Þjóðólfur - 07.07.1905, Qupperneq 3
ÞJÓÐÓLFUR.
123
gerði þann dag. Hefur hún að líkindum
aldrei traust verið, en nú hefur henni þó
verið komið eitthvað í lag aptur.
Konungsboðskapurinn,
er ráðherrann las upp við setningu al-
þingis, er harla mikilsverður að þvt leyti>
að hann tekur til fulls af allan vafa um,
að ráðaneytisskipti í Danmörku og flokka-
skipting á ríkisþinginu hafi í nútíð og.
framtíð alls engin áhrif á íslandsráðherr-
ann, heldur standi hann og falli samkvæmt
vilja meiri hluta alþingis. Eins og ná-
kvæmar var skýrt frá 1 Þjóðólfi í vetur
var þá þegar mynduð föst stjórnarfars-
regla að þessu leyti, þá er Islandsráðherr-
ann fór ekki frá völdum með dönsku
Táðgjöfunum. En þeir sem þá kunna að
hafa efast um, að á þeirri reglu væri ó-
hætt að byggja, geta það að minnsta
kosti ekki lengur, úr þvf að konungs-
orð er fengið fyrir því, að Is-
landsráðherrann hafi fullkomna
sérstöðu í ráðaneytinu. Þetta ætti
sannarlega að vera nóg til að sannfæra
alla Tómása, og jafnvel Jón Jensson líka,
þótt ekki sé að vita, nema enn sitji föst
í honum gamla fjarstæðan um grundvall-
arlaga-ráðgjafann(l) íslenzka og ábyrgð
hans fyrir ríkisþinginu(l). Það er sfzt fyr-
ir að synja.
En svo mikið er vfst, að undirskriptar-
firran er dauð og grafin ti) fulls, og þótt
reynt verði að vekja hana upp, þá er ó-
hugsandi, að nokkur lfftóra geti í hana
komizt úr þe^su, sem betur fer.
Stjórnarfrumvörpin,
sem lögð hafa verið fyrir þingið eru
alls 40 og er hinna helztu þeirra áður
getið hér í blaðinu, nema frv. um hækk-
un á aðflutningsgjaldi. Nemur sú hækk-
un 30°/o á öllum áður tolluðum vörum.
Um þetta mál urðu nokkrar umræður f
Nd. 4. þ. m., einkum um hækkun vín-
fangatollsins og tóbakstollsins. Var það
tekið fram, að þetta væri að eins bráða-
birgðarfyrirkomulag, þangað til skattamál
landsins væru tekin til ítarlegrar endur-
skoðunar.
Málinu var þvf næst vísað til fjárlaga-
nefndarinnar, og hefur hún klofnað í tvennt
á því. Minni hlutinn (St. Th. og Stef.
Stef. kennari) vill láta fella það, en meiri
hlutinn telur það nauðsynlegt sem bráða-
birgðarfyrirkomulag til að auka tekjur
landsjóðs. 2. umr. í Nd. í dag.
Samsöng
hélt Sigfus Einarsson söngfræðingur
hér 1 bænum 2. þ. m. með aðstoð danskr-
ar söngkonu, frk. Valborg Hellemann, er
söng meðal annars nokkur lög með fs-
lenzkum texta. Var framburður hennar
á fslenzkunni góður, og var gerður hinn
bezti rómur að söng hennar. Frk. Anna
Pálsdöttir lék undir á hljóðfæri, þá er þau
Sigfús'og frk* V. H. sungu. Samsöngur-
inn vaj" mjög vel sóttur.
Lausn frá embaötti
hefuB (5lafur Guðmundsson héraðslækn-
ir á Stórólfshvoli sótt um frá 1. ágúst
vegna herlsubilunar.
Prestvígður
var 2. þ. m. Gísli Skúlason háskóla-
kand. í guðfræði til Stokkseyrarprestakalls.
Látinn
er á Friðriksspítala í Kaupmannahöfn
í f. m. Kristjánjónasarson verzl-
unaragent, mörgurn kunnttr hér A landi
og alstaðar að góðu, því að hann var
hinn vandaðasti maður og drengur hinn
bezti, vel að sér og fróður um margt, þar
á meðal í ættfræði. Hann var fæddur
21. des. 1848 og voru foreldrar hansjón-
as bóndi Björnsson á Narfastöðum í
Reykjadal (*J* 1879)og Herdís Ólafsdóttir.
Kristján heit. og Kristján skáld Jónsson
voru þremenningar að frændsemi og mjög
líkir í sjón.
„Bothnia“
kom hingað frá Akureyri að kveldi
3. þ. m., ætlaði þaðan vestur um, en
sneri aptur á Húnaflóa vestanverðum sak-
ir íss og kom hingað austan um land.
