Þjóðólfur - 14.01.1910, Side 1
62. árg.
Tóuskinn,
li v í t og m ó r a u ð, kaupir
verslun
Gunnars F’orbjörnssonar.
funður á Sauðárkróki
um bankamálið.
Skagfirðingar mótmæla
stjórninni.
Aliir óska aukaþings.
í tilefni af afsetningu gæslustjóra
Landsbankans, sendu þingmenn
Skagfirðinga í f. m. svohljóðandi
bréf til allra hreppsnefndaroddvita
sýslunnar:
y>Með því að hœpið þykir, að
siðustu aðfarir landsstjórnarinnar
gagnvart Landsbankanum séu að
öllu leyti í fullu samrœmi við rétt-
an skilning gildandi laga, og það
kunni að geta haft spillandi áhrif
á lánstraust bankans í útlöndum
og verkað lamandi á verslun þess
utanlands og innan, þá virðist
naaðsynlegt, að þjóðin, þegar nán-
ari sktjringar eru fengnar, taki
fasta ákvörðun l máli þessu, og
reyni eftir föngum að hefta þœr
afleiðingar, sem hœttulegar \má
telja.
Af þessum orsökum höfum víð
fundið okkur skylt, að boða til al-
menns fundcr, er haldinn verður á
Sauðárkróki laugardaginn 8. Jan.
nœstk, kl. 12 á hádegi, og biðjum
við yður, hetra oddviti, að sjá um,
að kosnir vetði 2 menn til að sœkja
fundinn sem fulltrúar fyrir yðar
hrepp.
Svo er til etlast, að fulltrúar ein-
ir hafi atkvœéisrétt.
Á fundinum verður borin upp
tillaga um, að skora á ráðherra
að hlutast til iim, að kvatt verði til
aukaþings á komandi vori eða
sumri.
Ólafur Briem. Jösef J. Björnsson«.
Samkvæmt fundarboði þessu íóru
fram kosningar í hreppunum, og
hinn 8. þ. m. hófst fundurinn á
Sauðársrók, og voru þar mættir
fulltrúar frá öllum hreppum nema,
Fellshreppi.
Hinir mættu fulltrúar voru þessir:
Úr Holtshreppi:
Guðm. Davlðsson hreppstj., Hraunum.
Jða Sigurðsson, Brúnastöðum.
Úr Haganeshreppi:
Sr. Jónmundur Halldórsson, Earði.
Páll Árnason hreppst., Mói.
Úr Hofshreppi:
Jón Konráðsson hreppstj., Bæ.
Þorleifur Rögnvaldsson, Stóragerði.
Úr Hólahreppi:
Jón Sigurðsson oddviti, Skúfstöðum.
Sigurður Sigurðsson kennari, Hólum.
Ur Viðvlkurhreppi:
Hartmann Ásgrlmsson kaupm., Kolkuósi.
Sigurður Pétursson óðalsb., Hotsstöðum.
Úr Akrahreppi:
Gísli Sigurðsson óðalsb., Víðivöllum.
Rögnvaldur Björnás. óðaJsb., Réttarholti.
Úr Lýtingsstaðahreppi:
Björn Þorláksson óðalsb., Kolgröf.
Sigm. Andrésson óðalsb., Vindheimum.
Úr Seiluhreppi:
Tómas Magnúss. óðalsb., Geldingaholti.
Þorvaldur Arason póstafgr.m., Víðimýri.
Úr Staðarhreppi:
Árni J. Hafstað búfr., Vík.
Jón Jónsson hreppstjóri, Hafsteinsstöðum.
Úr Sauðárhreppi:
BenediktSölvas. oddv., Ingveldarstöðum.
Björn Jónsson hreppstj., Veðramóti.
Úr Sauðárkrókshreppi:
Sr. Árni Björnsson prófastur, Sauðárkrók.
Sigurgeir Daníelsson spttalahaldari.
Úr Skefilsstaðahreppi:
Sr. Arnór Árnason, Hvammi.
Jóhann Sigurðsson hreppstj., Sævarlandi.
