Þjóðólfur - 01.12.1905, Page 1
57. árg.
Reykjavík, föstudaginn 1. desember 19 05.
JW 50.
Verzl. Edinborg
í Reykjavík
hefur nú með s/s „Lauru" fengið mjög miklar birgðir af allskonar vörum.
Þar á meðal:
Epli — Appelsínur — Sítrónur — Bananas — þurk. Apricoats — Valhnotur
— Barchnotur — Pipar allsk. — Vanille — Sítrónolía á glösum — Möndlur
— KirseBer — þurk. Bláber — Succat — Schweitzer-ostur — Gouda-ostur —
Eidamer-ostur — Svínslæri reykt — Kerti, af mörgum stærðum og litum —
Spil, með ýmsu verði — Barnaspil — Gráfíkjur og sveskjur, sérstaklega góð-
ar teg. — Mörk Carlsberg.
Kaðlar og línur — Netagarnið fræga og ótal m. fl.
Vefnaðarvöru-verzlun
Th. Thorsteinsson að „Ingólfshvoli44.
Hefur lang mesta og bezta úrvalið af vefnaðarvöru.
Hefur mest orð á sér fyrir vandaðar og ódýraf vörur.
Hefur þær lang beztu og ódýrustu saumavélar sem fást.
Hefur allskonar skrautgripi, hentuga í tækifærisgjafir.
Ódýrust og bezt vín í ,,Ö1 & vínkjallaranum^
að „Ingólfshvoli“.
Frá útlöndum
engin veruleg ný tíðindi umfram þau, er
áður hefur verið getið hér í blaðinu. Nýj-
ustu útlend blóð ná til 20. f. m. — Við-
sjár miklar enn á Rússlandi, verkföll og
óeirðir, en Witte ráðafár til að bæta úr
vandræðunum, enda kvað það hafa spillt
mjög hylli hans, að mælt er, að hann
hafi neitað Pólverjum um aukið stjórn-
frelsi. Er eflaust hræddur við að gefa
oflausan tauminn um allt Rússaveldi svona
allt í einu ofan á tilslökunina við Finna.
Haft er eptir »Aftenposten« í Kristjaníu
og símað til enskra blaða 15. f. m., að
Karl konungsefni eigi ekki að breyta
nafni, heldur nefnast Karl 5, en óvíst er
hvort nokkuð er á þeirri frétt að byggja.
Jafnframt er þess getið, að konungsfáninn
norski eigi að vera gyllt Ijón á purpura-
feldi. — Hinn 16. f. m. ákvað stórþing-
ið konungslaunin, og eiga þau að vera
700,000 kr, árlega — Mælt er að Frið-
þjófur Nansen eigi að verða sendiherra
Norðmanna í Lundúnum. Hann var á-
kafur lýðveldismaðtir fyrir skömmu, en
hefur nú snúið við blaðinu, og manna
mest barizt fyrir konungsstjórn. Eigna
Norðmenn það metorðagirnd einni og
eigingirni til að ná í sendiherratignina,
helzt í Lundúnum, því að Englendingar
hafi ávallt gert svo afarmikið stáss af
honum. Segja lýðveldismenn hann vilja
allttil vinna til að gerast hirðsnákur. Lýð-
hylli hefur hann ekki mikla í Noregi,
þykir drembinn og þóttafullur, en hann
er tölugur vel og hefur mjög mikið ritað
um pólitík síðustu árin.
Látinn er danskur þjóðmegunarfræðing-
ur N. C. Frederiksen fyrrum
kennari við Kaupm.hafnarháskóla, en síð-
an lengi í Ameríku og slðast í París,
mikill hæfileikamaður og víða kunnur af
margháttaðri starfsemi, ritgerðum, o. fl.
Þj órsár-áveitan.
í sumar var þeirri fyrirspurn hreyft á
þingi (af 1. þm. Arnesinga), í sambandi
við hækkaðan styrk til Landsbúnaðarfé-
lagsins, hvort félagið mundi ekki vilja
kosta danskan vatnsveituverkfræðing til
að rannsaka áveizlu Þjórsár yfir Flóa og
Skeið. Form. felagsins (Þórh. Bjarnar-
son) skýrði þá frá því, að félagið hefði í
hyggju að gera þetta. Og nú hefur hann
skýrt oss frá, að góðar horfur séu á, að
verkfræðingttrinn fáist, og kemur hann þá
hingað að sumri og byrjar á mælingum
og rannsóknum, en líklega verður þeim
undirbúningi ekki lokið á einu sumri, og
kemur þá verkfræðingurinn aptur sumar-
ið 1907.
