Þjóðólfur - 10.07.1908, Qupperneq 3
ÞjOÐOLFUR.
finnst. Þetta viðrini, sem frá séra G.
kom, var víst frá Lárusi, »að halla sér
að« o. s. frv., og var auðvitað að eins
gért til ruglings, enda verður tillagan
hreinasta meinloka, því að þegar 14 atkv.
liðurinn er felldur burtu, kemur öll til-
lagan til að hljóða þannig: sFundurinn
lýsir þakklæti til sambandslaganefndar-
innar — e ð a hallast að frumvarpi nefnd-
arinnarU Þeir 8, sem þeir fiskuðu með
þessari meinloku — viðaukatillögunni —
greiddu atkvæðin með það fyrir augum,
að meiningin væri sú, að hallast bæri að
uppkastinu með breytingum. Eptir
orðum L. H. B. bar og að skilja þetta
vandræða-viðrini þannig«.------* —
Iielgi Jónsson sölustjóri, einarður mað-
ur og fylginn sér, var einna erfiðastur
viðfangs L. H. B. á fundinum, og vltti
meðal annars alvarlega árásir hans á Skúla
Thoroddsen fjarverandi. Fór þeim frum-
varpsmönnum ekki að lítast á blikuna, sr
Helgi kvað það einu gilda, þótt tillaga
hans væri borin upp á eptir Nielsens-
tillögunni, því að það mundi engin áhrif
hafa á atkvæðagreiðsluna. Var auðséð
að hinum þótti þetta illur vottur um sigur-
horfur, og féllu þá frá því, að fá sína
tillögu borna fyr upp, er þeir áður höfðu
krafizt í fullu heimildarleysi. Undu sendi-
menn illa málalokunum og þótti för sín
hafa orðið hin mesta forsending. Hurfu
þeir heimleiðis til Reykjavíkur daginn
eptir, og segir ekki meira af þeim. Mun
L. H. B. trauðla leggja aptur upp í sams-
konar »austurför«, enda hefur hann kom-
izt að raun um, að Árnesingar standast
vel að sjá hann og heyra, án þess að
bogna eða gugna. Það tjáir ekki að tala
við þá í sama tón og Snæfellinga.
Húsatóptafundurinn.
Daginn eptir, 29. júní, var fundur hald-
inn á Húsatóptum á Skeiðum fyrir Eystri-
hrepp, Ytrihrepp og Skeið. Þar voru
rúmir 20 kjósendur á fundi, en allmargir
ókosningabærir menn, konur Og karlar,
svo að fundarmenn munu alls hafa verið
nálægt 40. Fundarstjóri var valinn séra
Kjartan Helgason í Hruna, en skrifari
Vigfús óðalsbóndi Guðmundsson í Haga.
Þingmannaefnin lýstu skoðunum sínum á
frumvarpinu og töldu það óaðgengilegt
óbreytt. Að því loknu var óskað, að þeir
sem vildu verja frumvarpið, tækju til
máls, en enginn vildi verða til þess, nema
hvað Guðni Jónsson verzlunarmaður frá
Eyrarbakka (einn af þjónum P. Nielsens)
lýsti því yfir í fundarlok, að hann væri
á sama máli og Lárus Bjarnason, en sjálf-
ur kvaðst hann enga sjálfstæða skoðun
hafa a málinu fyrir sig, er hann var kraf-
inn sagna um það. Hafði Guðni þessi
verið á Stokkseyrarfundinum kveldið áður,
en verið sendur þaðan undir eins í fund-
arlok upp & Skeið, en hann er þaðan
ættaður (frá Skeiðháholti), og hefur víst
átt að snúa Skeiðamönnum til réttrar
trúar fyrir fundinn. En það virðist hafa
borið lítinn árangur.
Svolátandi fundarályktun var borin upp
og samþykkt með 21 atkv.:
y>Fundurinn telur frumvarp sambands-
laganefndarinnar óaðgengilegt fgrir ís-
lendinga án verulegra bregtinga, og skorar
fastlega á pingið að gera sitt ítrasta að
fá þeim )ramgerigt«.
Gegn tillögu þessari greiddi enginn at-
kvæði nema Guðni sá, er fyr var nefndur,
en með því að hann hafði áður greitt
atkvæði í málinu á Stokkseyrarfundinum
kveldið áður — einn af þrettán! — var
þetta atkvæði vitanlega ómerkt þar. En
fundarmenn höfðu ekkert á móti þvf, að
hann greiddi atkvæði, og leyfðu honum
að bera upp tillögu, er hann las upp, um
að samþykkja frumvarpið óbreytt. En
hann nýtti sér það ekki, er hann sá, að
hann stóð þar aleinn uppi og enginn tók
í sama strenginn.
Vatnsleysufundurinn.
