Þjóðólfur - 27.11.1908, Blaðsíða 2
200
ÞJÓÐOLFUR.
Sjónleikar.
Leikfélag Reykjavíkur hefur þetta skipt-
ið byrjað á »Skugga-Sveini, er það hefur
leikið 3 kveld. Munu menn hafa gert
sér meiri vonir um leik þennan í hönd-
um félagsins, en raun varð á. Þó tekst
hann sæmilega. en naumast ástæða til að
nefna eitt hlutverk öðru fremur, er vel
takist. Það væri þá helzt Margrét(Emilía
Indriðadóttir), Grasa-Gudda (Arni Eiríks-
syn), Gvendur (Guðrún Indriðadóttir) að
nokkru’leyti, Skugga-Sveinn (Jens B. Waage)
að sumu leyti, og jafnvel Lárenzius sýslu-
maður (Tómas Halldórsson) sumstaðar.
Einna lakastur er Haraldur (Helgi Helga-
son). Gerfið gerir hann einnig svo sauð-
kindarlegan útlits, Geir og Grani allt of
aumingjalegir og ræflalegir, stúdentarnir
einnig hálf-lélegir og kunna auðsjáanlega
ekki að haga sér á leiksviði, enda óleik-
vanir. Hjá hinu leikfólkinu flestöllu
miðlungs frammistaða. Búningar sumra
leikendanna eru mjög óeðlilegir og illa
valdir.
Embætti.
Forstöðumannsembættið við prestaskól-
ann er nú veitt séra Jóni Helgasyni, er
settur hefur verið til að gegna því síðan
i. okt., en 2. yfirdómaraembættið kvað
vera veitt Halldóri Daníelssyni bæjarfó-
geta, og er þá æðra meðdómaraembætt-
ið eflaust veitt Jóni Jenssyni.
Látinn
er 22. þ. m. Þorlákur Þorláks-
son, áður bóndi í Vesturhópshólum, síð-
ast Þorfinnsstöðum, tæplega sextugur að
aldri, fæddur 1849, sonur Þorláks prests
Stefánssonar á Undirfelli og Sigurbjarg-
ar Jónsdóttur prófasts á Steinnesi Pét-
urssonar. Þorlákur heit. var kvæntur
Margréti Jónsdóttur prests á Undirfelli
Eiríkssonar, og lifir húnmannsinn. Börn
þeirra eru: Sigurbjörg kennslukona í
Reykjavík, Björg gipt Sigfúsi Blöndal bóka-
verði í Kaupm.höfn, Magnús bóndi í
Vesturhópshólum og Jón landsverkfræð-
ingur í Rvík. Þorlákur heit. var greindur
maður og vel látinn. Hann varð bráð-
kvaddur.
Slys.
Hinn 8. þ. m. datt maður útbyrðis af
mótorbát á Önundarfirði og drukknaði.
Hann hét Guðbjarni Bjarnason
og átti heima á Flateyri. Var kvæntur
maður og átti börn.
Bæjarbrunl.
Hinn 2. þ. m. brann bærinn í Skógum
f Fnjóskadal til kaldra kola um miðjan
dag, en heima var þá að eirfs ein kona,
en bóndinn, Benedikt Einarsson, nálægt
bænum. Sængurfatnaði var bjargað að
mestu eg ýmsum öðrum munum, en mikið
brann samt, þar á meðal öll matvæli og
180 kr. í peningum. Bærinn og innan-
hússmunir voru fyrir fám dögum vátryggð-
ir, en ekki talið alveg víst, að vátrygg-
ingin hafi verið gengin í gildi. Kviknað
hafði í þekjunni út frá ofnpípu.
Prestvígsla.
Hinn 22. þ. m. vígði Þórhallur biskup
Bjarnarson Guðbrand Björnsson presta-
skólakandídat til prests að Viðvík og Har-
ald Nielsson, settan kennara við presta-
skólann, til prests við Holdsveikraspftalann
1 Laugarnesi, því að hann hefur verið
skipaður til að gegna prestsverkum þar.
