Þjóðólfur - 28.01.1911, Síða 2
14
ÞJOÐOLFUR
Nignálafuíir
í Reykjavik.
Heimastjórnarmenn sigra.
Þingmálafundir Reykvíkinga voru
haldnir 24—27. þ. m. var fyrsti
fundurinn haldinn í Iðnaðarmanna-
húsinu, en hinir þrír í Báruhúsinu.
Fundarstjóri fyrsta fundarins var
Borgþór Jósefsson bæargjaldkeri kos-
inn með 165 atkv. (sr. Ól. Ólafsson
fékk 115) og skrifarar Ágúst Bjarna-
son kennari og Brynjólfur Björnsson
tannlæknir. Á öðrum fundinum var
Haildór Daníélsson yflrdómari kosinn
fundarstjóri með 150 atkv. (Hannes
Hafliðason skipstjóri fékk 130) og
skrifarar Halldór Jónsson bankagjald-
keri og Grímúlfur Ólafsson bæarfó-
getaskrifari. Á þriðja fundinum var
Magnúsi Einarssyni dýralæknir kos-
inn fundarstjóri í ehlj. og skrifarar
Jón Sigurðsson fullmektugur bæar-
fógetans og Karl Nikulásson verslun-
arstjóri. Á fjórða fundinn var fund-
arstjóri kosinn Sigurður Jónsson
kennari með 163 atkv. (Þorvarður
Þorvarðsson prentsmiðjustjóri fékk
157) og skrifarar Richard Torfason
bankaritari og Þorsteinn Gíslason rit-
stjóri.
1. Sjálfstæðismálið (sambands-
málið).
Yoru lesnar upp svohljóðandí til-
lögur:
a. frá þingmönnunum : Þar sem
Danir ekki hafa viljað viðurkenna
fullveldisrétt íslensku þjóðarinnar og
áframhaldandi samningatilraunir við
þá því verða að teljast árangurslaus-
ar, telur fundurinn það sjálfsagt, að
haidíð sé fast við ályktun Þingvalla-
fundarins 1907, er kveður á um
stefnu íslendinga, verði fullum sjálf-
stæðiskröfum þeirra ekki sint.
b. , frá L. H. B.: „Fundurinn
lýsir óánægju sinni yfir meðferð
stjórnarinnar og þingmeirihlutans í
sambandsmálinu “.
a. I. Feld 129 atkv., II. samþykt
160 atkv., III. feld 165 : 140, IY.
ft*ld 184 : 183. Alls með tillögunni
612 atkv., en móti 647. Tillagan
því feld.
b. I. samþ. 153, II. feld 145, III.
samþ. 171 : 139, IV. feld 170 : 163.
Tillagan þvi samþgkt með 639 : 591.
c. Tillaga frá Jakob Möller á III.
fundi: „Fundurinn lýsir óánægju sinni
yfir framkomu Heimastjórnarmanna
í sambandsmálinu. Feld 185 : 135
atkv.
d. Tillaga frá Þórði Thoroddsen á
IV. fundi: „Fundurinn lýsir trausti
á þingmönnum í sambandsmálinu".
Feld 179 : 171 atkv.
2. Stjórnarskrármálið.
A öllum fundunum samþ. svohlj.
tillaga frá Einari Arnórssyni, en varð
síðan sameiginleg tilllaga frá flokkun-
um: „Fundurinn skorar á alþingi að
samþykkja á næsta þingi frumvarp
til laga um breytingar á stjórnar-
skránni, er feli í sjer afnám konung-
kjörinna þingmanna og afnám til-
vitnana í stöðulögin og fleiri breyt-
ingar, er nauðsynlegar kynni að
þykja".
3. lianka-fyrirkomulagið.
