Þjóðólfur - 17.11.1905, Side 3
ÞJ OÐÓLFUR.
205
vétarnar á neðra lofti. Þar eru bæði renni-
vél, borunarvél, heflunarvél, plægivél, sög-
unarvélar o. s. frv. Gufuketillinn er mjög
vandaður og með nýmóðins útbúnaði,
56 málmpípur út frá honum til að hleypa
enn meiri hita í guluna, en hún hefur í fyrstu
úr katlinum allt upp í 4400 og kvað sá út-
búnaður spara mjög eldsneyti. Öryggis-
pfpur eru bæði á gufukatlinum og gufuvél-
inni, til að girða fyrir sprengingu. Vatnið
i ketilinn er tekið úr brunni, er grafinn
hefur verið rétt hjá húsinu og er því fyrst
dælt með gufuafli upp í sérstaka járnþró,
en þaðan leitt ínn í hreinsunarvél, sem
skilur úr þvf öll þau efni, er skemmt geta
ketilinn t. d. brennistein o. fl. Hreinsunar-
vélin er svo útbúin, að hún mælir sjálf
vatnið, eptir því sem við á og blandar í
það hæfilega miklu af kemiskum efnum
til að hreinsa það.
Verksmiðjan er öll hituð upp með gufu,
senc leidd er frá gufuvélinni eptir málm-
pfpurn. Svo á einnig að lýsa húsið allt
með rafljósum, þá kominn er aflgeymir
(dynamo) og knýr þá gufuvélinn hann sem
hinar vélarnar. Tvær gufudælur, er spýta
nieir en 200 pt. af vatni á mínútu eru hafð-
ar við hendina, ef kvikna skyldi í húsinu.
Sjálf aðalvélin hefur 60 hesta afl, en það
má vel auka það upp í 70. Gufuvélin í
„Iðunni" öðru stærsta íðnaðarfyrirtæki hér
hefur aðeins 20 hesta afl. Svo segir Rosc-
gaard, sá er sett hefur upp vélarnar í Völ-
undarverksmiðjunni, að hún sé eins og
samskonar verksmiðjur í útlöndum sem
beztar séu og fullkomnastar, enda hafi
ekkert verið til hennar sparað, allt af ný-
ustu gerð og hið vandaðasta.
Þetta er langstærsta trésmíðaverksmiðjan
hér á landi. En tvær aðrar eru stofnaðar
áður og teknar til starfa hér syðra fyrir
nokkru, önnur í Hafnarfirði (Jóhannesar
Reykdals) knúð af vatnsafli og hin hér f
bænum, sú er þeir snikkararnir Eyvindur
Árnason og Jón Setberg hafa reist í félagi.
Þar er hreyfivélin steinolíumótor; það er
myndarlegasta verksmiðja, þótt í smærri
stfl sé en Völundar, og hefði „Isafold" ekki
þurft að „gatifísera" á því, sem er svo að
segja ofan á nefinu á henni. Hún núin
ekki eptir annari trésmfðaverksmiðju auk
Völundar en þeirri f Hafnarfirði. Og ekki
nóg með það: fjórða verksmiðjan „Fjalar"
er nýstofnuð f Húsavík, og hin fimmta
á Akureyri. Það hefur ísafoldarspeking-
urinn enga hugmynd um. Ensjálfsagt samt
að gjamtna um það sem menn ekki vita.
Yfirlýsing.
Við undirskrifuð, sem vorum búsett f
Ólafsvfk allt að 20 árum og höfum haft mjög
nána kynningu af 3 læknum, sem verið hafa
í Ólafsvík, getum því vottað það með góðri
samvizku, að allir þessir 3 læknar hafa tjáð
sig skyldurækna og samvizkusama f lækn-
isstörfum sfnum, og viljum við sérstaklega
af gefnum ástæðum votta það, að læknir
Halldór Steinsson hefur ávalt tjáð sig sem
mjög samvizkusaman og skyldurækinn lækn-
ir, án nokkurs manngreinarálits, og eg Vil
borg Andrésdóttir, sem verið hef samfleytt
ljósmóðir í Ólafsvík allt að 20 árum og hef
því iðuglega starfað með hr. lækni Halldóri
Steinssyni að ljósmóðurstörfum og öðrum
læknisverkum lýsi því yfir, að hr. H. Steins-
son sýndi ávalt sérstaka samvizkusemi og á-
stundun við læknisstörf sín. Við vottum
það bæði í sameiningu, að aldrei urðum við
þess áskynja, að þó menn ættu óborgaða
læknishjálp-og meðala til hr. H. Steinsson-
ar, að hann fyrir þær eða aðrar orsakir synj-
aði mönnum læknis- eða meðalahjálpar.