Tvo samniingva
er hr. Sigfús Einarsson að undirbúa
með söngflokk sínum. Verður sá fyrri
haldinn næstk. miðvikudagskvöld (sjá aug-
lýsingu hér í blaðinu), en hinn um jólin.
Til samsöngsins á miðv.d.kvöldið kvað
vera vandað vel og söngskráin óvenju-
lega fjölbreytt. A henni er meðal ann-
annars Hirðingjarnir eptir Schu-
mann, Ave verum corpus eptir
Mozart og lög eptir Grieg við kvæði úr
Huliðsheimum.
Á samsöng þennan ættu menn að fjöl-
menna ; hann verður vafalaust góð skemt-
un. Og nú er öllttrn nýnæmi á góðum
söng.
SkautafélagiO
hér í bænum hefur að undanförnu ver-
ið frernur fjörlftið, og sjaldan eða aldrei
gengizt fyrir nokkrum vetrarskemmtunum
á Tjörninni. En nú er hugmynd félags-
stjórnarinnar nýju, að dubba dálítið upp
á félagið, afgirða stórt svæði til skauta-
hlaupa á Tjörninni, og setja 20 róm-
verska lampa umhverfis, hafa tjald inn-
an vébandanna, þar sem menn geta
fengið sér kaffi, og fengið föt geymd.
Á svo að halda við og við kapphlaup á
skautum, og mönnum skipt í ákveðna
flokka eptir aldri m. fl., er ætlazt er til,
að verði til skemmtunar, söngur o. s. frv.
Hefur félagsstjórnin hugsað sér að sækja um
200 kr. styrk úr bæjarsjóði til að veita
unglingum á skðla-aldri ókeypis aðgang
að skautavellinum. En annars er árstillag
f félaginu 1 kr. 50 a. Formaður þess er
nú dr. Björn Bjarnason (frá Viðfirði).
Eptirmæli.
Hinn 16. janúar þ. á. andaðist að heimili
sínu Nýjahóli á Hólsfjöllum merkiskonan
Karólína Jónsdóttir, fædd á Skriðu-
landi í Suðurþingeyjarsýslu árið 1833. Mann
sinn, Kristján Jóhannsson, missti hún 14, júní
1904, eptir 40 ára sambúð, og harmaði hún
hann mjög. Eptir það fór heilsu hennar
óðum hnignandi ogr síðustu 3 missirin lá
hún rúmföst, en gat þó stjórnað búi sínu
að mestu til dauðadags.
Karólína sál. var engu minni búkona að
sínu leyti en maður hennar hafði verið bú-
sýslumaður; hún var sí-starfandi meðan
heilsan entist og bæði mikilvirk og velvirk,
að hverju sem hún gekk. Heimili þeirra
hjónanna hafði jafnan haft orð á sér að vera
fyrirmyndar heimili að gestristni, búsæld og
reglusemi, og mun konan engu síður hafa
gert þar garðinn frægan.
Karólína var ein af þeim beztu og merk-
ustu konum, er eg hef þekkt. Eg bjó í ná-
grenni við hana í 8 ár og hafði því góð tök
á að kynnast henni. Hún var trygg í lund,
hjartagóð og hjálpfús við alla, sem eitthvað
áttu bágt. Lifandi og ávaxtarsöm trú á guð
og frelsarann einkenndi allt lff hennar, og
það var henni sönn unun, að vinna kærleiks-
verk í nafni Krists; það var hreinasta yndi
að sjá, hve eðlilega og látlaust henni fór
það, og hve sýnt henni var um það, að
fara með alt slíkt í launkofa. Þeir sem bezt
þekktu Karólínu, gættu þess jafnan að tala
sem minnst um góðgerðasemi hennar; væri
farið út í þá sálma, breyttist hýru-svipur
gömlu konunnar óðara; andlitið varð þá næst-
um því kuldalegt á svipinn.
