Þjóðólfur - 26.08.1910, Blaðsíða 1

Þjóðólfur - 26.08.1910, Blaðsíða 1
62. árg. Reykjavík, Föstudaginn 26. Ágúst 1910. .»35. Sjörn jjönsson. Brot úr stjórnmála- og menningarsögu íslands. IY. Pingvallafundir. í ísaf. XXXIV, 37—38 og 41 er ágrip af sögu Þingvallafundanna svonefndu, og kallar B. J. þessa fundi »ólögmælta allsherjar- fundi á vorum forohelga þingstað, til að ræða mikilsverð þjóðmál og gera um þau ályktanir, vanalega til undirbúings undir alþingi« (Isaf. XXXIV, 37). Markmið allra Þingvalla- funda var og er aðallega „agitatoriskt". Þessvegna hafa allir Þingvallafundir í raun réttri átt sama rétt á sér, því að aðalmálefnið, sem á fundum þessum hefir verið barist fyrir, hefir verið stjórnarskrár- málið og sambandsmál vort við Dani. Sá flokkur manna, sem lengst hefir vilj- að fara í frjálslyndisáttina, hefir jafnan átt upptök að Þingvallafundunum og haft veg og vanda af þeim, og andstæðingar venju- lega alls ekki sótt þá, eða að minsta kosti ekki tekið þátt í umræðum eða at- kvæðagreiðslu. Síðan B. J. tók við Isafold, hafa verið haldnir 4 Þingvallafundir: 1885, 1888,1895 og 1907, og auk þessa hefir verið boðað til þeirra 1891 og 1898. Skulum vér lýsa afskiftum B. J. af þeim. I Isaf. XII, 6 (1885) er birt Þingvallafundaráskorun frá Jóni Sigurðssyni á Gautlöndum, og þess- ari áskorun lætur B. J. fylgja svolátandi vegabrjef: »Það er vonandi, að þessi áskorun frá hinum mjög mikilsvirta alþingisforseta fái hinar bestu undirtektir. Almennum þjóðsam- komum er engan veginn ofaukið fyrir það, þótt alþingi hafi löggjafarvald, og enginn staður betur til þess kjörinn, en hinn fornhelgi al- þingisstaður, þrátt fyrir það, þótt ferðalögum sé nú orðið nokkuð öðruvísi hagað alment síð- an strandferðirnar komust á. Það væri ískyggi- legt doðamark, ef Þingvallafundir legðust niður með öllu. Og það er vist, að nú er fult til- efni til slíkrar samkomu«. Fundur sá var haldinn, og var B. J. forseti hans. Þingvallafundarhaldi xS88 var B. J. og mjög hlyntur. Þá farast hon- um svo orð: »Til þess að dreþa niður getsökum þeim, að þjóðinni sé ekki alvara að hafa fram stjórnarskrárendurskoðunina, ættu nokkrir hinir helstu menn úr hverju kjördæmi landsins að koma saman á Þingvelli við Öxará rétt fyrir þing' 1880 og árétta þar málið kröftuglega«. Og enn segir hann að mönnum sé wengin vorkunn, að sækja Þingvallafund alveg ólceypis. Það er lítil alvara í mönnum, ef þeir telja það á sig«. — Og loks. »l*jóðin þarf að sýna, að hún hafi meira við það mál (o:stjórnarskrármálið), en önnur landsmál, sem nú eru á dagskrá«. (Isaf. XV, 14). Eftir að fundarhald og fundartími hafði verið ákveðinn, segir B. J. 25. Júní 1888: »Ekkert kjördæmi ætti að skerast úr leik, og ^elst enginn hregpurinn í neinu kjördæmi. — Og síðar: »Það er enginn efi á þvi, að tak- ist vel til með fund þenna, þá getur það orðið málefninu harla mikilvægur styrkur, og hitt eigi siður tilfinnanlegur hnekkir, ef miður tekát. Hér er því um mikinu ábyrgðarhluta að ræða« (Isaf. XV, 29). Fundarstjóri var aftur Björn