Þjóðólfur - 29.12.1905, Qupperneq 3
ÞJÓÐOLFUR .
229
legt, að bæði hér og annarsstaðar fari fylg-
ið við þá að dofna, og það verði þeim
ekki til aukinnar virðingar, að hafa reynt
til að draga og dregið á tálar með rang-
færslum, blekkingum og ósannindum menn
sem stóðu miður að vígi en þeir, til að
geta vitað hið sanna og rétta 1 þessum
efnum. Miklu fremur má ráð fyrir því
gera, að það álit og traust, sem þeir
hingað til hafa notið, að minnsta kosti
sumir þeirra, rýrist eigi alllítið eða skerð-
ist við framkomu þeiira á síðastliðnu sumri.
Enda verður það að álítast þeim maklegt,
hvort sem rangfærslur þeirra, blekkingar
og ósannindi hafa heldur stafað af fávizku
eða beinum illvilja, þar sém þeim, sjálfum
forsprökkunum átti að vera innan handar
og í lófa lagið að vita hið sanna og rétta
í málum þeim, sem þeir hafa gert að á-
greiningsmálum.
Pistill frá Höfn.
Það hefur löngum verið orð á því gert,
að Danir væru fáfróðir um Island og hagi
þess; en það mega þeir þó eiga, að þeir
taka feginsamlega öllum fregnum frá fslandi,
þó að þeir kunni ef til vill ekki alltaf sem
bezt grein að gera á gildi þeirra. Það má
því geta nærri hvaða fengur það er fyrir
danska blaðamenn, þegar íslenzk leikkona
kemur rakleiðis til þeirra til þess að fræða
þá um íslenzka leiklist, enda eyðir „Politik-
en“ 15. okt. næstum tveim dálkum til þess
að skýra frá öllum þeirn fróðleik, sem frk.
Gunnþórunn Halldórsdóttir hefur látið ein-
um af meðritstjórum blaðsins f té um það
efni. Með því að eg hygg að fleirum en
mér kunni að þykja sumt fróðlegt og ný-
stárlegt í skrafi Ieikkonunnar við Dani, þá
skal eg ofurlítið minnast á það.
Blaðamaðurinn, sem frk. talaði við, segist
ekki einu sinni hafa haft hugboð um, að
fastur leikflokkur væri í Reykjavík áður en
hi'in birtist í gættinni hjá honum. Honum
hefur því lfklega heldur en ekki þótt tíðindi,
þegar hann fékk að vita, að 8 manns væru
í félagi f Reykjavík til þess að halda þar
uppi sjónleikum. Og til þess enn rneir að
„imponera" veslings Danskinum, telur hún
upp alla karlmenniná og tilfærir stétt þeirra
f mannfélaginu. Jens er bankamaður, Frið-
finnur prentar dagblaðið, (það er vfst alveg
nýbyrjað, að minnsta kosti hef eg ekki séð
það ennþá), Arni og Helgi eru við verzlun-
ina (það er þó vfst ekki komin „Monopol"-
verzlun í Reykjavfk, eða er Thomsens Maga-
sín btíið að gleypa allar hinar?). Aptur á
móti er Kristján Þorgrfmsson svo rfkur, að
hann þarf ekkert að gera, og getur því gef-
ið sig allan við leiklistinni. Af leikkonun-
um er hinsvegar engin nefnd nema frk.
Gunnþórunn sjálf, hvort sem það kemur til
af þvf, að hinar tvær sem eptir eru, ertt svo
ómerkilegar, að henni hefur ekki fund-
izt taka þvf, eða hæverska hennar hef-
ur bannað það. Aptur á móti fær maður
að vita, að hún sjálf er ein af máttarstoð-
um leikfélagsins, og hefur með naumindum
fengið leyfi til þess að ferðast til Kaup-
mannahafnar til þess að kynnast danskri
leiklist. En það furða eg mig mest á, að leik-
félagið skuli vera að basla nokkuð við að
leika á meðan þessi „íslands frú Henning",
sem blaðamaðurinn nefnir hana (í gamni
eða alvöru ?) er f burtu og lætur ekki held-
ur farandleikflokkana, sent hún segir að f
mörg ár hafi ferðast um á Islandi, vera eina
um hituna. Hvar skyldi maður annars geta
átt kost á að sjá listir þeirra? Unt lista-
smekk íslendinga segir frk., að þeir séu
ekki mikið fyrir kát og fjörug stykki, en
„vaudevillum" Bögh’s séu þeir mjög hrifnir
af. Til þess að sýna, hvað leiklistin standi
á háu stigi, telur hún upp heilmörg dönsk
stykki, sen^félagið hafi leikið. Eitt íslenzkt
stykki kvað hún líka hafa verið leikið („Skip-
ið sekkur"). Blaðamanninn langaði til þess
að vita hvað efni þess væri. Hann varð
heldur ekki litlu fróðari, þvf að hún fræddi
hann á því, að það væri um — ást, og verður
því ekki skarplegar lýst f jafnfáum orðum.
