Þjóðólfur - 22.09.1905, Síða 2

Þjóðólfur - 22.09.1905, Síða 2
172 ÞJOÐOLFUR. jnni í Rússlandi, og að þjóðræði komist meirog meir á á þannhátt, að þessi „rík- isduma1' breytist og nái undir sig fulikomnu löggjafarvaldi með tímanum. „Rfkisduman“ á að koma fyrst saman í janúar 1906. Nebogatoff admfráll og allir yfirmenn í flota hans hafa verið reknir burt úr sjó- liði Rússlands. Orsökin til þessarar hörðu refsingar er sú, að þeir drógu upp hvíta friðarfánann á skipum sínum í hinni miklu sjóorustu við Tsushima og gáfust varn- arlaust upp í hendur Japönum. Noregnr 0g Svíþjóð. Nokkrum dögum eptir allsherjaratkvæðagreiðsluna í Noregi, fór stórþingið 1 skrifuðu skjali til sænsku stjórnarinnar, fram á, að hún yrði sér hjálpleg við uppleysingu sambandsríkisins. Norðmenn tóku þannig það ráðið, sem hyggilegra var, að snúa sér til Svía sam- kvæmt kröfum sænska aukaþingsins við víkjandi uppleysingu sambandsins, í stað- inn fyrir að halda því fast fram, að sam- bandið væri þegar uppleyst með ákvæði stórþingsins 7. júní, eins og þeir höfðu áður gert. Sænska stjórnin tók þegar vel undir þessa beiðni stórþingsins og eptir nokkra samninga var það ákveðið, að fulltrúar fyrir bæði löndin skyldu koma saman í bænum Karlstad f Svíþjóð og semja um aðskilnað rfkjanna og skilmálana þar að lútandi. Fulltrúarnir komu saman á áðurnefnd- um stað 31. ágúst. Fyrir hönd Svíþjóðar mættu þessir: Ráðaneytisforseti Lunde- berg, utanríkisráðgjafi Wachtmeister, ríkisráð Hammerskjöld og ríkisráð Saff. En fyrir Noreg mættu: Ráða- neytisforseti Michelsen, stórþingisfor- seti Berner, utanríkisráðgjafi Lövland Og ríkisráð B. Vogt. Fulltrúar þessir tóku strax til starfa 1. sept, en mönnum er lítt kunnugt um, hvað gerst hefur á fundum þeirra, því þeir fara leynilega fram. Það eitt er þó Ijóst, að samningarnir ganga ekki eins fljótt og vel og búizt var við. Það er einkum niðurlagning víggirð- inganna, er þeir geta ekkí orðið ásáttir um Hið bezta samkomulag og félags- skapur er sagt að ríki milli fulltrúa beggja landanna. Það er búist við, að þessi fundur í Karlstad standi yfir fram í miðjan þennan mánuð að minnsta kosti. Menn eru annars góðrar vonar um, að sendinefndunum takist loks að verða á eitt sáttar um uppleysingu sambandsrík- isins. j, • Það hafa heyrst raddir úm það í norsk- um blöðurn, að réttast væri að aflsherjar- atkvæðagreiðsla færi fram aptur uin nið- urlagningu víggirðinganna og hvort Noreg- ur á að verða lýðveldi eða konungsríki. Friður í Austnr-Asín. Loks er kominn á friður milli stórveldanna Rússlands og Japan og hinn mikli ófriður leiddur til lykta, sem nú hefur staðið í rúmlega i1'/* ár og hefur kostað svo margra manna lff og limu. Blóðstraumarnir stöðvast, það er tekið fyrir uppsprettur þeirra. Þetta er atburður, sem léttir þungum steini af brjóstum miljóna manna um allan heim og þó einkum í Rússlandi og Japan. Eins og mönnum er þegar kunnugt um gengu friðarsamningarnirí Portsmouth mjög erfiðlega í langan tíma. Menn bjugg- ust við, að þeir mundu stansa þá og þeg- ar. Japanar settu svo háar kröfur, að ekki var að þeim gangandi fyrir Rússa. Það var spursmálið um eyjuna Sjakhalín og herkostnaðarborgun til Japans, er ollu mestum erfiðleikum við samningana. Á ð - ur höfðu Japanar sleppt kröfun- um um að fá