Þjóðólfur - 13.09.1907, Page 3
MÓÐÖLFUR.
151
af 12 tegundum, þar á meðal margar nýjar teg.
t. d. »Beacon« og »Daisy«, skínandi fallegar og
léttar, nýkomnar til
Lárusar G. Lúðvigssonar.
Ennfremur allskonar skófatnaður fyrir full-
orðna og börn.
91. Hvanneyri: Hvanneyrarsókn.
92. Kvíabekkur: Kvíabekkjarsókn.
93. Vellir í Svarfaðardal: Valla-, Stærra-
Arskógs-, Tjarnar-, Urða- og Upsa-
sóknir.
94. Möðruvallaklaustur: Möðruvalla-,
Bægisár-, Bakka- og Myrkársóknir.
95. Akureyri: Akureyrar, Lögmannshlíð-
ar- og Glæsibæjarsóknir.
96. Grundarþing: Grundar-, Munka-
þverár-, Kaupangs-, Saurbæjar-,
Möðruvalla, Miklagarðs- og Hóla-
sóknir.
XIX. Suður-Pingeyjarprófastsdœmi.
97. Laufás: Laufás-, Svalbarðs-, Greni-
víkur- og Þönglabakkasóknir.
98. Háls 1 Fnjólkadal: Háls-, Illugastaða-
Draflastaða- og Brettingsstaðasóknir.
99. Þóroddsstaður: Þóroddsstaðar- og
Ljósavatnssóknir.
100. Skútustaðir: Skútustaða-, Reykja-
hllðar- og Lundarbrekkusóknir.
101. Grenjaðarstaður: Grenjaðarstaðar-,
Nes-, Einarsstaða- og Þverársóknir.
102. Húsavík: Húsavíkursókn.
XX. Norður-Pingeyjarprófastsdœmi.
103. Skinnastaðir: Skinnastaða-, Garðs-,
Presthóla- og Víðihólssóknir.
104. Svalbarð í Þistilfirði: Sválbarðs- og
Ásmundarsta ð arsóknir.
105. Sauðanes: Sauðanessókn.
2. gr. I Reykjavíkurprestakalli skulu
vera tveir þjóðkirkjuprestar: dómkirkju-
prestur og annar prestur honum jafnhliða.
Landstjórnin, í samráði við biskup, skipar
fyrir um aðstöðu þeirra hvors til annars,
samband sln á milli og verkaskiptingu í
söfnuðinum.
3. g r. Landstjórnin hlutast til um,
að þær breytingar á skipun prestakalla,
sem að ofan eru ákveðnar, komist á,
eptir því sem prestaköllin losna, svo fljótt,
sem þvt verður við komið.
4. gr. Nú vilja menn breyta skipun
sókna eða takmörkum prestakallaeðaleggja
niður kirkju, færa úr stað eða taka upp
nýja kirkju, og skal þá mál það koma
fyrir safnaðarfund eða safnaðarfundi, ef
fleiri en einn söfnuður eiga í hlut. Ef
breytingin viðkemur að eins einum söfn-
uði, ræður meiri hluti atkvæða á lögmæt-
um safnaðarfundi. Séu söfnuðirnir tveir,
ræður meiri hluti atkvæða á báðum fund-
um. Séu söfnuðirnir fleiri en tveir, ræð-
ur meiri hluti safnaðafunda. Samþykki
héraðsfundur tillögu safnaðarfundar (eða
safnaðafunda) er rétt, að landstjórnin, í
samráði við biskup, veiti leyfi til að breyt-
ing sú, sem um ræðir fái fram að ganga.
5. gr. Þegar lénskirkja er lögð niður,
fellur sjóður hennar til þeirrar kirkju, eða
þeirra kirkna, sem sóknin er lögð til. Svo
er og um skrautgripi (ornamenta) kirkj-
unnar og áhöld (instrumenta), og andvirði
fyrir kirkjuna sjálfa.
