Þjóðólfur - 26.06.1908, Side 3
ÞIOÐOLFUR.
109
Heykjavíkurkaffi er bragdbest og drjúgast.
Fæst aðeins hjá
1 ijans petersen, Skólastræti 1. Taisími2i3.
Kappglíma
grísk-rómversk fór fram í Bárubúð 22.
þ. m. milli Jóhannesar Jósepssonar frá
Akureyri og sænska mannsins Gottfrid
Thoren, er skorað hafði Jóhannes á hólm.
Jóhannes vann sigur í öllum glímunum
þremur.
Ceres
kom hingað frá útlöndum 23. þ. m.,
og með henni Skúli Thoroddsen ritstj.
og frú hans, Ólafur H. Johnsen f. yfir-
kennari frá Árósum, Oddur Gíslason yfir-
réttarmálafærslumaður, P. J. Thorsteinsson
kaupm., nokkrir stúdentar frá Höfn og
allmargir enskir ferðamenn.
Embsettispróf
við prestaskólann tóku 22. þ. m.:
Þorsteinn Briem með 1. eink. 95 st.
Guðbrandur Björnsson t> 1. — 87 —
Brynjólfur Magnússon » 1. — 84 —
Tollsvlk
hafa komizt upp um einn kaupmann
hér f bænum, Hjört A. Féldsted, er einnig
hefur gert sig sekan í ólöglegri áfengis-
sölu. Hann fékk 200 kr. sekt fyrir toll-
svik á áfengisvörum og 100 kr. sekt
fyrir ólöglega sölu þeirra án veitingaleyfis.
Hann varð og að greiða þrefaldan toll af
hinum tollsviknu vörum eitthvað um 300
kr., og loks voru gerðar upptækar hjá
honum allar birgðir áfengra drykkja, er
kvað hafa verið allmiklar. Kvaðst hann
hafa keypt áfengið hjá brytanum á »Ster-
ling«, og fékk sá vínsali 150 kr. sekt fyrir
vikið.
Hitt og þetta.
128 ára garnall öldungur.
Rússneskt blað skýrir frá því, að ný-
lega hafi komið til Pétursborgar 128 ára
gamall öldungur. Hann heitir M i k a e 1
Budnikoff, ættaður frá bænum Kal-
uga. Árið 1797 gekk hann í herþjón-
ustu, og gegndi hann því starfi samfleytt
80 á r. Hann hefur tekið þátt í mörg-
um stríðum allt frá ófriðnum við Frakka
(Napoleonsstríðinu) um næstslðustu alda-
mót, og hefur hlotið öll stig Georgsorð-
unnar og fjöldann allan af heiðurspen-
ingum. Hann tók sér nýlega ferð á
hendur til Pétursborgar, til þess að taka
þar 5 þfis. rúblur, sem hann hafði unnið
í hlutaveltu. Annars fær hann 1200
rúblur um árið í eptirlaun fyrir sína löngu
herþjónustu. Budnikoff er ekki orðinn
lotinn ennþá, og heyrnin er ágæt. Sam-
kvæmt þessu er hann fæddur árið 1780,
sama árið og Reynistaðarbræður urðu úti
hér á íslandi, og hefur verið rúmlega
fertugur, er Napóleon lézt á St. Helenu
(1821).
Einkenrtileg ferð umhverfis hnöttinn.
