Þjóðólfur - 24.04.1908, Síða 2
70
ÞJÓÐÖLFUR.
i wiir á
Eptir J. Salvesen hersi.
(Þýtt).
Er nokkur byggð á hinum plánetunum?
Við skulum byrja á þeirri plánetunni, sem
mest hefur verið rætt og ritað um, en það
er Mars. Sumir halda því fram, að þar
muni byggð vera. Þeir þykjast finna sann-
anir fyrir því meðal annars í »síkjakerfi«
því, sem prófessor Schiaparelli o. fl. hafa
athugað, og ímyndunaraflið hefur gert að
stórfenglegum áveituskurðum, er Ibúarnir
ættu að hafa gert af hugviti sínu.
En þar sem menn líka hafa athugað
mörg samsíða slki, geisilöng og allt að
600 stikum á breidd, sem á skömmum
tíma taka breytingum og hverfa stundum
alveg, hljóta menn að komast að þeirri
niðurstöðu, að kenningin um, að byggð
sé á Mars, hafi eigi við nægileg rök að
styðjast.
Plánetan Tellus (það er jörð sú, er vér
byggjum), er hér um bil helmingi stærri
en Mars, en fjarlægð Mars frá sólunni er
hér um bil 2/3 af fjarlægð jarðarinnar frá
sóiunni. Að því er kemur til aldursins,
er það skoðun sumra, að Mars sésúeina
af ytri reikistjörnunum, sem sé eldri en
Jörðin, og er það talið sem sönnun þess,
að Mars sé kominn á hærra framþróunar-
stig og Ibúar hans hafi náð meiri and-
legum þroska, en Jarðarbúar. En ef vér
gætum þess, að hann er minni en Jörðin
og andrúmsloptið þar af leiðandi þynnra,
álíka sem á efstu fjallatindum Jarðarinnar,
og að hann er töluvert lengra burtu frá
sólunni, hljótum vér að komast að þeirri
niðurstöðu, að Mars sé óbyggilegur, að
minnsta kosti fyrir menn og æðri dýra-
og jurtategundir.
Með þvf að það er nú vísindalega sann-
að, að 4—5 stiga lækkun á meðalhita
Jarðarinnar mundi verða þess valdandi,
að ný ísöld rynni upp, að minnsta kosti
yfir nokkurn hluta jarðarirmar, hljótum
vér, er vér virðum fyrir oss framangreind-
ar staðreyndir, að álykta, að í s ö 1 d
gangi nú um þessar mundir yfir
a 11 a p 1 á n e t u n a Mars.
»Síkjakerfið«, er menn hafa athugað,
verður þá auðvelt að skýra. Alit yfir-
borðið á Mars er þakið ísbreiðu, og koma
á hana, líkt og í heimskautaísinn hér á
jörðunni, stórar vakir, sem að mestu leyti
myndast við »flóð og fjöru« af áhrifum
tunglanna Fojbosar og Deimos’ar, og er
annað þeirra (Fojbos) ekki meira en í
4000 rasta fjarlægð frá Mars. Af því
hvernig afstaða tunglanna breytist, verður
auðvelt að skýra, hvernig á því stendur,
að breiddin á vökunum er sífellt að breyt-
ast, og þær hverfa stundum með öllu.
Kemur það ýmist af því, að þær renna
saman og þverspengur myndast, eða vak-
irnar frjósa og fyllast af snjó. Ennfremur
er auðsætt, hversvegna síkin eru bein og
samsíða; þvl veldur krystallsmyndun
fssins.
Að einstaka »síki« haldi sér óbreytt,
svo að þau hafa verið athuguð árum sam-
an, verða menn að ætla að stafi af því,
að þar séu sker, sem ísspildurnar festi á,
og að vatnið sé hér svo djúpt, að hitinn
innan að, ásamt hinum væga sólarhita,
geti haldið þessum vökum opnum. Eitt
af skerjum þessum stendur jafnvel upp úr
ísbreiðunni og sýnist þar vera hvítur flekk-
ur á stjörnukringlunni. Þetta er þá fjalls-
tindur, sem þakinn er ís og snjó, og við
athuganir, sem nýlega hafa verið gerðar,
hefur það reynzt, að hann nær yfir óvenju
stórt svæði.
