Þjóðólfur - 23.04.1909, Blaðsíða 3

Þjóðólfur - 23.04.1909, Blaðsíða 3
rjOÐOLFUR. 67 c. Þeir, sem sæta hegningarvinnu. d. Þeir, sem hafa tryggt sér fé til framfærslu eptir 60 ára aldur, að upphæð 150 kr. á ári að minnsta kosti. 3. gr. Hver gjaldskyldur karlmaður greiðir 1 styrktarsjóðinn 1 kr. 50 a. á ári, en kvennmaður 75 aura. 4. gr. í ellistyrktarsjóð rennur gjald fyrir leyfisbréf til lausamennsku samkv. í. gr. í lögum nr. 3, 2. febr. 1894 um breyt- ing á tilskipun uui lausamenn og hús- menn á íslandi 26. mal 1863 ogviðauka við hana. 5. gr. Hreppsnefndir skulu fyrir lok janúarmánaðar ár hvert semja skrá um alla þá, er gjaldskyldir eru í hreppnum til styrktarsjóðsins. I kaupstöðum semja 3 menn, er bæjarstjórnin kýs úr sínum flokki, skýrslur þessar. A skrána skulu þeir settir, er lögheimili hafa 1 kaupstaðn- um eða hreppnum hinn 1. janúar; sé vafi um heimilisfang manns, skal hann settur á skrá f þeim kaupstað eða hreppi, þar sem hann dvelur um áramótin. A skrána skulu þeir settir, sem eru fullra 18 ára hinn 1. janúar, og sömuleiðis þeir, sem ekki eru fullra 60 ára hinn sama dag. Skráin skal rituð á prentuð eyðublöð, stjórnarráðið útbýtir. Lögreglustjórinn 1 Reykjavík og hver prestur, að því er prestakall hans snertir, er skyldur til að láta nefndum þessum f té skýrslur þær, er nauðsyn krefur, úr manntalsskýrslunum í Reykjavík og sálna- registrunum annarsstaðar. 6. gr. Auk þess, sem gjaldendur eiga að greiða gjöld sín til ellistyrktarsjóðsins hver fyrir sig, þá eru menn og skyldir til að leggja fram gjöldin fyrir aðra svo sem nú segir: a. Kvongaðir menn eiga að inna af hendi styrktarsjóðsgjald fyrir konur sínar, meðan hjónabandinu er ekki slitið með lögum, enda séu þau til heimilis i sama hreppi. b. Foreldrar og fósturforeldrar eiga að inna af hendi styrktarsjóðsgjald fyrir börn sín og uppeldisbörn, sem vinna hjá þeim, eru á þeirra vegum eða þeir kosta til náms. c. Húsbændur eiga að greiða styrktar- sjóðsgjald fyrir hjú sín og annað þjónustufólk sitt. d. Iðnaðarmenn eiga að greiða styrktar- sjóðsgjald fyrir starfsmenn (iðnnema og sveina) sína. e. Kaupmenn, verzlunarstjórar og aðrir verkveitendur eiga að greiða styrkt- arsjóðsgjald fyrir þá, sem eru f fastri þjónustu hjá þeim, ef þeir ekki sjálf- ir eiga heimili forstöðu að veita. f. Húsráðendur eiga að greiða styrkt- arsjóðsgjald fyrir lausamenn og lausa- konur, sem hjá þeim hafa lögheim- ili síðasta vistarár, svo og fyrir hús- menn, sem ekki hafa húsnæði út af fyrir sig. Nú eru þessir menn öreigar að áliti hreppsnefndar eða bæjarstjórnar, og fellur þá niður skylda þeirra til að greiða styrkt- sjóðsgjöld fyrir aðra, sem þá skulu sjálfir greiða gjaldið. Þeir, sem greiða styrkt- arsjóðsgjöld fyrir aðra, hafa rétt til þess, að telja þau þeim til skuldar, sem gjald- skyldir eru, svo og til að halda gjaldinu eptir af kaupi þeirra eða launum. 9' gr. 1 kaupstöðum skulu bæjarfóget- ar, en í sveitum sýslumenn, innheimta gjaldið á manntalsþingum og koma því á vöxtu í aðaldeild Söfnunarsjóðsins. Inn- heimtumenn fá 2°/0 fyrir innheimtuna. 