Hinn 12. f. m. kom skrítinn ferðalangur
til Hamborgar. Hann heitir Anton Hau-
s 1 i a n , og er frá Vfnarborg. í rúmlega
7^/2 ár hefur hann verið á ferðalagi um-
hverfis jörðina gangandi, og hefur ekið
konu sinni og barni á undan sér í hjól-
börum. 12. sept. 1900 lagði hann á stað
frá Vínarborg 1 þetta einkennilega ferða-
lag, sem nú er loks á enda, og var það
vegna veðmáls, að hann tókst það á
hendur. Hauslian hefur gengið, að því
er hann sjálfur segir frá, um 50 þús. kíló-
metra á ferðinni, eða um 19 kílómetra
á dag. Hann eyddi 104 skóm og tók
18 þús. ljósmyndir. Hann fór yfir Evrópu,
Ameríku, Ástralíu og Kfna. Þar flæktist
hann i stríðið milli Rússa og Japana, og
lá nærri, að hann yrði skotinn sem njósn-
armaður. Kona hans fékk svo mikla
taugaveiklun af þessu, að það reið henni
að fullu í fyrra. Verstu þrautirnar þoldi
| Hauslian í Arizona (í Norður-Ameríku),
| því að þar kom hann ekki auga á nokkra
mannabyggð í sex daga samfleytt, og í 4
daga gat hann ekki náð í nokkurn vatns-
dropa. Opt varð hann að eiga í höggi
við panþerdýr, tígrisdýr, ljón og högg-
orma. Dóttir hans hefur þolað prýðis-
vel allar þrautirnar, og ekki hafa þær
dregið úr fegurð hennar. Hauslian fær
ekki nema helminginn af veðmálinu, eða
18 þús. kr., útborgað vegna þess, að kon-
an hans er dáin. Hann ætlar nú að lifa
það sem eptir er æfinnar í kyrrð og næði
á Englandi. [Eptir Neues Wiener Tagblatt].
Tekjur landsímans
um 1. ársfjórðung 1908.
Símskeyti:
Innanlands..... ....kr. 1194,96
Til útlanda...kr.8402,50
Þar af hluti út-
landa.....—7Q37.4I
Hluti íslands............— 1365,09
Frá útlöndum, hluti ís-
lands..................— 837,99
Símasamtöl...............— 3946,85
Talsímanotendagjald......— 1995,66
Aðrar tekjur.............— 397,46
Samtals kr. 9738,01
Reykjavík *°/6 ’o8.
í fjarveru landsímastjórans.
Smith.
Veðnrskýrsluágrip
frá 13. til 26. júní 1908.
Júní Rv. Bl. Ak. Gr. Sf. Þh.
13- f 5-3 + 2,4 + 3,6 -r- 0,4 + 4,2 + 7,3
14- + 4,9 + 3,4 + 7,o -t- «,o + 3,7 + 4,9
15. + 8,0 + 3,4 + 3,5 -é- 1,3 + 2,5 + 4,4
l6. + 4,3 + 5,i + 3,6 -r- 0,7 + 3,i + 5,2
17. + 6,0 + 6,5 + 8,0 + 6,0 + 8,5 + 5,1
18. + 8,5 + 7,o + 8,o + 7,5 + 4,2 + 6,S
19- + 9,4 + 4,i + 6,5 + 3,5 + 5,7 + 7,i
20. + 7,7 + 7,4 + 8,7 + 7,5 +12,2 + 7,6
21. + 94 + 10,1 +11,0 + 7,o + 11,8 + 8,8
22. + 9,o +12,0 +i3,o + 9,4 +13,5 + 11,2
23- + 7,o + 4,2 +12,3 + 8,6 + 10,5 +10,1
24. + 8,5 + 7,8 + 13,5 + 8,5 + 13,5 + 8,5
25- + [0,0 + 10,4 + n,5 + 10,5 + 10,0 + 9,5
2Ó. + 11,8 + n,8 + 16,2 + 13,5 +18,4 +12,0
Samkvæmt 12. gr., 5. b í fjárlög-
unum og eptir sam ráðivið stjórnar-
ráðið, fer eg að forfallalausu með
»Hólum« 7. ágúst 1908 til AustlJarða,
dvel á Seyðisfirði frá 13.—29. ágúst
og held svo áfram með »Ceres« um
Akureyri, Sauðárkrók, Blönduós og
ísafjörð til Rvíkur. Heima verður
mig því ekki að hitta frá 7. ágúst
til 4. septbr.
Björn Ólafsson.
Rauöur hestur með mark: stýft og
tvö undirben apt. hægra, ójárnaður, óafrak-
aður og með rauðum borða hnýttum í fax-
ið, á að gizka 5 vetra, er í óskilum f Gölt
í Grímsnesi. Réttur eigandi vitji hans og
borgi áfallinn kostnað.