Það er gleðilegt, að mál þetta, sem
Árnesingar gera sér svo miklar vonir um,
er þó loks komið þetta langt á veg. Nú
þarf ekki að efa, að undirbúningurinn
verði svo rækilegur og áreiðanlegur, sem
unnt er. En þá er um slíkt stórvirki er að
ræða má búast við, að enn líði nokkur
tími, þangað til byrjað verður á sjálfu
verkinu — áveitunni —, því að vonandi
er, að sú verði niðurstaðan við rannsókn-
ina, að fyrirtækið sé ekki að eins fram-
kvæmanlegt fyrir kostnaðar sakir, heldur
bæði stórnauðsynlegt og ábatavænlegt.
Loptskeytl
hingað send í gærkveldi herma, að
ástandið á Rússlandi sé enn mjög ískyggi-
legt og það megi á hverri stundu búast
við fréttum um almenna stjórnarbyltingu.
Fréttir hafa komið frá Moskow um
uppreisn meðal herliðsins þar. Ein her-
sveit neitaði að skjóta á sjómenn, og her-
menn, sem gengu í fylkingu um strætin
og sungu byltingasöngva og báru rauða
fána snerust gegn yfirforingjunum og voru
margir þeirra drepnir. Stjórn verkamanna
í Pétursborg hefur sent uppreisnarmönn-
um í Sevastopol heillaóskir, og segir að
þeir séu sú fyrirmynd, sem allir rúss-
neskir hermenn ættu að fylgja um land
allt. Slðari frétt segir, að uppreisnin í
Sevastopol sé sefuð.
Þúsund rússneskir fangar, er voru á
heimleið frá Japan, hafa gert mikil spell
í Vladivostok, ráðist á liðsforingjaklúbb-
inn og drepið 4 yfirmenn. En Kósakka-
hersveitir gátu bælt niður þá uppreisn og
beittu mikilli grimmd. Astandið þar er
talið mjög ískyggilegt.
t SigurOur Magnússon
dbrm. á Skúmsstöðum andað-
ist 19. f. m. rúmlega 95 ára gam-
all. Hann var fæddur 1 Þorlákshöfn 22.
okt. 1810 og voru foreldrar hans Magn-
ús bóndi Beinteinsson, dótturson Halldórs
biskups Brynjólfssonar og Hólmfrlður
Árnadóttir prófasts í Holti Sigurðssonar,
systir frú Valgerðar Briem á Grund, Páls
Arnesens rektors og þeirra systkina. En
albróðir Sigurðar var Gísli skólakennari
Magnússon. Sigurður fór að búa á
hálfum Skúmstöðum í Vestur-Landeyjum
.1834, en fékk þá síðar alla til ábúðar.
Mun það einsdæmi hér á landi, að bóndi
hafi búið yfir 70 ár á einni og sömu
jörð, og það jafnmiklu rausnarbúi, sem
Sigurður heit. Hann var tvíkvæntur.
Með f. k. Þórunni Þórðardóttur Thorla-
cius, átti hann eina dóttur, Jórunni, sem
gipt er Jóni óðalsbónda Árnasyni dbrm.
1 Þorlákshöfn, og eru þau hjón bræðra-
börn. Með s. k. sinni Ragnhildi Magn-
úsdóttur (prests í Eyvindarhólum Torfa-
sonar) átti Sigurður ekki barn. Hún dó
21. okt. þ. á. réttum mánuði á undan
manni sínum.
Sigurður dbrm. á Skúmstöðum mátti
teljast öndvegishöldur í íslenzkri bænda-
stétt fyrir flestra hluta sakir. Risnu hans
og höfðingskap var viðbrugðið, og hann
átti jafnan miklum vinsældum að fagna.
