Þjóðólfur - 09.09.1905, Side 2
164
ÞJÓÐÓLFUR.
veður í lopti og Japanar fallið frá öllum
aðalkröfum sínum. Tvenn Marconi-skeyti
frá i. og 4.> þ. m. skýra svo frá þessu:
*/»
Mælt er að sá hafi orðið árangur af
ráðstefnu í Tokio á þriðjudaginn, að
Komura hafi lagt fyrir Witte einslega ný
undirstöðuatriði til samkomulags, sem
haldið er að leiða muni til friðar. Svo
er sagt, að þar sé sleppt öllum hernaðar-
skaðabótum, og ekki farið fram á neina
skerðing á herskipastól Rússa í Austur-
höfum, að Japanar víggirði ekki Petshjflí-
sundin (hjá Port Arthur) og að þeir fari
ekki fram á neitt endurgjald nema fyrir
framfæri hertekinna manna af Rússum.
Friðarsamkoman hófst aptur kl. io á
þriðjudagsmorguninn. En ekki er neitt
kunnugt um, hvað þar hefur gerst.
Rússakeisari hefur gefið út tilskipun um
að vígbúa lið úr 13 fylkjum til austurfar-
ar. Sömuleiðis hefur verið skipað að hafa
til hesta eptir þörfum.
Mælt er, að boðið hafi verið út vara-
liði 1 Yarsjá-héraði.
Tilslökun Japana hefur heppnast mjög
vel, og er árangurinn orðinn sá, að frið-
arsáttmálafrumvarp hefur samið verið
milli þeirra, er í ófriðnum eiga. Sam-
komulag er fengið um síðasta ágreinings-
atriðið í sáttmálanum. Þeir skipta eynni
Sakhalín milli sín til helminga, og hafa
orðið ásáttir um, að vígtryggja hvorki
hana né sundin að henni.
Rússakeisari hefur tilkynnt Linievitch
hershöfðingja, er ræður fyrir Mandsjúríu,
að friður sé nærri gerður, og að skylda
sín við samvizkuna og fólk sitt banni sér
að leggja herinn að nýju undir endalaus-
ar ófriðarþrautir.
Það er futlyrt 1 Pétursborg, áð þá er
friður er kominn á, verði Linivitch hers-
höfðingi skipaður vísi-kóngur í Síberíu.
Mikið orð leikur á því í Pétursborg,
að rússnesku kosningunum hafi verið
frestað til næsta árs.
Önnur tfðindi.
x/»
Borgarstjórnin í Kestch hefur samþykkt
í einu hljóði ályktun, er lýsir óánægju út
af Gyðingaofsóknum, og neitar að greiða
úr bæjarsjóði tillag til lögreglunnar, að
upphæð 15000 rúblur.
Búizt er við miklum æsingi í Parfs vegna
þess að »sykur-konungurinn« Crosmér
hefur ráðið sér bana. Hefur honum mis-
tekist algerlega fjárgróðabrall, sem valt á
nokkrum miljónum sterlingspunda.
Maroccostjórn hefur látið lausa al-
gerska þegna (samkv. kröfu Frakka).
Fjórar tilraunir voru gerðar í vikunni sem
leið til að sy n d a yfi r Ermarsund.
Meðal þeirra er sundið reyndu var sund-
kona frá Astralfu. Öllum misheppnaðist.
*/')
Uppreisn innfæddra manna í ný-
lendum Þjóðverja í Austur-Afriku er farin
að gerast voðaleg. Hún hefur breiðst út
til héraða, sem hingað til hafa verið skoð-
uð mjög auðsveip Þjóðverjum.
Heimatrúboðið
°g
Einar Hjörleifsson.
Það er ekki skemmtilegt að eiga orðakast
við mann, sem reynir að vega að baki
manns með dylgjum, og allra sízt er það
skemmtilegt, þegar manni er einkar vel við
nánustu ættingja þessa manns. En vegna
málefnisins verð eg þó að svara heimatrú-
trúboðsgrein Fj.konunnar 15. ágúst nokkrum
orðum.
Ritstjórinn (E. H.) gefur hálfvegis í skyn,
að eg muni hafa þagað yfir fortíð séra Lár-
usar Halldórssonar tengdaföður míns gagn-
vart stjórn heimatrúboðsins danska, úr því
sú stjórn vill styrkja hann til starfs hér á
landi. — Manninn langar auðsjáanlega til
að ná höggstað á mér. — Hann ætti að
reyna að skrifa heimatrúboðsstjórninni
dönsku og spyrjast fyrir um frásögu mína,
því að naumast mun hún að fyrra bragði
leita sér fræðslu eða ráða hjá spíritistafor-
ingjanum reykvíkska.
