Þjóðólfur - 26.08.1910, Page 2
138
t’JOÐOLFUR.
Iðnsýning.
Eins og kunnugt er, hefir Iðnaðar-
mannafélagið í Reykjavík boðaði til iðn-
sýningar á næsta sumri, og er ráð fyrir
gert að hún verði opnuð 17. Júní á aldar-
afmæli Jóns Sigurðssonar.
Þetta mál er sannarlega þess virði að,
því sé gaumúr gefinn, og er vonandi að
allir þeir, er hér geta átt hlut að máli,
bregðist vel við, og geri alt sem unt er,
til þess að sýning þessi verði þjóð vorri
til gagns og sóma.
Það vill svo vel til, að alþingi kemur
saman nokkru áður en sýningin á að
hefjast, og getur því veitt fé til hennar,
og ætti enginn vafi á því að leika, að
þingið telji sér það bæði ljúft og skylt,
að styðja sýninguna roeð ríflegu fjárfram-
lagi.
Þingið verður og að veita fé til að
kaupa ýmsa sýningamunina handa Þjóð-
menjasafninu, því búast má við því, að
hagleiksmenn sendi á sýninguna ýmsa þá
muni, sem væru þjóðinni til sóma, og
eiga því að geymast um aldur og æfi.
Öllum þjóðum þykir mikilsvert, að eiga
forngripasöfn, sem sýna, á hvaða menn-
ingarstígi þjóðirnar hafa verið, og sem
sýna hvað þjóðunum hefir ýmist farið
fram eða aftur. Vér íslendingar eigum
og dálítið slíkt safn, og höfum átt því
láni að fagna, að eignast ýmsa þá muni
sem merkilegir eru.
Þessu safni verður að halda við, og
auka það árlega.
Þeir munir sem smíðaðir eru á þessu
ári en orðnir forngripir eftir tugi ára, og
er miklu betra að eignast þá nýa, en
bíða eftir því að þeir verði gamlir, því
bæði er óvíst að þeir geymist, og eins
hitt að ýmsar skemdir sem þeir geta
orðið fyrir á löngum tíma, getur eyðilagt
þá svo mjög, að þeir sýni ekki nema
örlítið brot af því, sem þeir voru í önd-
verðu.
Og ekki ætti áhugi listfengna manna
að minka við það, ef þeir ættu það víst,
að hlutir þeir, sem þeir smíða, ættu að
geymast öldum saman, sem vottur um
hagleik þeirra. Iðnsýningin er besti
vegurinn til að auka Þjóðmenjasafn vort.
Allir hagleiksmenn, hvort heldur eru
karlar eða konur, keppast hvor í kapp
við annan að vanda svo mjög muni þá
er þeir ætla að láta koma fyrir almenn-
ingssjónir, að þeir beri af öðrum sams-
konar. Og heiður þjóðarinnar er þess
meiri, eftir því sem betur er vandað til
sýningarinnar. Allir þjóðræknir menn ættu
því að styðja að því, að iðnsýning þessi,
er halda á á næsta sumri, verði svo vel
úr garði gerð, sem frekast er auðið.
Kn.
Smjörsalan á Englandi.
Hr. J. Zimsen konsúll hefur fengið
um hana svohljóðandi skýrslu:
„Newcastle-on-Tyne,
15. ágúst 1910.
Með e/s Ceres kom 12. þ. m. næst-
stærsta smjörsendingin frá íslandi, og,
eins og þegar var fyrir sagt í fyrri
skýrslu vorri, náði þetta smjör í betri
markað og var selt fyrir töluvert
hærra verð en hitt, þrátt fyrir það,
þótt smjörverðið sé talið lægra í
Khöfn en síðast, þegar selt var.
Gæði smjörsins má telja, að því
er flest af smjörbúunum snertir, mjög
vel viðunandi. Sumt af hinu eldra
var ekki gallalaust, en þegar það var
frá tekið, var hægt að telja hitt, sem
eftir var, gott.