Stóð hagur hans jafnan með miklum
blóma, þótt allmikil hnekkir yrði á þvf
hin siðustu ar, er bæði Skúmstaðir og
aðrar nálægar jarðar, er hann átti, fóru
nær því í auðn, og sumar alveg, af
vatna ágangi En frá Skúmsstöðum vildi
Sigurður ekkilifandi fara, enda hafði hann
lifað þar mestalla sína dáðríku og starf-
sömu æfi. — Nánari lýsing á þessum
sæmdar- og merkismanni ísl. bændastétt-
ar birtist væntanlega síðar frá einhverjum
nákunnugum manni.
Ráðherrann
H. Hafstein kom hingað úr utanför
sinni með »Laura« 26. f. m., eptir 2
mánaða fjarveru. Þá kom og Try^gvi
Gunnarsson bankastjóri, er brá sér snöggva
ferð til Hafnar seint í október.
Kunningjabréf
til
Björns ísafoldarritstjóra.
Þér hafið í blaði yðar »ísafo!d«, 30.
ágúst s.l. sýnt mér þann heiður, að geta
mín lítillega; og þar sem eg finn, að þér
verðskuldið tilhlýðilegt þakklæti fyrir
greiðann, leyfi eg mér að hripa yður
þennan miða, þótt nokkuð sé nú frá
liðið; en því valda annir mínar, að fyr
gat ekki orðið.
Þó eg nefni þetta bréf kunningjabréf,
þá skuluð þér þó ekki líta svo á, að eg
með því sé að leggja sterkar fölur á
kunningsskap frá yðar hálfu, heldur skul-
uð þér skoða það sem allra undirdánug-
ast frá minni hendi, eptir því, sem inni-
haldið ber með sér. Annars þarf eg ekki
að leitast við að gera greinarmun á fyrir-
sögn og innihaldi, því þar munuð þér
hafa allnæma skoðun á.
Þó að þér hefðuð hreint ekkert á mig
minnst, Björn, gæti eg enda verið rólegur
yfir, en að þér gerið það á þennan veg,
veldur mér sérstaklega fagnaðar. Eg
þarf naumast að skýra fyrir yður, hvernig
í því liggur. Veit að þér kunnið ein-
hver spakmæli frá skáldunum okkar því
viðvíkjandi. En eins vil eg biðja yður:
Talið þér aldrei vel um mig. Mætti
eg reiða mig á það ?
Jæja, þér eruð að tala um í áður á-
minnstu tölublaði »ísaf.«, að ráðherrann
hafi tekið mig til yfirheyrslu eptir at-
kvæðagreiðsluna í undirskriptamálinu. —
Hversvegna segið þér þetta? Höfðuð
þér þá engin önnur ósannindi í blaðið
til að fylla þetta rúm? Veit eg það,
að þá þurfti yðar málstaður mikils við
af því tagi; en hvort þetta hefur verið
heppilega valið, getur verið spursmál.
Auðvitað talaði ráðherrann aldrei eitt
einasta orð við mig um þessa atkvæða-
greiðslu, og því hef eg verið að hugsa
um, hvað því hafi valdið, að þér bjugg-
uð þetta til. Helzt ætla eg að þetta
hafi verið vitfirringsbrot af yður. Eg
skal segja yður hversvegna eg hugsa
þetta, en um leið verð eg að minnast á
örfá fleiri atriði í blaði yðar. — 13 dög-
um slðar, þann 13. september s.l. segið
þér það, sem yður er annars ekki tamt,
og sem gæti hugsast að væri yfirbót á
þetta, þó það komi við öðru máli. Þér
segið nefnilega — þér skuluð ekki láta
yður verða illt við — vísvltandi satt, að
því er eg get bezt fundið. Hafi það ver-
ið óvart, munuð þér leiðrétta það síðar.
Það sem þér hafið þá orðið um, er rit-
sími austur í sýslur — mun eiga að vera
málþráður. Eg skal ekki taka nema lítið
upp, því eg get ímyndað mér, að þér
þolið ekki stóran skammt af þessu kröpt-
uga lyfi í byrjuninni. Svona hljóðar það:
. . . »að fái sum héruð einhverja sam-
göngu b ó t og viðskipta, þá vilja önn-
ur hafa hana líka og ekki láta gera sig
afskipta«.
»Ekki nema það þó«. Þér kallið þarna
»ritsímafarganið«, sem þér nefnið svo,
»samgöngubót og viðskipta*.
En ekki var Adam lengi í ParadíS.