Tónsson. Eins og að framan hefir verið margsýnt, var B. J. á þessum árum eindreginn Bene- diktsinni, og Þingvallafundirnir 1885 og 1888 voru 1 því skyni haldnir, að vinna máli B. Sv. og B. J. gagn. 1891 er B. J. eins og einnig hefir áður verið sýnt, ákveð- inn „Miðlunarmaður". Það ár boðuðu þeir Sigurður Stefánsson, Skúli Thoroddsen og Gunnar Halldórsson í Skálavlk (2. þ. m. Isaf.) til Þingvallafundar, í því skyni, að »hamra« fram stjórnarákrár- endurskoðunina (Benediktskuna). Kveður B. J. nú við annan tón, um Þingvallafundi, en 1885 og 1888. Segir hann svo: »Þing- vallafundi vilja ísfirsku þingkempurnar allar þrjár (hver aftan í annari) smella á í sumar degi fyrir þingsetningu. Hafa sent Isa- fold fundarboð til birtingar, en hún getur eigi verið að gera þeim þann ógreiða, að láta al- menning heyra og sjá þetta nýasta flan þeirra, sem yrði tómt gabb, ef* einhver léti sér til hugar koma að gegna því, jafntilefnislaust sem slíkt fundarhald og er i þettasinn, hvaðstjórn- arskrármálið snertir að minsta kosti« (Isaf. XVIII, 35). Auk þess fmnur hann að því, að fundurinn sé boðaður með of stuttum fyrirvara, sem voru þó tveirmán- uðir, með því að Isafold hefði að minsta kosti getað birt fundarboðið 2. Maí, en þing átti auðvitað að hefjast 1. Júlí. Til samanburðar skal þess getið hér, að 4. Maí 1907 (0: tveim dögum slðar) birti Isafold boð til Þingvallafundarins 1907, sem líka átti að halda degi fyrir þing, sem lfka átti þá að hefjast 1. Júlí. Þá var B. J. hlyntur fundarhaldinu og talaði því ekki um það, að menn væru gabbaðir þó að fyrirvarinn væri þá jafnvel styttri en 1891. Ekkert varð af fundi þessum, en þó mun Isafold þar litlu hafa umráðið. Árið 1895 boðaði Benedikt Sveinsson til Þingvallafundar og fékk honum fram- gengt. Isafold situr við sama keipinn sem 1891, en tekur sér þó tilefni til að ganga almennara en hún gerði í berhögg við skoðanir sínar 1885 og 1888. Nú segir hún: „Það virðist hafa fengið daufar undirtektir út um land, þetta gaspur um fingvallafundar- hald i sumar, sem þeir hafa verið með í vetur i 1—2 blöðum hér, hefir enginn málsmetandi maður enn (0: 23. Mars 1893) 1 Þaán streng svo kunnugt sé, hvað þá heldur að neinn af landsins þjóðmálaskörungum hafi tek- ið sig til og boðað fundinn".........Senni- lega munu að vísu ísfirsku þing- og þjóðhetj- urnar rjúka til einhvern tima með vorinu og smella út fundarboði. En bara að ekki fari þá fyrir þeim eins og núna fyrir 4 árum, er alls eitt kjördæmi á landinu fyrir utan þeirra eigið (eða voru þau tvö?) virti áskor- un þeirra þess, að gefa henni nokkurn gaum, og alls einn fulltrúi komst í námunda við fundarstaðínn (Þingvöll) i grandleysí, en sneri þar aftur!" (Isaf. XXII, 22). En hvað Isaf. „kokitterar" við sjálfa sig út af því, að Þingvallafundarhaldið 1891 fórst fyrir. B. J. heldur svo áfram í sömu grein (Isaf. XXII, 22): „Þetta áhugaleysi á F*ing- vallafundum getur þýtt tvent, — annað en eðlilega ólyst almennings á að gegna öðrum til slíks fyrirtækis en valinkunnum og mikils- virtum atkvæðamönnumi