Þessa lausn á Marsgátunni mun verða
að telja hina sennilegustu af þeim, sem
ennþá hafa verið settar fram, og hún
kemur líka heim við athuganir vorar, sem
hafa leitt í Ijós, að yfirborðið á Mars er
mjög slétt — vegna hinnar umfangsmiklu
ísbreiðu.
Samkvæmt hinu framanskráða hljóta
menn að mega álykta, að hinar ytri plán-
eturnar séu heldur ekki byggðar á þess-
um tímum, heldur séu þær ennþá á fram-
þróunarstigum, er svipi til þess, er jarð-
fræðin kennir oss um hina fyrstu, aðra
og þriðju jarðöld. Fjarlægð þeirra frá
sólunni er nefnilega þessi í samanburði
við fjarlægð jarðarinnar — að fráskilinni
smáplánetunni Eros og smástirnunum
(Asteroidunum), er varla nokkur mun
telja byggðar —:
Júpíter er 5 sinnum lengra f burtu frá
sólunni heldur en jörðin, Satúrnus 10
sinnum, Uranus 20 sinnum og Neptúnus
30 sinnum lengra í burtu, eða ef reiknað
er í jarðmílum, eru fjarlægðirnar þessar:
ro8, 200, 400 og 600 miljónir jarðmílna.
Að því er snertir innri pláneturnar,
Venus og Merkúr, hafa þær slæm skilyrði
til þess að geta verið byggilegar. Snún-
ingi þeirra er þannig háttað, að þær snú-
ast ekki nema einu sinni um ás sinn, jafn-
framt því sem þær fara eina umferð kring-
um sólina, svo að þær snúa sífellt sömu
hliðinni að sólunni; er þess vegna steikj-
andi hiti á öðrum helming hnattarins, en
ískuldi og myrkur á hinum. Afleiðingin
af þessu er að líkindum geysimiklir um-
hleypingar í gufuhvolfinu, því að í stað
heita loptsins, sem stígur upp frá heita
hnatthvelinu, streyma sítellt að kaldir
loptstraumar frá kalda hvelinu. Venus
sjálfa höfum vér aldrei séð, því að hún
er sífellt hulin af þokuslæðunum, sem
þyrlast í kringum hana, svo að aldrei
hefur verið unnt að athuga nokkurn flekk
á yfirborðinu. Einstaka vísindamenn
hyggja því, að verið geti, að hún snúist
nokkru hraðar kringum ás sinn, og að
hún geti því »ennþá« haft nokkur skilyrði
til þess að vera byggileg, og jafnvel þótt
hún sneri ávallt sömu hliðinni að sólunni,
væri ekki óhugsandi, að hún væri byggi-
leg, að minnsta kosti við heimskautin og
í jaðrinum á milli heita og kalda helm-
ingsins.
Aptur á móti að því er Merkúr snertir,
sem hefur öðru meginn helmingi heitara
loptslag heldur en í hitabelti jarðarinnar,
en hinu meginn heimskautakulda, munu
víst flestir sammála um, að hann vanti
öll skilyrði til þess að geta verið byggi-
legur, og að hann verði því að skoðast
sem algerlega »útdauð« reikistjarna.
(Niðurl. næst).
€rlenð simskeyti
til Pjóðólfs.
Kaupm.höfn 18. apríl, kl. 9 f. h.
Voðabruni
í Boston (Bandaríkjunum). Skaðinn met-
inn svo tugum miljóna dollara skiptir.
Landsljóri myrtur.
Landstjórinn í Galizíu hefur verið myrt-
ur af rúthenskum:;:) stúdent, af pólitiskum
ástæðum.
Orustur
í Marokkó (millum Frakka og Mára).
Skipstrand.
Höfuðskip hins sameinaða, danska gufu-
skipafélags, „United States", hefur orðið
ósjófært 1 New-York vegna áreksturs.
