Þjóðólfur - 26.03.1909, Page 2

Þjóðólfur - 26.03.1909, Page 2
50 ÞJOÐOLFUR Styrkbciðni kvennaskólans í Reykjavík. Eptir að hafa lesið nefndarálit fjárlaga- nefndarinnar um frumvarp til fjárlaga 1910 —1911 þá get jeg ekki stillt mig um að fara nokkrum orðum um það, að því er snertir fjárveitingu til kvennaskólans 1 Reykjavík á þessu í hönd farandi fjár- hagstlmabili. Sótt hafði verið um 7000 kr. ársstyrk handa skólanum, og auk þess 3000 kr. styrk einu sinni fyrir allt, til þess að kaupa fyrir húsbúnað, rúroföt og mat- reiðsluáhöld. Þessi beiðni er færð niður 1 1500 kr. — helming af því, sem beðið var um. Kvennaskólanum eru þar áætlaðar 3000 kr. hvort árið, auk 300 kr., sem ætlaðar eru sem námsstyrkur handa sveitastúlkum, er á skólann ganga; og ennfremur er þar gert ráð fyrir, að skólinn fái 40 kr. tillag með hverri námsmey, allt að 2000 kr. Þetta er innihald nefndarálitsins, að þvf er snertir kvennaskólann. Eins og kunn ugt er, voru skólanum veittar 5000 kr hvort árið í síðustu fjárlöguro, og reynsl an hefur sýnt, að sú áætlun mátti ekki lægri vera, miðað við aukinn reksturs- kostnað skólans, er stafar af óhjákvæmi legri hækkun á borgun kennslunnar — frá 50 au. upp 1 75 au. (um stundina) munnlegar greinar, og frá 35 au. upp í 50 au. verklegar greinar. Rekstur skólans kostaði síðastl. ár, miðað við 7 */» mánuð — frá 1. okt. til 14. maí — þetta: Kennslukaup ogjtil prófdómenda (haust- og vorpróf ............ Laun forstöðukonu . . Húsaleiga (að meðtöld- um 299 kr. fyrir vefnað- ardeild utanhúss) eldi- viður og ræsting . . . Ymisleg gjöld .... 3162 kr. 37 a. 800 — 00 - 1099 289 «5 - 83 - Samtals: 5352 kr. 05 a. En nú verður húsaleigan eptirleiðis f hinu nýja húsi, er skólinn flytur í næsta haust, og leigt hefur verið til 5 ára, 2200 kr. auk hita, ljóss og ræstingar, að við- bættu því, að skólinn þarf þá eitthvert fast starfsfólk. En nú ætlar skólinn á næsta hausti auk þess að færa út kvfarnar að mun, með því að vaxandi aðsókn aðskólanum og auknar kröfur nútímans gera það ó- hjákvæmilegt. Skólinn hefur nú allt of lftið rúm á sínum gömlu stöðvum-, því til sönnunar má geta þess, að ein deild hans —vefn- aðardeildin — komst ekki fyrir í húsinu, og varð að hafa hana utanhúss. Og hús- stjórnardeild sú, er verið hefur við skól- ann nokkur undanfarin ár, varð að hætta síðastliðið ár, sökum rúmleysis í skólanum. Auk þess hefur orðið að synja mörg- um um upptöku í skólann hin síð- ustu ár, vegna rúmleysis. Síðastl. haust varð t. d. að synja yfir 20 stúlkum um upptöku í skólann; þar með eru taldar stúlkur þær, er sóttu um upptöku í hús- stjórnardeild skólans, sem leggja varð niður, eins og áður hefur verið sagt. Það þótti því öllum, er báru vöxt og viðgang kvennaskólans fyrir brjósti, hið mesta happ, er herra Steingrímur Guð mundsson húsbyggingameistari réðist í upp á eigin spýtur að reisa skólanum hús, sniðið eptir þörfum hans, gegn því, að skólinn festi leigu á því um ákveðinn tíma — fimm ár — fyrst um sinn. Húsið er nú vel á veg komið, og verður, eins og sjá má, stæðilegt steinsteypt hús. En nú verður húsaleigan eptirleiðis í hinu nýja húsi yfir 2000 kr. auk hita, ræsting- ar og ljóss. Þótti nú vel hafa ræzt úr J vandræðahorfum skólans, því engan grun- j aði, að skólanum yrði synjað ura nauð- synlegt starfsfé. Allir töldu víst, að þetta alþingi, sem