Ef E. H. er að hugsa um í alvöru, hvað
kröfuhörð stjórn heimatrúboðsins danska sé
við prédikara sína, get eg frætt hann um
að einn þeirta var áður medodistaprestur og
annar sjónleikamaður, svo að það er ekki
ómögulegt, að Einar geti seinna fengið styrk
hjá henni, ef hann snýst frá villu síns veg-
ar. - — Ekki þarf hann að óttast að það
sé ómenntuð alþýða ein eða „þröngsýnir
klerkar", sem styðja heimatrúboðið. Eg hef
t. d. nýlega fengið tilkynningu um, að krón-
prins vor og krónprinsessa ætli að styðja
heimatrúboðið á Islandi með árlegri pen-
ingagjöf. E. H. samgleðst mér vonandi.
Það lakasta við Fjallkonugreinina er, að
E. H. fer nreð ósannindi, þegar hann segir
að það sé alkunnugt, að séra Lárus Hall-
dórsson hafi verið aðventisti og sé líklega
enn.
Man hann ekki að þeim orðasveim var
mótmælt opinberlega ? Er hann svo fáfróð-
ur, að halda að aðventistar viðurkenni barna-
skírn bæði { orði og verki, eins og tengda-
faðir minn liefur ávallt gert? Ætli E. H.
trúi því, að hallist maður að einhverju leyti
um tínra á eina sérskoðun aðventista, t. d.
laugardagshelgina, þá sé sá hinn sami geng-
inn í fiokk þeirra æfilangt? Annars vita
allir kunnugir, og eg held mér sé óhætt að
segja að E. H. viti það og, að séra L. H.
hefur sýnt í verkinu svo árum skipti, að
hann er alveg horfinn frá þeirri sérskoðun,
þótt hann hafi aldrei auglýst það í blöðum
Einars Hjörleifssonar. Hitt er alkunnugt,
hvað ófróður sem E. H. kann að vera, að
séra L. H. hefur verið prestur evangelisk-
lúterskra safnaða til skamms tíma, og eng-
inn síðan kennt hann við aðventista nema
E. H.
E. H. hreytir ónotum að séra Stórjóhann,
birtir þau daginn eptir að séra Stórjóhann
fór alfarinn héðan, og sagt er mér að Bessa-
staða-Þjóðviljinn hafi kveðið við sama tón.
Prestaöldungurinn norski stendur jafnrétt-
ur fyrir slíku hnútukasti, og herða mega
þeir sig bæði E. H. og guðfræðingurinn,
sem hann vitnar í, ef þeir eiga nokkurn
tíma að komast með tærnar þar sem hann
hefur hælana, að því er kirkjulegar og kristi-
legar framkvæmdir snertir.
Annars er það einkennilegt að maðurinn,
sem sí og æ er að bregða öðrum um þröng-
sýni og ófrjálslyndi, skuli vaða að mönnum
með dylgjum og ónotum, þótt þeir brosi að
eða vari við myrkrafundum andasæringar-
manna, því út af því munu refarnir skornir.
Ymislegt fleira er bæði oftalið og vantalið
í Fjallkonugreininni, sem eg get ekki verið
að eltast við í þetta sinn.
S. A. Gíslason.
Mótmæli gegn æsingafargani
hins svonefnda »Þjóðræðisliðs« eru farin
að berast hingað úr ýmsum áttum. Auk
ávarpsins frá Þingeyingum, er birt var í
slðasta blaði, eru komin svipuð mót-
mælaskjöl frá Eýfirðingum með
á 3. hundrað u n dirs k r i p tu m .