Næsta dag, þriðjudaginn 30. júnl, var
fundur haldinn á Vatnsleysu í Biskups-
tungum fyrir Biskupstungnahrepp. Þann
fund sóttu rúmir 30 kjósendur af rúmum
50, sem á kjörskrá voru, auk nokkurra
ókosningarbærra manna. Fundarstjóri
var Björn G. Björnsson hreppsnefndar-
oddviti á Brekku, en skrifari séra Eiríkur
Stefánsson á Torfastöðum. Fundurinn
stóð um 4 klukkustundir. Þar kom fram
einn eindreginn meðmælandi frumvarpsins
(Þorfinuur Þórarinsson á Drumboddsstöð-
um), uugur maður, sem ekki hafði kosn-
ingarrétt, og varði hann frumvarpið með
allmiklu kappi. Hafði hann kynnt sér
málið • allítarlega, einkum allt það, er
ritað hafði verið frumvarpinu til varnar.
Gegn frumvarpinu töluðu auk fundarboð-
enda, séra Eirlkur á Torfastöðum ogÞor-
steinn kennari Finnbogason. Að loknum
umræðum var svolátandi tillaga (fráÞorf.
Þór.) f e 11 d með öllum þorra atkvæða
gegn 3:
»Þrátt fyrir það, þótt fundurinn telji
nokkrar breytingar á sambandslagafrum-
varpinu æskilegar, þá álítur hann það fela
í sér svo mikilsverðar réttarbætur, að
miklu hyggilegra sé að samþykkja það
óbreytt, en að stofna því í nokkra tví-
sýnu«.
Þá var borin upp svolátandi tillaga, og
samþykkt með 22 samhljóða atkvæðum:
yrFundurinn lelur frumvarp sambands-
laganefndarinnar í ýmsum atriðum mjög
varhugavert, og er mótfallinn pvi, að pað
nái lögfulla samþgkki ísledinnga, nema
pví að eins, að verulegar bregtingar á
þvi fáist, meðal annars skijlaus ákvœði
um, að ísland sé fnllveðja ríki, jafnrétthátt
Danmörku, og að gerðardómsfgrirkomu-
laginu sé breytt«.
Stóruborgarfundurinn.
Miðvikudaginn 1. júlí var fundur hald-
inn á Stóruborg í Grímsnesi, aðallega
fyrir Grímsneshrepp og Laugardal. Þann
fund sóttu um 35 kjósendur, þar á meðal
2 úr Þingvallasveit. Fundarstjóri: Gunn-
laugur hreppstj. Þorsteinsson á Kiðjabergi,
en skrifari Magnús Jónsson bóndi í Klaust-
urhólum. Þar varð enginn til að halda
uppi svörum fyrir frumvarpið, nema séra
Gísli Jónsson á Mosfelli lítið eitt, en gegn
honum talaði auk fundarboðenda Hall-
dór Einarsson sýslunefndarmaður á Kára-
stöðum, er bar fram tillögu þess efnis, að
fundurinn teldi breytingar á frumvarpinu
sjálfsagðar, en áður en sú tillaga var
borin undir atkvæði, var lesin upp t i 1 -
lagan, er samþykkt hafði verið
á Vatnsleysufundinum daginn
áður, og heyrðist þá á fundarmönnum,
að þeir felldu sig öllu betur við hana og
þætti orðalag hennar ákveðnara. Tók
Halldór hana þá að sér til flutnings í
stað hinnar, og var húnsamþykkt
með 20 atkv. gegn 6.
Þess skal getið, að óvenjulega harðar
árásir höfðu undanfarnar vikur verið
gerðar á Grímsnesinga sérstaklega til að
spilla þar fyrir kosningu ritstjóra þessa
blaðs, en Boga Th. Melsteð hampað fram-
an í þá 1 staðinn. Höfðu t. d. bændur
þaðan, er þeir voru á ferð hér í bænum,
verið dregnir inn á fundi félags þess, er
»Fram« nefnist og allfrægt er orðið, og
setið þar undir stöðugu lófaklappi fund-
armanna og verið talið trú um, að þetta
væri almennur kjósendafundur(I) fyrir
Reykjavík og svona væri nú fylgið við
frumvarpið eindregið í höfuðstaðnum.