meðal annars hafði á stefnu- skrá sinni: »jafnrétti fyrir konur og karla«, myndi veita skólanum nauðsynlegt fé. Og Ijárbón sú, er nefnd kennaraskólans lagði fyrir þingið, var vissulega ekki há, miðuð við £það, hvað starfssvið skólans átti að stækka* mikið. I sambandi við stækkun skólans varð að gera ráð fyrir mikið auknum kostnaði, bæði að því er snertir húsaleiguna og einnig að því er snertir rekstur skólans. Það má gera ráð fyrir, að hækka verði kennslugjöld frá því sem nú er, 75 au., upp 1 90 au. eða 1 krónu, eins og verzl- unarskóli Islands og jafnvel barnaskóli Reykjavíkur borga nú, því það er lítt hugsanlegt, að þeir sem taka að sér kennslu við kvennaskólann, séu þeim mun nægjusamari en kennarar við hina skól- ana, að þeir framvegis verði fáaniegir til að kenna þar fyrir minni borgun en þeim býðst annarstaðar, og því sfður þar sem skólinn leitast við að fá hina beztu kenn- ara í hverri námsgrein, sem kostur er á. Gæti það þá álitizt ósanngjarnt að styrkja þann kvennaskóla nokkru meira, sem hefur öll skilyrði til þess að geta veitt bezta og fullkomnasta kennslu, með- al annars af því, að hann er hér 1 höfuð- stað landsins, þar sem hægt er að fá kennara þá beztu, sem kostur er á í hverri námsgrein, þvf flestra dómur hlýtur það að vera, að tvær eða þrjár kennslukonur við afskekktan skóla geti ekki í öllum greinum fullnægt fyllstu kröfum góðrar kennslu. Nokkrir af þingmönnum hafa tekið það fram, að undarlegt sé, hversu lítið Reykja- vlkurbær styrki skóla þennan, er þeir telja — þótt það sé langt frá því að vera rétt — koma bæ þessum að mestum not- um, enda þótt hann sé nálega sóttur úr öllum sýslum landsins. Dálítið hefur þetta þó við að styðjast, þegar það er athugað, hversu rfflega Húnvetningar styrkja sinn kvennaskóla; og mjög vel myndi það mælast fyrir, ef hin háttvirta bæjarstjórn Reykjavlkur vildi athuga þetta mál sem fyrst, og sýna í verki, að hún sé hlynnt skólanum, með þvl að auka að mun styrk þann, er skólinn hefur frá bænum. Skólinn vill leitast við í starfsáætlun sinni að sameina bóklegt og verklegt nám kvenna, því vér lítum svo á, að það sé hollasta stefnan fyrir íslenzkar konur. Skólinn gerir ráð fyrir milli 25—30 heima- vistum, og eiga stúlkur úr sveitum að ganga fyrir bæjarstúlkum f þær. Ætlazt er til, að stúlkur borgi svipað fyrir fæði á skólanum og það er selt annarstaðar. Auk þess eiga og aðrar námsmeyjar skól- ans að geta keypt fæði á skólanum, og er þannig til þess ætlazt, að skólinn geti jafnframt orðið heimili utanbæjar náms- meyja. Flestum flnnst það miklu skipta, að áhrif þau, er nemendur skólanna — piltar eða stúlkur —verða fyrir utan skól- anna, séu holl; þess vegna het eg heyrt margar raddir utan að, er hugsa gott til þess, að kvennaskóli Reykjavíkur gefi mörgum nemendum sínum kost á því, að eignast framvegis, meðan á náminu stend- ur, heimili á skólanum. Kvennaskólinn með heimavistum og hússtjórnarkennslu ætti að geta átt góðan þátt í því, að ■leggja grundvöllinn undir farsæld margra heimila, og þannig undir farsæld þjóðar- innar í heild sinni, því heimilin eru þó undirstaðan undir þjóðarþrifunum; og skyldi nokkur neita því, að starf kon- unnar sé þar þýðingarmikið. Styrkur sá, er háttv. fjárlaganefnd vill veita skólanum, er svo langt frá því að fullnægja auknum þörfum skólans, að styrkurinn, er skólinn