herskipRússa á hlut- lausum höfnum í Asíu og tak- mörkun á hinum rússneska her- skipaflota við strendur Austur- álfu. En deilan stóð alltaf um þessi 2 áðurnefndu atriði. Japanar komu þá fram með þá tillögu, að Rússland fengi að kaupa Sjakhalín aptur fyrir 1200 milj pd. sterl. og skyldi þessi upphæð skoðastsem óbeinar herkostnaðarskaðabætur til Jap- ans frá Rússlandi. En Witte hafnaði einnig þeisari tillögu eptir að hafa ráðfært sig gegnum hrað- skeyti við stjórnina 1 St. Pétursborg og keisarann. Loks 29. f. m. kom Komura enn fram með nýja tillögu, en sendinefnd Rússlands hafnaði henni strax og þá lagði Witte fram sína ákveðnu tillögu um það, að Rússland og Japan skiptu Sjakhalín á milli sín og herkostnaðarskaðabætur féllu niður. Eptir að Komura hafði lesið skjal það, er Witte lagði fram, leit hann fyrst spyrjandi augum til félaga sinna, síðan sneri hann sér snögglega að Witte, tók í hönd honum og sagði: „Eg tek á móti tilboði yðar“. Með þessum fáu orðum var friðurinn kominn á og tryggður, og fulltrúar beggja þjóðanna orðnir á eitt sáttir í öllum atriðum. Litlu seinna um daginn skildu fulltrú- arnir og Witte ók heim til sín mjög hrærð- ur í huga. Friðarfréttirnar höfðu þegar breiðst út um bæinn og fjöldi af blaða- mönnum hafði safnast að gistihúsinu, sem Witte bjó f. Þeir hrópuðu strax til hans og báðu hann að staðfesta orðróminn, en hann kom naumlega nokkru orði upp fyr- ir geðshræringu. Seinna kölluðu fréttarit- ararnir til hans: „Borgar Rússland her- kostnaðarskaðabætur?" Þá hrópaði Witte: „Ekki einn einasta kópek!“ Þegar þessi tlðindi spurðust varð hinn mesti fögnuður meðal manna í allri Portsmouth. Menn dönsuðu af gleði á götum bæjarins og failbyssum var skotið. Og aukaeintök af blöðunum komu út eða þá fregnmiðar og þessi fögnuður breiddist brátt út um allan heim. Síðan 29. f. m. hafa þeir Japaninn Dennison og hinn rússneski prófessor M a r t e i n s starfað að fullgerð friðarsamn- inganna og orðahljóðan þeirra. I gær (5. sept.) voru þeir svo undirskrifaðir afþeim Witte og Komura og þar með varhin- um mikla friðarfundi slitið og sendinefnd- ir beggja þjóðanna leggja á morgun af stað heim til sín. Allir eru á eitt sáttir um, að bæði Witte og Komura hafi sýnt hina mestu snilld af sér og kænsku við þessa friðarsamn- inga, þar sem þeim tókst að koma friði á að lyktum, þrátt fyrir þá miklu erfið leika, er þeir áttu við að stríða. En þó eru hin góðu úrslif mest þökkuð Roóse- v e 11'forseta, sem alltaf hefur miðlað mál- um með hinni mestu kænsku, einurð og lipurfeik. Hann hefur líka fengið þakkar- ávörp frá flestum þjóðhöfðingjum Norð- urálfu ogþar á meðal frá Nikulás keisara og Japanskeisara fyrir afrek sitt. Witte hefur og hlotið maklegt hrós hvaðanæfa frá. Háskólinn f Chicago hef- ur gert hann að heiðursdoktor, en þá virðing hefur enginn hlotið fyr annar en Roosevelt. I Pétursborg á og að fagna heimkomu hans með miklum virktum og hátíðahöldum, er kvennþjóðin gengst fyrir. Mönnum er þegar kunnugt pm friðar- samningana, svo óþarfi er að orðlengja mikið um þá meira. Þó má geta f fám orðum um þann hagnað, er Japan hefur hlotið við ófrið þennan: 1. Japan fær full yfirráð yfir Port Art- h u r og D a 1 n y og L i a o u t u n g sk ag- a n u m . 