landsmálum". [Voru þeir Benedikt gamli Sveinsson, Skúli Thóroddsen, síra Sigurður Stefánsson þá ekki valinkunnir og mikilsvirtir atkvæða- menn í landsmálum? Og var Isafold með Þingvallafundarhaldi 1885 og 1888, af því að hún taldi Björn ritstj. Jónsson „valin- kunnari" og „atkvæðameiri" stjórnmála- mann en Ben. Sv., Sk. Th. og Stef. Stef.?] Ástæðumar telur B. J. annars geta ver- ið deyfð og áhugaleysi almennings, eða af því, „að almenningur sé farinn að hafa betri trú á annari aðferð til að afreka það, sem Þingvallafundum hefur verið ætlað að af- reka". — Fað eru Þingmálafundirnir i kjör- dæmunum, sem virðast ætla að taka alveg við af F’ingvallafundunum og gera óþaría". [Voru ekki þingmálafundir haldnir vorið 1907? Ef svo var, var þá ekki Þingvallafundur það ár alveg ó- þarfur ?) Niðurstaða bollalegginga B. J. um Þing- vallafundi alment verður þessi: »Það væri í stuttu máli ekki óeðlilegt, þótt þessir alls- herjar þingmálafundir við Öxará legðust niður, og einskis í mist fyrir það, ef héraða-þingmála- fundirnir gera skyldu sína. [Gerðu þeir það ekki J907? Isafold var að minsta kosti mjög hróðuð yfir héraða-þingmálafundum þá]. „Það er meira að segja, að þyki þörf á einhverju allsherjar-fundarhaldi til skrafs og ráðagerðar öðru en alþingi, þá eru flatirn- ar og hraunrimarnir við Öxará í raun rettri miklu óhentugri til þess, heldur en almennileg mannabygð". [Var landslagið á Þingvelli breytt sumarið 1895 frá því sumarið 1885, og breytist það svo aftur 1907 frá því, sem það var 1895?] ísaf. XXII, 33 smjattar einstaklega ánægjuleg á sælgæti nokkru, er Jens prófastur Páls- son hafði langað innj í munnholuna á henni, en sælgætið var þetta: „Fingmála- fundi kjördæmanna tel eg (o: Jens Pálsson) best svara tilgangi þeim, er hér um ræðir — að leiða í Ijós skoðanir og álit þeirra lands- búa, sem um þjóðmál hugsa og treystast til að láta uppi álit um þau". Segir J. P. að á þingmálafundum lýsi stiltöluleg’a. laiig'lleístir „pólitiskir" menn skoðunum sínum, og þar kemur þeirra „pólitiska" álit einarölegast og glegst í ijós«. [Mundi B. J. og J. P. nú vilja skrifa undir það, að Þingvallafundurinn 1907 hefði verið tiltölulega fámennur, og að menn hefðu lýst þar skoðunum sínum óeinarðlegar og óglöggvar en áþingmála- fundum héraða?]. »Af þessum ástæðum eru þingmálafundir kjördæmanna lang-best fallnir til að sýna „þjóðarviljann", slíkan sem hann er, en þjóðfundur (Þingvallafundur) sístur til árangurs"". En B. J. segir J. P. vera ísat'. alveg samdóma. Þegar nú afráðið var að halda Þing- vallafundinn 1895 fer Isaf. heldur háðuleg- um orðum um hann í XXII, 54, sbr. 55. 