Öðrum hafði verið vísað á, að þeir gætu
fengið áheyrn(n hjá Guðm. landlækni
Björnssyni eða L. H. Bj. á ákveðnum
tímum og þar gajtu þeir fengið þá réttu
þekkingu á frumvarpinu m. fl. Sumir
höfðu fengið »Ljós« Einars Jochumsson-
ar(!) í vasann með áminningu um, að
lesa vandlega alla þá speki bæði f bundnu
og óbundnu máli, ekki sízt níðbullið um
andstæðinga frumvarpsins. Og margt
fleira enn skringilegra mætti af þessum
ærslum segja. En árangurinn mun alls
ekki hafa samsvarað fyrirhöfninni. Þess
heyrðist að eins getið nm einn bónda, að
hann kvaðst hafa sannfærzt af viðtali við
einn nefndarmanninn og af skrifi Einars
Joch.(!). Sá hló, er frá þessu sagði, og
kvaðst óska nefndinni til hamingju með
þann samverkamann(E.J.). En Grímsnesing-
ar eru yfirleitt skynsamari og stefnufastari
en svo, að þeir láti æsingaseggi úr »Fram«
leika með sig. Þeir munu ekki síður en
aðrir Árnesingar reynast slíkum pólitisk-
um angurgöpum þéttir á velli og þéttir
f lund. (Niðurl. í 32. bl.).
ÞjóðhátiO
héldu Árnesingar við Ölfusárbrú 27.
f. m., og var hún allvel sótt, einkum úr
nærsveitunum, en fremur fátt manna var
þar úr efri hluta sýslunnar. Spillti það
og fyrir aðsókninni, að rigning afarmikil
var daginn áður, og hugðu menn því, að
ekkert mundi verða úr hátíðarhaldinu. En
það rættist betur úr en á horfðist, og
gerði gott veður um það leyti er hátíðin
var sett af einum forstöðumanni hennar,
Helga Jónssyni sölustjóra á Stokkseyri, er
hélt stutta ræðu. Þá mælti séra Ólafur
Sæmundsson í Hraungerði fyrir minni
konungs, en séra Ólafur Magnússon í
Arnarbæli fyrir Islandi. Síðar um daginn
talaði séra Gísli Skúlason á Stóra-Hrauni
fyrir minni héraðsins, og Oddur Oddsson
gullsmiður ' í Túni á Eyrarbakka fyrir
minni kvenna, og þótti sú ræða einkar
vel samin af alþýðumanni. Var þá hin-
um ákveðnu ræðum lokið. Síðar talaði
Sigurður Sigurðsson ráðunautur um æsku-
lýðinn, og hvatti menn til að halda tryggð
við sveitirnar og þyrpast ekki í kaup-
staðina. Milli ræðuhaldanna skemmtu
menn sér á ýmsan hátt, þar á meðal við
glímur, og tóku allmargir þátt í þeim.
Verðlaun fengu: Ásgrímur Jónsson frá
Vestri-Móhúsum, Guðmundur Guðjónsson
frá Reykjanesi í Grímsnesi og Gunnar
Sigurðsson frá Selalæk. Kappreiðar voru
ekki haldnar, því að skeiðvöllur var ekki
hentugur þar í nánd. Eptir kl. 5 fór
unga fólkið að dansa, og var þeirri skemmt-
un haldið áfram langt fram eptir kveld-
inu. Allt hátíðarhaldið fór vel og sið-
samlega fram, og létu menn almennt vel
yflr skemmtun þessari.
»Skjaldbreið«
heitir stórt norsk-íslenzkt iðnaðar- og
verzlunarfélag, sem nýlega hefar verið
stofnað í Þrándheimi. Hafa þeir Einar
sýslumaðnr Benediktsson, Friðrik kaup-
maður Jónsson og Magnús verksmiðjustj.
Blöndahl um hríð dvalið í Noregi til þess
að koma félaginu á fót. 4 lslenzk hluta-
félög hverfa inn í þetta félag: trésmíðaverk-
smiðjurnar »Völundur«, steinsteypuverk-
smiðjan »Mjölnir« og »Högni«, og loks
»Bátasmíðastöð Reykjavíkur«. Félagið
ætlar að reka verzlun á allskonar húsa-
gerðarefnum, einkum timbri frá Noregi,
og standa fyrir húsasmfðum. Ennfremur
er ráðgert að félagið stofni mótor-verk-
smiðjurnar og fáist við hafnargerðir. Upp-
hæð hlutafjárins er 430 þús. kr. Aðal-
aðsetur félagsins verður í Reykjavík, og
á Magnús Blöndahl að verða framkvæmdar-
stjóri þess.
Bókmenntafélagið
hélt aðalfund sinn 8. þ. m. Skýrði
forseti frá störfum deildarinnar hér,
lagði fram reikning Hafnardeildarinnar
síðastl. ár og skýrði frá bókaútgáfum
hennar í ár. — í stjórn voru kosnir:
forseti: Kristján Jónsson yfirdómari, fé-
hirðir: Halldór Jónsson bankagjaldkeri,
skrifari: Haraldur Níelsson guðfr., bóka-
vörður: Morten Hansen skólastjóri. — í
varastjórninni eru: Steingr. Thorsteinsson
117
rektor, Sæm. Bjarnhéðinsson læknir, Jón
Helgason docent og Sig. Kristjánsson
bóksali. Endurskoðunarmenn: Björn Ól-
afsson augnlæknir og Sighv. Bjarnason
bankastjóri.
