdal á
100. aldursári, fæddur 1. desember
1805. Æfiágrip þessa merkismanns er
prentað í Þjóðólfi 55. árg. nr. 38 (18.
sept. 1903) og vísast til þess hér.
Látinn
er nafnfrægur maður 1 katólsku kirkj-
unni Strossmayer biskup í Diakovar
í Slavóníu, níræður að aldri, höfuðpreláti
allra Suður-Slafa og mannvinur mikil, stofn-
aði meðal annars háskólann í Agram og
vann mikið að menntun og uppfræðingu
meðal landa sinna. Á Vatikansþinginu
1871 barðist hann harðlega gegn trúar-
setningunni um óskeikulleik páfans.
Sýslunefndarfundur Kjósarsýslu
(fyrsti eptir skipti sýslnanna) var haldinn 14.
f. m. Helztu mál þar: 1.—3. Reikningsmál.
— 4. Endurskoðari kosinn (Björn í Gröf). —
Mælt með umsókn Árna í Móum til Rækt-
unarsjóðs. — 8. Amtsráðsm. kosinn Þórður
á Hálsi (vara: B. Gröf). — 9. Til umsagnar
frv. (frá bæjarstj. Rvíkur) um að leggja Bú-
staði og Skildinganes undir lögsögn bæjar-
ins, var mótmælt, og auk þess sérstaklega
ákvæði 2. greinar þess um það, hvernig
reikna ætti endurgjald bæjarfélagsins til
hrepps og sýslusjóðs, ef til kæmi. — 10. Er-
indi frá Mosfellshreppi um að sýslusjóður
héti nokkru fé til akvegar norður undir Esju.
Hreppsbúar buðu fram 1000 kr. (hafa áður
byggt brú á Úlfarsá á leiðinni), en þetta er að-
alþjóðvegur og póstleið til Norður- og Vestur-
lands. — Sýslunefndin samþ. í e. hl. 3000 kr.
till. úr sýslusjóði gegn 1000 kr. frá Mosf.hr., ef
landsjóður gerir veginn að öðru Ieyti. — 12.
Veitt fé til að endurreisa brú á Varrná. —
13. Kjósarhreppi leyft að styrkja fénaðarsýn-
ing í vor. — 14. Seltj.hreppi leyfð lántaka til
stækkunar skólahúss. — 15. Ól. Árnasyni á
Stokkseyri veitt leyfi til sveitarerzlunar í
Skildinganesi. — 22. Samþ. reglugerð um
veiði (stangaveiði) í Laxá og Bugðu í Kjós,
til 5 ára.
Eptfrmæli.
Hinn 17. jan. síðastl. andaðist að heimili
sínu Bæ á Höfðaströnd hreppstjóri Kon-
ráð Jónsson. Hann var fæddur 4. okt.
1835 í Miðhúsum í Óslandshlíð og ólst þar
upp hjá foreldrum sínum, Jóni Jónssyni hrepp-
stjóra og konu hans Ingibjörgu Pétursdóttur.
Var Jón sál, hinn mesti fjör- og fram-
kvæmdamaður á sinni tíð. Frá foreldrum
sinum fór Konráð sál., er hann var 27 ára
gamall, en árið 1864 3. okt. kvæntist hann
eptirlifandi konu sinni, Ingibjörgu Gunnlaugs-
dóttur. Höfðu þau um vorið áður reist bú
á Naustum, hjáleigubýli frá Hofi á Höfða-
strönd, þar bjuggu þau 4 ár. Að þeim liðn-
um fluttu þau að Miðhúsum og bjuggu þar
til 1889. Hafði Konráð sál. erft */3 þfeirrar
jarðar, og mun það hafa verið allt þaö erfða-
fé, sem honum hlotnaðist á æfi sinni. Ár-
ið 1889 keypti hann Bæ á Höfðaströnd
og flutti sig þangað og bjó þar, unz hann
fyrir 2 árum fékk Jóni einkasyni þeirra hjóna
búið og jörðina í hendur. Hann var hrepp-
stjóri í Hofshreppi 36 ár og sýslunefndar-
maður nær 20 ár.