Skömmu áður en eg flutti burtu af Hóls
fjöllum átti eg í sfðasta skipti trúarsamtal
við Karólíriu sál. og veitti henni „þjónustu"
í heimahúsum. Sú stund mun jafnan geym-
ast í endurminningunni sem hin áhrifa-
mestu og unaðarríkasta frá prestsskapar-ár-
um mínum. 2 börn þeirra hjóna eru á lífi:
Jónas Frímann bóndi í Fagradal á Hóls-
fiöllum og ungfrú Frímannía, nú til heimilis
í Baldursheimi í Mývatnssveit. Karólína var
| jarðsett að Víðihólskirkju 1. febrúar þ. á.
Þau hvfla í einni gröf bæði hjónin, f fjalla-
kyrðinni þarna lengst norður. Leiði þeirra
er norðan-meginn gegnt kirkjudyrum og
járngrindaverk umhverfis. Þar hvílir konan,
vegfarandi, sem var alla æfi sfna annara
þjónn.
Blessuð veri minning hennar.
Norður-Hvammi, 9. nóv. 1908.
Þorvatdur Þarvardarson
Veðursk.ýrsliiiígrip
frú 13. nóv. lil 26. nóv. 1908.
nóv. Rv. Bl. Ak. Gr. Sf. Þh.
13- + 2,0 + 2,5 + 2,5 - o,5 + 7-3 + 8,5
14- f 4,9 + 3,3 + 3,5 - 24 +- o-3 + 7,1
i5- + 2,4 + 3 9 + 3,5 - 1.7 + 7,3 + u,o
IÓ. -+ o,4 +- 0,5 + 0,5 - 5,o + 2,2 + 6,6
17- + 1.2 0.0 +- 1-5 - 4-2 + 2,2 + 3,6
l8. 0,0 -f- 8.0 +■ 3° - 8,0 +- 2,5 + 1 >5
>9- -+ 2,5 +- 8.5 T 4’5 - 9.5 +- 4.3 +- 0,5
20. + 0,4 + 1,5 + 1,0 - 2,6 +• J,o + i,6
21. 0,0 +- 2,1 +■ 0,2 - 3,0 + 3,8 + 2,0
22. + 2,2 + 0,4 +- ',5 - 4,0 +- 0,2 + 2,5
23- + 1,0 +- 0.9 +■ 5-5 - 5+ +- 3,4 + 0,5
24. +- 0,6 + 0,2 0.0 - 1,0 + i,5 + 8,0
25- +- 0,5 +- 3-5 +- 5,0 - 9.8 +- J,9 + 5,4
26. +- 5,6 +- 8,2 +- 5,5 - -10,0 +• 4,4 + i,5
málarar,
(da
Miðstræti 4,
mála
hús, húsgögn og nafnispjöld. (skilti). — Útvega hurðar-
spjöld (úr gleri og málmi).
Stjórnvaida-birtingar.
Skuldum skal lýsa í dánarbúi Einars Gfsla-
sonar f Hringsdal innan 6 mán. frá 26. þ.
nt, dánarbúi Jóns Helgasonar fyrv. kaupm.
á Akureyri innan 12 mán. frá s. d., í þrota-
búi Guðmundar Jónassonar f Brimneshjá-
leigu í Seyðisfirði innan 6 mán. frá s. d., í
dánarbúi Þorleifs Guðmundssonar á Gildals-
eyri í Tálknafirði innan 6 mán. frá s. d., í
þrotabúi Björns Ólsens kaupm. á Patreks-
firði innan 12 mán. frá s. d., í þrotabúi
Önnu Kristínar Bjarnadóttur (ekkju Péturs
Jónssonar pjáturssmiðs) innan 12 mán. s. d.,
í þrotabúi Guðjóns Símonarsonar skósmiðs
f Nesi f Norðfirði innan 6 mán. frá 3. des.,
í þrotabúi Gísla Gíslasonar Hverfisg. 36 í
Rvík innan 6 mán. frá 3. des., í þrotabúi
Erlends Guðmundssonar í Gíslholti í Rvík,
innan 6 mán. frá s. d., í dánarbúi Helga
Sigurðssonar í Rauðsgili í Hálsasveit innan
6 mán. frá 3. des.