Um húsnæðið og leikútbúnað annan skraf-
aði frk. ýmislegt, og kvað hann harla léleg-
an. „Dekorationirnar" eru t. d. aflóga frá
Dagmar-leikhúsinu í Höfn. Eg hugði í fyrstu,
að hér væri átt við leiktjöldin, en mað-
ur, sem er nákunnugur leikfélaginu, hefur
fullvissað mig um, að það nái ekki nokk-
urri átt, og geti hér ekki verið átt við ann-
að en brúkaðar hárkollur(!), sem leikfélagið
hefur fengið frá Dagmar-leikhúsinu fyrir
nukkrum árum. Það er auðséð, að leik-
konan hefur ætlað að skýra nákvæmlega
frá öllu, en stundum er það líka kallað
slúður, ef langt er farið í þvf efni,
Þetta verður nú að nægja, en eg hygg
samt að af þessu megi menn verða nokkru
fróðari um þá fræðslu, er leikkonan hefur
veitt Dönum um leikmennt fslendinga.
í nóv. 1905.
Studiósus.
Bæjarstjörnarkosning
á að fara hér fram 3. janúar næstk. Á
þá að kjósa f bæjarstjórnina 6 fulltrúa
af hærri gjaldendaflokki, og eru þeir rúm
400, er atkvæðisrétt eiga við kosninguna,
en hún fer fram eptir lögunum 10. nóv.
1903 og er hlutfallskosning og leynileg.
Kosið verður eptir listum (með nöfnum
fulltrúaefnanna), er merktir verða A, B,
C o. s. frv. og verða þeir festir upp f
kjörherberginu, svo að hver kjósandi geti
áttað sig á, hver sé listinn hans, eða
hvern listann hann vill helzt kjósa. . Á
kjörseðli þeim, er hann fær verður hann
að gæta þess, að setja kross X og ekk-
ert annað við bókstaf þess lista, er hann
ætlar sér að kjósa. Nafn sitt má kjós-
andi sjálfur alls ekki skrifa á seðilinn,
þá er hann ógildur.
Þeir 6 fulltrúar, sem nú ganga úr bæj-
arstjórninni eru: Guðm. Björnsson, Jón
Magnússon, Kristján Jónsson, Sighvatur
Bjarnason, Sigurður Thoroddsen og Þór-
hallur Bjarnarson. Tveir hinna sfðast-
töldu hafa lýst yfir þvf, að þeir tækju
ekki endurkosningu og sama mun vera
að segja um Guðm. Björnsson. Það koma
því naumast til greina nema 3 hinna
gömlu fulltrúa.
Óvíst er enn, hve margir listarnir verða,
en einna almennast fylgi mun sá listi
hafa, er félagið »Fram« hefur á fundi í
gærkveldi samþykkt að fylgja fram. En
á þeim lista eru þessi fulltrúanöfn og í
þessari röð :
Jón Þorláksson verkfræðingur.
Magnús Blöndal snikkari.
Jón Magnússon skrifstofustjóri,
Sighvatur Bjarnason bankastjóri.
Ásgeir Sigurðsson kaupm.
Þorst. Þorsteinsson kaupm.
Ganga má að því vísu, að önnur félög
hér í bænum aðhyllist þennan lista. En
þó munu sum vilja hafa suma kandídat-
ana ofar f röðinni og þvf vissari til kosn-
ingar en á þessum lista t. d. þá Sighvat
og Ásgeir, og er því allsennilegt, að ann-
ar listi með nöfnum þeirra, annars eða
beggja, verði lagður fram.
Veitt prestakðll. Landeyja-
þing veitt 22. desbr. séra Þorsteini Bene-
diktssyni presti að Bjarnanesi.
Torfastaðir veittir s. d. kand. Eirfki
Stefánssyni.
Laust prestakall. Bjarnanes í
Austur-Skaptafellsprófastsdæmi (Bjarnanes-
og Einholtssóknir. Metið kr. 1193.56. — Á
prestakallinu hvílir lán, tekið í landsbank-
anum samkv. lhbr. 30. júlf 1901, sbr. lhbr.
20. marz 1902 (Stj.tfð, 1901, B. bls 119 og
Stj.tfð. 1902, B. bls. 55), upprunalega 400
kr., nú að eptirstöðvum 239 kr. — Veitist
frá næstu fardögum. — Auglýst 28. des.
1905. — Umsóknarfrestur til 20. febr. 1906.
Messur í dómkirkjunni um
áramótin.
Gamlársdag kl. 12: séra Bjarni Hjaltesteð.
----kl. 6: séra Jón Helgason.
Nýársdag kl. 12: dómkirkjupresturinn.
----kl. 5: Lárus Thorarensen
cand. theol.
Jarðarför Páls Ólafssonar verður 2.
janúar kl. 11*/* f- h. frá Laufásvegi 5 og
verður þaðan farið beint í kirkjugarðinn.
