Þjóðólfur - 19.06.1908, Blaðsíða 1

Þjóðólfur - 19.06.1908, Blaðsíða 1
60. árg. Reykjavík, föstudaginn 19. júní 19 08. M 28. Unðirtektir þj&ðarinnar. % Það er nú að eins liðinn rúmur mánuður síðan frumvarp sambandslaganefndarinnar varð heyrum kunuugt. A svo stuttum t(ma verður ekki ætlazt til þess, að al- menningur hafi fullkomlega áttað sig á málinu, þvl að þótt það hafi verið rætt nokkuð ítarlega í blöðunum og á nokkr- um fundum á stöku stað, þá er það hvergi nærri til hlítar orðið kunnugt almenningi víðs vegar um land. En það fer að verða það smátt og smátt úr þessu. Eptir því sem þegar er kunnugt um undirtektirnar, þá virðast þær yfirleitt stefna í mótspyrnuáttina gegn frumvarp- inu óbreyttu, og þessi mótspyrnualda mun einmitt aukast, en ekki minnka, eptir því sem menn kynna sér málið nánar og fá Ijósari skýringar á annmörkum þess. Það er allt eða flest, sem einmitt bendir í þessa áttina, en fátt eða ekkert í hina, að fylgi við frumvarpið aukist við nánari athugun. En menn verða að íhuga það ofsalaust og frekjulaust, og varast að láta gamalt flokksfylgi og flokksofstæki villa sér sýn og blinda dómgreind sína í jafn- þýðingarmiklu máli. Það á ekki og má ekki vera flokksmál, ekki miðast við per- sónulega velvild eða óvild til einstakra manna, heldur við það eitt, sem ættjörð vorri er fyrir beztu í nútíð og framtíð. Öllnm sannfrjálslyndum mönnum og góð- um íslendingum ætti að vera það jafn- mikið áhugamál, að komizt yrði að sem allra heppilegastri niðurstöðu 1 málinu. En það heppnast bezt með rólegri og stillilegri íhugun, en ekki með frekju og fruntaskap, sem reyndar hefur ekki bólað til muna á hingað til. Nefndarmennirnir íslenzku verða að láta sér lynda, þótta- og þykkjulaust, að þjóðin grannskoði gerðir þeirra og andmæli því alvarlega, er henni þykir ískyggilegt og óaðgengi- legt í samningnum. Nefndarmennirnir hafa skoðað umboð sitt allt of víðtækt, ef þeir hafa litið á það á þann veg, að það, sem þeir gerðu, væri smiðshöggið, væru fullnaðarúrslit á málinu, og þjóðin ætti eða mætti ekki hrófla við nokkru í samþykkt þeirra. Sllkt nær vitanlega engri átt. Hlutverk nefndarmannanna var ekki annað, en leggja einhvern samninga- grundvöll í málinu, og það hafa þeir gert. En svo kemur til úrskurðar þjóðarinnar um, hversu sá grundvöllur sé traustur og ábyggilegur, hversu heppilega undirstaðan sé lögð af nefndarmönnum. Og um það skiptast skoðanir manna nú. Nú er ann- aðhvort að hrökkva eða stökkva. Þjóðin verður að taka fasta, ákveðna stefnu í málinu nú fyrir kosningarnar í sumar. Þær verða eingöngu að miðast við þetta mál> Þvl að öll hreppapólitlk og allur héraðakritur er sannarlega létt á metun- um ( samanburði við þetta, þar sem um frelsi og sjálfstseði landsins er að tefla gagnvart erlendu drottinvaldi. Enginn íslendingur má þV( iáta sér { léttu rúmi hggja, hvermg þessu máli reiðir af, því að verði úrslit þess á þann hátt, er ver gegnir, og frumvarpið t. d. samþykkt öld- ungis óbreytt, bíður þjóð vor þess að lík- indum aldrei bætur, hvernig sem reynt verður síðar meir að losa um hnútana. Það er optast nær hægra að binda en leysa. Samkvæmt því, sem frétzt hefur víðs- vegar að af landinu, er óánægja yfir frum- varpi nefndarinnar áð mun almennari og víðtækari, en ánægjan yfir því. Og jafn- vel þeir, sem þykjast vera ánægðastir með það, munu fæstir vera það allskostar undir niðri. Það mun því naumast of- hermt, þótt sagt sé, að byr frumvarpsins sé enn sem komið er harla lítill meðal þjóðarinnar yfirleitt, og Ktið útlit fyrir, að hann aukist. Og þótt svæsnustu for- mælendum frumvarpsins kunni ef til vill að takast í bili á stöku stað, að fá eitt- hvert yfirborðs-fylgi með frumvarpinu ó- breyttu, þá er afar hætt við, að slíkt fylgi byggist ekki á fastri sannfæringu, að það verði endingarlítið og óábyggilegt við hinar leynilegu kosningar, því að þá varpa menn af sér allri sannfæringarþvingun og kjósa eingöngu eptir því, sem