Umbúnaður og sending er nú einnig
yfirleitt í reglu. Þó hafa sum smjör-
búin þann sið, að fylla dallalokin
með fjölda af stórum tölum, vigt og
bókstöfum, svo að erfitt er að lesa
nokkuð af því. Vér viljum ráða
þeim til að nota merkiblek á merki-
stafina og númerið, en sé blýantur
notaður, þá að skrifa í meðallagi
stórt, en greinilega. Vigt og um-
búðafrádrátt þarf ekki að setja á
dallana, þar sem send er skrifleg
vigtarskýrsla með fylgibrjefunum.
Það gleður oss að sjá, að smjör-
búin eru nú fleiri og fleiri farin að
fylla dallana betur en áður. Það er
sparnaður fyrir þau sjálf, og smjörið
varðveitist betur en þegar marga
þumlunga vantar til þess að dallur-
inn sé fullur.
Markaðurinn var, eins og þegar er
sagt, stöðugur. Mikiðaf því 2. fl. smjöri,
-sem nú á síðari tfmum hefur verið í veg-
inum, er nú smátt og smátt úr sög-
unni, svo að rýmst hefur til fyrir
nýjum innflutningi bæði af 2. fl. og
besta fl.
Það, sem vér höfum fengið, er
þegar selt. Vér sáum á ferðaáætl-
unum skipanna, að alllangt er milli
póstskipsferðarinnar 16. þ. m. og
næstu ferðar, svo að vér báðum alla
viðskiftavini vora að vera viðbúna
að kaupa smjörið laugardaginn 13.
og mánudaginn 15. og salan hefur
gengið svo vel, að vér getum nú í
dag sent reikninga og peninga fyrir
smjörið jafnframt þessari skýrslu.
Smjörið hefur því að eins verið 2
daga í vorum höndum, og vérvænt-
um, að viðskiftavinir vorir á íslandi
meti vel svo greið viðskifti.
Tíðin hefur verið mjög köld hér
í Englandi, eins og vér höfum áð-
ur getið um, og það er fyrst nú hina
síðustu dagana, að vér höfum orðið
sumarsins varir. Þetta hefur auðvit-
að mjög heft framleiðsluna hér, og
þar sem smjörbirgðirnar eru ekki
miklar í hlutfalli við fyrra ár, teljum
vér, að vér getum með fullri vissu
lofað hærra verði, jafnt vaxandi um
næstu mánuði.
Vér þökkum smjörbúunum, hverju
um sig, fyrir það smjör, sem vér
höfum tekið á móti og sendum nú
reikning yfir.
Með mikilli virðingu.
J. V. Faber & Co.«
Bréfkafli frá Yesturheimi.
Eins og kunnugt er, hafa vesturíslensku
vikublöðin, »Heimskringla« og »Lögberg«,
sem gefin eru út af Canadastjórn, bland-
að sér töluvert inn í íslensk stjórnmál,
sérstaklega síðan í bardaganum við síð-
ustu ráðherrakosningar. Bæði hafa þau
verið einstaklega samtaka í þessu efni,
og svo er að sjá sem þeim hafi þótt það
mikið í munni, að vera með meirihlutan-
um, því bæði grobbuðu yfir sigrinum og
luku lofsorði á sjálf sig, eftir að H. H.
ráðherra var steypt úr völdum og eftir
að núverandi ráðherra tók við stjórn.
Meðan á kosningabaráttunni stóð heima
og mestur æsingur var gerður af B. J.
og hans fuglum til að koma H. H. frá
völdum, þá spara blöðin okkar í Winne-
peg ekki neitt vopn heiðarlegt né óheið-
arlegt til að gera H. H. og hans flokk
sem allra auðvirðilegastan í augum vest-
ur-íslensku þjóðarinnar. Þá var öllu tjald-
að og alt notað, sem til var. Sjá »Heims-
kringlu« og »Lögberg« frá þeim tíma.