Tillögur:
a, „Fundurinn vjfl, að þing og
stjórn láti sér ant um að efla
hag Landsbankans svo að hann verði
fær um að styðja arðsöm þjóðþrifa-
fyrirtæki, og að ákveðinni upphæð af
iánsfé, sem iandið tæki og bankinn
fengi til meðferðar, væri heimilt að
verja til þess að styrkja íslenskar
botnvörpuveiðar, eftir áliti banka-
stjórnarinnar“.
b. „Fundurinnmælir með því,að veð-
deildin verði að meiru eða minna leyti
aðskilin frá bankanum sjálfum, og
lánskjörin hagkvæmlegri en þau eru
nú.
c. „Fundurinn skorar á alþingi að
rannsaka gerðir stjórnarinnar í Lands-
bankamálinu og lagfæra þær lögum
samkvæmt.
d. brtill. við c. og leiðrjetti þær,
ef þær eru ekki lögum samkvæmt.
a. samþ. á öllum fundum.
b. samþ. á I., II. og IV, feld með
nokkrum atkvæðamun á III. fundi.
c. I. samþ., II. tekin út af dagskrá,
samþ. á III. og IV., samþ. með öll-
um greiddum atkv., 2 greiddu ekki
atkvæði.
d. feld á öllum nema II. íundi.
4. Samgöngamál.
Tillaga frá þm.: a., „Fundurinn
skorar á þing og stjórn að gera sitt
ítrasta til að koma ferðaáætlun milli-
landaskipanna í haganlegra horf en
nú er, svo að aldrei líði meira en í
mesta lagi 14 dagar milli beinna
ferða frá útlöndum til Rvíkur eða frá
Rvík til útlanda".
b, f. minnihl. „Fundurinnskorará al-
þingi að hlutast til um að skilyrðum
fjárl.l909fyrir fjárveitingtil gufuskipa-
ferða verði fullnægt framvegis og
ferðum hagað eftir þörfum lands-
manna“.
c. , frá þm. „Fundurinn telur heppi-
legt,að fje því,sem lagt er úr landssjóði
til vegabóta, sje einkum varið til að
bæta áðal-þjóðvegu og brúa ár á þeim
leiðum. Viðhald þjóðvega álítur hann
varhugavert að láta sýslufjelögin ann-
ast, en telur rjett, að þau hafi á hendi
viðhald flutn.br. og greiði landsspell
þau, er verða við lagningu þeirra.
Tillaga kom fram um „að vísa
till. c. til ath. þingmanna og taka fyrir
næsta mál á dagskrá". Allar samþ. á
á öllum fundunum með samhlj. atkv.
5. Fánaniálið.
Tillagafráþingmönnum: „Fundurinn
væntir þess, að þing og stjórn geri
sitt til þess, með löggjöf eða á annan
hátt, að hinn ísl. fáni, sem öllum er
heimilt að taka upp á landi, nái sem
fyrst alþjóðaviðurkenningu sem sigl-
ingafáni íslendinga“. Samþ. á I. og
II. fundi.
Á III. fundi samþ.: „Fundurinn
væntir þess, að Alþingi semji lög um
íslenskt flagg".
Á IV. fundi var tillagan frá I. f.
samþ. með þeirri breytingu, að í stað
„hinn islenski fáni“ komi „íslenskur
fáni“.
6. Konnngkjörnir þingnienn.
Tillaga frá þingmönnum: „Fundur-
inn aðhyllist þá skýringu á 14. gr.
stjórnarskrárinnar, að hinum konung-
kjörnu þingmönnum beri að sitja að
eins 3 regluleg þing (venjulega 6 ár)
og að rjett væri því, að ný útnefning
færi fram fyrir næsta þing“. Málinu
vísað frá á öllum fundunum með rök-
studdri dagskrá : „Útaf framkominni
tillögu tekur fundurinn fyrir næsta
mál á dagskrá með skírskotun til
hinna ótviræðu ákvæða 14. greinar
stjórnarskrárinnar!" Samþ. I. 128,
II. 89 : 61, III. samhlj. atkv., IV. í
einu hlj.
7. dónismál:
Á öllum fundum samþ; tillaga frá
L. H. Bjarnason, síðan sameiginleg:
„Fundurinn skorar á þingmenninaað
beitast fyrir því, að æðsta dómsvald í
ísl. málum verði sem fyrst flutt inn
í landið og gjörðar jafnframt æskileg-
ar eða nauðsynlegar breytingar á
dómaskipuninni að öðru leyti.
