Þjóðólfur


Þjóðólfur - 23.04.1909, Qupperneq 2

Þjóðólfur - 23.04.1909, Qupperneq 2
66 ÞJOÐÖLFUR það talið fullveðja. Hins vegar eru Dön- um með því afsöluð til meðferðar um aldur og æfi utanríkismál landsins og her- mál og landið þar með að vorri skoðun innlimað Danmerkur ríki alla ókomna daga, og svo hafa góðir lagamenn einnig skilið það. Og Danir hafa sjálfir nú fyrir löngu lýst því yfir, að meiri hluti íslenzku sambandsnefndarmannanna hafi haft rangt fyrir sér um þetta efni, og að skilningur Vóf óg flokicsmanna vórrá væri réttUf. Kemur það meðal annars fram í „Natiöttál- tidende" 25. sept. 1908, einu af hinum merkari »hægri«blöðum Dana. Þar segir svo: Það er vísindalegt orðsatriði, hvort menn vilja kalla ísland „ríki“ eða ekki eptir sambandslaganefndaruppkastinu; um það er hægt að deila og um það hefur verið deilt. . . . Hins vegar er það ómót- mælanlegt, að fslandi er eptir Uppkastinu ekki ætluð sú staða, að vera fullveðja „ríki“. Og nú á hinum síðustu tímum hefur hinn danski ritari sambandsnefnd- arinnar, dr. Knud Berlin, hvað eptir ann- að lýst sama elni yfir, bæði fyrir sig og dönsku sambandsnefndarmennina, og tek- ið það meðal annars harðlega fram, að skýringar þær allar til sjálfstæðis, er byggðar hefði verið á því, að danski og íslenzki textinn voru ekki vel samhljóða, og íslenzki textinn oss hagfeldari, væri, eins og allar skýringar meiri hluta sam- bandsnefndarinnar, þar sem þá greindi á við oss, með öllu heimildarlausar, og að íslandi væri ekkert fullveldi ætlað með frumvarpinu. Enn er við það kannast af dr. Knud Berlín, að fiskiveiðaréttur vor sé samkvæmt Uppkastinu jafnvel verri en eptir þvi, sem Danir hafi ætlað að skammta oss í hinum svo nefndu stöðulög- um frá 2. janúar 1871, því að eptir 3. gr. þeirra sé fiskiveiðarnar sérmál íslands, og geti Islendingar þvl bannað öllum öðrum en Islendingum allar fiskiveiðar í land- helgi Islands. Af öllum þeim, er um frumvarp þetta hafa ritað, hafa fáir gert það jafnskýrt sem prótessor N. Gjelsvik, norrænn maður, og táir hafa sýnt það með færri og ljósari orðum, hve fjarri það væri því, að veita oss þau þjóðréttindi, sem vér eigum að lögum, jafnframt því, sem hann sýnir, hver þau réttindi tvímælalaust séu, og hvernig samband það við Danmörku megi vera, sem þeim sé samboðið. Vér látum því prenta ritgerð þessa manns meðal fylgiskjala þeirra, er vér nú látum verða samferða þessu nefndaráliti, en það eru flest forn gögn þjóðríkisréttinda vorra, er oss þykir rétt að helga nú stað i þing- tíðindum landsins, enda er þar handhægt að þeim að ganga fyrir alþingi í fram- tíðinni. Af því, sem nú hefur um hríð verið tjáð og talið hér, mætti ætla, að trú flestra manna á frumvarp þetta sem hentugan sáttmála Islendingum til handa væri held- ur farin að dofna. Danskir rithöfundar hafa að lyktum lýst þvi, að þetta sé inn- limunarsamningur, og Danir sé með frum- varpinu að innlima oss Danmörku um alla ókomna tíð, og vér sjáum, að góðir menn og óhlutdrægir, sem áður héldu frum- varpi þessu fram í góðri trú, hafa nú gef- izt upp á því, og gera ráð fyrir, að það verði fellt. Ekki viljum vér þó — til þess að girða ekki fyrir hagfeldari jsamninga, ef svo mætti verða, úr því út á þessa braut var lagt — ráða