Sérstakt titilblað með efnis-
skrá, 2 heil blöð og 8 aukablöð
hafa kaupendur Þjóðólfs þatta ár
fengið aukreitis, umfram ákveðna
blaðatölu. Næsta ár fá kaupend-
ur að minnsta kosti ekki minni
viðauka.
Duglegur drengur,
14—16 ára, vel reiknandi og skrifandi,
óskast til J. P. T. Brydes verzl-
unar í Reykjavik. Umsókn rituð
með eigin hendi, sendist fyrir 15.
janúar 1906, ásamt meðmælum kenn-
ara eða einhv. áreiðanl. manns, um
að pilturinn sé— vandaður og vel
að sér.
LJkkranzar og kort
á Laufásvegi 4.
A 1 y* sem Þekkja
111 I til kaupa helzt í
verzlun
Björns Þórðarsonar
á Laugaveg 20. B.
o o o o o o •
Kartöflur
í VERZLUN
H. P. Duus.
•••••••
SAMKOMUHÚSIÐ B E T E L við
Ingólfsstræti og Spítalastfg.
Samkomur verða haldnar framvegis eins
og hér segir:
Sunnudaga: Kl. 2 e. h. Sunnudagaskóli.
K1 6V2 e. h. Fyrirlestut.
Midvikudaga: Kl. 8 e. h. Biblíusatntal.
Laugardaga: kl. 11 f. h. Bœnasamkoma
og bibliulestur.—Kirkjusálmasöngsbókin verð-
ur viðhöfð. Allir velkomnir á samkomurnar.
Vinsamlegast D. Östlund.
Proclama.
Samkvæmt lögum 12. apríl 1878
og opnu bréfi 4. jan. 1861 er hér
með skorað á alla þá, er til skulda
telja í dánarbúi Daníels bókbindara
Hjaltalíns, er andaðist að Geirseyri
6. f. m., að koma fram með kröfur
sínar og sanna þær fyrir undirrituð-
um skiptaráðanda innan 6 mánaða
frá síðustu birtingu þessarar auglýs-
ingar.
Skrifstofu Barðastrandarsýslu
4. desbr. 1905.
G. Björnsson.
Hið íslenzka kristniboðsfélag
heldur fund næstkomandi þriðjudag 2.
janúar 1906 kl. 8 síðdegis í samkomu-
sal K. F. U. M.
Reykjavík 28. desember 1905.
Lárus Haldórsson
formaður.
Consum-
Chocolade,
Kaffi brennt og malað
bezt í verzlun
H. P. Duus.
Vogrek,
í síðastliðnum septembermánuði rak
fyrir landi Bálkastaða í Ytri-Torfustaða-
hreppi bát með norsku skektulagi,
farviðs- og þóptulausan og taisvert
brotinn, bæði bönd og byrðingur. —
Báturinn er á lengd 8 ál. 12 þuml.,
breidd um miðju 2 ál. 12 þuml. og
dýpt 22 þuml. — Ekkert auðkenni
er á bát þessum, en kaðalspottum
fest í báða enda hans.
Er hér með skorað á þann, er eiga
kynni bát þennan, að segja til sín
innan árs og dags frá síðustu birtingu
þessarar auglýsingar og sanna heim-
ildir sínar fyrir honum og taka við
honum eða andvirði hans, að frádregn-
um öllum kostnaði.
Skrifstofu Húnavatnssýslu
15. nóvbr. 1905.
Gísii ísleifsson.
Verdið á
Maypole sápu
hefur ekki verið sett nógu mikið nið-
ur í sápuverzluninni í Reykjavík, því
Verzlunin Edinborg
getur vel selt hana á 30 a. st.
Vali og himbrima.
Vel skotna fugla, einkum vali og
himbrima kaupa undirritaðir háu
verði.
Daníel Bernhöft. Vilhelm Bernhöft.
Uppboðsauglýsing.
Samkvæmt kröfu Söfnunarsjóðs ís-
lands verður eign frú S. Eggerz, ‘/4
úr jörðinni Akureyjum í Skarðstrand-
arhreppi í Dalasýslu, selt við 3 opin-
ber uppboð.
2 fyrstu uppboðin verða haldin á
skrifstofu sýslunnar föstudagana 9. og
16. febrúar 1906, kl. 2 e. h. en hið
þriðja á sjálfri jörðinni föstudaginn
2. marz kl. 2 e. h. Uppboðsskil-
málarnir verða til sýnis á skrifstofu
sýslunnar 2 dögum fyrir 1. uppboðið-
og á uppboðunum.
Skrifstofu Dalasýslu 10. des. 1905.
Björn Bjarnarson.
Bezt kaup
Sköfatnaði
í
Aðalstræti 10.
I haust var mér undirskrifuðum dregin
2 lömb með mínu eigin marki: stýft, standfj.
fr. v. Réttur eigandi gefi sig fram og sanni
eignarétt sinn, borgi mér auglýsingu þessa
og kostnað, og semji við mig um markið.
Læk í Flóa 9/i2 '05.
Guðm. Snorrason.