Þjóðólfur - 05.07.1907, Blaðsíða 2

Þjóðólfur - 05.07.1907, Blaðsíða 2
IIO ÞJÓÐÓLFUR. í fundarlok stakk fundarstjóri upp á því, að fulltrúar og aðrir viðstaddir legðu eitthvað af mörkum til að standast kostn- að við fundarhaldið og undirbúning þess, og var því mjög vel tekið. Safnaðist við Öxarárbrúna eitthvað á 3 hundrað krónur í þessu skyni. Eptir uppástungu eins fulltrúa (B. J. ritstj.) komu nokkrir full- trúar saman síðar um kveldið til að ræða um ákveðið skipulag eða félagsskap fram- vegis í þessu máli. En ýmsum mun hafa þótt það offijótt upp borið og varð hlut- takan í þeim fundi þvf ekki almenn að sögn.1) Veður var gott um daginn, en hvasst nokkuð. Um 400 manna mun hafa verið alls á fundinum. Alþing'i. I. Alþingi varsett 1. þ. m. Séra Friðrik Friðriksson prédikaði í dómkirkj- unni og lagði út af 5. Mós. 5, 1—6. Að því búnu söfnuðust þingmenn saman í þingsal neðri deildar, og las þá ráð- herrann upp skipunarbréf konungs um setning alþingis og lýsti yfir, að það væri sett. Aldursforseti þingsins, Tryggvi Gunnarsson, gekk þá til forsetasætis. Rannsakað vár kjörbréf hins eina nýja þingmanns Steingríms Jónssonar sýslu- manns (6. kgk.) og fannst ekkertvið það að athuga. Forseti sameinaðs þings var því næst kosinn Eirfkur Briem með 23 atkv. (Jóh. Jóhannesson fékk 11 atkv. Gekk þá hinn nýkjörni forseti til for- setastóls og jnælti þar nokkrum minn- ingarorðum um hinn nýlátna konung vorn Kristján 9., en allir þingmenn stóðu upp 1 sætum sínum, meðan þau orð voru flutt. Varaforseti sameinaðs þings var þvf næst kosinn Lárus H. Bjarnason með 23 atkv. (Stef. Stef. kennari fékk 12), en skrifarar: Hannes Þorsteinsson með 22 atkv. og Guðm. Björnsson með 21 atkv. Samkv. 3. gr. þingskapanna var kosin 5 manna nefnd til að prófa kjörbréf og rannsaka kosningar, er þingið hefur frestað, en sú nefnd hefur reyndar ekkert hlutverk á þessu þingi, og þótti því sum- um kosningin óþörf. Kosnir voru Sk. Thoroddsen. Steingrfmur Jónsson, Guðl. Guðm., Lárus H. Bjarnason og Ól. Briem. Forseti neðri deildar var kosinn Magnús Stephensen með 16 atkv. (Stef. Stef. kennari fékk 11 atkv.). Sam- kvæmt nýju þingsköpunum eiga varafor- setar deildanna að vera tveir. Var Magnús Andrésson kosinn fyrri varafor- seti með 17 atkv., en annar varaforseti Tryggvi Gunnarsson með, lóatkv. Skrif- arar: Árni Jónsson og Jón Magnússon með 17 atkv. hvor. Forseti efri deildar varð Júlíus Hav- s t e e n , fyrri varaforseti Jón Jakobsson og annar varaforseti Guðjón Guðlaugsson. Skrifarar Björn M. Ólsen og Sigurður Jensson. Ókomnir til þings, er þing var sett, voru 2 þingmenn: Ólafur Thorlacius, er kom síðar um kveldið og Guðjón Guð- laugsson, sem væntanlegur er þessa dag- ana. Skrifstofustjóri alþingis er nú Morten Hansen skólastjóri. Jafnvel þótt enginn efist um, að hann sé því starfi vaxinn, og maðurinn sé alkunnugt lipurmenni, þá er samt mikil óánægja meðal alls þorra þing- manna yfir