Þjóðólfur - 19.08.1910, Qupperneq 4
136
ÞJOÐOLFUR.
upp ekki einungis árlega, heldur mánað-
aðarlega, — þannig, að hann kemur heim
við bækur bankans. Hver upphæð hefir
verið færð á 5 stöðum: 1) 1 viðskifta-
bókina, 2) í höfuðbók sparisjóðsins, 3) og
4) í sína dagbókina hjá hvorum spari-
sjóðsmanni, og 5) hjá féhirði.
Bækurnar eru allar til sýnis, sem þegj-
andi vitni þess, að þessi ákæra er upp-
spuni.
V.
1. Ákæra: Reikningsskekkja í spari-
sjóðsbókunum, sem nemur yfir 48 kr.
2. Svar: Þetta er satt, getur komið
fyrir hjá hverjum sem er. Hér er að
ræða um tvær miljónir (2,600,000) og sex
hundruð þúsund króna, skiftar niður í
ellefu þúsund (11,000) inneigendur. Mik-
il fyrirhöfn og kostnaður, að reikna þnð
alt yfir, til þess að finna, hvar skekkjan
er. Bankastjórnin áleit það ekki borga
sig, að eyða til þess tíma og fé.
VI.
1. Akæra: Reikningar bankans ekki
endurskoðaðir né úrskurðaðir.
2. Svar: Bankastjórnin hefir ætíð
samið reikninga bankans á réttum tíma,
afgreitt þá til stjórnarráðsins og jafnframt
séð um, að þeir væru birtir í almennings-
blöðum. Þetta er alt það, sem hún var
skyldug að gera. Endurskoðun og úr-
skurðun komu bankastjórninni ekkert við,
annar endurskoðunarmaður skipaður af
stjórninni og hinn kosinu af alþingi; úr-
skurður reikninganna heyrir undir- stjórn-
arráðið. Þetta hvorttveggja er banka-
stjórninni óviðkomandi. Dagleg endur-
skoðun á bókum bankans hefir öll und-
anfarin ár farið reglulega fram.
VII.
1. Ákæra: Framkvæmdarstjóri hefir
veitt sjálfskuldarábyrgðarlán og víxla, án
þess að gæslustjórarnir, annar eða báðir,
veittu til þess samþykki sitt. Þetta er
beint brot á lögum bankans.
2. Svar: Lög bankans veita fram-
kvæmdarstjóra fult vald til þessa, án sam-
þykkis gæslustjóra. Það er hvergi heimt-
að í lögum bankans; sömu reglu er fylgt
í Islandsbanka.
VIII.
1. Ákæra: Hálft þriðja hundrað víxl-
ar er eigi hafa fylgt útgjaldaskipun skrif-
leg frá framkvæmdarstjóra eða banka-
stjórum, og þeir því ólöglega keyptir af
starfsmönnum bankans, féhirði og bókara.
2. Svar: Hvergi neitt ákvæði í lög-
um bankans um það, hvernig kaupa skuli
víxla: þau fyrirskipa ekkert form fyrir
því, minnást ekki á neinar skriflegar út-
galdaskipanir. —• Munnleg skipun frá
framkvæmdarstjóra eða bankastjórn um
kaup á víxli er fullkomlega lögleg. Sama
í Islandsbanka. Þetta lýsir að eins fá-
fræði nefndarinnar í einföldustu atriðum
bankalaganna.
IX.
1. Á k æ r a: Bankastjórnin ekki athug-
að, hvort nokkuð væri borgað af lánum,
eða hirt um að íhuga, hvort trygging væri
enn örugg eða nægileg eftir að sjálsskuld-
ar ábyrgðarlán voru veitt; ekkert því
borgað af sumum lánum.
2. Svar: Bankastjórnin í heilú sinni
yfirfór a 11 a r eftirstöðvar af greiðslu vaxta
og afborgana af sjálfsfkuldarábyrgðarlán-
tim 3—4 sinnum á ári, og tók þá jafn-
framt ákvarðanir um innheimtuna á eftir-
stöðvum hvers einstaks láns fyrir sig. Á-
kvarðanir þessar framkvæmdi svo fram-
kvæmdarstjóri eftir því, sem hann áleit
heppilegast fyrir bankann. Sbr, 8. gr.
reglugerðar fyrir Landsbankann:
(»Ekki þarf framkvæmdarstjóri þó að
framkvæma ákvörðun gæslusíjóranna, þeg-
ar hann álítur, að bankinn geti haft tjón
af henni«).