S. Kirkjamál:
Tillögur:
a. Frá þingmönnum : „Fundurinn
vill láta gera rækilega gangskör að
því að framkvæma aðskilnað ríkisog
kirkju og skorar á þingmennina að
fylgja því máli fast fram“.
b. Viöaukatillaga: Að sjálfsögðu
falli allar eignir, sem nú eru í vörsl-
um kirkjunnar til landssjóðs.
c. Tillaga: Engum manni er skylt
að vera í neinu trúfélagi eða gjalda
því skyldur af föstum eignum sín-
um né launum.
a. Samþ. á I. og II. fundi með
öllum atkv. gegn 2.
Samþ. á III. f. með samhlj. atkv.
og IV. f.
Samþ.álV.f. meðöllum atkv. gegn4.
b. Tekin aftur á I. f.; á II. f. var
tillagan samþ. með þeirri breytingu,
að í stað „þær eignir“ komi: „opin-
berar eignir".
Viðaukatill. III. f. samþ. í e. hlj.:
eftir landsjóðs: „að svo miklu leyti
sem þær eru ekki einkaeign einstak-
linga eða safnaða".
c. Tekin aftur á I. f., en samþ.
í e. hlj. á III. f. og IV. f.
9. Rannsóknarncfnd á ráðherra.
„Fundurinn telur rétt, að þing-
ið setji rannsóknarnefnd samkv. 22.
gr. stj.skr. til að rannsaka sakir þær,
er bornar hafa verið á Björn Jóns-
son ráðherra, svo að hið sanna megi
koma í ljós“.
Samþ. á I. f.: 143:8; II.: öllum
gegn 4; III.: öllum gegn 4 og IV.:
192 : 87.
10. Eftirlannamál:
„Fundurinn vill láta afnema eftir-
laun embættismanna, er þess í stað
safni sjer ellistyrk, og sérstaklega
skorar hann á þingmennina að koma
því til vegar, að eftirlaun ráðherra
verði þegar afnumin".
Samþ. á öllum fundunum í einu hlj.
11. Fjármál:
Á 1.—III. og IV. fundi smþ.:
„Fundurinn væntir þess, að þing
og stjórn leitist við að útvega lánsfé
með hentugri kjörurn en vér höfum
nú, en auki því að eins lántöknr
landsins að brýna nauðsyn beri til“.
Á II. f. samþ.: 130 gegn 139.
„Fundurinn væntir þess, að þing
Og stjórn leytist við að losa fjármálvor
sem mest við Danmörku og útvega
annarstaðar lánsfé með hentugri kjör-
um en vér höfum nú, en auki því
að eins lántökur landsins, að brýna
nauðsyn beri til“.
12. Hafnarmálið:
Tillaga frá borgarstjóra: „ Fundur-
inn telur það eitt hið þýðingarmesta
mál fyrir Reykjavíkurbæ og landið í
heild sinni, að fá bygða fullkomna
og lokaða höfn í Reykjavík og skorar
á alþ. að veita fje úr landssjóði að
helmingi til byggingar hafnarinnar
og samþykkja frv. til hafnarlaga fyrir
kaupstaðinn, er bæjarstjórn og hafn-
arnefnd semur".
Sþ: í e. hlj. á öllum f.
13. . Versiunarlöggjöf.
Sameiginleg tillaga samþ. í e. hl.
á öllum f.:
„Fundurinn telur þaðnauðsynlegt,að
verslunarlöggjöf landsins verði kom-
ið í eina heild, er sje í samræmi
við löggjöf Norðurlanda í þeim efn-
um, að svo miklu leyti sem stað-
hæt.tir og annað kynni að leyfa".
14. Fiskireiðamál:
Sameiginl. tillaga frá báðum flokk-
um: Samþ. í e. hlj. á öllum f.:
„Fundurinn skorar á þingmennina,
að beitast fyrir því, að alþingi veiti
allsherjar flskiveiðafélagi, sem stofn-
að yrði, ríflegan styrk úr landsjóði
til þess að vinna að tilgangi sínum".