því, að forsetar þingsins hafa hafnað hinum fyrverandi skrifstofustjóra dr. Jóni Þorkelssyni landskjalaverði, er 1) Þess skal getið að ritstjóri þessa blaðs var ekki á þeim fundi, átti því engan þátt í kosningu þeirri, er þar fór fram og er því heldur ekki í stjórnarnefnd þeirri, er „Lögre'tta" minnist á. H. Þ. orðinn var starfinu þaulvanur og rækti það mjög ötullega, eins og honum er lagið. En breyting þessi mun stafa af undirróðri einstakra manna, er hafa viljað skipa sýslan þessa eptir sínu höfði og hnekkja dr. J. Þ. frá henni af einhverjum persónulegum ágreiningi. En forsetar þingsins eiga að vera hafnir yfir að beita slíkum títuprjónum í þágu einstakra manna utan þings eða innan. Á skrifstofu alþingis eru Pétur Hjalte- sted cand. pnil., Valdimar Steffensen cand. med. og séra Ólafur Ólafsson uppgjafa- prestur (frá Staðarhóli). RuOning úr landsdómnum. Samkv. lögum um landsdóm 20. okt. 1905 4. gr. ruddi efri deild á fundi í fyrra dag 24 mönnum úr dómnum, eða 2 tylftum af þeim 6 tylftum(72), er sýslu- nefndir og bæjarstjórnir höfðu kosið í dóminn. Hlutfallskosning eptir nýrri að- ferð (d’e Hondt’s aðferðinni), var viðhöfð nú í fyrsta skipti á þingi. Meiri hluti deildarinnar, er hafði 7 atkv. (einn þing- mann af því liði, Guðj. Guðl., vantaði) ruddi 14, en minni hlutinn, er hafði 5 atkv., ruddi 10. Þessir 14, er meiri hlutinn ruddi úr dóminum, voru þessir eptir nafnaröðinni á listanum: Einar Benediktsson sýslumaður, Jens Pálsson próf. í Görðum. Jón Gunnarsson veizl.stj. í Hafnarfirði, Bjarni Jensson sýslun.m. í Ásgarði, Pétur Oddsson kaupm. í Bolungarvík, Halldór Jónsson sýslun.m. á Rauðumýri, Björn Sigfússon bóndi á Kornsá, Björn Þorláksson pr. á Dvergasteini, Jón Guðmundsson pr. í Nesi, Þorleifur Jónsson hreppstj. í Hólum, Þórður Thoroddsen bankagjaldkeri í Rvík, Einar Hjörleifsson ritstjóri, H. S. Bjarnarson konsúll á ísaf., Árni Jóhannsson skrifari í Rvík. Þeir 10, er minni hlutinn ruddi burt voru: Halldór Jónsson bankagjaldkeri í Rvík, Sæm. Halldórsson kaupm. í St.hólmi, Guðm. Guðmundsson hreppstj. á Þúfnav., Sigurjón Friðjónsson bóndi á Sandi, Jón Jónsson hreppstj. Hafsteinsstöðum, Sigfús Daníelsson verzlstj Eskifirði, Kolbeinn Jakobsson hreppstj., Unaðsdal, Árni Jóhannesson pr. Grenivík, Jón Einarsson hreppstj. Hamri, Benedikt Einarsson hreppstj., Hálsi. Eru því eptir 48 dómsmenn, en af þeim 4 tylftum verða tvær dregnar út með hlutkesti í sameinuðu þingi, og þeir 24 menn skipa þá dóminn, þangað til enn frekari ruðning á sér stað, er til máls- sóknar kemur, en hinir 24, sem eptir verða í hlutkestinu, verða til vara, eí einhver hinna kjörnu dómenda deyr, missir kjörgengi eða forfallast. Kirkjumálanefnd i e. d. Efri deild kaus 1 fyrra dag Eirík Briem, Guttorm Vigfússon, Þórarinn Jónsson, Sigurð Stefánsson og Sigurð Jensson í nefnd um frv. til laga um skipun sóknar- og héraðsnefnda, og til sömu nefndar var þá vísað tveimur öðrum