hinni háttvirtu deild til þess að fella trumvarp þetta með öllu. Vér höfum því tekið þann upp, að gera breytingartillögur við frumvarpið, er vér ráðum deildinni til að samþykkja; fara þær í nokkuð svipaða stefnu og breytingartillögur minni hlutans í sam- bandsnefndinni (Skúla Thoroddsens), cg miða allar að því, að fullveldi íslands sem ríkis sé tryggt í konungssambandi einu við Danmörku, og að öll önnur sam- bandsmál íslands og Danmerkur séu fal- in Danmörku fyrst um sinn til meðferð- ar sem umboð, séu öll uppsegjanleg, nema konungssambandið eitt, og að engum fornum réttindum lands vors sé afsalað. Er þó farið svo hóglega í kröfurnar af vorri hendi, sem oss þótti trekast fært, að ekki yrði spillt fyrir því að samkomulags- tilraunir mættu enn takast. Fyrir hverri einstakri breytingartillögu hirðum vér ekki að gera sérstaklega grein hér, en geymum það framsögunni í mál- inú«. Tveir nefndarmenn í meiri hlutanum, Skúli Thoroddsen og Ólafur Briem, hafa ritað undir álitið með sérstökum athuga- semduin hvor um sig, að því er snertir röksemdafærslu álitsins, en um málið sjálft og breytingar á frumvarpinu ber meiri hlutanum öllum saman. Minni hlutinn (Jóh. Jóhannesson, Jón Magnússon og Jón Ólafsson) hafa samið sérstakt álit, en það höfum vér ekki enn séð. Ráðgert, að útbýta álitinu öllu (meiri- og minni hluta) í neðri deild í dag, og gæti þá málið, með þir.gskapa-afbrigðum, komið til framhalds 1. umr. á morgun, annars á mánudaginn. Alþingi. X. Elgnarn áms-helmll d. Sig. Stefánsson flytur frv. um, að bæj- arstjðrn ísafjarðarkaupstaðar veitist heim- ild til, að láta eignarnám fara fram á lóð undir barnaskólahúsbyggingu þar. Sala á prestsetrinu Hósavík. Stgr. Jónsson flytur frv. um, að Húsa- vlkurhreppi verði veitt heimild til, að kaupa prestsetrið Húsavík, að undan- skildu túni og húsum, og kirkjujörðina Þorvaldsstaði fyrir eigi minna, en 24,000 krónur. Mat jarðabóta á Vestnrlandi. Þingsályktunartillögu flytur Sk. Th. um, að landsstjórnin hlutist til um, að á Vesturlandi, norðan Gilsfjarðar, sé lagt þriðjungi minna af jarðabótum 1 dags- verkið, en í öðrum héruðum landsins, er um styrk úr Iandssjóði til búnaðarfélaga ræðir. — Vísað til landbúnaðarnefndar. Lending í Bolnngarvík. Sk. Th. flytur þingsályktunartillögu, að landsstjórnin hlutist til um, að verkfræð- ingur verði sem fyrst, á kostnað lands- sjóðs, látinn skoða og gera tillögur um, á hvern hátt nauðsynlegar umbætur verði gerðar, sem kostnaðarminnstar á lendingunni í Bolungarvíkurverzlunarstað. — Samþ. í neðri deild 20. þ. m. Landsbankinn. Meiri hluti peningamálanefndarinnar flytur frv. um, að í stjórn landsbankans skuli vera 2 bankastjórar, er ráðherrann skipar með 4000 kr. launum hvor og einn lögfræðislegur ráðunautur, er sameinað þing kýs til 4 ára í senn, er hefur að launum 1500 kr. Ráðherra skipar bókara og féhirði bankans, og skal bókarinn hafa 3000 kr. að launum og féhirðir 2400 kr. auk Í5 %° af öllum greiddum pen- ingum og bankaseðlum í féhirzlu bankans eða úr, allt að 2600 kr. Féhirði ber að setja hæfilegt veð, er ráðherra tiltekur. Bankastjórar mega ekki hafa embættis- störf á hendi né aðra atvinnu. Auk framangreindra launa fá bankastjórar og ráðunautur ro°/o af því er afgangs