Þjóðólfur - 09.09.1905, Qupperneq 3
ÞJÓÐOLFUR.
Mannalát.
Hinn 28. f. m. dó merkisbóndinn
Steinn Guðmundsson á Minna-Hofi
á Rangárvöllum á sjötugs aldri (fæddur 27.
maí 1838). Hann dó af aðsvifi (á milli
bæja) að áliti læknis. KunnugUr maður
lýsir honum á þessa leið:
_ sSteinn sál. var að mörgu leyti í fremstu
bænda röð, staðfastur (heimastj.m.), mann-
vinur, síglaður og góður heim að sækja.
Mun margur sakna hans úr götunni, og
þá ekki síður vinir hans og vandamenn.
Hans verður eflaust minnst nánar síðar«.
Meö „Hólum"
4. þ. m. fór landritarinn (Kl. Jónss.)
austur til að vfgja Lagarfljótsbrúna, sem
nú er loks komin á eptir langa mæðu.
í sömu ferðinni mun hann og hafa átt
að vígja brúna yfir Jökulsá í Öxarfirði, ef
hún væri fullger. Með »HóIum« fór heim
til sín sr. Pétur Jónsson á Kálfafellstað, er
hafði komið hingað með skipinu snöggva
ferð.
Ráðherrann
fór í fyrradag austur á Þingvöll, og
ætlaði þaðan austan megin Þingvallavatns
og niður með Sogi, að nýju brúnni hjá
Alviðru, er hann vígir í dag. Allmargir
Reykvíkingar hafa riðið austur þangað,
til að vera viðstaddir þá athöfn.
Smjörsala.
G. Gíslason & Hay í Leith fengu með
Botnia 8. f. m. 40—-50 tn. af smjöri, og
seldu það strax á 0,92 pr. pd. Smjörið
var frá ýmsum rjómabúum, mest frá Rauða-
lækjarbúinu 17 tn.
Veðnráttnfar í Rvík í ágústmán. 1905
Meðalhiti á hádegi . 9.5 C. (í f. -j- 11.7)
—- nóttu .+ 4.5 „ (íf. + 6.4)
Mestur hiti - hádegi .+ 13 „ (15.)
Minnstur — - — . -f 3 „ (23.)
Mestur — - nóttu . + 7 „ (16.)
Minnstur — - — • + 3 „ (23.)
Allan mánuðinn óvenjulega kalt; þannig
snjóaði niður í miðja Esju aðfaranótt h. 6.
(norðanátt). Úrkoma lítil og veðurhægð og
opt fagurt sólskin. Skipti um um höfuð-
daginn, gekk til sunnan(SV.)áttar með svækju
og regnskúrum.
V9—’°5-
J. Jónassen.
Dugleg vinnukona
vön matartilbúningi, getur strax
fengið
göða atvinnu
Og
hátt kaup.
Ámundi Árnason kaupmaður á
Laugaveg gefur nánari upplýsingar.
Verzlunarmaður,
Vel æfður og duglegur verzlunar-
maður getur fengið
góða atvinnu
nú þegar eða síðar.
Tilboð merkt:
» Verzlunarm.«.
Um kauphæð og upplýsingar um
fyrv. stöðu o. s. frv. veitir blaðið mót-
töku.
Dugleg, ástundunarsöm og öldungis
áreiðanleg ung stúlka, er getur talað
dönsku, óskast nú þegar í Brauns
verzlun „Hamburg".
2 loptlierbergl með ofnum og
eldavél, ennfremur trésmíðahús fást leigð
frá 1. okt. Ingólfsstræti 5.
Leiðarvísir til lífsábyrgðar
fæst ókeypis hjá ritstjórunum og hjá dr.
J. Jónassen, sem einnig gefur þeim, sem
vilja tryggja líf sitt, allar nauðsynlegar
npplýsingar.
Trjávörur.
Frederikstad listaverksmiðja,
Frederikstad, Norge, hefur til sölu stórar
birgðir af hefluðum húsabyggingarefn-
um og listum fyrir mjög lágt verð.
