Þjóðólfur - 27.10.1905, Side 3
ÞJÓÐOLFUR .
193
erni hér um landið að fáum árum liðn-
um, og það eitt út af fyrir sig ætti að
vera nægilegt til þess, að flækingum þess-
um væri veitt eptirtekt ( tíma.
S. B.
* * *
Þjóðólfur er greinarhöf alveg samdóma
um, að það er sjálfsögð skylda yfirvald-
anna hér, að stemma algerlega stigu fyrir
flakki þessara náunga, og hefur áður ver-
ið bent á það hér í blaðinu, optar en
einu sinni. Ritstj.
Úr Vestmanneyjum er ritað 23. þ. m.
„Heldur mun mega telja liér framfarir £
ýmsu með ári hverju, þó hægt fari til lands
og sjávar, þó mörgu sé enn Stórlega ábóta-
vant. Húsakynni hafa allmikið aukist og
batnað. Tún eru hér orðin að miklu leyti
slétt og dálítið hafa þau verið stækkuð af
einstöku manni, en ekki nærri eins og hægt
væri, ef eigandi jarðanna eða eyjanna kost-
aði nokkru verulegu til viðbótar eða aukn-
ingar túnanna. Landsjóður uppsker þar sem
hann sáir ekki, en landsetinn má láta sér
nægja þessa völtu ábúðar- og lífsvon.
Tilraun á það að verða hér, að efia sjáv-
arútveginn, að nýr þiljubátur (síldveiðabát-
ur) með 8 hesta „Danmótor" var keyptur
hingað í sumar frá Noregi með seglum og
reiða fyrir rúm 5000 kr., og annar opinn
bátur nokkuð minni og seglalaus með 7
hesta „Danmótor“ frá Höfn eða Fredriks-
sund fyrir nálægt 4000 kr. Menn eru farn-
ir að þreytast hér á langræðinu og vonin
heldur dauf, að hafa fiskinn nærri. Oá-
nægjan er mögnuð út af yfirgangi botn-
vörpunga hér £ kringum eyjarnar og sjáv
arútvegurinn er hér í sýnilegum voða af
þeirra aðförum.
18. þ. m. fóru 18 menn á öðrum mótor-
bátnum, þar á meðal sýslumaðurinn, tveir
skipstjórar og vélfræðingur til þess að að-
gæta tvö botnvörpuskip ensk, sem þá voru
að veiðum í landhelgi austur af Suðurey,
Hellisey, Gelding og Súlnaskeri. Mótor-
báturinn lagði nokkrum sinnum að skipum
þessum á víxl sem voru mjög nálægt hvort
öðru og töluðust við en árangurslaust, því
bæði var sjór nokkuð ókyr, og svo röðuðu
skipverjar á botnvörpuskipunum sér með
boiðstokkunum með barefli, krókstjaka og
koiastykki til þess að varna uppgöngu og
jafnframt spýttu þeir vatni með vatnsslöngu
yfir bátinn og fólkið, og gáfu orðum sýslu-
manns engan gaum. „Hekla" hefði þá sem
optar þurft að vera komin hingað. Skip
þessi heita: „Cavl“ nr. 761 H. og „Imper-
ialist" nr. 2 H. Nokkru áður hafði verið
farið á hinum mótorbátnum (þiljubátnum) að
„Imperialist" nr. 2 H., þar sem það var að
veiðum £ landhelgi vestur af Smáeyjum eða
milli Hænu og Álfseyjar, en ekkert gerðist
þá sögulegt, nema að nafn þess og númer
hafðist og eiðfest skýrsla um það. 20. þ.
m. var farið tvisvar að aðgæta botnvörpu-
skip, sem var að veiðum í landhelgi milli
lands og eyja. í fyrra skiptið var það
„Newington" 33 H. Skipstjóri gaf orðum
sýslumanns, sem var með í förinni engan
gaum, en neitaði að stöðva skipið, og einn
af skipverjum hans kom út. að borðstokkn-
um með bátshaka og annar veifaði exi.
Ekki mun pilti þessum hafa samt litizt á
blikuna, þvf eptir nokkrar mfnútur hjó hann
f sundur vörpustrengina og fór með hraða í
burtu, enda mundi hafa verið lagt til upp-
göngu af mótorbátnum, þó liðsmunur væri,
ekki nema 7 á móti 14—15 manns. Svo
var þar einnig opinn róðrabátur nálægt til
hjálpar, ef á hefði þurft að halda. I seinna
skiptið, sem farið var út, var það að ltk-
indum sama skipið „Newington", þó hvorki
sæist nafn þess né númer, sem aptúr var
tekið til veiða á sömu|stöðvum og áður,
en hafði sig hið fljótasta burt, áður en kom-
ist yrði nógu nærri því, enda var þá farið
að skyggja".