9 nýir félagsmenn gengul félagið.—Erindi
kom frá nokkrum félögum Hafnardeildar-
innar um heimflutning deildarinnar. Sam-
þykkt að kjósa fimm manna nefnd til að
endurskoða lög félagsins, og taka þá þetta
mál til meðferðar. í nefndina voru kosnir
auk forseta, sem var sjálfkjörinn: Þór-
hallur Bjarnarson lektor, Jón Þorkelsson
dr., Jón Helgason docent og Jón Ólafs-
son bóksali.
Varasðm meðmæli
geta það orðið fyrir frumvárpsuppkast-
inu, að telja upp með nöfnum hina og
þessa embættismenn og embættlinga, er
séu eíndregnir áhangendur frumvarpsins,
eins og hin örfáu málgögn frumvarps-
manna hafa gert sér að reglu. Slík skrá-
setning sýnir að eins, að verið er að klóra
í bakkann í lengstu lög gegn yfirgnæf-
andi mótspyrnu almennings, sem vitan-
lega er ekki annað en »sauðsvartir fáráð-
lingar« frá sjónarmiði þessara málgagna,
sem ávallt eru að »flagga« með »lærðu«
mönnunum, og staðhæfa, að allir máls-
metandi(!) menn þjóðarinnar séu með
frumvarpinu. Þetta gæti orðið dálítið
varhugaverð bardagaaðferð og komið þeim
sjálfum óþægilega í koll, er henni beita,
því að atkvæðaaflið er alþýðunnar meg-
inn og hún getur beitt þvf óþægilega
gegn þeim, er vísvitandi sýna henni óvirð-
ingu og fyrirlitningu og ætla sér að brjóta
hana á bak aptur með hroka og stór-
yrðum, svo sem hún sé ekki vitandi vits.
En það er eðlilegt og fer vel á þvf eptir
öllum anda frumvarpsins, að embættis-
menn og aðrir stjórnarburgeisar berjist
fyrir því. Það er hold af þeirra holdi
og blóð af þeirra blóði. Þó fer því harla
fjarri, að allir embættismenn landsins eigi
hér óskilið mál, því að mikill fjöldi þeirra,
prestar og aðrir, eru mjög andvígir frum-
varpinu, vilja hvork heyra það né sjá, og
um suma þeirra, er frumvarpsblöðin hafa
helgað sér með húð og hári, má fullyrða,
að þeir eru á móti, en ekki með, þótt
þeir flestir skirrist við að stimpla frásögn
blaða þessara ósannindi, nema Guðm.
Hannesson, er hefur opinberlega lýst því
yfir, að hann væri á móti frumvarpinu,
þá er málgögn stjórnarliða ætluðu að
rifna af ánægju yfir »umvendun« hans.
Þar gerði hann þeim ljótan grikk. En
það sýnir Ijósast á hve veiku hálmstrái
fylgi frumvarpsins f landinu hangir um
þessar mundir, þá er formælendur þess
sjá engin önnur fangaráð í bili, en að
nafngreina þá, sem séu með frum-
varpinu og leggja manngildi örfárra manna
á metaskálarnar þvf til stuðnings gagn-
vart auðsæjum, miklum meiri hluta þjóð-
arinnar. Það mun reynast, að sú vog
hallast hraparlega áður en lýkur, og að
stóru nöfnin í »Lögréttu« og»Reykja-
vík« verða afarlétt á þeim metum, er til
úrslita kemur og alþýðan kveður upp
dóm sinn yfir frumvarpinu.
EmbsBttaveitingar.
Hafnarfjarðarlæknishérað er
nú veitt Þórði Edilonssyni settum lækni
þar. Svarfdælalæknishérað veitt
Sigurjóni Jónssyni lækni í Höfðahverfis-
héraði, þannig að hann hefur nú bæði
þau héruð framvegis. Akureyrar-
læknishérað veitt Steingrími Matt-
híassyni settum lækni þar, og Þ i s t i 1 -
fjarðarhérað veitt Jóni Jónssyni lækni
í Hróarstunguhéraði.
Höfðinglegar gjaflr.
Ferðamennirnir á þýzka skemmtiferða-
skipinu »Grosser Kurfúrst« skutu saman
1600—1700 kr. á örstuttum tíma, rétt
áður en skipið lagði af stað. Sumir gáfu
100—200 rm. Gjafir þessar voru ætlaðar
ýmsum lfknarstofnunum hér, svo sem
holdsveikraspítalanum, berklaveikishælinu
o. fl.