Skotæfingar
á nöttu,
Síðari hluta septembermánaðar verða
skotæfingar iðkaðar á nóttunni af
varðskipinu „Heklu" úti fyrir Kefla-
vík eða Hafnarfirði.
Þá daga, er skotæfingar eiga að
fara fram að kvöldi, verður varðskipið
komið á staðinn áður en myrkur dettur
á, og verður þá rauður fáni dreginn
upp á framsigluna.
Skip og bátar aðvarast um, að koma
ekki nær varðskipinu en 2 kvartmílur.
C. L. Tuxen
foringi varðskipsins „Heklu".
Bezt kaup
á
Sköfatnaði
i
Aðalstræti 10.
Fiskiveiðaritið ,ÆGIR‘
ættu allir að kaupa. Það fæst í bóka-
verzlunum og hjá bókb. Guðm. Gam-
alíelssyni í Reykjavík.
Nýrnatæring.
Undirrituð, sem er 43 ára gömul,
hefur í 14 ár þjáðzt af nýrnatæringu,
og þar af leiðandi óreglu í þvagláti,
vatnssýki og harðlífi, höfuðverk og al-
mennri veiklun. Eg hef lagt mig und-
ir læknishníf og opt iegið rúmföst. A
milli hef eg samt verið á fótum, og
mér hefur fundizt eg styrkjast við það
að nota Kína-Lífs-Elixír Waldemars
Petersens, og það hefur gefið mér til-
efni til að nota hann að staðaldri.
Með því hefur mér síðustu árin tekizt
að halda veikindunum niðri, en þau
hafa tekið að ágerast aptur, jafnskjótt
og eg hætti að nota elixírinn, þó hafa
verkanir hans hvað eptir annað hald-
izt lengur, svo að það er fullkomin
sannfæring mín, að hann muni að
lokum algerlega lækna mig af veik-
indum mínum.
Simbakoti á Eyrarbakka
17. maí 1905.
Jóhanna Sveinsdóttir.
Biðjið berum orðum um Waldi-
mars Petersens ekta Kína-lífs elixír.
Fæst alstaðar. Varið yður á eptir-
stælingum.
Fsest alstaöar á 2 kr. flaskan.
Tvö stör
herbergi
helzt með eigin inngangi, óskast í
haust með eða án húsgagna í mið-
eða vesturbænum.
Lysthafendur snúi sér til
Ámunda Árnasonar
kaupmanns
á Laugaveg.
Frá 1. september verð-
up Landsbankinn opinn
frá IOV2—2V2.
Bankastjópinn verður
viðstaddup frá ÍIG—1 .
Bankastjórnin öll frá
12—1.
Segldúkur
til stórskipa og báta, fæst beztur og
ódýrastur í
J. P. T. Brydes verzlun
i Reykjavík.
Útvegsmenn ættu að Jíta á hin
fjölbreyttu. sýnishorn af Eclipsé,
Royal Navy og Gouvernment
og panta eptir þeim, því þeir fá
segldúka þessa hvorki betri né ódýrari
annarsstaðar.
Lampar
af öllum tegundum, mj'óg skrautlegir
og góðir — margir eingöngu úr látúni
eða kopar, — fást ódýrastir í verzl-
un J. P. T. Brydes i Reykja-
vík.
Gærur og haustull
verður borguð hæsta verði í
J. P. T. Brydes verzlun í
Reykjavík.
Hið alþekkta Creolin er nú komið
til J. P. T. Brydes verzl-
unar í Reykjavík og fást
þar góðar ripplýsingar um hvernig á
að nota það.
Snemmbær kýrer til söluhjájóni
Ögmundssyni í Vorsabæ í Ölfusi.
Yfirlít
yfir
hag íslandsbanka 31. júlí 1905.
Acti va:
Kr. a.
