Þjóðólfur - 13.10.1905, Qupperneq 4
ÞjOÐÓLFUR.
186
Námufélagið ,Málmur‘.
Vér undirritaðir höfum samkvæmt þeirri heimild, er bæjarstjórn Reykjavíkur hefur veitt Sturlu kaupmanni
Jónssyni og félögum hans, til að reka námugröft í nokkrum hluta bæjarlandsins, og stjórnarráð íslands hefur staðfest,
myndað hlutafélag, er nefnist „Málmur“. Samkvæmt lögum félagsins er stofnféð 100,000 kr., og er upphæð hvers
hlutar 50 krónur. Stjórn félagsins hefur heimild til þess að heimta inn hlutaféð, þegar hún vill, en svo er til ætlazt,
að fyrst verði einungis innheimt 20°/o af hlutafénu.
Stjórnin hefur heimild til þess að auka stofnféð upp í allt að 250,000 krónur, en til aukningar þar fram yfir
þarf samþykki aðalfundar. Hlutabréfin hljóða upp á handhafa, en þó má skrásetja nafn eiganda í bækur félagsins.
Hver hluthafi hefur atkvæði fyrir hvern hlut. — Félagsfundir hafa hið æzta vald í öllum málefnum félagsins. Engin
mál mega takast fyrir á fundinum önnur en þau, er á dagskrá standa, og skal hún liggja til sýnis hjá formanni viku
fyrir fund.
Stjórn félagsins er skipuð 5 hluthöfum og 2 varamönnum, er heima eiga í Reykjavík; þar er lögheimili fé-
lagsins, og þar skulu félagsfundir haldnir. Stofnendur félagsins kjósa stjórn í fyrsta skipti, og gildir sú kosning til
aðalfundar 1908. A hverjum aðalfundi fara tveir úr stjórn eptir aldursröð eða hlutkesti.
Arðinum skal skipta þannig:
a. Fyrst skal greiða hluthöfum 5°/o af upphæð hlutafjárins, eða ef hann er eigi svo mikill, þá skal arðinum skipt
hlutfallslega jafnt milli hluthafa.
b. Ef arðurinn er frá 5%—25%> af upphæð hlutafjárins, skal greiða Reykjavíkurkaupstað Vs hluta af þessu fé. Ef
arðurinn er frá 25—50%, skal greiða kaupstaðnum >/3 hluta fjárins, og helming, ef arðurinn er yfir 5°°/0> Hinn
hluti arðsins rennur til félagsins.
c. Fé því, sem samkvæmt b. rennur til félagsins, skal varið þannig, að 10% rennur í varasjóð, 6% rennur til stjórn-
arinnar, og 4% til annara starfsmanna, en þeir 8o°/o, sem þá eru eptir, skiptast hlutfallslega jafnt milli hluthafa.
Þegar varasjóður hefur náð Vs hluta af innborguðu hlutafé, skal eigi leggja meira fé í hann.
Samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar Reykjavíkurkaupstaðar er Reykvíkingum áskilinn forgangsréttur í 3 mán-
uði til að skrifa sig fyrir hlutum, og er því hér með skorað á þá Reykjavíkurbúa, sem vilja gerast hluthafar í félagi
þessu, að gefa sig fram innan þriggja mánaða frá þessum degi, og skrifa sig fyrir hlutum hjá einhverjum af oss
undirrituðum stofnendum félagsins. Verði skrifað sig fyrir meiru en starfsfénu (100,000 kr.) mega þeir er skrifa sig
fyrir meiru en 2 hlutum, búast við því, að hlutafé þeirra hvers um sig, verði fært hlutfallslega niður.
Reykjavík, 22. september 1905.
Sturla Jónsson. Kl, Jönsson. Björn Ólafsson. Ásgeir Sigurðsson.
Sigurður Briem. Kristján Þorgrímsson. Friðrik Jónsson,
Hannes S. Hanson. Sigfús Eymundsson.
Mikil sæmdfyrir ,ALFA‘ mótora,
Með „Laura" kom sú fregn frá Danmörku, að Alfa mótor hafði feng-
ið gullmedalíu á sýningu, sem haldin er í Risör, nú um þessar mundir.
Enginn annar mótor fékk slíka viðurkenning.
Alfa mótor er hinn bezti. Það er áríðandi að menn muni það, og
panti hann hjá útsölumönnunum.
Reykjavík 11. okt. 1905,
Matth. Þórðarson.
Brauns verzlun ,Hamburg‘
Aðalstræti 9. Telef. 41.
Nýkomið með ,,Laura“.