hafði á síðasta fjár- hagstímabili, er færður niður, og er slíkt eins dæmi, ef álitjskólans hefur ekki rýrn- að á þeim tíma — frá -síðustu tjárveiting alþingis. Þetta er þó elzti og líklega um leið helzti kvennaskóli á landinu, sem um meir en mannsaldur hefur starfað í vfngarði þeim, sem var alveg óyrktur áður, en hann hóf starf sitt með engum efnum, en einbeittum vilja á því, að greiða eitthvað fyrir menntun kvenna á Islandi. Mjög lítið er það fé, sem öll þessi ár hefur verið varið til þessarar stofnunar — miðað við^ það, hvað aðrir skólar hafa kostað; og þegar skólinn nú er kominn á það þroskastig, að hann þarf meira fé, þá finnst mörgum það siðferðisleg skylda, að honum sé veittur sá styrkur, sem er skilyrði fyrir þvf, að hann geti tekið þeim framförum og fullnægt þeim kröfum, sem kvennþjóðin, já, og öll þjóðin, getur gert og á að gera, til sérskóla handa konum, til eflingar menntun kvenna á Islandi. Því hvað stoða fögur fyrirheit um »jafn- rétti kvenna og karla«, ef hinar uppvax- andi konur, sem eiga að njóta þeirra gæða, fá ekki nauðsynlega menntun, andlega og líkamlega. Það væri fróðlegt dæmi, en þó alls ekki flókið, að reikna út, hve miklu landið ver árlega til þess að mennta dætur sínar? Eg er viss um, að mörgum karlmanni, sem ann jöfnum réttindum kvenna og karla, mun þykja upphæð sú æði smá, er kemur á hverja íslenzka konu. En þá fyrst sanna karlmennirnir, að hugur fylgi máli lofsverðum ummælum þeirra í kven- réttindabaráttunni, er þeir styðja að fram- förum og menntun kvenna f hvívetna, og undirbúa þannig hinar uppvaxandi konur, að þær með sæmilegri menntun, og þar af leiðandi þroska, geti notið hinna dýr- mætu réttinda, sem nú virðast vera hér í vændum. Eg vona, að hið háttvirta alþingi 1909 taki svo í þetta mál, að undirtektir þess beri það með sér, að þær eigi sanngjarn- ar kröfur, kröfur til eflingar menntun og framförum, hvort heldur þær koma frá konum eða körlum, góðum byr að fagna. Reykjavík 2°/3 1909. Ingibj'órg H. Bjarnason. i (Árétting). Það er hvorttveggja, að eg hafði aldr- ei búizt við því, að grein mín um að- flutningsbannið mundi fá lof og samþykki allra, er hana læsu, — til þess þekkti eg of vel einsýni bannmannanna, — enda lítur út fyrir, að prentsmiðjurnar ætli að fá nóg að starfa f bráðina við prentun »andmælanna« — það kemur sjer líklega ekki illa um þetta leyti — og auðsýnilegt er það, að bannmönnum þykir nú mikið liggja við, því að nú mun öllum útvörð- unum hrint fram til atlögu. Aðferðin þeirra söm og áður, þegar komið hefur fram einhver heilbrigð hugsun um þetta mál, að hauga upp svo miklum langlok- um og lokleysum, að rétt hugsun kafni, og um fram allt, að halda sér á gamla grundvellinum, þeim, að snerta sem minnst við kjarna málsins. Mitt mál var ekki margbrotið: Viður- kendi þörfina á útrýming áfengis b ö 1 s - in s og taldi til þess eina leið örugga, fræðsluleiðina, en sýndi fram á, að b a n n 1 e i ð i n væri hættuleg. Eg hef orðið þess var, að mig hafa skilið til fulls allir óblindaðir menn, er eg hef haft tal af, en enginn bannvinur, og veit eg nú af lestri »andmælanna«, að þetta er ofur-eðlilegt, því að bannmenn láta þar berlega í Ijósi, að þeir viti ekki, hvaðáfengisböl er, og hafði jeg þó reynt að koma þeim f skilning um það. Undarlegt er það, en þó er það satt, að svaramenn Gt.