Viðbót við fiskiveiðatillöguna á IV.
fundi frá Pétri Zóphóníassyni ritstj.:
„enda hafl alþingi tryggilegt eftirlit
með því, hvernig fénu er varið, og
svo verði og um Búnaðarfélag íslands
framvegis". Samþ. í e. hlj.
15. Botnvörpungamál:
Tillaga frá Þórði Péturssyni, Guðm.
Guðmundssyni, SveiniJónssyni, Guðm.
Þorkelssyni og Ásm. Einarssyni:
„Fundurinn skorar á þingmenn-
ina að fylgja því fram, að undan-
þága sú, er á síðasta þingi var veitt
ísl. botnvörpungum með að mega
hafa hlera utanborðs innan landhelg-
islínunnar, sje algerlega afnumin“.
Till. feld á I.f.: 97 : 19; samþ. á
II. f.: öllum gegn 4; III. f.: 99 : 54;
IV. f.: samþ. sýnil. meiri hl.
16. Sóknargjöld:
„Fundurinn telur lögin um sókn-
argjöld að mörgu leyti óheppileg og
ranglát og skorar á alþ. að tireyta
þeim þannig: a. að reikningsskila-
frestur sóknarnefnda verði lengdur að
miklum mun; b. að helmingur gjald-
anna verði nefskattur, en hinum
helmingnum jafnað niður eftir efnum
og ástæðum, c., að allir ómagar og
þeir, sem yngri eru en 18 ára, verði
undanþegnir gjöldum".
Málið falið þingmönnum til athug-
unar á öllum fundunum.
17. Kosning lækna:
„Fundurinn felur þingmönnum sin-
um, að fylgja því alvarlega fram á
næsta þingi, að þjóðin fái alveg sams-
konar lög um að kjósa sjer sjálf
lækna, eins og núverandi prestakosn-
ingalög eru“.
Málið var falið þingm. til athugunar
á öllum fundunum.
18. Kosning horgarstjóra:
„Fundurinn skorar á þingmemr^-að
fá breytt 1. gr. í lögum um bæar-
stjórn í. Reykjavík frá 22. nóvbr.
1907, þannig, að í stað þess að „bæj-
arstjórn kýs borgarstjóra" komi:
„Borgarstjóri skal kosinn af öllum at-
kvæðisbærum kjósendum kaupstaðar-
ins, sem kosningarrjett hafa til bæj-
arstjórnar". Samþ. á öllum fundum
í e. hlj.
Viðaukatill. frá Jóni Laxdal samþ.
á III. f.: „Kosning borgarstjóra skal
fram fara á sama hátt og kosning í
bæarstjóin að öðru leyti en þvi, að
aðeius skal nota einn lista, þar sem
tilgreind eru nöfn allra umsækjenda.
Er sá rjett kjörinn borgarstjóri, sem
hlýtur flest atkvæði.".
19. Járnbraatir.
Samþ. á öllum f.: „Fundurinn skor-
ar á þingmenn kjördæmisins að fylgja
eindregið fram á næsta þingi, að
járnbraut verði lögð hið allra fyrsta
frá Reykjavík til nærliggjandi hjer-
aða á Suðurlandsundirlendinu".
20. Tillaga um vantraust á ráð-
herra:
„Fundurinn lýsir vantrausti á ráð-
herra“.
Samþ. ál- 118 : 21; tekið út af
dagskrá á II. f.; samþ. á III. f. 147 :14;
á IV. fundisamþ. með 147 : 121.
21. Um viðsklítaráðunautinn:
„Eftir fenginni reynslu telur fund-
urinn rétt, að fella niður fjárveit-
ingu til viðskiftaráðunauta".
Samþ. á I. f.: 123 : 12; II. f.;
123 : 104; III. f.: 133 : 85; ekki
borið upp á IV. f. sökum þess, hversu
áliðið var. Samþ. 379 : 201.
Á III. fundi bar Bjarni Jónsson frá
Vogi fram svohlj. till.:
„Fundurinn skorar á alþingi að
veita ekki minna en 15 — 20,000 kr.
til viðskiftaráðunauta, og sé því fé
varið til launa og ferðakostnaðar fyr-
ir einn eða tvo viðskiftaráðunauta og