Kaupm.höfn í dag kl. 9.
Campbell-Bannerman
(fyrverandi ráðaneytisforseti Breta) er
dáinn.
*) Rúthenar nefnist slafneskur þjóð-
Ferðalag Jólvarðar konungs.
Játvarður Bretakonungur og Alexandra
drottning komu hingað á þriðjudaginn,
og fara héðan á morgun til Stokkhólms
og Kristjaníu.
Sambandslaganejndin
verður í konungsboði í kveld.
Eimskipalína milli Ameríku og
íslands.
Sendiherra Bandaríkjanna (í Danmörku,
dr. Egan) hefur farið þess á leit við þing
Bandamanna, að það veiti styrk til eim-
skipalínu til Islands. Talið er líklegt, að
hann fáist.
„Hólar“ strandaðir.
A föstudaginn langa (17. þ. m.) barst
strandferðabáturinn „Hólar" upp á sand-
eyri innanvert við Hornafjarðarós á aust-
urleið héðan og situr skipið þar fast, að
því er enn hefur frézt, en mun lftt eða
ekki skemmt, og verður líklega náð út
von bráðar. Var hraðboði þegar sendur
austur á Eskirjörð til að síma þessa frétt
hingað, oggufuskipið „Edda", eign Wathn-
es erfingja, fengið frá Seyðisfirði til að
skreppa suður á Hornafjörð og ná vörum
úr skipinu, ef á þyrfti að halda. En héð-
an var varðskipið danska „Valurinn" sent
austur á annan í páskum til eptirlits og
aðstoðar við að ná út skipinu, en hæpið
að það takist fyr en í björgunarskipið
verður náð frá útlöndum.
Veturinn,
sem kvaddi í fyrra dag, hefur verið fyr-
irtaks góður um land alt, svo að menn
þykjast ekki annan betri muna næstl. 30
ár tæp eða síðan 1879—80. Sá vetur var
einnig frábærlega góður. En nú hefur ver-
ið árgæzka bæði til Iands og sjávar, afli
mjög góður, bæði á þilskip og opna báta,
og ekki síður á botnvörpuskipin íslenzku.
Sumarið
gekk í garð fremur kaldranalega í gær
með nær 4 stiga frosti (Celsíus) og norð-
anstormi.
Á skiðum
var í fyrsta gengið upp á Esjuna upp
frá Esjubergi 1 vikunni sem leið (á skír-
dag). Það gerðu 3 Norðmenn búsettir hér
1 bænum. Fóru þeir aptur ofan af fjall-
inu niður Bleiksdal (upp frá Saurbæ) og
var þar skíðafæri gott. Rigning var mikil
í byggð þennan dag, en snjókoma á fjall-
inu og þoka, svo að útsýnis naut ekki,
sem annars er mjög fagurt þar uppi.
!„Prospero”
kom hingað austan af Seyðisfirði 21. þ.
m. (f stað „Eljunnar"), fór aptur samdæg-
urs vestur og norður um land. Með „Pros-
pero“ kom Guðl. Guðmundsson bæjarfó-
geti á Akureyri (í skattanefndina), For-
| berg símastjóri o. fl.
—
Dáin
* í Hafnarfirði 18. þ. m. húsfrú V a f g e r ð-
ur Glsladóttir (prests í Kálfholti ís-
leifssonar háyfirdómara Einarssonar) syst-
ir séra ísleifs heit. í Arnarbæli (-]- 1892),
merk kona og vel látin. Hún var sfðari
kona Guðmundar Halldórssonar, (bróður
Gunnars heit. alþm. f Skálavík) og er
hann nú ekkjumaður í 2. sinn. Fyrri kona
hans var Sigríður dóttir séra Björns Jóns-
sonar, er síðast var prestur á Eyrarbakka
og Stokkseyri.
Sumarfagnaði
þeim, er Ungmennafélagið ætlaði að
halda í gær (fyrsta sumardag) með skrúð-
göngu um bæinn og ræðuhöldum, var
frestað veðurs vegna, er allan daginn var
hvasst og kalt. Samsæti hélt þó félagið
í gærkveldi í Bárubúð.