-reglunnar vita ekki hvað það er í raun og veru, sem félag- ið hefur verið að stríða við í 25 ár(!), og ræð eg af því, að bannástin hafi leikið heila þessara herra eitthvað álíka og þeir segja að áfengið hafi farið með heila hóf- semdarmannanna. Bannmenn halda sem sé, að áfengis- bölið sé áfengið sjálft! Hinc illæ la- crymæ! Væri ímyndun þeirra rétt, þá væri eg þeirra maður, því að þá væri rétt haldið í horfið. Nú er hún röng og því reyni eg að berjast móti henni eptir mætti. Eg veit, að ekki þaff að útskýra þetta frekar fyrir þeim, sem geta og vilja skilja mælt mál. Þeir vita það, að böl þjófs- ins er ekki krónan, sem stolið er, heldur sú ástrfða, sem rekur þjófinn til glæpsins. Afengisbölið er, eins og eg tók fram fyrri daginn, fólgið í tilhneigingu manna til ofnautnar eða nautnar áfengis, er f huga fólksins, eins og böl þjófsins liggur í hon- um sjálfum, en ekki f buddu náungans. Það er vitium animi, rangur hugsunar- háttur, öfugar hvatir, illar ástríður þjóðar- innar, sem áfengisbölinu veldur, og eigi bölið að bæta, verður að grafa fyrir ræt- urþess, enþæreru ekkiíbrenni- ví ns t un n u nn i, heldur í huga f ó 1 k s i n s. Þar er áfengisbölið rótgróið og þaðan þarf að rífa það upp. Slíkt verð- ur ekki gert í hendingskasti; til þess þarf langvarandi baráttu, og þeir menn, sem hyggja, að hægt sé með snöggu lagaboði að nema burtu öfugar hvatir mannkyns- ins, gætu eins vel fundið upp á því, að setja lög um breytingu á ferðaáætlun jarð- arinnar. Og í þessu sambandi má ekki gleyma því, að áfengið, meðalið til að fullnægja þessari rótgrónu ástríðu, hverfur aldrei úr heimin- um. Templarar geta þess vegna eins f dag og á morgun strykað burt úr »tak- marki« sínu forboðið um tilbúning áfeng- is — að eins geta þeir unnið að því að færri og færri drekki það. Benda mætti bannvinum á það, að 1 þessu máli sem öðrum, verður ekki hjá því komizt, að tekið sé ofurlítið tillit til heimsins eins og hann er, og að menn- irnir verða ekki á svipstundu að alvitr- um englum. Þeir muna og, að Island heldur áfram að standa í sambandi við umheiminn, þótt aðflutningsbann komizt á, og loks, að engar lfkur eru til þess, að aðfl.bann kornizt á í nágrannalöndun- um í fyrirsjáanlegri framtíð. Dæmi Norð- manna verður eflaust öðrum til fyrir- myndar f þvf efni. Enda þótt eg þurfi ekki að svara nein- um af þessum þremur herrum, sem ritað hafa um mig og grein mfna, þá vildi eg þó senda þeim kveðju mína tii marks um það, að eg hafi lesið »andmælin«. Fljótastur á sér varð hr. Pétur Zóphóní- asson — honum kvað hætta við þvf — enda mun hann yztur allra útvarða í varnarsveit templara. Kvað hann passa vel í stöðuna að dómi templara, sem mest þykir undir því komið, að mjöður- inn sé þunnur, en þeim mun meiri að vöxtunum. Þetta veit skýr Pétur, enda. hefur hann ekki misst sjónar á því templ- ara-»takmarkinu«, er hann reit pésa sinn; hann er sem sé allur í lengdinni og þynnkunni, og líkist þvf mjög í ættsína. Annars er bæði herra Pétur og pési mér hreinasta ráðgáta. Maðurinn hlýtur að vera um þessar mundir að semja kennslubækur í ýmsum fræðum og rugl- ast svo í öllu saman. Þarna ægir sam- an landafræði, hagfræði, stjórnfræði,. læknisfræði, — að eins sakna eg eðlis- fræðinnar, þvf að eg veit, að hr. Pétur hefur nýlega fengizt við að skýra fyrir

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.