Þjóðólfur - 17.11.1905, Page 1
57. árg.
ii
Reykjavík, föstudaginn 17. nóvember 19 05.
48.
White-hiII kolin,
sem nú eru nýkomin í Edinborg þarf ekki að auglýsa, þau mæla með sér
sjálf; menn þekkja þau af reynzlu. — En verzlunin vill leiða athygli viðskipta-
manna sinna að því, að hún hefur enn þá dálítið óselt af ágætu »CokeS«,
sem menn ættu að kaupa með kolunum. Að nota »CokeS« með kolurn er
þægilegra, hreinlegra og ódýrara. Verð á »Cokes« er að mun lœgra en
almennt gerist í
Verzlun Edinborg.
Vefnaðarvöru-verzlun
Th. Thorsteinsson að „Ingólfshvoli“.
HefuP lang mesta og bezta úrvalið af vefnaðarvöru.
Hefur mest orð á sér fyrir vandaðar og ódýrar vörur.
Hefur þær lang beztu og ódýrustu saumavélar sem fást.
Hefur allskonar skrautgripi, hentuga í tækifærisgjafir.
Ódýrust og bezt vín í ,,Ö1 & vínkjallaranum“
að „Ingólfshvoli“.
Útlendar fréttir.
Með gufuskipinu „Firda", er kom hing-
að frá útlöndum nú í vikunni, bárust blöð
fram yfir mánaðamótin.
Helztu tíðindin, er kallast mega stórtíð-
indi, eru þau, að Finnar hafa án blóðugr-
ar stjórnarbyltingar eðar án þess að nokk-
ur maðut væri af lífi tekinn, áunnið, að
Rússakeisari hefur tekið aptur allar þær
tilskipanir sínar, er gefnar hafa verið út
sfðan 1899, og skert hafa réttindi Finn-
lands eða komið í bága við stjórnarskrá
þess. Jafnframt hefur hann kvatt hið
forna löggjafarþing Finna til þingsetu
20. des. og veitt ádrátt um að leggja fyrir
það frumvarp um almennan kosningarrétt.
Verði þessar ráðstafanir annað en tál eitt,
og ekki apturkallaðar, þá er um hægist f
Rússlandi sjálfu, þá hafa Finnar náð
fyllra frelsi, en þeir höfðu áður, en farið
var að brjóta lög á þeim. Og þessu hafa
þeir náð með því tiltæki, að hneppa land
stjórann og fylkisstjórann i varðhald heima
hjá sér, stöðva allar járnbrautarferðir til
Rússlands og slíta öllu ritsíma-og talsfmasam-
bandi við það land. En tilslökun keisara
er auðvitað ekki sprottin af öðru en ótta
við almenna uppreisn á Finnlandi, en eins
og nú stendur, er ástandið heima fyrir
1 Rússlandi svo ískyggilegt, að allar horf-
ur eru á, að voðaleg stjórnarbylting 1 að-
sigi. Meðal annars herma Marconi-skeyti
frá n. og 14. þ. m. frá ýmsu, er beudir í
þá átt.
Sérstaklega ber mikið á Gyðingaofsókn-
um þar í landi. I Odessa voru t. d. 300
lík myrtra Gyðinga jörðuð 10. þ. m. og
tala þeirra, sem misst höfðu lífið í þess-
um óeirðum, var orðin 964. Víða um
heim hafa myndazt samskotanefndir til
að hjálpa Gyðingum, og kveður mest að
þeim samskotum í New-York og Lund-
únum. Rotschild í Lundúnum og Schiff
auðmaður f New-York hafa t. d. gefið
10,000 £ (180,000 kr.), hvor í samsk’otasjóð-
inn í Lundúnum.
I Minsk á Vestur-Rússlandi skutu nokkr-
ar hersveitir á varnarlausan manngrúa,
og drápu eða særðu 400 manna.