þeim sjálf- um finnst réttast og heppilegast, enda er það einn aðalkosturinn við leynilegar kosningar, að ístöðulitlir kjósendur geta þar miklu betur notið sín. Opinberar yfirlýsingar eða ályktanir, sem ef til vill er þröngvað inn á kjósendur, þeim hálf- þvert um geð, missa allan krapt og allt gildi við þessa kosningaraðferð. Nú skiptir mestu, að almenningur sannfærist um, hvað rétt sé eða órétt í hverju máli. Æsingar eða gauragangur, á hvora hlið sem er, mun því litla eða enga þýðingu hafa. Menn fara að sínum munum við kosningarnar, og kjósa eptir því trausti, sem menn hafa á pólitiskum drengskap hvers þingmannsefnis. Ekki dettur oss í hug að balda því fram, að þeir sem knýja vilja frumvarpið fram óbreytt, séu yfirleitt minni ættjarðar- vinir, en andmælendur þess. En vér hinir, sem ekki getum fallizt á frumvarpið, eins og það er, teljum að meðhaldsmönn- um þess missýnist, og að þeir geri rangt í því, að spyrna gegn öllum umbótum og lagfæringum á frumvarpinu, umbótum, er það þarfnast svo mjög, til þess að geta talizt aðgengilegt fyrir íslenzku þjóðina. Það er blekking ein, að halda því að þjóðinni, að alls engar breytingar séu fá- anlegar, það sé þrautreynt. Því fer harla fjarri, því að þótt nefndarmennirnir hafi ekki komizt lengra en þetta, þá 'sannar það ekki, að fulltrúaþing þjóðarinnar geti ekki komizt lengra áleiðis, ef það gæti orðið nokkurn veginn einhuga í kröfun- um, svo að þær hefðu verulegan krapt. Dönum mun einmitt vera áhugamál, að binda enda á þessa deilu við Islendinga, svo að þeir munu alls ekki ófúsir á, að teygja sig mun lengra í samningunum, en þeir þegar hafa gert. Og þótt þeir ef til vill gengju ekki að ö 11 u m breytingar- kröfum þingsins, þá má hér um bil ganga að því vísu, að þeir tækju ýmsar þeirra til greina, og kæmi þá til álita, hvort sú miðlun væri næg, til að gera frumvarpið aðgengilegt. En færi svo óhklega, að þeir neituðu öllu harðlega eða vilduengu sinna af hinum þýðingarmeiri kröfum, þá gæti naumast komið til nokkurra mála, að samþykkja frumvarpið. Sumir eru að vlsu svo ákafir, að vilja láta fella frum- varpið umsvifalaust, því að það verði hvort sem er aldrei lagfært svo, að það verði viðunanlegt, svo að það sé að eins tíma- töf og þarflaus rekistefna, að vera nokkuð að lappa upp á það með breytingum. En það teljum vér alls ekki rétta skoðun. Það er hrein og bein skylda fulltrúaþings þjóðarinnar, að gera allt, sem í þess valdi stendur, til að endurbæta frumvarpið, og hafna því ekki, fyr en allar slíkar um- bótatilraunir reyndust árangurslausar. Það væri alveg sama gerræðið af þinginu, að fella frumvarpið, án þess að krefjast nokk- urra breytinga á því, eins og að sam- þykkja það óbreytt, án þess að krefjast nokkurra breytinga. Hvorttveggja væri jafnrangt og óviðurkvæmilegt. Um undirtektir almennings mun mega fullyrða, að Gullbringu- og Kjósarsýslu- búar, Dalamenn og Borgfirðingar séu al- mennt frumvarpinu andstæðir óbreyttu. Sama er sagt úr Barðastrandar- og ísafjarðarsýslum, og úr Árness- og Rangárvallasýslum að miklu leyti, að því er heyrzt hefur, þótt ekki hafi það komið opinberlega í ljósenn. Húnavatns- sýsla og Norður-Múlasýsla eru og sagðar þeim meginn. Um önnur héruð ekki full- kunnugt enn. I Dalasýslu fékk sá maður, er þangað var sendur héðan í þingmennsku- umleitunum, engan byr, sakir þess. að hanu var með frumvarpinu, en Bjarni frá Vogi, er býður sig þar til þingmennsku, og heldur fram breytingum á frumvarpinu, fékk hvarvetna góðar undirtektir. Á fund- um, er nýlega voru haldnir í Borgarfirði, voru bæði þingmannaefnin þar (Kristján Jónsson háyfirdómari og Björn dbrm. í Grafarholti) báðir á sama máli um breyt- ingar á frv., og voru héraðsbúar eindregið á sama máli í því, þótt engar ákveðnar ályktanir væru um það teknar á fundum þessum. Sama hafði og verið uppi á ten- ingnum á fundi, er ráðherrann hélt á Isa- firði, á leið hingað norðan úr Eyjafirði. Maður, sem verið hafði á