X.
1. Ákæra: Bankinn hefir veitt sjálf-
skuldarábyrgðarlán mönnum, er allir vissu
að áttu ekki fyrir skuldum.
2. Svar: Þetta eru ósannindi, gripin
úr lausu lofti. Eignalausum mönnum var
aldrei veitt lán, nema því að eins að í
ábyrgð hafi staðið menn, sem álitin var
var næg trygging að. Bankastjórnin hafði
fulla heimild til þess, samkvæmt lögum
bankans, að lána jafnvel öreiga, ef hann
gat fengið ábyrgðarmenn, sem hún áleit
góða og gilda, og eftir sínu eigin áliti
hafði hún leyfi til að fara. Eða eftir
hverju öðru skyldi hún hafa átt að fara?
(Frh.)
Qeilsuhælisjélagið.
Fundur Reykjavíkurdeildarinnar.
Ár 1910 15. Ágúst var fundur
haldinn í Heilsuhælisfélagsdeild
Reykjavíkur samkvæmt auglýsingu
yfirstjórnar félagsins í nokkrum blöð-
um bæarins. Setti formaður fé-
lagsins, Klemens Jónsson landritari,
fundinn og skýrði frá ástæðunum
fyrir því, að yfirstjórn félagsins hefði
neyðst til að boða til fundarins;
hefði formaður deildarinnar, Þórður
læknir Thoroddsen ekki boðað til
fundar nú í liðug tvö ár, og þrátt
fyrir áskorun um að halda fund
innan 15. Júní þ. á.; væri hann eigi
farinn til þess enn og var lesið upp
bréf yfirstjórnarinnar til formanns-
ins því viðvíkjandi.
Enginn úr stjórn deildarinnar kom
á fundinn.
Formaður bað því næst Olaf frí-
kirkjuprest Ölafsson, að vera tund-
arstjóra, en Jón lækni Rósenkrans
skrifara á fundinum.
Á dagskrá var:
1. Skýrslur og reikningar fyrir
árin 1908 og 1909.
2. Hagur deildarinnar.
3. Kosin ný stjórn.
Eftir reikningum þeim, sem fengist
höfðu, voru 12II meðl. með 1766V2
tillagi árið 1908, en inn höfðu borg-
ast 1591 kr. í tillögum og 491 kr.
í gjöfum. 1909 voru 918 meðl.
með 130274 tillags.
Á árinu 1909 höfðu eftir bréfi
formanns deildarinnar einnig greiðst
eldri gjöld, sem hann kvaðst mundi
gera grein fyrir í reikning fyrir 1908, en
sá reikningur hefur eigi enn komið
frá formanni, heldur að eins stutt
skýrsla; en reikningur fyrir 1909
var þá f reikningsformi, en fylgiskjala-
laus, og höfðu eigi fengist frekari
reikningsskil, þrátt fyrir margítrekað-
ar tilraunir til þess.
Var nokkuð rætt um reikninga
þessa; taldi formaður yfirstjórnarinn-
ar þá svo úr garði gerða, að eigi
væri hægt að endurskoða þá, enda
allar bækur hjá formanni deildarinn-
ar. Áleit hann tvær leiðir mögu-
legar til þess að fá formann til þess
að gera betri skil, annaðhvort yrði
deildin að höfða einkamál gegn hon-
um og fá hann dæmdan til þess að
gera skil að viðlögðum þvingunar-
sektum, eða snúa sér til bæarfógeta
og kæra málið fyrir honum og vita,
hvort það leiddi eigi til þess að full-
nægjandi skil fengjust. Yrði þessi
fundur að skera úr hverja leið skyldi
velja.