Þjóðinni er nfl. farið að ofbjóða óskamm-
feilnin og heimsku-frekjan í þessum fáu
hræðum hér í Reykjavík, sem láta ný-
dubbaða generalinn sinn siga sér út í
hverja flónskuna á fætur annari, og ger-
ast viljalaus verkfæri í höndum þessa
virðulega foringja, sem lætur heipt sína
yfir atvinnuhnekki við prentiðn bitna á
stjórninni, þótt henni sé mál þetta öld-
ungis óviðkomandi, að öðru leyti en því,
aö hún hefur í prentun sætt hinum beztu
kjörum, er hún komst að, eins og sjálf-
sögð skylda hennar var fyrir landsins
hönd. Og sama hafa þingforsetarnir gert
við prentun alþingistíðindanna, eins og
sjálfsagt var. En svo heldur þessi hlægi-
legi »general« í einfeldni sinni, að sauð-
argæra þjóðrækninnar, sem hann hefur
nú klæðst 1 og allt þjóðræðisfleipur hans
muni hylja allt, skýla öllu. En því fer
harla fjarri. Það glittir alstaðar í ógeðs-
legasta sora undir þeim hjúp. Prentuð
og skrifuð bréf, sem nú rignir yfir landið
úr verksmiðju »generalsins« færa mönn-
um bezt heim sanninn um það, að þetta
ærslaspark stendur ekki í sambandi við
nokkurn snefil af þjóðrækni eða föður-
landsást, heldur er að eins til þess gert,
að ná sér persónulega niðri á einstökum
mönnum og hrifsa undir sig vöidin til
þess að geta síðar beitt þeim til aðkjafts-
högga mótstöðumennina átakanlega. Og
vegna þess, að það er eingöngu persónu-
leg heipt og grimmd, sem öllu þessu farg-
ani stjórnar, þá er farið svona afskaplega
og hranalega af stað. En því fyr kemur
apturkastið og því alvarlegar. Þjóðin átt-
ar sig fljótt á því, að þessi ólátagangur
og vitfirringsháttur geti ekki verið af
hreinum hvötum sprottinn, ekki af um-
hyggju fyrir velferð landsins og framíör-
um, heldur af allt öðrum og óskyldum
ástæðum. Og þessvegna er apturkastið
þegar komið. Aðfarir nýja hjálpræðis-
hersins eru farnar að vekja óhug og ótta
hjá þjóðinni og sá óhugur mun ekki fara
þverrandi he'dur vaxandi dag frá degi.
Sem dálltill vottur þess, hver áhrif t. d.
reykvíski fundurinn 1. ágúst hefur haft
sumstaðar út um land getur talizt eptir-
farandi
þingmálafundarskýrsla úr Breiðdal:
„Ar 1905 þann 19. ágústm. var haldinn
fjölmennur fundur að Breiðdalsvík.
Fundurinn var boðaður af 16 kjósendum
í Breiðdal f tilefni af svonefndum „bænda-
fundi“, sem haldinn hafði verið í Reykja-
vík 1. s. m. Fundarstjóri var kosinn Páll
Benediktsson hreppstjóri á Gilsá og skrifari
Sveinn Benediktsson bóndi á Skjöldólfs-
stöðum.
Því næst var upplesin frásögn Þjóðólfs
°fí „Fjallkonunnar“ um ofannefndan „bænda-
fund" og tekið vandlega til athugunar, hvort
uppþot þetta og yfirhöfuð allur gauragang-
ur stjórnfénda út af ritsíma- og undirskript-
armálinu væri með öllu tilefnislaus.
Jtitshnamálid. a) Hvað þá sakargipt stjórn-
fénda snertir, að ráðherrann hafi ekki haft
heimild til að gera samning þennan samkv.
fjárl. 1903, fjárveitingin sé miðuð við lopt-
skeyti að eins, þá álítur fúndurinn þennan
lið í ofsóknum stjórnfénda augljósa fjaístæðu
með því að í fjárlögunum stertdur: „Til
ritsíma" o. s. frv. Þinginu mundi aldrei
hafa dottið í hug að nefna loptskeyti síma,
og fellst því á þá kenningu stjórnarsinna,
að athugasemdin á fjárlögunum miði að eins
til að gefa stjórninni frjálsari hendur áþann
hátt, að hún, innan vissra takmarka, skuli
þó hafa heimild til að verja fénu til lopt-
skeyta, ef hún álíti, að vænlegra boð fáist
á þann hátt.
b) Að ráðherrann (ekki dró að gera samn-
inginn fram yfir þing 1905 er önnur sakar-
gipt stjórnfénda. Þá sakargipt getur fund-
urinn ekki annað en álitið með öllu órétt-
mæta, þar sem í athugasemdum við fjár-
veitinguna stendur: „Væntanlegur samning-
ur með fylgiskjölum leggist fyrir þingið til
athugunar". Öllu skýrar gat þingið ekki
tekið fram, að það ætlaðist til að búið yrði
að gera samninginn, áður en það kæmi sam-
an í ár.
c) Þar sem stjórnféndur tala um hinn
mikla verðmun á ritsíma og loptskeytum,
þá getur fundurinn ekki álitið það annað
en blátt áfram þvætting, sérstaklega þegar
litið er til áreiðanleiks hvors um sig.
Hvað imdirskripiarniálid snertir, þá lætur
fundurinn sér nægja að skírskota til þing
málafundargerðarinnar í Breiðdal 3. júnís.l.
þar eð skoðanir manna á því máli eru hin-
ar sömu.
