Þjóðólfur - 20.10.1905, Side 3
ÞJÓÐOLFUR .
189
Heiðurssamsæti
var Tryggva Gunnarssyni bankastjóra
haldið í fyrra kveld (18. þ. m.) í Iðnaðar-
mannahúsinu. Þá varð hann sjötugur (f.
18 okt. 1835). Sátu veizluna um ito
manns af öllum stéttum, og báðum póli-
tisku flokkunum. Bæjarbúar gátu þó
nokkurnveginn komið sér sanian um það
að heiðra Tryggva Gunnarsson. Hefðu
miklu fleiri tekið þátt í samsæti þessu, et
húsrúm hefði leyft. Var þetta eflaust hið
fjölmennasta samsæti, er nokkru sinni hef-
ur verið haldið hér í virðingarskyni við
einstakan mann.
Fyrir minni heiðursgestsins mælti Kl.
Jónsson landritari, en því næst töluðu þeir
Jón ritstj. Olafsson og Hannes ritstj. Þor-
steinsson, en sungið var laglegt kvæði
eptir Þorstein Erlingsson, skrautprentað í
Gutenbergsprentsmiðju, og afhent heiðurs-
gestinum í vandaðri möppu ásamt ljós-
myndum af landsbankanum og Olfusár-
brúnni. Heiðursgesturinn mælti fyrir
minni íslands og síðan með nokkrum orð-
um fyrir minni Magnúsar Stephensen
landshöfðinga, er þar var staddur og 69
ára þann dag. Þakkaði hann aptur stutt-
lega fyrir sig.
Eptir að staðið var upp frá borðum
skemmtu menn sér eptir föngum, og voru
þá ýrnsar ræður h'aldnar. Meðal annars
töluðu þeir Þórður Jónsson útvegsbóndi í
Ráðagerði, er flutti Tr. G. þakklæti fyrir
hönd sjómannastéttarinnar, dr. Björn M.
Ólsen, Sighv. Bjarnason bankastj., Thor
Jensen kaupm. og Jóhann bóndi Eyjólfs-
son í Sveinatungu. Sátu menn við gleð-
skap alllangt fram á nótt, en allt fór mjög
vel og friðsamlega fram.
Það leyndi sér ekki, að menn voru ekki
að eins að heiðra einhvern hinn allra
nýtasta og bezta borgara þessa bæjar,
heldur einn hinn allra nýtasta og bezta
son þessa lands.
Lnknar.
Um Rangárvallalæknishérað sækja hér-
aðslæknarnir, Ólafur Thorlacíus og Þórð-
ur Pálsson.
Hinn nýskipaði læknir í Hróarstungu-
héraði Þorvaldur Pálsson, hefur verið sett-
ur til að þjóna Hornafjarðarlæknishéraði,
en læknirinn í Fljótsdalshéraði Jónas
Kristjánsson þjónar Hróarstunguhéraði.
Nýútkomia
er 3. h. af Skírni, tímariti Bókmennta-
félagsins. I því eru ritgerðir um verzlun
íslendinga og samvinnufélagsskap eptir
Boga Melsteð, nytsöm hugvekja og fróð-
leg, og um verndun fornmenja og gam-
alla kirkjugripa eptir Matthías Þórðarson.
Þá er um Skálholt eptir Guðmund Magn-
ússon, lýsing og saga þess með nokkrum
myndum, og er ætlast til að síðar komi
líkar frásagnir með myndum af fleirum
fslenzkum höfuðbólum. Ennfremur eru í
hefti þessu tvö kvæði: Noregs hvöt eptir
Matth. Jochumsson og Herðibreið eptir
Sigurð Jónsson frá Helluvaði, saga eptir
Herm. Bang, þýdd grein um tvístjömur,
ritdómar eptir Finn Jónsson og Guðm.
Finnbogason, útlendar fréttir o. fl. Heft-
ið kostar 1 kr. og allur árg. (4 h.) 4 kr.,
en ef menn gerast meðlimir Bókmennta-
félagsins, fá menn auk árg. af Sklrni
4 aðrar bækur, sem að bókhlöðuverði
kosta (9,50 aur. (Ættgengi og kynbætur
eptir Kölpin-Ravn, 2. h. af Bókmennta-
sögu Finns Jónssonar, og eitt hepti af
Fornbréfasafni og Sýslumannaæfum).
Heiðurs samsæti.
Mánud. 11. þ. m. héldu samsæti nokkur
hjón í Breiðdal, þeim heiðurshjónunum
breppstjóra Páli Benediktssyni og Ragn-
hildi Stefánsdóttur, á heimili þeirra, í
virðingarskyni fyrir 27 ára heiðarlegt
hreppstjórastarf hans í Breiðdalshreppi, og
afhentu þeim að gjöf einkennisbúning, sem
hreppstjórum er leyfilegt að bera.