Þegar á unga aldri vandist Konráð sál,
við sjómennsku og varð brátt formaður, og
þótti þegar ötull og fengsamur, enda skorti
hann hvorki áhuga né karlmennsku til þess
starfa. Á þeim tíma var sjómennska og
bátaútgerð í Skagafirði í lélegu lagi, en
Konráð sál. keypti stóran sexæring sunnan
úr Engey, en þar þóttu þá bátar bezt gerð-
ir að smíði og lagi, það var árið 1875. Um
sama leyti byijaði Konráð sál. einnig salt-
fisksverkun hér og var hann hinn fyrsti, er
hana tók upp við Skagafjörð, og sama er
að segja um síldarveiði. Hann var einhver
hinn fyrsti, er hér veiddi síld til beitu og
var sú framför til ómetanlegra hagsmuna
þeim, er sjó stunda. — Öll þau ár, sem
Konráð sál. var hreppstjóri má óhætt full-
yrða, að hann réði mestu um hagi sveitar-
félagsins, og hvenær sem ráða þurfti fram
úr einhverju vandamáli hreppsbúa, þá var
hann við það riðinn á einhvern hátt, því
ráðdeildin og fyrirhyggjan var frábær, og
að sama skapi var snarræðið og dugnaður-
inn að koma í framkvæmd því, sem afráð-
ið var. — í foreldrahúsum lærði Konráð sál.
að skrifa og reikna og var prýðilega vel að
sér í því, og svo vandvirkur við ritstörf sín,
að Jóhannes sál. Ólafsson sýslumaður Skagf.
sagði, „að ekki þyrfti að ugga þær skýrslur,
sem Konráð léti frá sér fara, þar væri hver
stafur réttur". Konráð sál. unni öllum fróð-
leik og mat hann mikils, og ólíkur var hann
mörgum gömlum manninum í því, að hann
hafði sterka trú á því, að framfarir hínna
nýjustu tíma yrðu landi og lýð til blessun-
ar. Hann var einn af þeim, sem studdu að
því, að Skagfirðingar tóku að brúa hinar
stærri ár í héraðinu, og lögðu á sig sérstak-
an skatt í því skyni; hefur það orðið hér-
aðinu til hins mesta hagræðis. Frá því
„Kaupfélag Skagfirðinga" var stofnað og til
dauðadags var hann ötull liðsmaður og starfs-
maður þess. — Þegar K. sál. byrjaði bú-
skap var hann efnálitill maður, en þegar
hann dó má eflaust telja hann með allra
efnamestu og sjálfstæðustu bændum sýsl-
unnar. Um leið og hann fékk Jóni synt
sínum búið og jörðina reisti hann þar vand-
að og stórt timburhús og sama ár keypti
hann hálflenduna af Bæ, sem ekki hafði
verið látin föl fyrri. — Konráð sál. var hár
maður vexti og þrekinn, vel farinn í and-
liti og hinn drengilegasti, ainarður í rnáli
og örlyndur, hreinlyndur og tállaus við æðri
sem lægri. Óskandi að ísland ætti fjölda
af slíkum nytsemdarmönnum. — Albróðir
K. sál., en 14 árum eldri, var Kristinn Jóns-
son bóndi á Tjörnum í Sléttuhlíð, sem and-
aðist 28. maí 1904, vel látinn nytsemdar-
maður. P.
Hinn 11. febr. andaðist á Vatni á Höfða-
strönd bóndinn þar, Andrés Karl Jóns-
s o n, 26 ára, mesta mannsefni og bezti
drengur og mjög vel látinn af öllum, sem
kynni höfðu af honum. Hann var ókvæntur
og bjó með móður sinni og var aðalstoð
aldraðra foreldra.
Veðnráttnfar í Rvík í íiprilmán. 1905.
Mídalhiti á hádegi . + 3.4 C.
—„— - nóttu . -r i.x „
Mestur hiti - hádegi . + 8 „
Minnstur— - — . -j- 6 „
Mestur — - nóttu . + 5 „
Minnstur— - — . -S- 10 „
Fyrst framan af mánuðinum var hér all-
snarpur kuldi en linaði, og var úr því vægur,
en þó hélzt næturfrost til loka mánaðarins;
optast hægur, há-átt.
Vs—''°5-
J. Jónassen.
Innlend vefnaðaryara.
Louise Zimsen
Hafnarstræti 22
hefur útsöln á tauum frá klæðaverksm.
IÐUNNI.
Likkranzar og kort
á Laufásvegi 4.
Appelsínur góðar og ódýrar
í verzl. Edinborg.
Fundur í Sögufélaginu
sá er haldast átti í dag verður e k k i
haldinn fyrst um sinn vegna þess, að öll
fundarhöld eru nú bönnuð.
Kopallakk
hvitt lakk
og málning margar teg. í verzl.
Edinborg.