verður að greiddum i°/0 af seðlaskuld bankans 1 landssjóð, 1% í byggingarsjóð og 2% í varasjóð. Með ráði bankastjórnar getur ráðherra veitt bankastjórum í eptirlaun allt að helmingi fastra launa. Ráðherra getur vikið bankastjórum frá um stundarsakir, öðrum eða báðum, þeg- ar honum þykir brýn nauðsyn til bera, og að fullu eða öllu, ef miklar eru sakir, en gera skal hann þeim grein fyrir skrif- lega hvað veldur. Hlntabréf I íslandsbanka. Peningamálanefndin í Nd. flytuf svo- hljóðandi frv. 1. gr. Stjórnarráði Islands veitist heim- ild til, að kaupa hlutabréf í Islands banka, allt að 2 miljónum króna og borga hluta- bréfin með allt að 101 hundraðið. Hluta- bréfunum fylgja arðmiðar frá 1. júlí 1909, og séu kaupin gerð frá þeim tíma. 2. gr. Til greiðslu á hlutabréfum þess- um skal landssjóði heimilt að gefa út jafnháa upphæð í landssjóðs-skuldabréfum. Skulu greiðast 4T/a % ársvextir af skulda- bréfum þessum og greiðast þeir 2. janúar og 1. júlf ár hvert. Skuldabréf þessi kaupir Islands banki fyrir að minnsta kosti 98 hundraðið. Mismun á verði hlutabréfa bankans og skuldabréfa lands- sjóðs skal greiða í peningum. 3. gr. Upphæð skuldabréfanna skal vera 500,1000 og 2000 krónur. 4. Landssjóðurskal innleysa landssjóðs- skuldabréf þessi eptir hlutkesti, er fari fram í fyrsta sinn í desember 1910, og sé fyrsti innlausnargjalddagi 1. júlí 1911. Skal innleysa 7s° hluta skuldabréfanna á ári með 40,000 krónum, þannig, að lands- sjóður hafi leyst þau öll til sín á 50 ára fresti. Landssjóði er þó heimilt að leysa bréfin til sín aptur að fullu eptir 1. júlí 1919. 5. gr. Þær 2 miljónir, sem landssjóður kaupir í hlutabréfum íslands banka, skal landssjóður skyldur að geyma sem trygg- ingu fyrir skuldabréfum þeim, er hann hefur keypt hlutaféð fyrir og sem eru í umferð. 6. gr. Landritari og dómendur í yfir- réttinum skulu fyrir landssjóðs hönd fara með atkvæði landssjóðs sem hlutabréfs- eiganda á aðalfundum Islands banka. — Skulu þeir hver um sig hafa atkvæði fyrir 7« miljón hlutafjár. Fyrir starfa þennan fá þeir 250 króna þóknun á ári hverju. Byggingr. ábúð og úttekt jarða. Landbúnaðarnefndin flytur frv. um breyting þeirra laga 12. jan. 1884, að landsdrottinn taki nokkurn þátt í kostn- aði leiguliða fyrir unnar jarðabætur o. fl. Botnvörpuveiðar. Fiskiveiðanefndin í Nd. flytur frv. um, að landsstjórnin megi. ef sérstakar ástæð- ur mæla með, veita skipum, er skrá- sett eru sem eign hér á landi, undanþágu um eitt ár í senn frá ákvæðum laga 8. júlí 1902, er banna fiskiveiðaskipum að hafa botnvörpur í landhelgi. Skyld skulu skip þessi að sýna sérstakt og glöggt merki samkvæmt fyrirmælum landsstjórn- arinnar. Almenni menntaskólinn. Meiri hluti kennslumálanefndarinnar I flytur svohljóðandi þingsályktunartillög” : Neðri deild alþingis ályktar að skora á stjórnina að láta sem fyrst endurskoða og bæta reglugerð hins almenna mennta- skóla, en gera tafarlaust þá breytingu, að fella burt efra aldurstakmarkið, sem nefnt er í 18. gr. í bráðabirgðareglugerð fyrir hinn almenna menntaskóla f Reykja- vík, 9. septbr. 