Gefendurnir fluttu ræður, er sýndu
sanna virðing, vinarþel og þakklæti fyrir
starf þeirra < hreppsfélaginu. —
Þetta var fallega gjört af Breiðdæling-
ingum, að viðurkenna með tilhlýðilegri
sætnd, sitt- samvizkusama og réttsýna yfir-
vald.
I sept. 1905.
Ferðamadur.
Laus prestaköll.
Skeggjastaðir í Norður-Múlapró-
fastsdæmi (Skeggjastaðasókn). Mat 950 kr.
Tillag úr landssjóði, 300 kr., er lagt presta-
kallinu út í kirkjujörðum frá Hofi í Vopna-
firði. Prestsekkja nýtur eptirlauna af
brauðinu (síðan 1866), */« föstum tekjum.
Veitist frá fardögum 1906. Auglýst 26
septbr. — Umsóknarfrestur til 7. nóvbr.
1905.
Gufudalur í Barðastrandarprófasts-
dæmi (Gufudalssókn). Mat 816 kr. Föst
uppbót úr landssjóði 200 kr. Auk þess
hefur brauðið um nokkur ár notið 300 kr.
bráðabirgðaruppbótar, sem væntanlega mun
halda áfram, verði þörfin hin sama. Veit-
ist frá fardögum 1906. Auglýst 26. septbr.
Umsóknarfrestur til 7. nóvbr. 1905.
Gptirmæli.
Hinn 16. f. m. andaðist að heimili sfnu
merkisbóndinn Sœmundur Jónsson á Járn-
gerðarstöðum í Grindavík 71 árs, fæddur að
Húsatóptum í sömu sveit 4. sept. 1834.
Foreldrar hans voru: Jón Sæmundsson óð-
adflsbóndi á Húsatóptum og kona hans
Margrét Þorláksdóttir. Var hann því al-
bróðir Einars bónda f Garðhúsum og þeirra
systkina.
Sæmundur sál. ólst upp hjá foreldrum
sínum, og var hjá þeim þar til árið 1858
að hann byrjaði búskap að Brekku í Vog-
um, giptist 1859 eptirlifandi ekkju sinni
Sigrfði Bjarnadóttur verzlunarmanns í Reykja-
vík og síðar við Hólmabúð Hannesson-
ar. Arið 1860 flutti hann að Járngerðar-
stöðum hvar hann bjó til dauðadags. Þau
hjón áttu 12 börn, hvar af 3 lifa: Margrét
kona Tómasar bónda á Járngerðarstöðum,
Bjarni fiskifræðingur- og kennari við hinn
alm. menntaskóla í R.vík og Valgerður
heima hjá móður sinni. — Sæmundur sál.
var mjög ástríkur og umhyggjusamur eigin-
maður og faðir, dugnaðar- og starfsmaður
hinn mesti, fjörmaður mikill á yngri árum,
og mjög skemmtinn í viðræðum, enda skyn-
samur vel. Var um nokkur ár hreppstjóri
í Grindavíkurhreppi og hreppsnefndarmaður
um langan tíma, og kom ávalt vel fram f
því, sem öðru, er að almenningsheill laut.
Hann var orðlagur fyrir greiðasemi og
hjálpfýsi, var og kona hans honum sam-
hent í því, að gleðja þá er bágt áttu. Mun
Sæmundur heitinn vafalaust hafa verið einn
með hinum merkustu bændum hér syðra.
Er hans þvf sárt saknað af öllum, er kynni
höfðu af honum, einkum af vandamönnum
hans og sveitungum, sem ávalt munu minn-
ast hans með virðingu og þakklæti fyrir
angt og vel unnið æfistarf. — Jarðarför
hans fór fram í gær að viðstöddum fjölda
fólks.
10. okt. 1905. E.
Leiðréttingr.
I 30. bl. „Fjallk." 28. júlí þ. á. stendur
grein með fyrirsögninni: „Þjóðjarðasala.
Athugasemdir eptir Björn Sigfússon amt-
ráðsmann á Kornsá". Þessi frásögn er víst
ekki nákvæmlega rétt. Greinin er áreiðanlega
eptir Bförn þjóðjarðarlandseta Sigfússon
á Kornsá en ekki eptir Björn amtrdðsmann
Sigfússon sama staðar. Þetta munu flestir
vita, sem þekkja Björn Sigfússon, og allir
sjá af greininni sjálfri, sem veita henni
nána athygli, en þó þykir réttara að biðja
„ Þjóðólf" að birta þessa leiðréttingu, (og er
gert í góðri meiningu).
K u n n u g u r.
Hinn 16, okt. andaðist að heimili
sínn Vorhúsnm minn elskaði eigin-
maður Stefán Stefánsson, og fer jarð-
arförin frain flmmtudaginn 26. þ. m.
kl. IU/2. Þetta tilkynnist ölliim vin-
nm og vandamönnum okkar hjóna.
Guðríður P. Einarsdöttir.