Haldið er, að »Skálholt« komist leiðar
sinnar vegna íssins, þótt »Bothnia« sneri
frá, mun mest hafa gert það vegna út-
lendra farþega, er sagðir voru smeikir
við jakana, sem naumast er láandi ókunn-
ugum mönnum. — »Bothnia« fór héðan
til útlanda 4. þ. m.
„Hólar“
komu austan um land 4. þ. m. Með-
al farþega voru : Ólafur Thorlacius alþm.,
séra Jón Finnsson á Hofi í Alptafirði,
séra Björn Þorláksson á Dvergasteini,
Gustav Iwersen verzlunarstj. á Djúpavogi
og Ólafur Oddsson Ijósmyndari frá Breið-
dalsvík.
„Tryggvi konungur“
(Ernil Nielsen) fór héðan til útlanda
3. þ. m. og með honum um 20 farþegar,
þar á nteðal: Frú Asta Hallgrímsson og '
frk. Kristrún dóttir hennar, H. Andersen
skraddari og frú hans, frk. Jörgína David-
sen, Sigurður Jónsson járnsmiður, Sevares
katólskur prestur (frá Landakoti). stúdent-
arnir Einar Arnórsson og Magnús Sigui ðs-
son, Chr. Fr. Nielsen agent, Ól. Felixson
ritstj. (frá Alasundi), 2 Þjóðverjar, Hall-
dór Kjartansson kaupm., ísleifur Jakobs-
son verzlunarm. o. fl.
Leiðrétting. í skýrslu um þingmála-
fundi í Snæfellsnessýslu í síðasta blaði var
það elcki nákvæmlega rétt orðað, að tveir
menn á Hellnafundinum hefðu greitt atkv.
með tillögu, er fór í gagnstæða átt við till.
þá, er þeir liöfðu samþykkt á pukursfundi
í Olafsvík, því að menn þessir greiddu e k k i
atkvæði móti Hellnafundartillögunni (þ e.
neyttu ekki atkvæðisréttar síns)- Fundirnir
að Hellnum og ( Ólafsvík, er þingmaðurinn
hélt voru 16. júní, degi síðar, en pukurs-
fundurinn í Ólafsvík.
Tapast hefur á Hellisheiði 24. júní
poki með stuttri vaxkápu og morleitri yfir-
höfn og kvennfatnaði. Umbiðst að skilað
sé að Kolviðarhóli gegn sanngjarnri borgun.
lír með festi og kapseli hefur fundizt
upp í Kjós nýlega. Eigandi gefi sig fram
á skrifstofu Þjóðólfs.
Aðfaranótt hins 5. þessa mánaðar hvarf
úr vöktun nálægt húsi Arna pósts rauður
h e s t u r dálítið haltur, ójárnaður, mark :
sýlt h. Hver sem hitta kynni hest þennan
er beðinn að skila honum gegn sanngjörn-
um fundarlaunum að Ólafsvöllum á Skeiðum.
Staddur í Reykjavík 6. júlí 1905.
Jóhatin Magnússon.
Bökmenntafélagsfundur.
Síðari ársfundur Reykjavíkurdeildar
Bókmenntafélagsins verður haldinn í
Iðnaðarmannahúsinu (salnum uppi á
lopti) laugardaginn 8. þ. m. kl. 5 sui,
degis.
Rvík, 3. júlí 1905.
Kristján Jónsson
p. t forseti.
norðlenzkt, gott og ódýrt
fæst í stærri og smærri
kaupum í verzl.
,Godthaab(.
Ný verzlun
(Hverfisgötu 18).
Fjölbreyttar birgðir. Vandaðar
vörur. Mjög lágt verð á öllu. Fljót
afgreiðsla
Sigupður 4sbjarna?son.
Ljáblöðin
eru í ár eins og að undanförnu
BEZT og ódýrust í
verzlun B. H. Bjarnason.
Augnlækningaferð 1905.
Samkvæmt II. gr. 5. b. í fjárlög-
unum og eptir samráði við ráðherr-
ann fer eg að forfallalausu kringum
land Vneð Ceres, er á að fara héðan
13. ágúst sunnan um land, og kem
eg heim aptur 25. ágúst.
Reykjavik 26/6 1905.
Björn Ólafsson.
Skófatnaður
nýkominn í verzlun Sturlu Jóns-
sonar:
Knrlm.stígvél kr. 5,50.
-----skór -- 3,95.
Kvennstígvél — 4.50.
-----skór — 2.75-
CC,V-nlasklner i sterste
Udvalg til ethvert Brug,
Fagmands Garanti. — Ingen
Agenter. Ingen Filialer, derfor
billigst i Danmark. — Skriv
straks og forlang stor illustreret
Prisliste, indeholder alt om
Symaskiner, sendes gratis.
G. J. Olsen, Ksbenhavn.
Nikolajgade 4,
BSk
Bezt kaup
Sköfatnaði
í
Aðalstræti 10.