2. Korea á að standa undir vernd Jap- ans. 3 Japan fær yfirráð yfir járnbraut- inni íMandsjúríinu tilChar- b i n . 4. Japan fær ennfremur suðurhluta eyj- arinnar Sjakhalín til eignar og rétt til fiskiveiða meðfram ströndum Síberíu. Ennfremur hefur Japan hertekið 9 stór herskip frá Rússum í stríðinu og nokkur smærri skip. Nokkur'hinna stærri herskipa liggja þó enn á sjávarbotni í Port Arthur. Tjón Rússa í ófriði þessum er mjög mikið, einkum á herskipum. Þó urðu ó- farir þeirra ekki eins miklar og búist var við, og er það mest að þakka stjórnkænsku Witte og sigri þeim, er hann vann fyrir Rússland við hina hagfelldu friðarsamn- inga. Rússland og Japan hafa þegar gert verzl- unarsamning sín á milli. Danmörk. Hér í borginni hafa orðið þau merkilegu tíðindi, að forstjóri „Sam- ein aða gu fuskipa félagsins", Jak- ob Brandt, bað um lausn frá starfi sínu seint í f. m. og fékk hana frá 1. sept. Hann bar við heilsulasleika. Aðalorsökin til brottfarar hans mun þó vera sú, að félagið var orðið óánægt með stjórn hans og þótti hann of einráður. Sömuleiðis var honum borið á brýn, að hafa eytt of miklu fé til byggingar á 3 Vesturheims- faraskipum. Brandt er fæddur í Vestindíum og var faðir hans prestur þar. Hann kom þó ungur til Kaupmannahafnar og tók Glíick- stad bankastjóri hann að sér og kom hon- um svona vel áfram. Brandt var harður og ósveigjanlegur við undirmenn sína og harma því fáir brott- för hans. Til eptirmanns eptir Brandt hefur til bráðabirgða verið kosinn admíráll Riche- lieu. Hann dvaldi langan tíma í Siam og ávann sér þar mikla frægð og varð sjóliðsráðgjafi Siarns. Menn bera mikið traust til hans sem dugnaðar- og atorku- manns. 9. þ. m. kemur stór enskur her- skipafloti í heimsóknarferð hingað til borgarinnar og verður þá mikið hér um dýrðir. Flotinn kom fyrir nokkru til Esbjerg og þaðan hélt hann aptur til Swinemiinde, þar sem hann dvelur enn. Vilhjálmur keisari hefur tekið á móti hin- um enska flota með mestu virktum og bauð hann meðal annars stór admfrál v. Koester að halda með allan þýzka flot- ann til Swinemiinde til þess að fagna enska sjóliðinu. Eng-land. I lok fyrra mánaðar fékk Curzon lávarður lausn frá jarlstign yfir Indlandi. Orsökin til þess var ósamkomu- lag við Kitchener lávarð viðvfkjandi yfir- stjórn herliðsins á Indlandi. Eptirmaður hans varð hinn auðugi jarl Minto. Hann hefur áður verið stjórn- andi í Kanada. Kólera í Þýzkalandi. Á mörgum stöð- um í Prússlandi hefur orðið vart við þennan voðalega sjúkdóm og virðist hann breiðast út rneir og meir, þrátt fyrir hin- ar ítrustu sóttvarnartilraunir. Hingað til hafa þó ekki fleiri en 80 manns sýkst, en þar af hafa 25 dáið. Ekki er gott að segja, hvé mikla útbreiðslu þessi næmi og skaðvæni sjúkdómur fær. Stjórn Brasilíu hefur heitið 10 milj. króna verðlaunum fyrir áreiðanlegt meðal gegn tæringu (Tuberculose) eða krabbameini. Það er því til mikils að vinna fyrir læknana. Fyrir nokkru var AliceRoosevelt, dóttir forseta Bandaríkjanna á ferð í Asíu. Kom hún meðal annars á ferð þessari til Manillaeyjanna og hitti soldáninn af S u 1 u . Hann varð svo hrifinn af fegurð hennar, að hann bað hennar sér til eigin- konu. Ekki leist þó fröken Roosevelt á að ganga strax að þessum boðum, en bað um frest til að athuga rnálið. Soldán hef- ur gefið henni hinar dýrustu