Sfðastliðið haust var mér dregið svart
gimburlamb með fjármarki mfnu: tvístýft
apt. hægra, heilrifað vinstra. Þar eð eg
ekki á þetta lamb, getur réttur eigandi vitj-
að andvirðis þess og samið um markið.
Vatnsleysu í Biskupstungum 3s/s ’o8.
Einar Guðmundsson.
Sparid ykkur tíma og pen-
inga, med þvi að kaupa skil-
vindurnar
Örn og Serya,
sem a'n alis efa eru þœr hentugustu, ódýrustu, og jafn-
framt hinar langbeztu skilvindur, sem hœgt er að fd.
Örn kostar 55, 85, 100 og 125 krónur.
Serva, sem er einkar hentug fyrir smdbú, skilur
40 pt. um kl.t. og kostar að eins kr. 35,00.
Aðaluinboðsmenn fyrir Island:
Blöndahl & Einarsson,
Lækjargata 6. Reykjavik.
Telefon 31. Telegr. Adr. Gullfoss.
fyrir fullorðna og börn, svo og allskonar
annar skófatnaður, ódýrastur og beztur
hjá íárusi 6. £ú3vígssyni
úngólfsstrceti 3.
selur daglega í matardeildinni í Thomsens Magasíni og i kjötbiið
Jóns Pórðarsonar:
Nýtt nautakjöt, medisterpylsur, kjötfars, rullupylsur, saltað
sauðakjöt, saltað síftuflesk, hangikjöt, tólg, íslenzkt smjör o. fl.
Björn Ámason
gullsmiður
(frá ísafirði) smíðar á
Langavegi 5
allskonar nýja
Frímerki.
Allskonar brúkuð íslenzk frímerki
kaupir og tekur í skiptum undir-
ritaður, er skrifar dönsku, ensku og
þýzku. Hæsta verð fyrir »í gildi
02—03« og þjónustufrímerki. Undir-
ritaður óskar að fá sent við fyrsta
tækifæri verðlista eða skrifleg tilboð.
Bafn, Sölystgade 34.
Aarhus, Danmark.
Di in er ómótmælanlega bezta og langádýrasta
A il líftryggingarfélagið. — Sérstök kjör fyrir
bindindismenn. — Langhagfeldustu kjör fyrir sjó-
menn. Allir ættu að vera liftrygðir. Finnið að
máli aðalumboðsm. L). 0STLUND. Kvik.
SRip tií sötu.
Gufuskipið »Uller«, sem nú stund-
ar fiskiveiðar hér við land, er til
sölu með öllum veiðarfærum, bæði
til fiskiveiða með línum og til síld-
veiða, með netum og herpinót.
Skipið er að stærð 150 registertons
netto, byggt árið 1874, og hefurný-
lega verið gert við það.
Nánari upplýsingar gefa O. Wat-
hnes erfingjar á Seyðisfirði og skip-
stjórinn H. Jondahl.
er tski an
að fá sér góð og ódýr föt
i jjankastrzti 12.
15°/o afslslttRLi* er geíinn
á öllum fataefnum nú fyrst
um sinn (NB. ekkert lánað).
Mikið úrval af ýmsum efn-
um í sumarfrakka, spariföt,
hversdagsklæðnaði. — Einstök
vestisefni og buxnaefni o. fl.
Allt alullar ^nýtizkuefni.
Pantanir afgreiddar fljótt
og vönduð vinna.
ppa Klæðaverzlunin jngólfur'.
Guðm. Sigurðsson.
Talsími 77.
Hans Brogesgade 2, Aarhus.
Skólinn, sem stofnaður er af hinni
józku verzlunarstétt, og stendur undir
umsjón ríkisins og nýlur styrks af
ríkissjóði, byrjar árskennslu og hálfs
árs kennslu sína 1. nóvember og 1.
maí. Kennsluskrá er send, ef óskast.
Henningsen forstöðumaður (skólans)
veitir inntökubeiðnum móttöku.