50. Um laun prófasla. (Próföstum
skulu veitt auk þeirra launa, sem þeir
hafa haft hingað til, 200 kr. laun hverj-
um úr prestlaunasjóði, nema pröf. í Aust-
ur-Skaptafells- Vestur-Skaptafells- Borg-
arfjarðar- Mýra- Dala- Vestu-ísafjarðar-
Stranda- og N orður-Þingeyj arpró í’asts-
dæmi; þeir fá að launum 100 kr. hver)-
51. Um sölu kirkjufarða.
52. Um skipun sóknarnefnda og hér-
aðsnefnda.
53. Um ellistyrk presta og eptirlaun.
54. Um skyldu presta til að kaupa
ekkjum sínum lífeyrí.
Mislingarnir
hafa, eins og við mátti búast, rutt
sér braut um bæinn; þeir eru komn-
ir á hér um bil 40 heimili, svo að
kunnugt sé; eg geri mér ekki leng-
ur von um, að þeir verði stöðvaðir
hér í bænum.
Þó er ekki loku fyrir skotið, að
einstök heimili í bænum geti varið
sig. Og sveitunum á að vera innan
handar að verja sig.
Þess vegna verður haldið áfram að
merkja þau hús hér í bænum, sem
veikin kemur í, til leiðbeiningar öll-
um þeim, er varast vilja veikina.
Frekari aðgerðir geta ekki framar
komið til greina, verða ekki fram-
kvæmdar, svo að nokkurt lið sé í,
þegar veikin er komin um allan bæ-
inn.
Nú er um að gera, að bæjarmenn
og sveitamenn leggist á eitt, reyni
að halda veikinni innan takmarka
bæjarins.
Þess vegna er skorað á bæjarmenn
að varast og sporna við því eptir
megni, að ungt fólk, sem ekki hefur
haft mislinga, fari út úr bænum með-
an veikin gengur. Og þess vegna er
skorað á alla landsmenn utan Reykja-
víkur, að sporna við því eptir mætti,
að þeir menn fari ferðir hingað, sem
ekki hafa haft mislinga.
Yil jeg að lokum minna menn á
þær leiðbeiningar, um varnir gegn
veikinni og meðferð á sjúklingunum,
sem staðið hafa nýlega í flestum blöð-
um landsins.
Eg kann blöðunum þakkir fyrir
að hafa flutt þær leiðbeiningar og vil
mælast til að þau Hka taki upp þessa
grein.
G. Björnsson.
€rlenð síraskeyii
til Pjóðólfs frá R. B.
Kaupmh. 10. sept., kl. 5u, e. h.
Trésmíðadeilan
áendakljáð. Lýstyfir, að vinnuteppunni
sé hætt og þeir aptur teknir til vinnu.
Jarðarför Grieg’s.
Símað er frá Björgvín, að Grieg hafi
verið jarðsettur á mánudaginn (9. sept.)
með mikilli viðhöfn á kostnað rikisins.
Wellmann
hættir að likindum við heimskautaförina
þetta ár.
Uppþot
ákaft í Vancouver i British Columbia
gegn Japönum og Kínverjum og sá hluti
bæjarins, er þeir búa í, eyddur af skríln-
um, en margir menn særðir. Kanada-
stjórn hefur af alefli skorizt í leikinn.
Franska skáldið.
Sully Prudliomme, sá er fyrstur fekk
bókmenntaverðlaun afNóbelssjóðnum,er
látinn.
Konungsfólkið
Alexandra drottning, Dagmar keisara-
ekkja og Georg Grikkjakonungur eru
komin hingað.
12. sept. kl. 4,40.
Skipstrand.
F'rá Helsingfors er símað að rússneska
keisaraskipið »Standard« hafi strandað
á skeri. Keisarafólkið var á skipinu og
fór yfir á annað skip.
Gjaldþrot.