10. gr. í kaupstöðum skulu bæjarfó- getar, en í hreppum sýslumenn, hafa á hendi reikningshald sjóðanna og geyma eignarskilríki þeirra. Reikningar sjóðanna fyrir hvert ár skulu fyrir lok janúarmán- aðar sendir hlutaðeigandi bæjarstjórn eða sýslunefnd og kýs bæjarstjórnin eða sýslu- nefndin 2 menn til að endurskoða þá, en bæjarstjórnin eða sýslunefndin úrskurðar reikningana. í kaupstöðum sendir bæjar- stjórnin stjórnarráðinu árlega skýrslu um hag ellistyrktarsjóðanna; samskonarskýrslu sendir sýslunefndin stjórnarráðinu. I stjórn- artíðindunum skal árlega birta skýrslu um hag styrktarsjóðanna í hverjum kaupstað og hverri sýslu. 11. gr. Árgjöld til ellistyrktarsjóðanna má taka lögtaki samkvæmt lögum 16. desbr. 1885 um lögtak eða fjárnám án undanfarins dóms eða sáttar, og hafa styrktarsjóðsgjöld sama forgangsrétt í dánar- eða þrotabúi gjaldenda, eins og skattar eða gjöld til landssjóðs. 12. gr. I hverjum kaupstað og hreppi skal á ári hverju að jafnaði, ef verðugir umsækjendur hafa gefið sig fram, úthluta 2/3 hlutum af gjaldi því, er það ár ber að greiða til ellistyrktarsjóðsins í kaupstaðn- um eða hreppnum, og ennfremur hálfum styrk þeim, er lagður er til styrktarsjóðs- ins úr landssjóði á árinu, svo og hálfum vöxtunum af styrktarsjóðnum fyrir næsta ár á undan. 13- gr- Sýslumaður skal fyrir lok júlí- mánaðar ár hvert skýra hreppsnefndunum frá því, hve mikil upphæð komi til út- hlutunar á árinu úr styrktarsjóðum hrepp- anna, og hin sama skylda hvílir á bæjar- fógetanum gagnvart bæjarstjórn, en hrepps- nefndir og bæjarstjórnir skulu sfðan birta þetta í hreppnum eða kaupstaðnum á venjulegan hátt fyrir lok ágústmánaðar. 14. gr. Styrk þann, er árlega skal út- hluta, veita bæjarstjórnir og hreppsnefndir ellihrumum fátæklingum, sem eru fullra 60 ára að aldri eða þar yfir, og heima eiga í hreppnum eða kaupstaðnum, án tillits til þess, hvar þeir eru sveitlægir, svo framarlega sem umsækjandi á framfærslu- rétt hér á landi og hefir ekki þegið sveitarstyrk 5 síðustu árin; þó er sveitar- stjórn heimilt að veita konu, er skilið hefur við mann sinn að borði og sæng eða að lögum eða orðið ekkja, ellistyrk, þótt maður hennar hafi þegið sveitarstyrk meðan þau voru saman og eigi séu liðin 5 ár frá því hann þáði af sveit. Þegar sérstakar, knýjandi ástæður eru fyrir hendi, er sveitarstjórn enn fremur heimilt að veita styrk þann, er hér um ræðir, heilsubiluðum fátæklingum, þótt ekki séu þeir orðnir sextugir að aldri. Styrkur til lækninga, borgun fyrir með- ul, sjúkrahúsvist, umbúðir og slíkt, telst eigi sveitarstyrkur, þá er um ellistyrk er að ræða. Við úthlutun styrksins skal einkum hafa fyrir augum, hve mikil og brýn þörf um- sækjanda er og hvort hann er reglusamur og vandaður maður. 15. gr. Þeir, er vilja fá styrk úr elli- styrktarsjóði, skulu fyrir lok september- mánaðar ár hvert senda skriflega beiðni um styrkinn til hlutaðeigandi bæjarstjórn- ar eða hreppsnefndar, og á umsóknar- bréfið að fela í sér þær upplýsingar, sem með þart til þess að geta dæmt um verð- leika umsækjanda. Beiðninni skulu fylgja vottorð einhvers málsmetandi manns um það, að upplýs- ingar þær, er í beiðninni standa, séu sannar. 16. gr. Styrkurinn veitist fyrir lok októbermánaðar. Hann veitist fyrir eitt ár í senn, og má ekki vera undir 20 krón- um og ekki yfir 200 kr. Landsstjórnin setur nánari reglur um úthlutun styrksins. 