Prentvillur í greininni „Vefurinn
rakinn“: „flugustengur weiðimannsins" á að
vera: flugu stangarveiðimannsins £ kaflan-
um um þjóðræðisflokkinn (Þjóð. 29. sept.).
„Rínarvínidihans V. P.“ á aðjvera: „Kína-
vottorðín hans V. P.“ í kaflanum um
„Bændafundinn“ (Þjóð. 6. okt.), og nokkru
neðar 1 sömu grein, „Annað erviðiá að
vera: „Annað erindi".
Frá þessum degi hefur Landsbank-
inn fyrst um sinn hækkað gjald fyrir
ávísanir á útlönd þannig :
A Danmörk :
kr. 0,30 fyrir 100 kr., minnst kr. 0,50.
A önnur lönd :
kr. 0,50 fyrir 100 kr., minnst kr 1,00.
Reykjavík 27. október 1905.
Tryggvi Gunnarsson.
Góð haustull
keypt háu verði í verzlun
Björns Þórðarsonar
01 og vin fá tnenn bezt í
verzlun B. H. Bjarnason.
sem þekkja
til kaupa helzt í
verzlun
Björns Þórðarsonar
á Laugaveg 20. B.
Hvergi betra að kaupa skótau
nú en í Lindargötu 25.
Reiðhjól
verða tekin til geymslu
á Laugaveg nr. 38
Þorkell Þ. Clementz,
Ekta
Kína-Lífs-Elixír
er sterkastur og magnmestur bitter,
sem til er.
Með hinum nýju vélum hefur tekizt
að draga saman kraptinn í jurtaseyð-
inu mildu betur en hingað til, og þó að
af tollhækkuninni stafi verðhækkun
á elixírnum úr I kr 50 aurum uppí
2 kr., þá er þessi verðhækkun í raun
og veru sama sem engin, af þvf að
nú þarf langt um minna af elixír en
áður til þess að fá hin sömu og jafn-
vel langtum betri áhrif.
Kína-Lífs-Elixír með vörumerkinu:
Kínverji með glas í hendi og nafn
verksmiðjueigandans Waldemar Peter-
sen, Friderikshavn — Köbenhavn á
einkennismiðanum og sömuleiðis inn-
siglið í grænu lakki á flösku
stútnum.
Fæst alstaðar.
6 krónu.
yfirfrakkarnir hlýju
í verzlun
Björns Þörðarsonar
Bezta verð á allri nauðsynja-
vöru í Lindargötu 25.
Danskar ágætar
kartöflur
8. kr. tunnan í verzlun
Björns Þórðarsonar
á Laugaveg.
Tækifæri.
Hús á góðum stað f bænum óskast
til kaups nú þegar.
Semja má við
Gísla Þorbjarnarson.
Steinolía
í tunnumjpg smásö'u góð og ódýr í
verzlun
Björns Þórðarsonar
Laugaveg 20 B.
Likkranzar og kort
á Laufásvegi 4.
Kvennslifsi og Albúm
hreinasta úrval í verzlun
Björns Þórðarsonar.
^ Til sölu
steinbær í .Þingholtum með stórri lóð.
Gísli Þorbjarnarson.
Vefnaðarvara
fjölbreytt og ódýr í verzlun
Bjöpns Þópðapsonap,
Nýprentað.
Skáldsagan Alfreð Dreyfus
eptir Viktor Falk, fæst hjá aðalútsölu-
manni bókarinnar Arinb. Sveinbjarn-
arsyni Laugaveg 41. Sömuleiðis hjá
Hallgrími Jónssyni Bergstaðastíg 11 A.,
bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar og
Guðmundi Gamalíelssyni Hafnarstr. 16.
í vetur verður
að .öllu forfallalausu :
Hvern sunnud. kl. 6V2 e. m. bænasamkoma
( Þingholtsstr. 11
—- mánud. kl. 6 e. m. biblíulestur
í Melsteðshúsi (S. Á. Gíslason)
---þriðjud. kl. 6 e. m. biblíulestur
í Grettisgötu 54 (B. Jónss.)
---miðvikud. kl. 8. e. m. samkoma í
Melsteðshúsi (ýmsir ríéðum.)
---fimmtud. kl. 5 e. m. biblíulestur í
Melsteðshúsi (L. Halldórss.)
---föstud. kl. 6 e. m. biblíulestur í Sólheim-
um, Brekkust. (S. Á. Gíslas.)
Allir velkomnir, meðan híisrúm
leyfir.
Tombólu
heldur sjómannafél. Báran laugard. 28.
og sunnud. 29. þ. m. Þar verða marg-
ir ágætir munir pantaðir frá Þýzkalandi.
Ef einhverjir kynnu að vilja gefa til
tombólunnar, þá taka undirritaðir við
því.
Reykjavík 19. oktbr. 1905
Ottó N. Þorláksson. Helgi Bj'órnsson.