Að öðru leyti er það álit fundarins, að
uppþot þetta í Reykjavík, sem gekk undir
nafninu „bændafundur", miði eingöngu til
að æsa þjóðina gegn hinni ungu íslenzku
stjórn, eins og það einnig liggur f augum
uppi, að örfáir bændur hafa þar verið hafð-
ir að hlffiskildi óhlutvandra óróaseggja, og
leyfir sér því hér með að skora á alla, sem
enn ekki eru orðnir uppgefnir á æsingum
þessara þjóðaróvina, að segja algerlega skil-
ið við þann fiokk, sem beitir jafn auðvirði-
legri aðferð til að halda sínu máli fram.
Páll Benediktsson Sveinn Benediktsson
(fundarstjóri). (skrifari).
Mjög ósvifnlslegt skjal
hafa 11 valtýskir þingmenn sent útum
land nú í þinglok og kallað það »Avarp
til Islendinga«(!). Séra Magnús Andrés-
son hefur þó ekki skrifað undir það og
heldur ekki Ólafur Thorlacius. »Avarp«
þetta er ekkert annað en skammir um
meiri hlutann á þingi, og er þar gerð
ískyggileg tilraun til að brjóta niður virð-
inguna fyrir alþingi í augum þjóðarinnar,
en það er svo ófimlega og hranalega orð-
að, að allhætt er við, að það hafi ekki
tilætlaðan árangur. En óneitanlega er
skörin farin að færast nokkuð upp í bekk-
inn, þá er örlftill minni hlutinn þingsins
gerist s v o kærulaus um sóma sinn og virð-
ingu löggjafarþings þjóðarinnar, er þeir
sjálfir skipa, að hann kynokar sér ekki
við að láta aðra eins forsmán sjást frá
sér á prenti. Slíkur minni hluti er auð-
sjáanlega langt leiddur. Og svo hefur
þessi virðulegi valtýski flokkur látið skír-
ast upp enn einu sinni, afneitað sjálfum
sér enn einti sinni. Skfrir hann sig nú
»Þjóðræðisflokk«(!) og hyggur víst, að
hann losni við gamla haminn á þann hátt.
En þar mun Valtýingum þessum skjátlast
sem í fleiru, því að þrátt fyrir splunkur-
ný flokksheiti á hverju ári, þá eru og
verða þeir aldrei annað í meðvitund þjóð-
arinnar en — Valtýingar. Það nafn lím-
ist og klínist á þá fastar og fastar, hvern-
ig sem þeir reyna að hrista það af sér
með nýjurn nöfnum, sem allir sjá að eru
rangnefni, hreinasta vandræða-yfirklór,
sem almenningur hlær að. Hvað er nú
t. d. orðið af Fratnfaraflokknum og Fram-
sóknarflokknum ? Og hvar eru Landvarn-
armenn ? Þessi nöfn eru öll dauð. En
úr öllu maukinu orðin ein samföst klíka,
valtýsk klíka = Valtýingar. Það ereina
og réttanafnið á allri samsteypunni. Ann-
ars verður þetta nýja »ávarp« Valtýinga
síðar rækilega krufið til mergjar, svo að
þjóðin sjái, hversu innviðafagurt það er.
Hafnarbryggjan nýja
á Akujeyri skemmdist til mikilla rnuna
aðfaranóttina 20. f, m., með því að mar-
bakki, sem hún stóð á, sprakk og steypt-
ist niður f dýpið. Bryggjan var nýlega
fullger af dönskum timburmeistara Olsen
frá Taarbæk og tekin út daginn áður af
hafnarnefndinni. Engan hafði grunað
annað, en að grundvöllurinn — marbakk-
inn — væri fulltraustur til að byggja á, en
svona reyndist það, og mátti telja heppni
mikla að manntjón hlauzt ekki af, sem
líklega hefði orðið, ef slysið hefði að-
borið að degi til, rneðan fólk var á bryggj-
unni. Áætlað er að skaðinn verði þó
ekki nema nokkrar þúsundir króna, með
því að stauragirðingin, viðurinn, er niður
hrundi, muni nást upp aptur.
Lausn frá embættl
hefur Halldór Danfelsson bæjarfógeti
sótt um frá næstk. nýári, þykist ekki fær
um að þjóna embættinu lengur heilsunn-
ar vegna, og mun það satt vera. Hann
er rétt fimmtugur að aldri, og kemst þvf
nokkuð snemma á eptirlaun. Samt ber
ekki á neinni almennri hryggð hjá bæjar-
búum yfir því að verða að sjá á bak
honum svona sviplega á bezta aldri.