Þeirri reglu hafa Winnipeg-blöðin jafn-
an fylgt, þegar þau hafa fjallað um ís-
lensk stjórnmál, eða þegar þau hafa látið
mest til sfn taka 1 íslenskri pólitík, að
sneiða sem mest og best hjá málefninu,
sem um er að ræða, en í þess stað að
hamast sem mest og öflugast á mönnun-
um, sem við málið eru riðnir. Og þess-
ari óhræsisreglu fylgja þau enn í dag;
einkum fylgir þó »Heimskringla« dyggi-
lega og afdráttarlaust þessari dæmafáu og
svívirðilegu reglu. Það er auðvitað, að
íslensk alþýða hér vestra, er ekki nægi-
lega kunnug stjórnarfari Islendinga heima.
Þetta er ekki tiltökumál og ógn eðlilegt,
að menn sem dvalið hafa fjærri fóstur-
jarðarströndum svo tugum ára skiftir og
það í annari heimsálfu, (eins og á sér
stað með oss Vestur-íslendinga) geti fylgst
svo með áhugamálum þjóðar vorrar, svo
í nokkru lagi sé, hvað þá heldur að auð-
ið sé fyrir V. í. að d æ m a um menn og
málefni íslensku þjóðarinnar 1 heild sinni.
Og einmitt vegna þess, hve fáfróðir vér
V.-í. erum yfirleitt í íslenskri pólitík, var
afar árfðandi fyrir oss að fá óhlutdrægar
og nákvæmar fréttir af ástandinu heima
og sem allra réttmætasta skýringu á öll-
um málavöxtum.
En það er öðru nær en að Vestur-ís-
lendingar hafi átt því láni að fagna að
eiga samviskusöm og óhlutdræg blöð,
þegar um Island og íslensk mál er að
ræða. Allur þorri V.-í. heldur Winnepeg-
blöðin, »Lögberg« og »Heimskringlu«,
þar eru fréttirnar sannar og ósannar, bæt-
andi og spillandi. Vestur-íslendingar eiga
ekki völ á öðru betra og verða því að
gera sér það að góðu. En óholl andleg
fæða er þar oftast borin á borð fyrir les-
arann, að því er Island snertir, eins og
sjá má af afskiftum þeirra af íslenskum
stjórnmálum á síðari árum.
Það, að »Heimskringla« og »Lögberg«
létu afdráttarlaust í ljósi sína skoðun á
íslands stjórnmálum, er ekkert við að at-
huga. Slfk skoðun nær skamt og skiftir
engu. En hitt er blátt áfram ófyrirgefan-
legt af þeim, að berja þeirri skoðun sinni
inn í V.-í., að allir séu landráðamenn
heima, sem fylgja H. H. og hans flokki,
eins og þau þrásinnis hafa reynt að gera.
»Heimskringla« hefir auðvitað gengið á
undan í þessari svívirðingu eins og henn-
ar er vandi í öllum málum, er almenn-
ing varða. Hún hefir sigað upp á móti
H. H. og hans flokki óþverramannræfl-
um, reglulegum hundspottum og látið þá
þenja út allar klær, þangað til þeir hafa
orðið sér og blaðinu til stórskammar og
athlægis.
Gamli agentinn, núverandi ritstjóri
»Heimskringlu«, hefði eflaust gert réttast
í að segja- sem minst um stjórnmalabar-
áttu Islendinga, bæði vegna þess, að mað-
urinn er auli í þeim sökum og ennfrem-
ur vegna þess, að allir vita að hann er
enginn föðurlandsvinur og íslendingur
lftill.
