Þjóðólfur - 09.06.1905, Page 3
ÞJÓ ÐÓLFUR.
103
Prestkosnlng
á Sauðanesi fór þannig, að valinn var
séra Jón Halldórsson á Skeggjastöðum
með um 40 atkv. Arni próf. Jónsson á
Skútustöðum fékk 12 atkv. og séra Jón
próf. á Stnfafelli 1 atkv.
Prestkosning er og um garð gengin á
Stað í Aðalvlk og fékk séra R. Magnús
Jónsson á Tjörn 50 atkv., en Asgeir As-
geirsson cand. theol. (frá Arngerðareyri)
8 atkv. 78 kjósendur voru þar á kjör-
skrá og var fundurinn því mjög vel sóttur.
Misli n ga-sótt varnarhaldið,
sem höfuðstaðurinn hefur verið í síðan
4. f. m. var afnumið með öllu í fyrra
dag, með því að mislinganna hefur ekki
orðið vart sfðan um miðjan f. m.
Lausn frá prestskap
heftir séra Davíð próf. Guðmundsson á
Hofi fengið eptir 45 ára embættisþjónustu.
Þetta prestakall (Möðruvallaklaustur) verð-
ur ekki auglýst til umsóknar vegna fyrir-
hugaðra breytinga á brauðaskipun þar í
héraðinu.
Barðastrandarsýsla
er veitt cand. jur. Guðmttndi Björnssyni
í Klömbrum.
Krossar.
D. Thomsen konsúll, Thor E. Tulin-
ius stórkaupm., Sigurður Jóhannesson stór-
kaupm. í Kaupm.höfn ogThostrup f. kaupm.
á Seyðisfirði hafa fengið riddarakross
dannebrogsorðunnar.
Umboð veitt.
Hinn 7. þ. m. var Þ i n g ey r a k 1 a u s t-
ursumboð veitt Arna bónda Arnasyni
í Höfðahólum og Múlasýsluumboð
Guttormi Vigfússyni alþm. 1 Geitagerði.
Formaður
eg, og hefur hún sjálfsagt Merið valin til
þess að sem fæstir skyldu verða varir við.
Þegar morgnaði tóku einhverjir eptir lappa
þessum og barst þá sú fregn út um bæinn,
að þingmaður ætlaði að halda þingmála-
fund um kvöldið. Nokkrir borgarar bæi-
arins (eitthvað 24) sendu áskorun til þing-
mannsins að fresta fundinum þartilsíðar,
því „Skálholt" var hér á höfninni og ætl-
aði að fara um kvöldið, og höfðu því
flestir annríkt. Á tilsettum tíma mætti
fundarboðandi og nokkrir fundarmenn,
var þá beiðnin ttm frestun fundarins lesin
upp og lét þingmaðurinn fella hana, eins
og vænta mátti, þar sem smölum píslar-
vottanna hafði tekizt að smala saman
rúmum 20 gemlingum af hjörð þeirra fé-
laga, sem römbuðu þangað með tillögur,
sem stungið hafði verið í vasa þeirra.
Ennfremur hafði náðst þar að fáeinir ó-
atkvæðisbærir menn úr bænum og ferða-
menn. Hóf þá þingmaðurinn ræðu slna
og byrjaði á ritsíinamálinu. Eptir að hatin
hafði þvælt um það alllengi var far-
ið í vasa eins fundarmanns eptir tillögu í
þrem liðum, þess efnis að draga úr fram-
kvæmdum ritsímamálsins, og var hún
samþykkt, 1. liður með 24, 2. með 20 og
3. liður með 26, þessum smöluðu, því
aðrir atkvæðisbærir menn komu ekki á
fundinn.
Aðrar tillögur fengu auðvitað sama at-
kvæðamagn, og er það merkileg vanbrúk-
un á þingmálafundum og áliti þeirra að
stnala þaunig saman fáeinum raönnum,
sem búið er að gera bandvana, en fund-
artími settur á þeim tíma, þegar ómögu-
legt er fyrir almenning að mæta.
Á kjörskrá hér á Isafirði eru um 206
kjósendur og sjá þvíallir, hve mikið mark
er á þvl takandi, þótt takast megi að smala
santan 26 af þeim, til að rétta uppputana
eins og þeim hefur verið sagt fyrir fund-
inn‘‘.