17. gr. Ef engin umsókn um styrk úr ellistyrktarsjóði berst til bæjarstjórnareða hreppsnefndar eða aðrar gildar ástæður valda þvf, að eigi þykir rétt að úthluta öllu því fé, sem um er rætt í 11. gr., skal það, sem afgangs verður, lagt við inn- stæðu sjóðsins. 18. Lög þessi öðlast gildi i.jan. 1910 og ber að innheimta ellistyrktarsjóðsgjöld samkvæmt þeim 1 fyrsta skipti á mann- talsþingum 1910. 19. gr. Lög um styrktarsjóði handa alþýðufólki 11. júlí 1890 og lög um breyt- ing á lögum um styrktarsjóði handa al- þýðufólki 18. desbr. 1897 eru úr lögum numin. €rlenð símskeyti til Pjóðólfs. Kaupmannahöfn 16. apríl. Stjórnarbyltingin i Miklagardi. Ungtyrkir aflstola. Dómsmátaráð- herrann myrtur. Apturhaldsmenn komnir að völdum. 21. april. Ungtyrkjum hefur borizt herhjálp frá skattlöndunum; sitja um Mikla- garð. Sigur vís. Heimta soldán af- settan og upphlaupsmönnum hegnt. Enn frá dr. Berlin. Berlin getur þess, að sitji hann 1 sam- bandslaganefnd einhverntíma síðarmeir, mundi hann getað hugsað til að samþykkja stórum meira sjálfstæði til handa íslandi, en gert sé í Uppkastinu og jafnvel fullan skilnað. * * * Fréttimar frá Miklagarði eru mjög í- skyggilegar, því að stjórnarbylting þessi getur hæglega orðið ægilegt ófriðartund- ur hér í Norðurálfu. Talið eflaust að sol- dán muni hafa verið í vitorði um allt þetta og lagt ráðin á. Abdul Hamid er alræmdur undirhyggjumaður og ekki hjart- veikislega vandur að meðulum. Eptir síð- ara skeytinu að dæma er svo að sjá, sem völdum soldáns sé hætta búin og að Ung- tyrkjar beri hærra hlut. Ummæli dr. Berlins, séu þau rétt höfð eptir honum, verða aðeins að skoðast sem marklaust gaspur, sem ekkert verður byggt á. Drukknun. Einar Einarsson, frá Skildinganesi, skip- stjóri á »Sigurfaranum«, eign H. P. Duss- verslunar o. fl., tók út 21. þ. m. fram und- an Selvogsbanka, og drukknaði. Hann var 27 ára að aldri, ókvæntur. Dálnn er hér í hænum að kveldi 20. þ. m. Sigurður Jónsson fyrv. fangavörður, rúmlega sjötugur að aldri, fæddur 31. jan. 1839 á Kirkjubæjarklaustri, sonur Jóns Guðmundssonar sfðar ritstj. Þjóðólfs og Hólmfríðar Þorvaldsdóttur próf. í Holti Böðvarssonar. Sigurður nam fyrst beykisiðn og rak þá atvinnu hér í bænum um hríð, en gerð- ist fangavörður 1873 er hegningarhúsið var reist, og hélt þeim starfa til 1. sept. 1907 og veitti alþingi 1907 honum 800 kr. í eptirlaun. • Hann var tvíkvæntur, og var fyrri kona hans Þuríður Guðmundsdóttir, og er einka- dóttir þeirra Hólmfríður gipt Maríasi Guðmundssyni íshúsverði á Isafirði. — Síðari kona Sig., sem lifir hann, er dönsk Marie (f. Nissen) ættuð frá Sönderborg á AIs, og kom hún hingað 1865 sem þjón- ustustúlka Hilmars Finsens stiptamtmanns; þau áttu 11 börn og dóu 3 þeirra á unga aldri, Þorvaldur, Þórunn og Amalía, en hin eru á lífi: Ágúst prentari, Þurlður kaupkona, Jón verzIUnarmaður á Stokks- eyri, Kristfn kona Helga Helgasonar verzlunarmanns í Rvík, Haraldur stúdent, verzlunarm. í Rvík, Amalía kona Sigurðar Þorsteinssonar verzlunarm. í Rvik, Þor- valdur húsgagnasmiður og María kona Vigfúsar Guðbrandssonar klæðskera í Hafnarfirði. Dóttir Sig. heit. er og Sig- ríður forstöðukona matsöluhússins »Skjald- breið« í Rvík. — Sig. fangavörður var ráðdeildarmaður, hygginn