Þjóðólfur - 07.01.1910, Blaðsíða 4

Þjóðólfur - 07.01.1910, Blaðsíða 4
4 þjoðolfur; - Andlitsmyndir Ingólfs. Ingólfur, blað þeirra andbanninga, get- ur nú ekki lengur lifað á tómu brenni- víni, og örvæntir auðsjáanlega, að hann geti lengur framfleytt sér og sínum á slíku góðgæti. Hefir hann nú um tíma leitað sér atvinnu með því, að láta ein- hverja nafnlausa flysjunga hlaupa í höf- uð á ýmsum heiðurs- og sæmdarmönn- um bæarins, með flimtan og svívirðingu. Ætlar hann auðsjáanlega að framdraga lífið með því, og hyggur vfst, að alþýða manna sé svo óvönduð, að helst muni hún hafa skemtun af þvílíkri háðung. En það get eg þó sagt Ingólfi, og eig- endum hans, að allir heiðvirðir menn, er á það hafa minst, og eru þeir margir, hafa undantekningarlaust lýst fyrirlitning sinni á þessu athæfi. Ingólfur virtist líka fyrst ætla einmitt að leggjast á lítilmagnann, og tók þá fyrir gamlan og heiðarlegan ráðvendnis- mann hér í bænum, sem aldrei hefir lagt neitt til neins manns. Því næst fór Ing- ólfur að fikra sig uppeftir, og hljóp að kvenmanni, einni bæarstjórnarkonunni.— Þá tók hann fyrir einn bóksala bæarins, framtakssaman og duglegan mann, og virtist helst hafa það út á hann að setja, að hann hafði eitt sinn stundað skó- sroíði, þessa óheiðarlegu atvinnu(ii). Síðan fór hann upp til umboðsmanns i Svía, þjóðar, sem einmitt er vinveitt ís- lendingum, og brá blaðið konsúlnum um ýmislegt það, sem það mundi geta feng- I ið dóm fyrir, ef svo mikið yrði haft við , það, að lögsækja það. Og nú um ára- 1 mótin hefir Ingólfur lagt að fyrsta þing- manni Reykvíkinga, og haugar saman um hann þeirri endemis-vitleysu, sem hefir og hlýtur að hafa hvers manns fyrirlitn- ingu; og má það enda segja um allar greinarnar. Ekki hafa þessar andlitsmyndir Ingólfs einusinni það til síns ágætis, að þær séu þolanlega ritaðar, því klaufaskapurinn og aulahátturinn helst þar í hendur við ilt áform, að reyna að gera góðum mönn- um óvirðingu. Eigendur þessa blaðs, eru margir þeir, sem halda sig sjálfir heldri menn þessa bæar, og í stjórn útgáfufélags- ins kváðu þeir vera: Magnús dýralæknir, Sigurður Thoroddsen og Halldór Daní- elsson. Ótrúlegt mætti það vera, ef þessir menn vildu vera þektir að því, að láta sín getið við annað eins blað og Ingólf. Mikið aðdráttarafl hefir þá brennivínið. Reyndar dettur engum í hug að neinn þeirra hafi samið smánargreinar þessar, en hitt liggur 1 augum uppi, að vel hefðu þeir getað stöðvað þær, ef þeim hefði verið um það hugað. Hitt er líka almannarómur, að ritstjór- inn, Konráð Stefáns son heitirhann, sem lítið merkisorð fer af, hafi skrifað þessar greinar sjálfur, sumarhverjar. Svo er og sagt að Magnús nokkur Jóns- son, sem kvað vera á prestaskólanum(H) sé eitthvað við þær riðinn líka, þó ótrú- legt sé; enda bera þessir menn sjálfsagt af sér, sé almannarómurinn rangur, en séú þeir sannir að sök, þá gætiveriðum- talsmál hvort ekki væri heppilegast að Ingólfur sendi ritstjóra sinn, Konráð Stef- ánsson, sem fyrst á sína eigin sveit, því þessi atvinna virðist varla geta orðið til frambúðar, og óreynt, hvort honum læt- ur til hlítar nokkurt nýtilegt starf. Jafn- framt er það álitamál, hvort prestaskól- inn væri ekki betur sæmdur af einhverju öðru en því, að piltar þeir er á hann ganga, temdu sér öðruvísi siðgæði og munnsöfnuð, en Ingólfur lætur sér sæma. Hinsvegar mega bannmenn vera mjög glaðir yfir þessari framkomu Ingólfs, og vona eg að þjóðin sjái, hve heiðarleg vopn Ingólfur notar í baráttunni, og hún dæmi hann sem maklegt er. Knötlur. Hvað er að frétta? Þórunn Kjörnsdóltir ljósmóðir varð fimtug 30. Des., og héldu 160 konur henni þá heiðurssamsæti á Hótel Reykja- vík og færðu henni að gjöf vandað skrif- borð og stól, er Jón Halldórsson trésmiður hafði smíðað og fleiri muni. Þær færðu henni og skrautritað ávarp er yfir 200 konur undirrituðu. — Þórunn hefur gegnt ljósmóðurstörfum síðan 1883, og hefir hún tekið á móti 734 drengjum og 8og stúlkum. 