kirkjumála- frumv. (um skipun prestakalla og um um- sjón og fjárhald kirkna). Öll kirkjumála- frumvörpin verða lögð fyrir efri deild, og á þessi 5 manna nefnd þar, er nú var getið, að taka þau öll á sína arma. Fjárlögin. Nefnd skipuð í þau í n. d. í gær með hlutfallskosningu: Tryggvi Gunnarsson (formaður). Jón Jónsson (Múla) (skrifari). Eggert Pálsson. Þórhallur Bjarnarson. Árni Jónsson. Skúli Thoroddsen. Stefán Stefánsson 2. þm. Skagf. Reikningslaganefnd: Ólafur Briem, Guðl. Guðmuudsson, Magnús Kristjánsson. Fjáraukalögunum 1904—1905 vísað til þeirrar nefndar. Tollaukalög (framlenging á gildi þeirra) og skipun milliþinganefndar 1 skattamálum. Nefnd í n. d. Lárus Bjarnason, Pétur Jónsson, Guðmundur Björnsson, Hermann Jónasson, Björn Kristjánsson, Ólafur Briem, Ólafur Ólafsson. Til þeirrar nefndar vísað frv. um gjald af innlendri vindlagerð og til- búningi á bitter, frv. um vitagjald af skipum og frv. um tollvörugeymslu og tollgreiðslufrest. Dáinn er 28. f. m. Jón Jónsson danne- brogsmaður í Skeiðháholti, bróðir séra Guðmundar heit. á Stóruvöllum (J- 1889) á 93. aldursári (f. 2. sept. 1814). Æfiatriða þessa merkismanns verður síð- ar getið. »Sterling« (Emil Nielsen) fór héðan til útlanda 1. þ. m. Með skipinu tóku sér far 12 far- þegar þar á meðal: Arthur Gook trú- boði frá Akureyri, Jón Ófeigsson cand. mag., Frú Henrietta Brynjólfsson, Lára Þorsteinsson, Henriksen danskur agent, Petersen danskur múrari, Karl Ólafsson ljósmyndari, fröken Ingibjörg Guðmunds- dóttir o. fl. Frá Seyðisfirði er sfmað 2. þ. m., að Hansen kon- súll þar sé látinn; hafi dáið úr heila- blóðíalli. — Brytinn á gufuskipinu »Pros- pero* hafði verið sektaður um 80 kr. fyrir ólöglegar áfengisveitingar. Mislingar eru komnir upp í Stykkishólmi, á 5 börnum, eptir því sem landlæknir var sfmað frá Grund á þriðjudaginn. Hafði veikin borizt þangað með farþega (Þor- leifi Þorleifssyni) er hingað kom með »Lauru« fyrir skömmu og hafði þó gefið vottorð »upp á æru og samvizkuc, að hann hefði haft mislinga áður, og var því leyfð landganga. En vitanlega varðar slíkt atferli þessa manns hegningu. Land- læknir fór vestur í Stykkishólm 2. þ. m. til að gera ráðstafanir gegn útbreiðslu veikinnar. Sjálfsmorð. Geðveik stúlka, Sigríður Guðmunds- dóttir frá ísafirði, tvítug að aldri, fyrirfór sér nú fyrir skömmu á hinu nýja geð- veikrahæli á Kleppi, henti sér út um glugga og steypti sér í sjóinn, hafði hún tvisvar eða þrisvar áður gert tilraun til að fyrirfara sér með því að varpa sér út um glugga, allmikla hæð, Virðist það undarlegt mjög, að betri umbúnaður var ekki hafður eða meiri gætur á stúlkunni en þetta, úr því að hún hafði gert þessar ítrekuðu tilraunir til sjálfsmorðs. Er all- mikið um þetta talað hér í bænum, sem eðlilegt er, og þykir ekki happaleg byrj- un hjá hinum nýja lækni spítalans að hafa ekki strangara eptirlit en þetta með sjúklingunum. SáttmálaundirstaOan. Það er eitt atriði í