1904, og slíkt hið sama neðra aldurstakmarkið um viðtöku í lær- dómsdeildina, og enn að breyta nú þegar 12. gr. svo, að nemendur utan skólans megi ganga undir öll próf skólans. Enn skorar deildin á stjórnina að koma á samræmi urn* námstfma og aldurstak- mark milli hins almenna menntaskóla og gagnfræðaskólans á Akureyri. »Thore«-félagið. Meiri hluti samgöngumálanefndarinnar flytur svohljóðandi frv. 1. gr. Landsstjórninni veitist heimild til að kaupa hlutabréf í gufuskipafélaginu »Thore« fyrir 500 þúsund krónur með þeim skilyrðum, sem hér fara á eptir: a. að hlutafé félagsins verði 800,000 krónur; b. a ð hlutir landssjóðs verði 4% for- réttindahlutir; c. a ð þessar breytingar verði gerðar & núverandi skipastól félagsins: 1. I stað skipanna »Kong Helgec og »Perwie« komi nýtt skip eða ný- legt með líkri stærð og gerð eins og skip félagsins »Sterling« og með> eigi minni hraða. Þetta skal vera framkvæmt áður en landssjóður tekur hluti í félaginu. 2. a ð keypt verði nýtt eða nýlegt- skip með líkri stærð og gerð eins og skip félagsins »Sterling« og með jafnmiklum hraða að minnsta kosti. 3. að keypt verði 2 ný eða nýleg strandferðaskip með hér um bil 150 smálesta farmrúmi, farrúmi fyrir 10—15 farþegja á 1. farrými, 20— 25 farþegja á 2. farrými og með 9 mílna hraða að minnsta kosti. 4. a ð útbúin verði kælirúm f 2 skip- um að minnsta kosti af framan- greindum skipastól, sem ganga landa á milli. d. a ð landssjóður eigi rétt á, að leysa til sín fyrir ákvæðisverð hvenær sem er hina almennu hluti í félaginu; e. að alþingi skipi stjórn félagsins að hálfu — 3 menn, — og ráðherra ís- lands sé auk þess sjálfkjörinn formað- ur stjórnarinnar, f. að skip »Thore«-félagsins, sem nú eru, með þeirri breytingu, sem ræðir um undir staflið c. 1., verði afhent hinu nýja félagi fyrir það verð, er þau, verða metin. Matið skal framkvæmt af 3 mönn- um, dómkvöddum af landsyfirrétti Is- lands, g. a ð þær breytingar verði gerðar á lög- um »Thore«-félagsins, sem fulltrúar alþingis og ráðherra Islands telja nauðsynlegar til að tryggja rétt lands- sjóðs.sem forréttinda-hluthafa í félaginu. Félagið hafi varnarþing á íslandi. 2. gr. Til þess að kaupa hlutabréf þau„ sem um getur 1 1. gr., veitist landsstjórn- inni heirnild til að taka 500,000 króna lán, sem afborgist með jöfnum afborgun- um á 20 árum, og mega vextir af þvfc eigi fara fram úr 4^2 % e^a sem svarar. Heimildin til að kaupa hlutabréfin er því skilyrði bundin, að lán þetta fáist með eigi lakari kjörum. Lög frá alþingi. 15. Um almennan ellistyrk. 1. gr. í hverjum kaupstað og hreppi á landinu skal stofna styrktarsjóð handa elli- hrumu fólki. í sjóð þennan rennur styrkt- arsjóður handa alþýðufólki, sem til er i kaupstaðnum eða hreppnum. Sjóðir þessir skulu styrktir með árlegu tillagi'úr landssjóði, er nemur 50 aurum fyrir hvern gjaldskyldan mann til sjóðs- ins það ár. 2. gr. Gjaldskyldir til ellistyrktarsjóðs- ins eru“allir, karlar og konur, sem eru fullra 18 ára og ekki yfir 60 ára, nema þeir, er nú skal greina: a. Þeir, sem njóta sveitarstyrks. b. Þeir, sem fyrir ómaga eða ómögum eiga að sjá, sem og þeir, er fyrir heilsubrest eða af öðrum ósjálfráð- um ástæðum eigi geta unnið fyrir kaupi, ef þessir menn hvorirtveggja að áliti hreppsnefndar eru fyrir fá- tæktar sakir ekki færir um að greiða gjaldið, enda greiði ekkert aukaútsvar.

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.