31 tvíburum og 1 þríbur- um hefir hún tekið á móti. — Vel hefir henni jafnar farist Ijósmóðurstörfin. Elsta konan, er hún hefur setið yfir, var 48 ára, en sú yngsta 15 ára. Heilsuhælinu á Vífilsstöðum gaf hún 50 krónur. Magnós Blöndahl alþingism. hefir látið af framkvæmdarstjórastörfum við trésmíða- verksmiðjuna »Völund«, er hann hefir haft á hendi síðan hún komst á fót 1904. Framkvædarstjóri er þar nú enginn. í stjórn »Völundar« eru: Guðm. Jakobsson, Hjörtur Hjartarson og Sveinn Jónsson trésmiðir. Kjörstjórn við næstu bæarstjórnar- kosningu, er fer fram hér í bænum 29. þ. m. skipa þeir Páll borgarstjóri Einars- sou, Kristján Ó. Þorgrímsson konsúll og Klemens Jónsson landritari. í bæarstjórn á Seyðisflrði hafa nýlega verið kosin Kristján Kristjánsson læknir og frú Solveig Jónsdóttir, kona Jóns pönt- unarstjóra Stefánssonar, en dóttir Jóns alþm. í Múla. Hún er rúmlega hálf þrítug (fædd 30. apríl 1884), og líklega yngst allra þeirra, er kosnir hafa verið í bæar- stjórn. Séra Jóni Bjarnasyni í Winnpeg var haldið heiðurssamsæti 15. f. m. og voru þá liðin 25 ár, frá því hann tókst á hendur þjónusta í fyrsta lúterska söfnuðinum f Winnipeg. Hann fór fyrst vestur 1874 og var þar þá t;l 1879 og gegndi þá bæði prestsembætti og kennara meðal Islend- inga, en árið 1880—1884 þjónaði hann D, ergasteini. — Séra Jón hefir og verið ritstjóri Sameiningarinnar síðan hún hóf göngu slna í Mars 1886, og formaður kirkjufélags Vestur-íslendinga var hann 1885—1908. Sundfélagið »fírettir« hér í bænum stofn- aði til kappsunds á höfninni á Nýársdag, og tóku 5 þátt í því. Fljótastur varð Stefán Ólafsson frá Fúlutjörn. Hann synti 50 stikur á 48 sek. og hlaut slifur- bikar, er Guðjón Sigurðsson úrsmiður hefir gefið félaginu til verðlauna. íeikfélag Reykjaviknr. Leikið: sunnud. O. jan. KI. $ síðd. í IAnaðarmannaliúsinu. Tekið á móti pöntnnnm í af'grreiðslustofu ísafoldar. Vantar af fjalli veturgamlan fola, ljósan að lit; mark: gagnfj. h. (granngert), biti fr. v. Sá er hitta kynni nefndan fola, er beðinn að láta undúskrifaðan vita. Laugardalshólum 12. des. 1909. Ingvar Grímsson. nýan og vandaðan sel eg um tíma með afslætti ísl. sög-u- og ljóðabækur kaupi eg, og borga þær samstundis í peningum sem aðeins hvíla á veðdeildarskuldir, kaupi eg, og borga að nokkru í peningum. ýmiskonar kaupi eg, þó þau aðallega, sem trygð eru með fasteignum, og borga þau með peningum. í peningaleysinu ætti þetta að koma mönnum vel. Jóh. Jóhannesson Ritfong svo sem: Pappír margskonar tegundir, Umslög, §tílahækur, mik- ið úrval. Ulek á liittum og brúsum, Pennar fleiri tegundir; Skóla- krít og Skólaf öskur. Teiknibækur og blýantar, verða seld sérstaklega ódýrl í versluninni „BBE1ÐABLIK“ L ælijargötii lO JB Ritstjóri og ábyrgöarmaöur: Pétur Zóphóníttsson. IXý i ** og skilvísir kaupendur fá ókeypis um leið og blaðið er borgað: 1. Roðney Stone, skáldsaga eftir hið fræga skáld Englendinga, Conan Doyle, 168 bls. í störu broti og prentuð með smáu letri. 2. íslenskir sagnaþsttir. 2. hefti, 80 bls. Þar er í F’áttur af Árna Grimssyni, ersig nefndi síöar Einar Jónsson, eftir Gísla Konráðsson. Frá Bjarna presti í Möðrudal. Draugasaga. Um Hjaltastaðafjandann. Mjög merkileg og áður ókunn frá- saga um þennan merkilega anda eða fjanda. Rituð af samtíðarmanni sjónar- og heyrnarvotti. Frá Eiríki Styrbjarnarsyni og frá Metusaiem sterka í Möðrudal. 3. VesturfSrin, 60 bls. Sönn saga um Ame- ríkufara. Rituð af greindum bónda, er fór til Ameríku og dvaldi þar. Ennfremur verður full- prentað á þessu ári: 4. islenskir sagnaþæftir, 3. hefti. Par í verður meðat annars: Fáttur af Kristínu Páisdóttur úr Borgarfirði vestra og Sagnir úr Austfjörðum. Árgangurinn kost- »** 4 krónur, og er gjalddagiim 15. jiilí. Afgreiðsla blaðsins er á Laugaveg 19 (austurenclanum). Afgreiðslum. er: Jóliaiiu Hrisf jáiissou. Venjulegast að hiita kl. 11—1 og 4—6 hvern virk- an dag, og ojt endranœr. Prentsmiðjan Gutenberg.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.