Með s/s Lauru og s s Esbjerg 4. þ. m.
Til verzl. B. H. Bjarnason.
100 tylftir af Ijáblöðunum frægu,
bæði gamla og góða teg. með fílnum, og eins nýja teg. frá í fyrra. Blöð—
in eru í ár eins og að undanförnu hin allra vönduðustu og verðið afarlágt að
vanda.
KlÖppuP til að dengja ljáina með.
Brýnin beztu. Brunspónn.
Hnoðnagjar í ljábakkana.
Járningafjaðrir nr< 7 Pk- iooo stk. a 2 kr. 75 og ódýrari
í stórkaupum (minnst io pk. í einu).
MálaravÖPUP allsk. þar á tneðal bezta FERNISOLÍA
á 60 aura potturinn, en að eins 55 aura, þegar 20 pt. eru teknir og 5 1
eyrir í l/i tn., lakari teg. pt. 4 aur. ódýrari.
Járnvörur allskonar.
Gluggaglep alm og tvöfalt af ýmsum stærðum t. d. tvöfalt
32x16 — 34x17 — 36X18 — 32x15” — Útidyrarúður.
Loftrósettur mesta úrval
Nóbels rjóltóbak — Vín og áfengi.
Korsör-margarine övenju ódýrt í stórkaupum.
Kaffi bezta teg. ódýrt mjög, ef mikið er keypt.
Kolonialvörur allsk Kaffibrauð og Tekex, t stór-
kaupttm gegn fyrirfram pöntun ódýrara en alsstaðar. Glysvarningur, Ferða-
koffort, Handkoffort, Vaðsekkir, Veiðiáhöld o. m. fl., setn ógerningur er
upp að telja.
Rammalistar50mi8m.gerðir.óheyrtódýrú-^pj
O. Mustad & Son
Cbristiania, Norge.
Kontorer i Norge, Svetige, England og Frankrige.
Fabrikanter af:
kirkjumálanefndarinnar hr.
Kristján Jónsson yfirdómari hefur nú sagt
sig úr þessari nefnd, og kvað hafa fært
þær ástæður fyrir úrsögninni, að hann
vildi þar ekki lengur vera, úr því að hann
væri ekki á þingi og gæti ekki haldið
þar fram skoðuntmi sínum. Það virðist
því eingöngu vera af vonbrigðum yfir þvf
að verða ekki konungkjörinn, að hann
getur ekki lengur unnið í nefndinni, og
er það nokkuð einkennileg ástæða. En
hvernig gat maðurinn gert sér nokkru
sinni vonir um, að hann yrði endurvalinn ?
Þótt ekki hefðu verið aðrar ástæður, en
að bægja yfiriéttinum frá beinni hluttöku
i flokkapólitík, þá var hún ein næg fyrir
stjórnina til þess að skipa ekki Kr. J. f
konungkjörið þingmannssæti.
,,Hekla“
hefur nú síðast tekið 3 botnvörpuskip
við veiðar í landhelgi 25. og 30. f. m.,
nfl. eitt þýzkt f Meðallandsflóa og 2 frakk-
nesk við Dyrhólaey. Hafði annað þess-
ara skipa verið tekið áður og slapp við
sektir, af því að ekki sannaðist til fulis,
að það hefði fiskað í landhelgi. Hin
* skipin fengu 60 pd. sekt hvort og afli
og veiðarfæri upptækt. Aflinn á öðru
skipinu (hinu frakkneska) var einkum mjög
mikill. — »Hekla« hefur nú alls tekið 18
sökudólga, það sem af er »vertíð« henn-
ar og er það vasklega gert. Auk þess
hefur skipstj. látið sekta 2 botnvörpuskip
Edinborgarverzlunarinnar um 300 kr hvort
fyrir ólöglega meðhöndlun á botnvörpum
sínum við innsiglingu hér.
Ámátleg fundarnefna.
Af Isafirði er skrifað 1. þ. m.
„Aðfaranótt hins 31. maí var fest upp
fundarboð í „Króki" og „Kima“ á ísafirði
þar sem minnst bar á, um n ó 11 i n a segi
Þvotturinn á Guðm. Egilssyni.