ályktun Þingv,- fundarins, er sérstaklega hefur verið gert að blaðamáli og rangfært (í »Reykjavíkinni«) á þann hátt að ályktunin feli beinlínis í sér að Islendingar ætli að setja konginn af(!!) hvenær sem þeim sýnist, þar sem talað er um, aðsáttmálinn sé upp- segjanlegur. Því fer svo fjarri, að álykt- unin geti orðið skilin á þann hátt, að það er skýrt tekið fram, að g r u n d- v ö 11 u r sáttmálans skuli vera, að ísland sé frjálst sambandsland í konungssam- bandi við Danmörku og með fullu valdi yfir öllum sínum málum. Þessi grund- völlur er óhagganlegur, það er samninga- undirstaðan sjálf, er sáttmálinn bygg- ist á, eins og hús á .grunni. Eins og húsinu má breyta, eða rífa það niður, án þess að raska undirstöðunni, eins má segja sáttmála þessum upp frá beggja hálfu, án þess að hrófla við grundvellin- um, undirstöðunni sjálfri. Þetta ætti ekki að þurfa að taka fram, en vegna ein- hverra, sem kunna að hafa misskilið á- lyktanina, þykir rétt að láta þessa getið, enda þótt hún sé svo ljóst orðuð, j að hún geti naumast orðið misskilin. Heimspekisprof hafa tekið: Magnús Gfslason og Stefán Scheving Thorsteinsson með ágætiseink- unn; Jóhannes Askevold Jóhannessen með 1. eink. og Pétur Jónsson með 2. eink. Embættispróf í læknisfræði við læknaskólann hafa tekið: Valdimar Steffensen með 1. einkunn 158 st. og Guðmundur T. Hallgrímsson með 2. einkunn 149 st. Prófdómandi var Jón H. Sigurðsson læknir Rangæinga. Veltt prestaköll Mýrdalsþing eru veitt séra Þorvarði Þorvarðarsyni á Fjallaþingum, Skeggja- staðir séra Ingvari Nikulássyni fyr presti í Gaulverjabæ og Hvammur í Laxárdal séra Arnóri Árnasyni fyr presti á Felli f Kollafirði. Lausn frá embætti hefir fengið séra Ólafur Ólafsson í Staðarhólsþingum sakir vanheilsu. Prófastur skipaður í Eyjafjarðarsýslu séra Geir Sæmundsson á Akureyri, er verið hefir settur prófastur þar um hríð. €rlenö símskeyti til Pjóðólfs frá R. B. Kaupmannahöfn, 2. júlí kl. 5 e. h. Konungsförin. Konungur hefur boðið með sér í íslands- förina Lucher sæmyndamálara og Laurit- zen fiskikaupmanni frá Esbjærg. Konungurinn i Siam er hér í kynnisför við hirðina og fer í kveld. Vilhjálmur keisari kemur á morgun. Óeirðirnar á Frakklandi. Frá Parfs er sfmað, að 620 hermenn, er gert höfðu óhlýðnissamblástur í vínyrkju- héruðunum hafi verið sendir til Tunisv Stórþingið norska hefur veitt fé til veðuráttuhraðskeyta frá íslandi og 10,000 kr. ársstyrk Wathneserf- ingjum til gufuskipaferða. Panamaskurðurinn. Mesta óstjórn við Panamskurðargröpt- nn og vinnu nálega hætt. Dómsmálaráðgjafinn hefur vísað frá kærunni gegn A. T. Möller. 4. júlí kl. 8 e. h. Heimsókn Þýzkalandskeisara. Mikil hirðveizla í gærkveldi. Hjartan- leg ræðuhöld af beggja hálfu konungsog keisara. Keisarinn heldur áfram ferð sinni á morgun til Noregs. Morðingí Petkows ráðaneytisforseta í Búlgaríu hefur verið dæmdur til dauða.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.