Ekta Kína lífs elixír
hefur fengið gullmedalíur, þar sem
hann hefur verið á sýningum í Amst-
erdam, Antverpen, Brussel, Chicago,
Lundúnum og París.
Kína-lífs-elixir er því aðeins ekta,
að á einkennismiðanum standi vöru-
merkið: Kínverji með glas í hendi og
nafn verksmiðjueigandans: Waldemar
Petersep, Frederikshavn Köbenhavn,
og sömuleiðis innsiglið V‘_P' í grænu
lakki á flöskustútnum.
Fœst hvarvetna fyrlr 2 kr. fl.
Leiðarvísir til lífsábyrg'ðar
fæst ókeypis hjá ritstjórunum og hjá dr.
J. Jónassen, sem einnig gefur þeim, sem
vilja tryggja líf sitt, allar nauðsynlegar
upplýsingar.
Einar M. Jónasson
cand jur.
gefur upplýsingar lögfræðilegs efnis,
flytur mál fyrir undirrétti, gerir samn-
inga, selur og kaupir hús og lóðir o.
s. frv. Heima kl. 4—7 e. m. í Vest-
urgötu 5 (Aberdeen).
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Hannes Þorsteinsson.
Prentsmiðja Þjóðólfs.
Aðalfundur
i hinu íslenzka kennarafélagi
verður haldinn föstudaginn 7. þ. m, f
Iðnaðarmannahúsinu uppi, kl. 5 e. h.
Þar verða bornir upp nýir félagsmenn,
lagðir fram reikningar félagsins fyrir tvö
undanfarin ár, og kosnir embættismenn.
Aðalumræðuefni:
Frumvarp til laga um frœdslu barna.
Æskilegt að fundinn sæki allir félags-
menn, sem kost eiga á því; en velkomn-
ir eru og aðrir kennarar, og alþingis-
menn.
Flensborg 1. júlí 1905.
Jón Þórarinsson
p. t. forseti.
Skiptafundur
í dánarbúi Helga Þorleifssonar frá Hnífs-
dal, er drukknaði 7 jan. þ. á., verður
haldinn á skrifstofu sýslunnar laugar-
daginn 2. septembermán. þ. á. og byrj-
ar kl 9 f. hád. Erfingjar gefi sig
fram og sanni erfðarétt sinn.
Skiptaráðandinn í ísafjarðarsýslu
29. júní 1905.
Magnús Torfason.
Firma-tilkynning.
1. Stjórn Aktieselskabet N. Clir. Grams
Handel tilkynnir, að aðalumboð
Holgers Adolph sé upphafið, að
Einar Adolph sé farinn úr stjórn
þess, en í hans stað kominn Hol-
ger Adoiph, að Holger Adolph á-
samt einhverjum öðrum úr stjórn-
inni skrifi firmað, að upphafið sé
prókúruumboð F. R. Wendels, en
þeir herrar féiagsstjóri Ólafur Benja-
mínsson í Kaupmannahöfn og verzl-
unarstjóri Carl F. Proppé á Þing-
eyri hafi prókúruumboð.
2. Leonhard Tang og Harald Tang
til heimilis í Kaupmannahöfn reka
verzlun meðal annars á Isafirði með
firmanu Leonh. Tang & Sön. Pró-
kúruumboð liefur Arni Riis í Kaup-
mannahöfn.
Skrifstofu Isafjarðarsýslu og bæjar-
fógeta á ísafirði, 30 júnímán 1905.
Magnús Torfason.
Sætið beztu kaupum.
Enginn þarf að borga 20—30 kr.
fyrir silfurúr á IO steinum með gull-
rönd, því hver sem sendir mér a ð
eins kr. 12,50 fær þau frítt send hvert
á land sem er. Pantið þau sem fyrst.
Reykjavík, Laugaveg 49.
Jóh. Jóhannesson.
Auglýsing
fyrir sjófarendup.
Fyrir 1. ágúst næstkomandi verða
settir í vitann á Elliðaey á Breiðafirði
nýir speglar og önnur ahöld, og sýn-
ir vitinn frá nefndum dagi fast, hvítt
ljós yfir Kópaflögur út fyrir Selsker.
Þetta birtist hérmeð sjófarendum.
Stjórnárráð íslands, 3. júli 1905.
Umsöknir
um styrk þann, er í fjárlögunum 1904
til 1905 er veittur Iðnaðarmannafélag-
inu í Reykjavík, „til þess að styrkja
efnilega iðnaðarmenn til utanfarar til
að fullkomna sig í iðn sinni" verða
að vera komnar til félagsstjórnarinnar
fyrir 24. ágúst næstkomandi.
Umsóknarbréfunutn verða að fylgja
meðmæli frá þeim, sem hlutaðeigend-
ur hafa lært iðn sína lijá.
Yngri piltar en 18 ára geta eigi
orðið aðnjótandi þessa styrks.