ÁgústBjarnasonkennari barþá fram
svohljóðandi tillögu:
„Fu:«.durinn felur yfirstjórn Heilsu-
hælisfélagsins að sjá um á þann
hátt, er hún telur tiltækilegastan, að
full reikningsskil deildarinnar fáist".
Tillagan var samþ. í einu hljóði.
Þá talaði Sighv. Bjarnason banka-
stj. nokkur orð um hag deildarinn-
ar, taldi hann hnignun auðsæa, er
stafaði að mestu leyti af afskiftaleysi
formannsins, en þó að nokkru af al-
mennu peningaleysi manna á meðal
í bænum.
Þvínæst lá fyrir kosning nýrrar
stjórnar.
Jón Jensson yfirdómari taldi ýms
vankvæði á því, að þessi fundur kysi
nýa stjórn, enda naumast löglegt;
áleit heppilegra að yfiistjórn félags-
ins tæki að sér að koma rekspöl á
deildina, fengi uppgerða reikninga
endurskoðaða, svo að hin nýa stjórn,
er til kæmi, hefði eittkvað að halda
sér að.
Var um stund rætt um þetta fram
og aftur og samþykt tillaga um að
fresta fyrst um sinn að kjósa nýa
stjórn og halda fund aftur svo fljótt
sem unt væri, og eigi síðar en í
September.
I sambandi við þá tillögu bar Ó-
lafur Björnsson ritstjóri fram svo-
hljóðandi tiliögu:
„Fundurinn lýsir óánægju sinni
yfir starfsemi formanns Reykjavíkur-
deildar Heilsuhæiisfélagsins tvö síð-
ustu árin og felur því yfirstjórn fé-
lagsins að taka að sér forstöðu
deildarinnar fyrst um sinn, þangað til
ný stjórn verður kosin, og annast
innheimtu alla".
Tillagan samþ. í einu hljóði.
Fleira var eigi lagt fyrir fundinn
og var honum þá slitið.
Tapast hefir 8. þ. m. móbrúnn hestur
9 vetra gamall, vel járnaður, mark biti aft-
an vinstra, hvít stjarna í enni og æxli. —
Skilist til
Gísla Olafssonar,
Stekkum í Sandvtkurhreppi.
Miklar birgdir. Ódýrust i
verzlun
Sturlu Jónssonar.
Ritstjóri og ábyrgðarm.:
Pétur Zóphóníasson
Prentsmiðjan Gutenberg.
Nýar bækur:
Sálmabók á 8,00, 7,00, 4,50, 3,50, 2,50.
Sig. Júl. Jóhannesson: Kvistir ib. 4,00, ób. 3,00.
Innan sltams (í næsta mánuði) koma út tvær bækur:
J. Magnús Bjarnason: Vornætur.
Porgils Ctjallandi: Dýrasögur.
jjókaversltw Sigjásar €ymunðssonar.
Forskriv selv Deres Klædevarer
direkte fra Fabrik. Stor Besparelse. Enhver kan faa tilsendt portofrit
mod Efterkrav 4 Mtr. 130 Ctm. bredt sort, blaa, brun, gron og graa
ægtefarvet finulds K.læde til en elegant, solid Kjole eller Spadserdragt
for kun lO Kr. 2,50 pr. Mtr. Eller 3^4 Mtr. 135 Ctm. bredt
sort, morkeblaa og graanistret moderne Stof' til en solid og smuk
Herreklædning foi? kun 14 Kr. 50 0. Er Varerne ikke efter
0nske tages de tilbage. í h. b. 1 ár.
Aarhus Klædevæveri, Aarhus, Danmark.
Odýra
Gas/ampa °9 Suðuvelar
útvegar undirritaður.
»Sólar«-lampinn eyðir t. d. einungis 90 Litr. á kl.tíma,
en gefur ca. 110 normalkertabirtu. Gassparnaður því ca.
42°/o. »Sækular«-lampinn sparar gas um 60°/°-
Verðskrár með myndum til sýnis.
Þeir, sem vilja nota ódýrar gaslýsingar og gassuðuáhöld,
gefi sig fram sem íyrst.
J. 3=5. Pétursson,
Tiilsími 135. Talsími 135.
Nýlendugötu ÍO.