Verzlunarhúsið Alexander Warburg’s
Sön Co. í Kaupmannahöfn hefur orðið að
hætta útborgunuin vegna misheppnaðra
fjárgróðatilrauna. Skuldirnar áætlaðar
U/a miljón kr. Farið að gera upp úeikn-
inga yflr skuldaskiptin.
Látinn
er fyrv. hermálaráðherra Stang i Kristj-
aníu. __________
Sgslumannsembœttið
í Rangárvallasýslu er veitt Björgvin Vig-
fússyni sýslumanni Skaptfellinga.
Mlslingarnip
eru óðum að breiðast út hér f bænuui.
Eru komnir í 40 hús eða fleiri. Sumir liggja
allþungt haldnir. Enginn efi er á því, að
sýkin fer um allan bæinn.
Sjaldgæfa sjón
fengu Reykvíkingar að sjá hér í fyrra dag.
Það voru þrír Grænlendingar (Skrælingjar
eða Eskimóar): einn karlmaður (prestur) og
kona hans og frændkona hennar, er hingað
komu á dönsku Grænlandsfari, er varð að
hverfa frá Austur-Grænlandi vegna ísalaga, en
heldur af stað þangað aptur. Konurnar voru í
grænlenzkum þjóðbúningi, og varð bæjar-
búum starsýnt á þær. Thomsen konsúll
kom með Grænlendinga þessa upp í þing-
hús í fyrra kveld, til að sýna þeim það og
láta þingmenn sjá þá, en múgur og marg-
menni fylgdi á eptir, en aðrir stóðu fyrir
utan, meðan þeir voru inni. Þá er þeir fóru
út aptur, var tekin ljósmynd af þeim. Ekki
voru stúlkur þessar forkunnarfríðar, en stilli-
legar að sjá, og munu hafa verið utan við
sig út af öllum þessum látum í kringum þær.
Önnur þeirra var auðsjáanlega kynblend-
ingur, en hin af óblönduðu Skrælingjakyni.
Karlmaðurinn tók þeim ekki fram að fegurð.
Öll voru þau fremur smá vexti, eins og
Eskimóar eru yfirleitt.
Brunar.
Hinn 4. þ. m. brann fjós, eldhús og eitt-
hvað fleira af húsum, ásamt 70 hestum af
heyi í Lambhaga í Mosfellssveit. Halda
menn, að neistar úr eldhússtrompnum hafi
lent í heyinu og kveikt í því.
I Norðurkoti í Grímsnesi kviknaði einnig
í heyi frá neistum úr ofnpípu 5. þ. m., og
brunnu þar 3 hey, er stóðu samsíða.
Dáin
er hér í bænum 5. þ. m. ekkjufrú Oddný
Smith, 65 ára að aldri, (fædd 19. janúar
1842). Foreldrar hennar voru Þorsteinn
bóndi Helgason á Grund i Svínadal, af
hinni fjölmennu Bolholtsætt úr Rangárþingi,
og Sigurbjörg Jónsdóttir prests á Auðkúlu
Jónssonar, systir séra Daníels í Ögurþingum
og þeirra systkina. Oddný var gipt Boga
Smith í Arnarbæli á Fellsströnd, syni M.
Smith kaupmanns og konsúls í Rvík
og Ragnheiðar Bogadóttur frá Staðarfelli.
Mann sinn missti hún 4. maí 1886 ásamt
tveimur sonum sínum, 17 og 15 ára göml-
um. Börn þeirra á lífi eru: Ragnheiður
gipt Helms bústjóra á Fjóni, Sigurbjörg
kona séra Vigfúsar Þórðarsonar á Hjalta-
stað, Hlíf kona séra Péturs Þorsteinssonar
aðstoðarprests í Heydölum, Sofifia og Guðrún.
Oddný heit. var væn kona og vel metin, en
átti við langvinnt heilsuleysi að stríða.
Veðurátta.
Til óþurka brá um næstliðna helgi, eptir
rúmlega 4 mánaða stöðuga þurka að kalia
má, og hefur verið úrkoma síðan,) og
stundum allmikil.