gjafir. Hann á 7 konur fyrir, svo að líklega verður ekkert úr mæðgum við Roosevelt forseta. Það er mikið talað um þetta æfintýri ung- frúarinnar í Ameríku. l'iðauki. Rvík 22. sept. Edelfelt, hinn langfrægasti málarí Finnlendinga er látinn, rúmlega fimmtug- ur. Hann dvaldi langvistum í París, en síðustu árin heima á ættjörð sinni. Marg- ar myndir hans eru orðnar heimsfrægar. Meðal andlitsmynda hans er kunnust mynd af frakkneska vfsindamanninum Pasteur. sem talin er snilldarverk. Eptir Marconi-skeytum frá 8.—18. þ. m. má því við bæta, að Japanar undu mjög illa friðarsamningnum í fyrstu og urða upphlaup og óeirðir 1 Tolcio og víðar um land, en hefur þó sefast síðar. Japönum þykir sinn hlutur mjög fyrir borð borinn í samningnum, og segja friðinn ofsnemma gerðan, en Rússar eru hinir ánægðustu yfir úrslitunum og þykjast hafa sloppið vel. Samt sem áður eru enn stöðugar óeirðir og mannavíg, einkuin í Kákasus- löndunum og logar þar allt í uppreisn. Kveður einna mest að þessu í olíubænum Baku. Þar hafa uppreisnarmenn gersam- lega eytt 8 hverfum í bænum, en tjón það, sem olíuiðnaðurinn hefur orðið fyrir af völdum uppreisnarmanna er metinn 8 milj. pd. sterl. Þar logaði 1 500 olíubrunn- um 8. þ. m. Rússastjórn sendir stöðugt fleira og fleira lið suður þangað, en hrað- frétt þaðan 16. þ. m. segir, að uppreisnin í Baku haldi stöðugt áfram. I höfuðborginni Tiflis er og uppreisn, og á Póllandi er jafnan mjög ókyrt, sífelld verkföll og manndráp nokkur. Miklir jarðskjálftar í Kalabríu á Suður- Italíu, einna mestir í nánd við bæinn Monteleone. Hinn n. þ. m. hafði frétzt, að 347 menn hefð.u látið lífið í jarðskjálft- um þessum, og Marconi-skeyti frá 18. þ. m. herma, að ávallt berist fréttir um meira manntjón og meira eignatjón. Hinn 16. þ. m. kom frétt urn, að bærinn Mont- erosso hefði gersamlega eyðst. Ítalíukon- ungur hefur verið á ferðalagi þar suður Irá, en kom heim aptur um 17. þ. m. og skoraði á þjóðina alla að hjálpa. Kveðst hann hafa verið sjónarvottur að óumræði- legum hörmungum og hryllilegum atburð- um í jarðskjálftahéruðunum. Eptir síðustu Marconi-skeytum 18. þ. m. er kóleran í rénun á Prússlandi. Hraðskeyta-einkaleyfið í molum. Marconistöðinni borgið. Með þessari fyrirsögn flytur »ísafold« 16. þ m. ritstjórnargrein urn ritsíma- og talsímalögin. Hún lætur borginmannlega yfir þvi, að Marconistöðin hjá Rauðará geti staðið áfram eins og að undanförnu, þakkar það aðgáningsleysi þings og stjórnar. Hún byggir það á því, að ritsíma- og talsfmalögin amist ekki við þeim hrað- skeytasamböndum, »sem á stofn eru kom- in og starfrækt hafa verið tyrir i.júli 1905«, segir að hraðskeytasambandið hafi verið komið á og starfrækt fyrir þann tíma, og því geti það haldið áfram til eílífðarinnar, ef eigendunum bíður svo við að horfa. Þetta segir hún, að sé svo Ijóst, að »énginn dómstóll getur dæmt þann rétt frá henni eða Marconifélaginu«. Og jafnframt er hún kampagleið yfir því, að »stóra ritsímafélagið norræna« geti heimtað skaðabætur af landsjóði fyr- ir vikið, stjórnin hafi ábyrgzt því einka- leyfi til allskonar hraðskeytasambands um 20 ár, en nú megi Marconi halda áfram, ritsímasamningurinn sé því rofinn afþingi og stjórn, og við búið að félagið höfði

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.