Ofanritað vottorð gefurn við, án þess að
mælzt hafi verið til þess af nokkrum manni.
Reykjavík 19. okt. 1905.
Vilborg M. Andrésdóttir. Bjarni Þorkdsson.
Brauns verzlun ,Hamburg‘
Aðalstræti 9. Telef. 41.
Nýkomið með „Vesta" :
Þykkir fóðraðir vetrarjakkar frá 7 50—IO.50
Sterkar erfiðisbuxur fra I 80—4.50
Taubuxur af öllum stærðum og teg. frá 3.30—9.50
Milliskyrtur frá 1.25—2.00
Drengjapeysur 1.20—2.50.
Hinn frægi SængUPdÚkllF á eina krónu, er kominn aptar.
Komið og lítið á!
Nýbýli,
Með því að Guðmundur Guðmunds-
son húsmaður á Ingveldarstöðum í
Sauðárhreppi hefur í hyggju að stofna
nýbýli á eyðijörðinni Hrafnagili í Skef-
ilsstaðahreppi hér í sýslu, er hér með
samkvæmt lögum 6. nóv. 1897 skor-
að á þá, er réttindi kunna að hafa
yfir téðri jörð, að gefa sig fram og
sanna heimildir sínar fyrir undirrituð-
um sýslumanni innan 6 mánaða frá
birtingu auglýsingar þessarar.
Skrifstofu Skagafjarðarsýslu,
24. okt. 1905.
P. V. Bjarnason.
Til verzlunar
B. H. BJARNASON
eru nýkomnar svo stórar og margbreyttar vínbirgðir, að verzlunin mun
hér eptir vera fær um að fullnægja hinum fyllstu kröfum bæjarbúa og annara,
bæði að því er snertir gæði og verð.
Það er ógerningur að telja hér upp nöfnin á hinum ýmsu víntegundum,
læt því nægja að tilgreina hér að eins fátt af mörgu: Rauð Bordeaux
v í n frá L. Rosenheim & Fils, Eschenauer & Co., Schröder & Schyler & Co.
H v í t B o r ð v í n: Graves, Sauternes o. fl. Rauð Bourgogne-
v í n margar teg. frá Charles Bernard í Beaune. Hvít Bourgognevín
margar teg. frá Bouchard & Pére & Fils, Beaune. R í n a r v í n: Mosel, Hoch-
heimer, Rudesheimer, Laubenheimer o. fl. Portvín rauð og hvít frá Gui-
maraense & Co. og W. G. Graham Oporto o. fl. S h e r r y frá Gonzalez
Byoss & Co., Josian D. Denham & Co., Manuel Misa, Cadix o. fl. M a-
d e i r a frá Krohn & Brothers & Co. og Blandy Brothers o. fl. Liqueurer
frá: Alex Droz & Co., P. Gamir, Fremy Fils Chalonnes, Marinier Lapostolie
& Co. o. fl.
Whisky margar teg. Aquavit, Cognac maigar teg. C a r 1 s-
ham Punch fl. teg. Fanö Bitter Liqueur, allsk. Ö 1. B r e n n i-
v í n og margt fleira.
Hvergi jafngód vín, né jafnlágt verðl
Allir hljóta því hér eptir að taka vín sín í
verzlun B. H. Bjarnason.
\
i 50-175 krónur fyrir 5 aura,
• Þeir sem kaupa orgel hjá mér, fá venjuleg hnsorgel frá 50 til 175 kr. ódýr-
• ari heldur en þeir tá ódýrustn orgel með sama „registra"- og fjaðrafjölda hjá
• þeim, innlendum og útlendum, sem auglýsa þau hér í blöðunum, eða hjá hverj-
▼ um helzt htjóðfærasala á Norðurlöndum, (sjá síðustu auglýsingu mína hér í
blaðinu). Orgel þau, sem eg sel, eru einnig betri liljóðfæri og endingar-
betri, stærri, sterkari og fallegri, og úr betri við en allflest sænsk og dönsk orgel.