Látinn
er 1. þ. m. Guðmundur Oddsson bóndi
á Hafrafelli við Skutulsfjörð á 52. aldursári
(f. 6. des. 1855), einhver merkasti bóndi í
Isafjarðarsýslu og dugnaðarmaður mikill.
Hann var bróðir Péturs kaupmanns Odds-
sonar í Bolungarvík.
Sterling"
kom hingað frá útlöndum í fyrra dag.
Meðal farþega voru séra Magnús Helgason
kennari í Flensborg, Einar Benediktsson
f. sýslumaður og séra Árni Þorsteinsson á
Kálfatjörn.
»Laura“
kom af Vestfjörðum í gær. Með henni
Arom frá ísafirði séra Guðm. Guðmundsson
(fyr t Gufudal) og frá Dýrafirði Matthías
Ólafsson kaupm. í Haukadal.
Alþlngl
hefur verið lengt að nýju um 2 daga, og
verður slitið á morgun.
Fjárlögin
koma t sameinað þing f þetta sinn, eptir
því sem horfur eru á, því að fjárlaganefnd
efri deildar hefur enn á ný gert breytingar
á neðri deildar frurnvarpsins.
Christensen & Wedel.
Islenzk umboðsverzlun.
Kaupmannahöfn K.
Símnefni: Wedelchrist.
Jarðarför frú Oddnýjar Smith fer fram
frá heimili hennar, Hafnarstræti 16, laugar-
daginn 14. þ. m. kl. IP/2 f. h.
Bann.
Við undirskrifaðir bönnum stranglega hér
með öllum, sem ekki eru fullra 26 ára aðaldri,
að koma á heimili okkar, meðan mislingar
eru að ganga í Reykjavík eða annarsstaðar
hér nálægt.
Krísuvík og Nýjabæ 31. ágúst 1907.
Jón Magnússon. Guðm. Jónsson.
Cggert Slacsscn
yflrréttarmálaflntDiMsmaöur.
Lækjargötu 12 B. Venjulega heima kl.
10—11 og 4—5. Tals. 16.
Köbenhavns Tilskærer-Skole.
stjórnað af frk. Thomsen, er
hefur stundað nám við stærstu
háskóla erlendis og fengið
beztu einkunn. Iðnskóli fyrir
stúlkur, sem vilja verða full-
numa í þvl, að sníða utan-
hafnarföt, kjóla, barnaföt og
lérept, eptir hinni nafnkunnu
»favorit«-aðferð. Námssskeið í kjóla-
saum. Kennsla allan daginn.
Pilestræde 42*, Kjöbenhavn.
Til íslenzku þjóðarinnar.
Alstaðar í heiminum, þar sem eg
hef flutt inn hinn viðurkennda Kína-lífs-
elixír minn, hafa óskammfeilnir gróða-
brallarar leitazt við að líkja eptir hon-
um. Til að koma í veg fyrir, að fs-
lenzkir neytendur hins ekta Kína-lífs-
elixírs verði flekaðir til að kaupa svikið
og áhrifalaust meðal af slíkum piltum,
skora eg hér með á alla Islendinga
að gæta þess nákvæmlega, að á ein-
kennismiðanum er Kínverji med glas
í hendinni, einnig firmanafnið Valde-
mar Petersen, Frederikshavn, Köben-
havn, en merkið -x?.- { grænu lakki
á flöskustútnum.
Biðjið beinlínis um hinn ekta Kína-
lífs-elixír frá Valdemar Petersen,
Frederikshavn, Kóbenhavn.
Séuð þér í vafa um, hvort þér hafið
fengið hinn ekta Kína-lífs-elixír, skuluð
þér skrifa beint til Valdemar Peter-
sen, Nyvej 16, Kóbenhavn V.
yfirréttarmálaflutningsm.,
Kirkjustr. 10,
tekur að sér öll málfærslustörf, kaup
og sölu á húsum og lóðum o. s. frv.
Heima kl. I01/*—ll1/^ og .4—5.