Eitt hneykslið af mörgum var það, þeg-
ar nokkrir menn f hópi V. I. tóku sér
það bessaleyfi að senda símskeyti til Is-
lands hér um árið þess eðlis, að »a 11 i r
Vestur-íslendingar« fylgdu B. J.
að málum og hans flokki. Þessi lýgi er
ein af þeim afarmörgu lygum, sem til Is-
lands bárust frá blöðunum hér vestra og
einstöku mönnum, sem »Heimskringlu«
tókst að æsa upp gegn H. H. Sannleik-
urinn er sá, að ef til atkvæða væri geng-
ið jineðal V.-í. um stjórnmálaflokkana
heima, hverjum hver fyrir sig fylgdi að
málum, myndi mjög óvíst hverjir yrðu
fjölmennari, þrátt fyrir allan vaðalinn í
blöðunum.
Eins og ég tók fram hér að framan,
hafa V. í. frá byrjun fengið mjög svo ó-
fullkomnar og hlutdrægar skýringar á Is-
landsmálum, með því að ekki hefir verið
unt að byggja neitt verulega á Winnipeg-
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
♦ Islensk-Konfekt, ♦
♦ 4.
♦ gott og ódýrt, 4
X í Söluturninum. X
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
blöðunum, jafn einhliða og ein6trengings-
leg og þau hafa verið. En nú er að
rakna fram úr þessu, Sig. Júl. Jóhann-
esson læknir hér í Vesturheimi erj nýlega
byrjaður að rita um þetta mál og leitast
við að skýra það fyrir V. I. á hagkvæm-
astan hátt. Aður en hann lýkur máli
sínu verða Vestur-íslendingar eflaust farnir
að skilja, hvað um"er að vera f íslenskum
stjórnmálum heima á Islandi og hvaða
pólitíski flokkurinn hafi á réttari og betri
grundvelli að standa og hvað þjóðinni er
hollast og eiginlegast í framtíðinni.
V. /.
Bæar-annáll.
Steinolíufélagið. Sú breyting
verður þar, að hr. Alf. Philipsen lætur af
forstöðu fyrir félaginu hér, fer hann til
Noregs og verður brautriðjandi fyrir
steinolíufélaginu þar. Sá heitir Döebbell
er kemur í hans stað.
Þorsteinn Erlingsson skáld
og kona hans eru nýkomin úr ferð um
Norðurland. Fóru þau með norðlensku
bændunum norður Kjöl og síðan norður
í Þingeyarsýslu, að Ásbyrgi, Dettifossi,
Mývatni o. s. frv.
Fiskiafli þilskipanna héðan, yfir
sumarvertíðina hefir verið þessi:
H/F P. J. Thorsteinson & Co., Rvík:
Portland 12500
Ragnheiður 24000
Guðrún 15500
Björn Olafsson 14000
Langanes 2IOOO
Skarphéðinn 19000
Sléttanes 14000
Toiler 17000
H/F Sjávarborg:
Geir 19OOO
Sjana 2ÓO0O
Guðrún Zoega 17000
Jósefína 19000
Fríða 14000
ísabella 17500
Acorn 12000
Morning Star 27500
Robert 14000
Gunna IÓOOO '
Himalaya 10000
Jón 135°°
Elín 6000
Th. Thorsteinsson:
Sigríður 25000
Margrét 19500
Guðrún Soffía 16500
Jón Laxdal:
Hildur 21000
Sigurður Jónsson Görðunum:
Haffari 19000
Guðmundur Ólafsson 0. fl.:
Bergþóra 29000
H/F „Stapinn":
Ester 32000
Tón Olatsson 0. fl.:
Hafsteinn 20000
H. P. Duus:
Ása 30000
Keflavík 36000
Svafa 17000
Sigurfari 18000
Milly 22500
Sæborgin 23000
Björgvin 24000
Haraldur 15000
J. P. T. Bryde:
Valtýr I7OOO
Gunnvör 12000
Niels Vagn 16500
Einar Þorgilsson:
Surprise 27000
Jón Þórðarson, Ráðagerði:
Seagull 20000
) 0