fundunum norð- ur þar, bæði á Grund, Möðruvöllum og Dalvík, hefur sagt, að menn hefðu vottað ráðherranum traust sitt, en færzt heldur undan því að taka ályktanir í málinu, með því að þeir hefðu ekki enn áttað sig á því til fullnustu, enda var á síðasta fundinum (í Dalvík) engin ályktun tekin. Á þingmálafundi, er Jóhannes sýslumaður Jóhannesson hélt á Seyðisfirði 12. þ. m., urðu ein 4 atkvæði á bandi sýslumanns, þ. e. vildu aðhyllast frumvarpið óbreytt, en 35 á móti. Margir greiddu ekki at- kvæði. Það eru því alls ekki vænlegar horfur fyrir sýslumanninn þar á Seyðis- firði, hvernig sem Stefárii kennara gengur í Skagafirði. Um það hefur ekkert frétzt enn, að eins um viðtökurnar, er hann fékk á Skjaldborgarfundinum á Akureyri og getíð var um 1 síðasta blaði, og þar alveg rétt hermt, þótt sum blöð hér séu að reyna að breiða yfir það, og kalla mótspyrnuna þar »unglinga-ærsl« ein. En varasamt gæti verið, að kalla alla mót- spyrnuna gegn frumv. slíku nafni. Vér hyggjum, að jafnþroskaðir menn séu í þessu stjórnmálafélagi Akureyrar yfirleitt, eins og í öðrum slíkum félögum, að Reykjavíkur-»Fram« meðtöldum. Skipun prestakalla og laun sóknarpresta á íslandi. Hvað viðvíkur lögum um skipun presta- kalla, þá er það athugavert, að lög þessi fækka prestaköllum svo mjög, að sumar sameiningar ná engri átt, og fá því ekki staðizt til lengdar. Nefnd sú, er skÍDuð var til að íhuga kirkjumál landsins, hefur ekki haft næga þekkingu á staðháttum þess, enda voru sumir nefndarmenn ekki heppilega skipaðir; ekki leiðrétti alþingi að neinu ráði gallana á frumvarpi nefnd- innar, heldur gekk það enn Iengra í sam- einingaráttina, en án efa hefur sú gamla sparnaðarhugsun alþingis ráðið hér, sem vanalega hefur setið við stýrið, er um fjárveitingar til prestakalla hefur verið að ræða, og það á meðan prestastéttin gat öllu ráðið þar. Úr göllum þessum má þó bæta með 4. gr. laganna, en betra hefði þó verið, að skipun prestakalla hetði verið þannig ákveðin, að sem minnst þyrfti á því að halda, að beita 4. gr. og grauta þannig í henni. Þegar svo er litið til launanna, þá virð- ast þau vera allhæfilega ákveðin. Launin hækka smámsaman eptir þjónustuárum, eins og á sér stað í Danmörku með laun ýmsra embættismanna. Það geta verið skiptar skoðanir um það, hvort ekki hefði átt eins vel við, að skipta prestaköllunum 1 launaflokka. Bezt hefði verið, að engin erfiðleika- uppbót hefði átt sér stað, enda verða þær uppbætur ávallt óstöðugar og reikular. Sum prestaköll fá hana nú, sem hægari eru en þau, sem ekki öðlast hana. Dæmi þess er hægt að finna. Erfiðleikauppbæt- urnar hefðu þá unnizt til að launa með prestaköllin. 26. gr. í launalögum þessum er alveg óhafandi sakir ranglætis, og gegnir það mestu furðu, að alþingi skyldi láta lögin þannig úr garði gerð frá sér fara. Samkvæmt 26. gr. eru prestar, og það á mjög tekjulitlum brauðum, útilokaðir frá því að fá launabót laganna fyr en þeir eru orðnir 60 ára að aldri, þá ná þeir henni þó loks allir. — Gefist yngri prestum ei kostur á að taka breytingunni, þ. e. losni ekki í þeirra embættistíð ná- búabrauðið, sem algerlega eða að nokkru leyti á að sameinast þeirra brauðum*) verða þeir að sitja við hin sárliílu laun, sem eru ósamboðin sérhverjum embættis- manni sem slíkum. Og þótt prestar þessir vilji sækja burtu, þá er 20 ára reynsla fyrir því, að ýmsra orsaka vegna, þar á meðal vegna kosningalaganna, sem. að réttu lagi geta eigi samþýðst þjóðkirkju, eiga þeir miklu erfiðara en aðrirembætt- ismenn með að skipta um embætti, enda hefur sama reynsla sýnt, að síðan um 1890 hefur aðsóknin að prestaembættum farið ákaflega minnkandi, þótt aldrei hafi að tiltölu fleiri útskrifazt úr latlnuskólan- *) Þannig mun stjórnarráðið skilja lögin og ltklega dómstólarnir, þótt einhverjir geist- legir herrar leggi aðra óskiljanlega þýðingu í þau, því reynt verður að bióða prestinum brauðið.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.