Verðmunur og gæðamunur á kirkjuorgelnm og fortepiauóum þeim, sem eg sel,
er þó ennþá meiri. — Allar þessar staðhæfingar skal eg sanna hverjum þeim,
sem óskar þess, og senda honum verðlista og gefa nægar upplýsingar. Sér-
staklega leyfi eg mér að skora á presta og aðra umráðamenn kirkna að
fá að vita vissu sína hjá mér í þessu efni. Það þarf ekki að kosta neinn meira
en 5 anra bréfspjald.
Þorsteinn Arnljótsson,
Sauðanési.
^-♦•♦•♦•♦^♦•♦•♦•♦♦■♦•♦•♦I1-^H^*^»^^^*^»^»^^^«^»»»4.«.|B
L. Fanöe
l
♦
♦
♦
St. Kongensgade 8i [Köbenhavn.
Umboðsverzlun fyrir ísland
Selur allar íslenzkar afurðir fyrir hæsta verð, sem unt er að fá.
Kaupir útlendar vörur handa íslandi, fyrir lægsta verð.
9 ára sérþekking.
Fljöt afgreiðsla, glöggir viðskiftareikningar.
Tíðar markaðsskýrslur.
Leikfélag Reykjavíkur
1 e i k u r:
jYestmannabrellur*
í Iðnaðarmannahúsinu, sunnudaginn
19. þ. m. kl. 8 síðdegis.
Jörðin Yigdísarvellir
í Grindavíkurhreppi fæst til ábúðar í
næstu fardögum 1906
Byggingarskilmala og allar upplýs-
ingar um jörðina, geta menn fengið
hjá Pétri Jónssyni kaupmanni í Rvík
eða Skúla lækni Árnasyni í Skálholti.
NÝTT alveg NÝTT
Unga fólkið, sem ætlar að reisa bú og
vill eignast vönduð og smekkleg húsgögn
ætti að koma til mín í tíma og panta þau.
Engin þörf er framar fyrir fólk að panta
þess konar húsgögn frá útlandinu, þar sem
eg um lengri t'íma hefi unnið á einni hinni
nafnfrægustu vinnustofu í Kaupmannahöfn
og við sýningu á sveinsprufu hef tengið
verðlaun (Medailler) frá Haandværkerfor-
eningen í Khöfn sem viðurkenning fyrir
mjög vel gerða vinnu.
Einnig veiti eg móttöku til viðgerða öllu,
er að iðn minni lýtur, svo sem Chaiselonga
Sófa, Stóla, iegg teppi á gólf og Linole-
um-dúka, hengi upp og „dekorera" Gar-
dínur og Portéra eptir nýjustu tízku og
m. fl.
Virðingarfylst
Guðm. Stefánsson
Bankastræti 14, Reykjavík.
Aðalfundur
Fornleifafélagsins
verður haldinn þriðjudaginn 21. þ. m.
kl. 5 e. h. í húsi prestaskólans.
Reykjavík 15. nóv. 1905,
Eiríkur Briem.
SAMKOMUHÚSIÐ B E T E L, við
Ingólfsstræti og Spítalastfg.
Samkomur verða haldnar framvegis eins
og hér segir:
__ Snnnudaga: Kl. 2 e. h. Sunnudagaskóli.
K1 6V2 e. h. Fyrirlestui.
Miðvikudaga: Kl. 8 e. h. Biblíusamtal.
Laugardaga: kl. 11 f. h. Bænasamkoma
og bibliulestur —Kirkjusálmasöngsbókin verð-
ur viðhöfð. Allir velkomnir á samkomurnar.
Vinsamlegast D. Östlund.
Hlnn 26. f. m. tapaðist úr Rvík
jarpur hestur gamaljárnaður, mark blaðstýft *
apt. v. Afhendist Boga Þórðarsyni í Rvík
eða Guðmundi Erlendssyni í Skipholti.
Tapazthafa nýlega
af Mosfellsheiði:
2 folar 3 v. blávindóttir, annar dekkri díl-
óttur (geltir). 2 folar 2 v. annar rauður,
hinn grákúfskjóttur (geltir). 1 foli 1 v.jarp-
toppskjóttur (ógeltur). 1 hryssa 3 v. mó-
grá með folaldi dökkleitu og 1 hryssa 1 v.
bleikmönótt. Mark: biti aft. bæðieyru.
Hver, sem kann að sjá eða vita um þessi
hross, geri svo vel að gera mér aðvart.
Mosfelli, 13. nóvbr. 1905
Magnús Þorsteinsson.