1898 er enn boðað til Þingvallafundar af Benedikt Sveinssyni, Sig Gunnarssyni, Kl. Jónssyni, Jóni Jónssyni í Múla og og Pétri Jónssvni. En nú skipar Val- týskan öndvegi í Isaf. og Þjóðviljanum og „ísfirsku þjóðhetjurnar" eru náttúr- lega ekki með Þingvallafundarhaldi. , Þá kveður B. J. svo að orði (Isaf. XXV,29): „Þingvallafiuidar-vit- leysan. Svo nú á að fara að halda Þing- vallafund einu sinni enn! Þvi verður naumast neitað með réttu, að eitthvað gætu bændur þarfara gert um hásláttinn. [Þingvallafund- ur þessi var nefnilega boðaður til höfuðs Valtýskunni]. En ekki er þeim það ofgott, sem fyrir því vilja hafa«. Þó að B. J. væri ósamþykkur þessu fund- arhaldi, þá gripur hann samt tækifærið til þess að rífa niður hinar almennu mót- bárur sínar og sr. J. P. frá 1895 gegn Þing- vallafundahöldum, því að nu segir hann: „Svo getur verið ástatt, að fingvallafund- ur, eða samskonar þjóðfundur almennur, áein- hverjum hentugum stað á landina sé óskaráðs. Eins og alkunnugt er, gekst B. J., ásamt flestum blaðamönnum úr sínum flokki og einum blaðamanni úr Heimastjórnarflokkn- um, sem rétt á eftir ófyrirsynju og fljót- færnislega var rekinn úr félagi Heimastj.- manna í Reykjavík, fyrir Þingvallafund- arhaldi árið 1907. Fundarboðendur fylgdu allir „Blaðamannaávarpinu" fyrirvaralaust. Allir þeir blaðamenn og stjórnmálamenn, er ekki fylgdu því ávarpi óskorað, áttu hvorki þátt í fundarboði né fundarhaldi þessu. Þessvegna var Þingvallafundur þessi ekkert annað en flokksfundur, einsog allir Þingvallafundir hafa 1 raun réttri verið, að minsta kosti síðan 1874. Þessi fundur átti því alveg sama rétt á sér sem þeir. En eins og 1 upphafi er tekið fram, eru Þingvallafundir fyllilega réttmætir sem flokks- og »agitations«-fund- ir. En eftir skoðun B. J. á Þingvalla- fundum 1898 (sjá Isaf. XXV, 29) eru þeir »ekki annað en vitleysa«, nema »þegar þjóðin er samhuga í einhverju mikilsverðu máli og henni liggur á að lýsa yfir vilja sínum og samhygð«, og til »að lýsa yfir fyrirfram fengn- um skoðunum«. Þessi skilyrði voru ekki fyrir hendi 1907, þar sem tveir flokkar, nokkurn veg- inn jafn stórir þá, stóðu á öndverðum meiði, en aðeins annar tók þátt í fund- arhaldinu. Alt um það, barði B. J. það blákalt fram, að Þingvallafundur þessi hefði vérið borinn upp af almennum þjóðarvilja og hefði ekki verið flokksfundur. En B. J. játar þó sjálfur óbeinlínis, að svo hafi ver- ið, þar sem hann margvítir »heimastjórn- ina« fyrir það, að hún vill ekki taka þátt í fundarboðuninni né aðhyllast gerðir fundarins. (Isaf. XXXIV, 29, sbr. 37 og 46). Það er Ijóst af því, sem að framan er sagt, að Björn Jónsson hefir ávalt verið með Þingvallafundum, þegar til þeirra hefir verið boðað 1 því skyni að styðja stefnur hans. fá hefir hann enga ókosti séð á þeim. En þegar átt hefir að halda þá til þess að andmæla skoðunum hans, þá hafa þeir annaðhvort verið ófærir og þýðingarlausir af sérstökum ástæðum þá i svipinn, eða yfir höfuð, að' allir Þing- vallafundir hafa þá verið misráðnir, þarf- lausir og alls óhentugir til að sýna þjóð- arviljann. Er þetta ekki nægileg sönnun fyrir þvf, að Þingvallafundir á ritstjórnardögum B. J. hafi verið pólitiskir flokksfundir? Og pað kveður jafnvel svo ramt að flokks- keimnum af Þingvallafundunum, að landslagið á Þingvöllum beinlínis umturnast i Isaf. eftir hvort B. J. hefir verið meðmæltur eða and- stæður Þingvallafundarhaldi.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.