»Vesta«
kom frá útlöndum norðan og vestan um
land í gærkveldi seint. Með henni komu
R. Braun kaupm., Helgi Zoéga kaupm.,
Einar Gunnarsson kaupm., Þórðui Sveins-
son spítalalæknir, Magnús Sigurðsson cand.
jur. Hörring fuglafræðingur, Trolle kap-
teinn, og nokkrir Islendingar frá Vestur-
heimi (12—13). Alls 50 farþegar.
Heiðursgjöf
hafa nokkrar konur bæjarins gefið skáld-
konunni Torfhildi Hólm, sem viðurkenn-
ing fyrir skáldrit hennar og bókmennta-
lega starfsemi. Var það vandað gullúr
með áletran eptir Arna Gíslason letur-
grafara. Gjöfin afhent í gær.
Veð urskýrslusígrip
frá 16. til 24. apríl 1908.
Apríl Rv. Bl. Ak. Gr. Sf. Þh.
l6. + 7,3 + 6,6 + 6,2 + 2,4 f 8,4 + 7,3
17- + 5,9 + 5,o + 5,5 + 4,8 + 3,3 + 8,5
18. + 3,o + 2,5 + 2,6 + 2,2 + 6,7 + 1,6
19. + 5,o + 4,5 + 5,5 + 2,5 + 2,1 + 3,3
20. + 4,5 + 3,o + 2,5 + 0,6 + 3,8 + 6,-i
21. + 4,4 -4- o,5 -r 0,2 -r- 4,0 -r- o,5 + 1,8
22. -4- 2,0 4,o -7- 5,0 -f- 2,7 -4- 4,9 -r- 4,4
23- -r- 3,8 -4- 4,8 -r 5,0 ~r~ 8,4 -r- 6,3 -r- 4,3
24. -T- 2,1 -T- 4,0 -4- 4,0 -r 5,0 -5- 2,0 + 1,8
HTipA-Thömsen-
HAf NARSTR- I7'I8;I9'20 21-22'KOLAS 1-2-LÆKJARTI?
• REYKJAVIK*
Til þess að reka verzlunsvo, að
viðskiftamönnum líki vel, þarf ekki
að eins að hafa góðar vörur, góðar
búðir og góða verzlunarmenn, það
þarf ekki síður að sjá um gY**
innkaup á vörunum.
Einkum á þessum tímum,þegar
peningaekla er mikil hvívetna, má
komast að ágætum tækifæriskaupum
þegar maður erstaddur hér ytra á
veturna og getur keyft fyrir peninga
í heldur stórum kaupum. Eg hef
komizt að mörgum ágætumkaup-
um í vetur og læt viðskiftamenn
njóta góðs af þeim með því að selja
vörurnar aftur mjögf ódýpt.
Háttvirtirkaupendur, sem vilja at-
huga verðið á vörunum hjá mér í
ár, borið saman við gæði þeirra,
munu komastað raun um, að hvort-
tveggja er meö allra toezta mótí
í ár.
Égþykist vinna viðskiftamönnum
mínum mezt gagn með því að út-
vega þeim sem bezt kaup á vör-
um þeim, sem sendar verða heim,
og ég hef því ráðgert að dvelja hér
nokkuð lengur á hverjum vetri en
áður, en hafa þó aðalaðsetur mitt
heima í Reykjavík, eins og hingað
til.
Skrifstofa mín hér hefxr fengið tals-
verðar aukatekjur meðþví að taka
aðsérafgreiðslustörf fyrirstóraverzl-
un á Færeyjum, og getur því unnið
líórumbilltauplaustfyrirverzl-
un nxína heima á Islandi.
p. t. Kaupmannahöfn 5. Apríl 1908.
Virðingarfylst
flokkur í Galizíu, Bukowina ogsuðurhluta
Ungverjalands, svipaður Litlu-Rússum.
D. Thomsen.