og gætinn og kom sér hvervetna vel. Þjóflviljinn fer ekki alskostar rétt með skýrsluna í sfðasta Þjóðófii um ráðstefnu alþingisfor- setanna "við Neergaard forsætisráðherra. Sú skýrsla um þessa ráðstefnu, er Ritzau var send, var hvorki undirskrifuð af Neergard eða forsetunum, svo nafn mitt til undirskriptar þurfti ekki undir hana, heldur að eins munnlegt samþykki á efni hennar, en eg tek það aptur fram, að þótt ekki næðist til mín um samþykki á slðustu málsgreininni, sem Þjóðv. verður svo skrafdrjúgt um, þá skiptir það harla litlu, því að eg sé alls enga ástæðu til að gera svo mikið veður úr niðurlagsorðum þessarar klausu, eins og blaðið gerir. Segi eg þetta ekki aí þvl, að eg vilji bera nokkurt blak af samferðamönnum mínum, því að þess þarf ekki. Þeireiga alls engar ákúrur skilið, þótt þeir létu það eptir Neergaard að orða síðustu máls- greinina á þann hátt, sem nú er kunnugt. Og það má heita einber hégómi að vera að toga nokkurn afslátt eða uppgjöf á nokkrum sköpuðum hlut út úr því orða- lagi. H. Þ. Kappglfma var haldin hér í gærkveldi í Iðnaðar- mannahúsinu. Var þar glímt í 5 flokkum eptir þyngd glímumannanna, og hefur það ekki áður tíðkazt við fslenzka glímu, en er algengt við ýmsar líkamsíþróttir er- lendis og þykir vel gefast. Verðlaun (heiðurspeningar), alls 5, einn handa bezta glímumanni hvers flokks. Þess- ir fengu verðlaun: I 1. flokki Sigurjón Pétursson. - 2. — Hallgr. Benediktsson. - 3. — Halldór Hansen. - 4- — Guðm. Sigurjónsson. - 5- — Ólafur Magnússon. Þess skal getið, að Sigurjón Pétursson er verðlaun vann í 1. flokki var í 2. þyngd- arflokki. Sá eini, sem var 1 1. þyngdar- flokki (165 pd.) Guðmundur Stefánsson, náði ekki verðlaunum þar í þetta sinn, en hafði ekki leyfi til að gllma í öðrum (léttari) flokki. Annars eru þeir þrír, G. St., Hallgrfmur og Sigurjón harla jafnir að glímufrækleik. — Skemmtunin var vel sótt. Skipaferfllr. »Prospero« kom frá útlöndum og Austtjörðum 12. þ. m. og fór vestur og norður umland 16. þ. m. með allmarga far- þega, þar á meðal voru fulltrúar kaupfélags- fundarins, Unnur Benediktsdóttir skáld- kona, Gísli J. Ólafsson símritari og unn- usta hans Polly Grönvold. »Sterling« fór til útlanda 19. þ. m. og »Laura« 21. þ. m. með eitthvað af farþegum. Veturlnn sem kvaddi oss í fyrra dag, hefur verið einhver hinn bezti í manna minnum, að minnsta kosti hér á Suðurlandi, frost nálega engin, og snjókoma óvenju lítil, yfirléitt sífelldar stillur og góðviðri og úrkoma með langminnsta móti, engin of- viðri verið síðan um áramót, ogjörð opt- ast nær auð Skepnuhöld ágæt í sveitum og sumstaðar búið að sleppa öllu fé. Látinn er 1 Uppsölum 1 Svfþjóð 15. f. m. Rolf Arpi umsjónarmaður við fornmenjasafn þar. Hann var vel að sér í íslenskri tungu og bókmentum, og hafði komið 4 sinnum hingað til lands (1873, 74, 81 og 83) og verið hér eitt skipti vetrarlangt. Ferðaðist hann víða um land og varð mjög kunnur þjóð vorri og henni mjög hlinntur, en ritaði fremur fátt. Hann var kominn hátt á sextugsaldur er hann létst. Slyeför. Hinn 27 f. m. varð maður úti í svo- nefndri Óshlíð millum Seljalands og Bol- ungarvíkur. Hann hét Ingvar Magnús- son, maður á besta aldri.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.