Marconi-skeyti frá 14. þ. m. skýrir frá
nýjum voðalegum grimmdarverkum gegn
Gyðingum f Bessarabíu. Þar hafa margir
verið barðir til bana, aðrir brenndir lif-
andi og helt yfir þá steinolíu. I Ismail
(1 Bessarabftt) hélt skríllinn brennu að mið-
aldasið, einskonar „autodafé", og brenndu
þar 11 Gyðinga, er leitað höfðu hælis í
heystakki.
f Kronstadt logar allt í uppreisn, og
talað um óttaleg hryðjuverk og manndráp
er herlið hafi þar framið, en bærinn sagð-
ur vera að brenna og íbúarnir flýja burtu
hópum sainan. Síðari fregn segir, að lent
hafi í skæðum bardaga milli hermanna og
sjómanna, en konur og börn hafi hundr-
uðum saman flúið út á vöruflutningaskip,
er þegar hafi létt akkerum. Rithöfundur-
inn enski, W. Stead, leitaði áheyrnar í
utanríkisskrifstofunni ensku, og mæltist
til þess við Landsdowne lávarð, að það
mundi heppilegt að senda skip til Kron-
stadt til að bjarga brezkum þegnum, sem
vera mundu þar í hættu. En ekki er
er þess getið, hvernig þeirri málaleitun
var tekið. Talað er og um bændaupp-
reisn í sumum sveitum á Rússlandi, og
eignum einstakra manna sé rænt, en lög-
reglan magnlaus til að vernda íbúana.
Almennt verkfall á járnbrautum í Aust-
urríki.
Brezk og portúgfsk fulltrúanefnd situr á
ráðstefnu um málefni Suður-Afriku, og
hvernig þar skuli haga stjórninni. Styrkt-
arsjóður ekkna og barna þeirra enskra
manna, er féllu í Búastríðinu hefur skýrt
frá því, að fé væri ekki nægilegt fyrir
hendi til að halda áfram þessum styrk-
veitingum framvegis.
Mc Clellan (Taminany kandfdatinn) er
valinn borgarstjór; í New York með 3000
atkvæða meiri hluta. Talað er urn að
kosningin verði kærð vegna sviksamlegrar
atkvæðagreiðslu (mútugjafa).
í síðasta blaði Þjóðólfs var skýrt frá
því, að almenn atkvæðagreiðsla ætti að
fara fram í Noregi 12. þ. m. um það
hvort þjóðin vildi hafa Karl Danaprins að
konungi eða ekki (en ekki um konung-
dæmi eða þjóðveldi, eins og Isafold skýr-
ir frá í sérstökum fregnmiða(!!) 3 dögum
á eptir frásögninni f Þjóðólfi). Loptskeyti,
sem engir hafa séð nema líkl. ritstj. ísaf.,
á að hafa borizt hingað að kveldi 14 þ. m.
og samkvæmt því hafi Karl verið valinn
konungur með miklum meiri hluta, en at-
kvæðafjölda ekki getið. Þ>að var nú ekki
svo erfitt að spá í eyðurnar, að svo mundi
fara, því að þessi úrslit voru fullyrt í öll-
um dönskum og norskum blöðum um
mánaðamótiu. [Ritstj. Isaf. hafði 13.
þ. m. lofað loptskeytafregn um þetta
daginn eptir. En ekki hafði mr. New-
man hana meðferðis, er hann afhenti
ritstjóra þessa blaðs loptskeytafregnirnar,
er hann fékk að kveldi 14. þ. m. En lopt-
skeyti í gœrkveldi lætur þessa getið].
17/n.
Ný Marconískeyti send í gærkveldi
segja ekkert frekar um óeirðirnar á Rúss-
landi, og engin veruleg tíðindi. En Pól-
land er nú háð algerðu herstjórnarvaldi,
og er það beinlínis að tilhlutun Þýzka-
landskeisara, eptir því sem öll pólsk blöð
fullyrða. Eru því Pólverjar mjög gramir
honum. Gyðingar í Varsjá eru að her-
væðast til að verja sig. Höfuðprestur
Gyðinga í Lundúnum hélt áhrifamikla
sálumessu á sunnudaginn var yfir hinum
myrtu trúbræðrum sínum á Rússlandi. —
Sextíu menn biðu bana við námuhrun í
Driefontein í Transwal.—Dáinn er 14. þ.
m. 14'hiiehead, enskur maður, sá er fann
upp tundurbát þann, er stundurn er við
hann kenndur, og nú er mest notaður í
hernaði.