Klæði tvíbr. 3,5°. Sœngurdúkur tvíbr. Ima 1,40.
Mikið úrval af
Kvennklukkum 1,65 — 3,50.
Barnaklukkur frá 0,55.
Kvennskyrtur 1,35 — 3,50. Náttkjólar 2,75 — 4,00.
Nátttreyjur 1,50 — 2.50.
Peysur fyrir fullorðna og drengi einl. og mislitar. 0,80 — 3,S°-
Vinnuföt, Nærföt, Drengjaföt
af öllum stærðum, Vetrarfrakkar
fást ódýrast í Brauns verzlun.
Margar nýjar teg, af vindlum.
Stor verðlaun
eru heitin hverjum þeim, sem sannar
verksmiðjueiganda hins Ekta Kína-
Lífs-Elixirs, Waldemar Petersen, Fred-
erikshavn — Köbenhavn, að hann
hafi fengið eptirstæling eptir Kína-
Lífs-Elixírnum, þegar hann bað um þann,
sem er ekta, og hefur á einkennis-
miðanum vörumerkið: Kínverji með
glas í hendi og nafn verksmiðjueig-
andans ásamt innsiglinu í grænu
lakki á flöskustútnum.
Ekta Kína-Lífs-Elixír er veraldar-
innar bezti heilsubitter og fæst hvar-
vetna.
Nýja búðin
í Lindargötu 25
selur allskonar nauðsynjavörur með
mjög lágu verði eptir gæðum. Gerið
svo vel og líta inn og skoða, því eng-
inn fer tómhentur út.
Virðingarfyllst
Þorsteinn Þopsteinsson.
Good-Templar félagið í Reykjavík heldur
Stóra Tombólu
þann 14. og 15. október þetta ár.
í umboði Tombólunefndarinnar.
Indriði Einarsson. Guðmundur Jónsson. Páll Halldórsson.
Langbezta
Cementið
sem hægt er að fá, er nú aptur kom-
ið til Þorsteins Þorsteinssonar Lindar-
götu 25. Rvík.
Einar Þorkelsson
Rvík, Norðurstíg 5,
semur og ritar kærur til sáttanefnda,
bréf, kaupsamninga og aðra samninga,
reikninga o. fl. af líku tagi, tekur að
sér að annast lántöku úr bönkunum
og að gera kaup á fasteignum — alt
fyrir mjög væga borgun.
Heima fram að 10 árd. og frá 5
síðd. daglega.
2. ágæt þilskip
eru til sölu fyrir mjög gott verð, og
þægilega borgunarskilmála, hjá Þor-
steini Þorsteinssyni á Lindargötu 25.
Rvík.
Bezt kaup
á
Sköfatnaði
í
Aðalstræti 10.
Ný útkomið.
Z. Topelius. Sögur herlæknisins
II. bindi og kostar 3,00 kr.
Sigurður Jónsson, bókbindari.
Likkranzar og kort
á Laufásvegi 4.
Barnakennari.
Vel hæfur maður getur fengið at-
vinnu í vetur við barnakennslu í Kjai-
arneshreppi, með vanalegum sveita-
kennarakjörum. Nánari upplýsingar
gefur undirritaður.
Brautarholti 8 okt. 1905,
Jón Jónathansson.
1~'V r « \ af öllum
rvÚOUglCr Stærðum
mjög gott og ódýrt nýkomið í verzluu
Sturlu Jónssonar.
Kamma-
listar
mjög mikið úrval nýkomið í verzlun
Sturlu Jónssonar.
Mér er bæði Ijúft og skylt að votta
mitt innilegasta þakklæti ykkur, mörgu
heiðruðu konur í Dyrhólahreppi, sem við
burtför mína og mannsins míns þaðan,
15. júní síðastl. sæmduð mig ávarpi og
skartgripum, — steinhring og hálsfesti —
í minningu þess, að þá hafði eg gegnt
þar ljósmóðurstörfum í 28 ár. Hið hugð-
næma ávarp, hin kærkomna minnisgjöf
og — síðast en ekki sízt, öll ykkar góða
framkoma gagnvart mér í samdvöl við
ykkur, mun mér aldrei fyrnast, þrátt fyrir
það, að eg nú hefi fjarlægst ykkur.
Enginn getur óskað þess innilegar en
eg, að han.ingjan strái unaðsblómum á
lífsleið ykkar.
Vestmannaeyjum 20. sept. 1905.
Matthildur Gudmundsdóttir
(frá Dyrhólum).
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Hannes Þorsteinsson.
Prentsmiðja Þjóðólfs.