Málmforði . 360,000,00
4°/o fasteignaveðskuldabréf . 42,900,00
Handveðslán...........303,744,84
Lán gegn veði og sjálfskuldar-
ábyrgð................... . 1,268,582,13
Víxlar................628,218,81
Erlend mynt o. fl. . . . . 5,089,56
Inventarium............5CÖ995A6
Verðbréf..............185.500,00
Byggingarkonto.........39,869,70
Kostnaðarkonto.........49,297,20
Útbú bankans..........884,888,14
í sjóði................ 4,812,65
Samtals 3.823,898,19
Passi va:
Kr. a
Hlutafé bankans......2,000,000,00
Útgefnir seðlar í veltu . . 686,000,00
Innstæðufé á dálk og með
innlánskjörum .... 350,586,82
Vextir, disconto o. fl. . . 136,894,36
Erlendir bankar og ýrnsir aðr-
ir kreditorar...............650,4x7,01
Samtals 3,823,898,19
O'Vmasktner 1 storste
Ldvalg til ethvert Brug,
gJjjEpaFagmands Garanti. — Ingen
Agenter. Ingen Filialer, derfor
JJhk{( billigst i Danmark. — Skriv
straks og f orlang stor illustreret
^jr \ Prisliste, indeholder alt om
Symaskiner, sendes gratis.
G. J. Olsen, Kibenhavn.
Nikolajgade4,vT.!W
Llkkranzar og kort
á Laufásvegi 4.
165
Barnaskólinn,
Þeir sem ætla sér að láta börn sín
ganga í barnaskóla Reykjavíkur næsta
vetur og greiða fyrir þau fullt skóla-
gjald, eru beðnir að gefa sig sem fyrst
fram við skólastjórann. Þeir, sem ætla
sér að beiðast eptirgjafar á kennslu-
eyri, verða að hafa sótt urn hana til
bæjarstjórnarinnar fyrir 15. þ. m.
þurfamannabörn fá kauplausa kennslu,
en þeir, sem að þeim standa, verða
að gefa sig fram við bæjarstjórnina
innan nefnds dags.
Framhaldsbekkur, með islenzku,
dönsku og ensku, reikningi og teikn-
un sem aðalnámsgreinum, verður að
sjálfsögðu stofnaður, ef nógu margir
sækja um hann.
Reykjavík 1. sept. 1905.
Skólanefndin.
Samkoma í Melsteðshúsi
á sunnudagskvöldið kemur kl 81 2
allir velkomnir.
S. Á. Gíslason.
Úrval af smíðatólum
bæði af vanalegri tegund og einnig
úr v'óuduðu efni nýkomin í verzlun
Liverpool.
r
Utlenzkir legsteinar
úr granit fallega slípaðir fást í
Liverpool.
Regnkápur
vandaöar og ódýrar
nýkomnar
í
klæðskeraverzl. Liverpool.
Nýkomin hin eptirspurðu
Vagnhjól
í verzlunina Liverpool.
Mjög gott og ödýrt
margaríne
í verzluninni Liverpool.
Auglýsing.
Á fjárlögum fyrir 1906 og 1907,
eins og alþingi samþykkti þau, er
ætlaður námsstyrkur til 4 hérlendra
rnanna, til þess að nema firðritun,
1000 kr. til hvers.
Þeir, sem ætla sér að sækja um
styrk í þessu skyni, eru beðnir ad
senda umsókn sína til Stjórnarráðs-
ins fyrir 10. október xxæstkomandi.
Skilyrði fyrir styikveitingunum er,
að nemendur sigli til nams þegar í
haust, og skuldbindi sig til þess að
afloknu námi að gegna firðrituar-
störfunum hér á landi um nokkur ar,
eptir nánara samkomulagi fyrirfram.
Tilkynning
innfærð í verzlunarskrá Reykjavíkur.
Firmað H. P. Duus tilkynnir, að
verzlunarstjórarnir A. E. Ólafsson og
H. P. Petersen, hvorum fyrir sig sé-
veitt heimild til sem prókúruhöfum að
rita nafn firmans.