Nauðungaruppboð auglýst á húseign nr. 38
við Laugaveg 14. des. Skiptafundur f þrota-
búi Benónýs Benónýssonar 1. des. —
Pantiö í tíma
Jólagjafir
■ hjá Birni Árnasyni, Laugaveg 5.
Sigurlijarni Jóknessoi
verzlunarstjóri á Hvammstanga óskar
eptir atvinnu frá 1. júlí næstkomandi.
Reynið manninn, góðir hálsar!
Samsönpr
í Bárubúð
á miðvikudagskveldid kl. 8lj%.
Góð og áreiðanleg verzlun, sem
vill taka að sér sölu á þessari vöruteg-
und ásamt öllu því, er til veiðiútbún-
aðar og skotfæra heyrir, getur komizt
að samningum með því að snúa sér
til Villum Fönss. Vaabenfabrik, Aar-
hus, Danmark.
Úrval af beztu
Saumavélum
hjá
I
1
jlíagitúsi Jenjaminssyni,
Veltusundi 3.
Di iu er ómótniælanlegn bezta og langndijrasta
A ll liftrygjjiiiKarfélagið. — Sérstök kjör fyrir
bindindisnienn. — LanghagfHdustu kjör fyrir sjó-
metin. Allir ættu að vera líftrygðir. Finnið að
máli aðalurnhoðsni. l>. 0STLUXD. Hvik.
Cggert Qlaessen
yfirréttarmalaflutningsmaöur.
Pósthnsstraiti 17. Venjulega heima kL
10—ii og 4—3. Tals iö
HL.Iör-MÍ&fiK't fyiir hreppa geta
menn fengið gerð hja Birni Árnasyni,
Laugaveg 5, Reykjavík.
(ilullhriiigfí — einbauga og stein-
hringi — smíðar Björn Árnason, Lauga-
veg 5
Hjartans pökk fyrir hluttekniuguna við and-
lát og jarðarför dóttur okkar.
Guðrún og Sigurbjörn i Ási.
JSdrus c3ófiannsson
prédikar
í Hjálpræðisherskastalanuiu
laugardagskvöldið kl. 8.
Til sölu
góðar jarðir, — hús
tekin í skiptum, ef um
1 semur.
Gísli Þorbjarnarson.
Lifsafl,
og þar með framlenging mannsæf-
innar, — sem í flestum tilfellum er
alt of stutt, — fæst með því að neyta
daglega hius heimsfræga heilsubitt-
ers Híiia>lífs-elixírs.
Krainpi ojj taugaveiKlun.
Eg undirrituð, sem í mörg ár hef
verið þjáð af krampa og taugaveikl-
un og þeim öðrum lasleika, sem því
eru samfara, og árangurslaust leitað
margra lækna, votta með ánægju,
að eg hef fengið ósegjanlegan bata
við það að neyta hins fræga Kína-
lífs-elixírs frá Waldemar Petersen, og
finn, að eg má ekki án hans vera.
Agnes .Bjarnadóttir.
Hafnarfirði, íslandi.
Móðursýki og iijartvoiki.
Eg undirrituð hef í mörg ár ver-
ið þjáð af móðursýki, hjartveiki og
þar af leiðandi tauga-óstyrkleik. Eg
reyndi Kína-lífs-elixír Waldemars
Petersens, og þegar eg var búin að
neyta að eins úr 2 flöskum, fékk eg
bráðan bata.
Ólafía Guðmundsdóttir.
Þurá í Ölfusi, íslandi.
Steiusótt.
Eg undirritaður, sem í 14 ár heí
verið þjáður af steinsótt og árang-
urslaust leitað margra lækna, rej'ndi
síðastliðið suinar hinn heimsfræga
Kína-lífs-elixír Waldemars Petersens,
og með því að neyta 2 matskeiða
af honum daglega, er eg nú orðinn
hressari og glaðari en um langan
undanfarinn tima og get stundað
störf mín bæði úti við og heima.
Carl Mariager,
Skagen.
Gætiö |»o»s vel, að hver flaska
sé ineð mínu löghelgaða vörumerki,
sem er Kínverji með glas í hendi og
"f.' í grænu lakki á flöskustútnum.