„Vesta'
fór héðan til útlanda 12. þ. m., og með
henni nokkrir farþegar, þar á meðal Th.
Thorsteinsson konsúll.
Bruni.
Á föstudagskveldið var 10. þ. m., kl.
rúml. 11 kviknaði eldur í einu stærsta
brauðgerðarhúsinu hér í bænum, svo
nefndu »Félagsbakaríi« við Amtmanns-
stíg. Varð eldurinn á svipstundu svo
magnaður að furðu gegndi, og latínuskól-
anum allhætt um ttma, enda var borið
út úr honum allt lauslegt, bæði bækur
og húsgögn, og sömuleiðis náttúrugripa-
safnið. En það hlífði skólanum að eld-
urinn komst ekki í geymsluhús skólans,
er lá mllli hans og eldsins. Var sérstak-
lega rösklega að því gengið að verja það
geymsluhús. En miður tókst að verja
sjálft Ibúðarhús bakarans með bakara-
búðinni, og komst eldurinn í það, ein-
mitt eptir að brauðgerðarhúsið var fallið
niður og eldurinn tekinn að minnka.
Við það varð fleiri húsum hætt, einktim
íbúðarhúsi og verzlunarbúð Gunnþórunn-
ar Halldórsdóttur, en samt tókst að
verja það.
Slökkvidælurnar voru í mesta ólagi, og
urðu bezt not að dælu Ólafs Hjaltesteds.
I slökkviliðinu bar ekki á neinni stjórn,
og vissu menn ekkt, hvað gera átti, eða
fyrirskipanirnar voru þá svo óljósar Og
hver annari gagnstæðar, að allt lenti í
eintómu fáti og fumi. Slökkviliðsstjórinn,
Hannes Hafliðason, virðist alls ekki starfi
sínu vaxinn, og ætti hann að sækja sem
fyrst um lausn, áður en honum verður
vísað á bug, því að jafnstór bær eins og
Reykjavík, hlýtur að hafa ötulan og at-
kvæðamikinn slökkviliðsstjóra, er sér um,
að allt sé í sem beztu lagi að því er
slökkviliðið snertir, og hefur góða stjórn
á því. En fyrirkomulagið á því, eins og
það er nú, er öldungis óhafandi, enda
kvað nú vera í ráði að breyta þvl eitt-
hvað. Bæjarstjórnin verður að láta eitt-
hvað til sín taka 1 þessu. Það hefur
hingað til viljað svo heppilega til, að
blæjalogn hefur verið, þá er kviknað
hefur í húsum hér ( bænum. Og
hefði ekki svo verið 1 þetta sinn, er ekki
annað fyrirsjáanlegt, en að stórtjón hefði
af hlotizt.
Enginn veit, hvernig eldur þessi hefur
komið upp.
„Kong Trygvo".
(E. Nielsen) lagði á stað héðan áleiðis
til útlanda 11. þ. m. Með honum fóru
um 20 farþegar, þar á meðal: Sigurjón
Ólafsson snikkari, Guðm. Guðmundsson
áður fullm., Björn Ólsén kaupm. (Patr.f.),
Bjarni Þorkelsson skipasm., Gísli J. Ól-
afsson (ritstj.), Magnús Thorberg skrifari,
Jón Jóh. Zoega snikk., Bjarni Jónsson
snikk. (frá Galtafelli), Einar Jónsson (frá
ísaf.), Mortensen d. rakari, Þorleifur Jó-
elsson (til Leith), Jóh. Kr. Jóhannsson
snikk. Frökenarnar: Sigríður Zoéga, Ásta
Gunnlaugsdóttir, Hedvig Bartels, Ragnh.
Pétursd. frá Engey (til Noregs), Ólafia
Jóhannsdóttir frá Akranesi, Helga Árna-
dóttir o. fl.