Eg nndirrituð votta hér með mitt
innilegasta hjartans þnkklæti öllnm
þeim, sem á einlivern hátt auðsýndu
inér velvild og hluttekningn með
fégjöfum og öðrn, við fráfall míns
elskulega sonar, Konráðs Þorsteins-
sonar frá Brekkn, sem andaðist á
Landakotsspítalaniiin 6. þ. m., og hið
guð að lanna þeim af rikdómi sínnin
velgerðir þeirra.
Rvík 2«. oktbr. 1005.
Hildur Arnílnnsdóttir.
Steinolía
í tunnum og smásölu góð og ódýr í
verzlun
Björns Þórðarsonar
Laugaveg 20 B.
Bókauppboð!
Bökasafn Páls amtmanns
Briem verður selt við opinbert upp-
boð í Iðnaðarmannahúsinu 25. og 26.
þ. m.
Mjög margar ágætar og dýrar bækur.
Consert
verður haldinn laugardaginn 21. og
sunnudaginn 22 þ. m. í Iðnaðarmanna-
húsinu kl. 9 síðdegis.
Nánar á gótuauglýsingum.
Vefnaðarvara
fjölbreytt og ódýr í verzlun
Björns Þórðavsonap.
Kvennslifsi og Aibúm
hreinasta úrval í verzlun
Björns Þórðarsonar.
Uppboðsauglýsing.
Föstudaginn hinn 27. þ. m. verður
opinbert uppboð haldið í Landakoti á
Álptanesi og þar seldar 6 kýr, um
xoo hestar að töðu og fleira.
Uppboðið byrjar kl. 12 á hádegi og
verða söluskilmálar birtir á uppboðs
staðnum.
Bessastaðahreppi 17. okt. 1905,
Erlendur Björnsson.
Nýjar kjöttunnur úr birki, girtar með
galvanfseruðu járni fást með góðu verði
hjá Jóhanni Arnasyni beyki í Bjarnaborg.
Peningabudda hefur fundist fyrii neðan
Elliðaár, réttur eigandi getur vitjað henn-
ar til Kolbeins Guðmundssonar á Ulf-
ljótsvatni f Grafningi.
Danskar ágætap
kartöflur
8. kr. tunnan í verzlun
Björns Þórðarsonar
á Laugaveg.
Llkkranzar og kort
á Laufásvegi 4.
Góðliaustull
keypt háu verði í verzlun
Björns Þórðarsonar
Bezta verð á allri nauðsynja-
vöru í Lindargötu 25.
Ramma-
listar
mjög mikið úrval nýkomið í verzlun
Sturlu Jönssonar.
A 111 y* sem Þekkja
til kaupa helzt í
verzlun
Björns Þórðarsonar
á Laugaveg 20. B.
Hvergi betra að kaupa skótau
nú en í Lindargötu 25.
Reiðhjól
verða tekin til geymslu
á Laugaveg nr. 47
Þorkell Þ. Clementz.
Félagið „FRAM“
heldur fund laugardaginn 21. oktober
kl. 8 sfðdegis í samkomuhúsi Davíðs
Östlunds við Ingólfsstræti.
Jón Ólafsson ritstjóri talar um „út-
breiðslu skoðana vorra".
Stjörnin.
6 krónu
yfirfrakkarnir hlýju
í verzlun
Björns Þörðarsonar
Nýkomið í verzlun
mína er nú með Laura úrval af allsk.
nærfatnaði, enn fremur hálslín með öllu
tilheyrandi, drengjaföt, kragar og smekk-
ir allskonar handa börnum; sönnileið-
is skfrnarkjólar, kvenbrjóst, náttkjólar
hvítar og misl. milliskyrtur, allskonar
millipils, sokkar, leggjaskjól(gamascher)
og margt fleira.
Kristín Jónsdóttir
Veltusundi 1.
Brjöstslím. Eptir að hafa brúk-
að 4 flöskur af hinu nýja bætta seyði
af Elixírnum get eg vottað það, að
hann er helmingi sterkari en hann
var áður, og hefur linað þrautir mín-
ar fljótar og betur.
Vendeby Thorseng
Hans Hansen
Magakvef........ leitað læknis-
hjálpar árangurslaust, og varð alheill
af því að neyta Elixírsins.
Kvislemark 1903,
Julius Christensen.
Vottorð. Eg get vottað, að EI-
ixírinn er ágætt meðal og mjög nyt-
samur fyrir heilsuna.
Kaupmannahöfn, marz 1904
Cand. phil. Marx Kalckar
Kína-Lífs-Elixír, er því aðeins ekta,
að á einkennismiðanum sé vörumerk-
ið: Kfnverji með glas í hendi og
nafti verksmiðjueigandans: Waldemar
Petersen Frederikshavn — Köbenhavn
og sömuleiðis innsiglið í grænu
lakki á flöskustútnum. Hafið ávalt
flösku við hendir.a innan og utan
heimilis.
Fæst hvarvetna á 2 kr. flaskan.