Úr Rípurhreppi:
Guðmundur Ólafsson óðalsb., Ási.
Jónas Jónsson hreppstj., Hróarsdal.
Fundurinn hófst einni stundu
eftir hádegi og stóð til náttmála.
Fundarstjóri var Páll V. Bjarna-
son sýslumaður.
Skrifari fundarins síra Jónmund-
ur Halldórsson á Barði í Fljótum.
Fulltrúar einir höfðu atkvæðis-
rétt, en fundarmenn allir málfrelsi
og tillögurétt.
Þær 8 klukkustundir, sem fund-
urinn stóð yfir, var jafnan húsfyllir.
Umræður urðu miklar og töl-
uðu margir.
Bar fundarmönnum saman um,
að lögbrot væri framið á rétti al-
þingis og gæslustjórum þess, og að
aðfarir stjórnarinnar í bankamál-
inu væru óafsakanlegar.
Enginn ágreiningur var um ó-
hæfa framkomu ráðherra í banka-
málinu. Fundarmenn gátu að eins
ekki allir orðið á eitt sáttir um
það, hvað gera skyldi, hvers þjóð-
in skyldi kreQast.
Tillaga kom fram á fundinum
frá þingmönnunum og krafðist
hún aukuþings.
Sigurður Sigurðsson kennari á
Hólum, fulltrúi fyrir Hólahrepp,
bar fram tillögu um, að kosin væri
5 manna nefnd til þess að orða
tillögu fyrir fundinn, en síðar tók
hann tillögu þá aftur, og bar þá
fram tillögu um, að hinir löglega
kosnu gœslustjórar yrðu af ráð-
herra settir inn i stöðu sína aftur,
að öðrum kosti á hann skorað, að
hlutast til um, að kvatt yrði til
aukaþings hið allra bráðasta.
En þingmennirnir mæltu með
sinni tillögu, og mun þeim hafa
þótt tillaga Sigurðar kennara full-
skörp, — vildu bersýnilega skjóta
ráðherra undan kröfu um svo
mikla auðmýkt frá hans hálfu, að
hann setti gæslustjórana inn í
stöðu sína aftur, eftir að hann þ.
3. þ. m. var búinn að lýsa því
yfir, að hann ætlaði sér það ekki.
Báðar þessar tillögur, bæði þing-
mannanna og Sigurðar kennara,
fóru fram á aukaþing.
Mæltu allir með því nema 3
menn; 2 þeirra hreyfðu mótmæl-
um gegn aukaþingi, en mœltu ráð-
herra þar fyrir enga bót í málinu,
töldu, að ýmislegt hefði átt að vera
þar ógert, þótt hins vegar yrði ekki
lagður neinn fullnaðardómur á ráð-
herra, meðan nægjanlegar skýrsl-
ur væru enn ekki fengnar.
Mótmæli sin gegn aukaþingi
bygðu þeir á þvi, að það eftir at-
vikum fengist naumast saman fyr
en á áliðnu sumri, og væri þá
skemst eftir til reglulegs alþingis í
Febrúar.
Þá var því hreyft, að heyrst
hefði, að ráðherra mundi ætla sér
að stilla svo til, að reglulegt al-
þingi skyldi ekki koma saman fyr
en í maí eða júní næsta ár.
Bar þá hinn þriðji þeirra félaga,
Hartmann kaupmaður Ásgrímsson,
er mótfallnir voru aukaþingi, fram
tillögu um að bankamálið, fyrir
greindar sakir, yrði látið bíða reglu-
legs alþingis, en þess jafníramt
krafist, að reglulegt alþingi kæmi
saman í Febrúar.
Fulltrúar skiftust um þessar 3
tillögur: tillögu þingmannanna, til-
lögu Sigurðar kennara og hina
síðast töldu tillögu.
Loks var gengið til atkvæða, og
bar þá fundarstjóri fyrst upp til-
lögu þingmannanna.