Aðfaranóttina 10. jan. þ. á. brann stein-
húskofi, er Guðmundur nokkur Egiisson tré-
smiður hér í bænum átti á Laugaveg 38,
með einhverju af smíðatóiarusli í, allt hátt
vátryggt. Um bruna þennan varð þá þeg-
ar alltíðrætt hér í bænum, og f Þjóðólfi var
þess getið, að hann þætti „grunsamlegur“.
Ut af því varð Guðmundur þessi æfur og
hljóp í mál við útg., taldi að dróttað væri
að sé r(!) að bruninn væri af hans völdum
o. s. frv. Og nú vill þessi sami herra aug-
lýsa hér í blaðinu þau máíalok, að hann
hafi 4. f. m. fengið 12 kr. f málskostnað og
einar 25 kr. í sekt á útg. þessa blaðs hjá
bæjarfógetanum hér (H. Dan.), og er það
gert honum til þægðar að láta þess getið
hér, úr því að hann endilega krefst þess,
enda þótt mörgum virðist, að lítil ástæða
sé fyrir manninn að vera mjög gleiðgosa-
legan yfir þessum þvotti, er hann þykist
hafa fengið hjá H. Dan., og allt eins hyggi-
legt að láta sem minnst á þeirri „hreinsun"
bera. Þess má geta, að Guðmundur þessi hefur
nú reist á brunarústunum kofans stórhýsi all-
mikið, og hefði það orðið honum dýrara, ef
kofahróið, sem engin íbúð var í, hefði ekki
farið svona f vetur. En það er vonandi,
að þetta nýja stórhýsi snikkarans verði ekki
fyrir sömu óhöppunum.
Proclama.
Samkvæmt lögum 12. apríl 1878,
sbr, opið bréf 4. jan. 1861, er skorað
a alla er telja til skuldar í dánarbúi Ás-
geirs EinarssonarfráHvítanesi í Ogurhr.,
er drukknaði 7. jan. síðastl., að lýsa
kröfum sínum og sanna þær fyrir und-
irrituðum skiptaráðanda innan 6 mán-
aða frá síðustu birtingu þessarar aug-
lýsingar.
Erfingjar gangast ekki við arfi og
skuldum.
Skrifstotu Isafjarðarsýslu,
22. maí 1905.
Magnús Torfason.
Maskinsmedede Bygnings- og Skibsspiger, Smaaspiger, Roer (Klinkplader),
Skonud, Hæljernstift, Oxer, Biler, Hammere, Hesteskos'óm, Brodsöm, Hæg-
ter, Haarnaale, Buxehager, Vestespænder, Knappenaale, Synaale, Strikkepin-
der, Fiskekroge, Fiskefluer, Kroge med Fortow, Pilke, Vormgut, Ovne, Kom-
furer. Gorojern, Vaffelmaskiner, Gravkors, Gravplader og alleslags Smaastöbe-
gods samt
Margarine.
Brauns verzl Aðalstræti lun ,Hamburg‘ 9. Telef. 41.
Karlinannaföt frá 12,00. Sumaryfirfrakkar frá 15,00.
DrengjafÖt frá 4,00 Fermingahúfur i,oo.
Drengjakragar með flibba 0,50. Slaufur, slipsi etc. frá 0,25.
Nærföt á börn og fullorðna. Allskonar skófatnaður.
Kvennskyrtur frá 1,25. Nátttreyjur.
Náttkjólar. Kvennslipsi frá 1,50.
Sjöl frá 3,00. Kashemirsjö) frá 6,50.
Borðdúkar frá 0,85, Servíettur frá 0,3 5.
Klæði frá 3,50. Cheviot frá 0,70.
Millifatapeysur á b0rn ogfullorðna.
Brauns vindlar fyrir hvitasunnuna!
Plantadores komnir aptur.
[ í SKÓVERZL, í Bröttugötu 5
» O* hefur komið með „Lauru“ mikið at skófatnaði.
Q> N)
C KARLMANNA skór og stígvél margar tegundir.
0 » KVENNA — — —-------- --------
® C BARNA — — --------- --------
* TÚRISTASKÓR Galoscher Kvenna Karla og Barna. S k ó r e i m a r,
p rj skóáburður margar sortir. — Stigvélaáburður,
^ Ávalt til nægar birgðir af S j ó - og L a n d s t í g v é 1 u m.
^ Allur pantanir og aðgeröír fljótt og vei af hendi leystar.
S virðingarfyist ]y[_ ^ Mathiesen.
I