Vilhj. Vigfússon. Þorv. Daníelsson.
Jón Daníelsson. Hjörtur Jónsson.
Jón Erlendsson. Guðrn. Diðriksson.
Þorvaldur Sigurðsson.
Lesið!
Hin nýútkomna Gömlu-Marínar
leyndardómsfulla Galdra eða spáspila-
bók, er til sölu ásamt fleirum bókum
hjá : Jóhanni Ögm. Oddssyni Lauga-
veg 54. B. Reykjavík, SímoniJónssyni
Selfossi Arnessýslu og bóksala Sigurði
Guðmundssyni Eyrarbakka.
Aptan við rit þetta eru Drauma-
ráðningar eignaðar Beða presti, sem
var uppi á Englandi á áttundu öld.
Firmatilkynningar,
1. Hannes B. Stephensen á Bíldudal
og P. J. Thorsteinsson í Kaupmanna-
höfn reka verzlun og fiskiveiðar
á Bíldudal undir firmanafninu
Hannes B. Stephensen & Co.
Báðir hafa ótakmarkaða ábyrgð.
Veðsetningar og afsöl á eignum
félagsins, víxlar, sem ekki koma
starfsemi félagsins við, og öll á-
byrgðarskjöl öðlast að eins gildi,
ef báðir undirrita firmað. í öllum
öðrum tilfellum hefur hvor um sig
rétt til að rita firmað.
2. Ólafur Jóhannesson á Vatneyri og
P. J. Thorsteinsson í Kaupmanna-
höfn reka verzlun og fiskiveiðar á
Vatneyri undir firmanafninu Ó.
Jóhannesson & Co. Báðir verða
hluthafar að undirrita veðsetning-
ar og afsöl á eignum félagsins,
svo og víxla, er ekki koma starf-
semi félagsins við, og öll ábyrgð-
arskjöl til þess að skjöl þessi öðlist
gildi. I öllum öðrum tilfellum
hefur hvor um sig rétt til að rita
firmað.
3. Hlutafé'agið „Islandsk Handels &
Fiskeri Kompagni Akteselskab"
rekur verzlun á Patreksfirði og
Flatey. Samþykktir félagsins eru
gjörðar 30. marz 1898. í stjórn
eru Henr. W. Christensen, Gustav
Hecksher, W. Stephensen, Björn
Sigurðsson og eigendur firmans
„Salomon Davidsen", Wald. David-
sen og Emil Davidsen, allir til
heimilis í Kaupmannahöfn og hafa
tveir hinir síðast nefndu rétt til að
rita firrnað og er aðalumboðsmað-
ur þeirra hér á landi Pétur A. Ól-
afsson. Hlutirnir eru 400, hverað
stærð 1000 kr. og ^ð fullu greidd-
ir. Birtingar til félagsmanna eru
gjörðar í hinu opinbera auglýsinga-
blaði í Danmörku.
Skrifstofu Barðastrandarsýslu
13. okt. 1905,
G. Björnsson.
Úr vöktun frá Bústöðum tapaðist £ byrj-
un okt. rauðstjörnó/tur hestur aljárnaður,
mark: blaðstýft a. h. Finnandi er beðinn
að leiðbeina honum annaðhvort að Bústöð-
um eða Seljalandi undir Eyjafjöllum mót
þóknun. —
Reykjavík 25. okr. 1905.
Jón Sigurðsson.
Tapazt hefur hestur úr girðingu frá
Skildinganesi 5. október, bleikur á lit með
dálitlum síðutökum, stjörnu £ enni og milli
nasa, hvítar rákir framan á bógunum und-
an aktýjum, með nokkuð miklu faxi, aljárn-
aður. Mark: tvístýft framan vinstra.
Hver, sem hittir hest þennan, er beðinn að
koma honum til Einars Zoéga f Reykjavfk
eða til Erasmusar á Lækjarbotnum.
Eyrarbakka 16. október 1905.
Guð/n. Guðlaugsson.
Proclama.
Samkvæmt lögum 12. apríl 1878
og opnu bréfi 4. jan. 1861 er hér með
skorað á alla þá, er teija til skulda í
dánarbúi hjónanna Ólafs Ólafssonar í
Grafarkoti, er andaðist 9. jan. þ. á.
og konu hans Ingibjargar Eiríksdóttur,
er andaðist 28. maf s. á. að lýsa kröf-
um sfnum og sanna þær fyrir skipta-
ráðandanum í Húnavatnssýslu innan
12 mánaða frá síðustu (3.) birtingu
þessarar auglýsingar.
Með sama fresti er einnig hér með
skorað á erfingja ofannefndra hjóna að
gefa sig fratn fyrir skiptaráðanda og
sanna arftökurétt sinn.
Skrifstofu Húnavatnssýslu 7. okt. 1905
Gísli Isleifsson.