Hún er svohljóðandi:
r>Með þvt að það er álit fundarins,
1, að landsstjórnina eftir lög-
um um stofnun Landsbanka
bresti heimild til að víkja gœslu-
stjórunum frá til fullnaðar, eða
skipa gœslustjóra til langframa
að fornspurðu alþingi, sem eitt
hefur rétt og skyldu til að kjósa
menn í þá tiúnaðarstöðU,
2, að slíkt vald, og þar af leiðandi
ótakmörkuð yfirráð eins manns
yfir bankanum, sé viðsjárverð,
og þannig lagað fordœmi gœti
verið hcettulegt vopn i höndum
hverrar stjórnar,
3, að þjóðin eigi örðugt með að
komast að réttri niðurstöðu í
málinu, meðan ötl rök fyrir frá-
vikningu bankastjórnar eru ekki
lögð fyrir þingið til rannsóknar,
— tclur fundurinn nauðsynlegt,
að alþingi gefist sem fyrst kost-
ur á að kynna sér alt sem
bankastjórnin er sökuð um,
meta gildi þess, og kjósa gœslu-
stjóra, ef þörf krefur.
Fundurinn skorar þyí á ráð-
herra, að hlutast til um að kvatt
verði til aukaþings hið bráðasian.
Tillaga þessi var samþykt með
15 atkvæðum gegn 11.
Þar með taldi fundarstjóri hinar
aðrar tillögur fallnar.
Gegn tillögu þessari greiddu at-
kvæði Sigurður kennari Sigurðs-
son á Hólum og þeir, er honum
fylgdu að málum og hans tillögu.
Þeir skýra svo frá, að þeir hefðu
greitt tillögu þingmannanna at-
kvæði sitt, ef þeirra tillaga, semer
hvassari og að því leyti betri, hefði
fyr komið iil atkvœða og fallið.
Þeir einir voru þvi á móti kjarna
þess, er í milli bar, aukaþingi, sem
fresta vildu bankamálinu til reglu-
legs alþingis, gegn því að það kæmi
saman í Febrúar, en ekki nema 3
menn tjáðu sig þvi fylgjandi, eins
og þegar hefur verið tekið fram.
En fundarmenn vorn cindregnir
á móti ráðherra í öliu atferli hans
gagnvart Landsbankanum.
Fundurinn fal þingmönnunum
að bii'ta ráðherra áskorun fundar-
ins þegar í stað með símskeyti, og
aðalefni röksemdanna. Ennfrem-
ur var þeim falið að sjá um, að
ráðherra verði með næsta pósti
send skýrsla um fundinn.
fyrrum dómstjóri landsyfirréttar, andaðist
hér í baenum að kveldi 7. þ. m. Hann
var fæddur 30. Ágúst 1834 1 Reykjavlk,
og voru foreldrar hans Edvard Thomsen,
er síðar var verslunarstjóri í Vestmanna-
eyrjum, og Kiistín Lárusdóttir kaupmanns
1 Reyjavík Knudsens. Móðir hennar var
Margrét dóttir Lárusar beykis í Stykkis-
hólmi og Guðrúnar Þorbergsdóttur prests
á Eyri 1 Skutilsfirði, Einarssonar í Reykj-
arfirði á Ströndum, Jónssonar 1 Reykjar-
firði, Björnssonar járnsmiðs, Sveinssonar
prests í Holti í Önundarfirði (er var faðir
Brynjólfs biskups) Sveinssonar.
Kirstín móðir hans giftist þá hann var
6 ára Þórði Sveinbjörnssyni háyfirdómara
og tók hann drenginn að sér og gaf hon-
um nafn sitt. Sveinbjörn tónskáld í Edin-
borg er sonur þeirra. L. E. Sveinbjörns-
son útskrifaðist úr Reykjavíkurskóla 1855
með i. eink., tók próf í lögum við há-
skólann 15. Júní 1863 með 1. eink. —
Meðan hann dvaldi við laganám, varð
hann kennari elsta sonar Blixsen Finecke
baróns, er átti systur Lovísu Danadrotn-
ingar og sýnir það ljóst, 1 hvað miklu áliti
hann hefir verið. Var hann þar 2—3 ár,