Þjóðólfur - 28.04.1911, Qupperneq 1
63. árg
Reykjavík, Föstudaginn 28. Apríl
1911.
JtS 17.
Alþing-i.
ix.
Lög frá Álþingi.
16. Löggilding verslunarstaða:
Hvalsneskrókur 1 Austur-Skaftaf.sýslu.
Gunnarsstaðaey í Dalasýslu.
Hámundarstaðir við Nýpsfjörð.
Herdísarvík í Árnessýslu.
Kvíabryggja í Snæfellsnessýslu.
17. Lög um stýrimannaskólann í Rvík.
Með breytingum á þessum lögum er föst-
um kennurum skólans fjölgað um einn
og gerðar meiri kröfur til þekkingar hjá
nemendum skólans, t. d. í ensku.
18. Lög um rétt kvenna til embgetta
og skólanáms.
Kvenfólki veittur sami réttur og körl-
um til allra skóla og embætta.
19. Lög um sölu kirkjujarða.
Frumvarp er felt var á síðasta þingi.
Leyfir að selja hjáleigur á kirkjujörðum,
ef landamerki eru skýr.
íjo. Lög um breyting á lögum um út-
flutningsgjald.
Smábreyting á útflutningsgjaldi af síld.
■•21. Lög um breyting á bæarstjórn
Akureyrar; um niðurjöfnunarnefndina og
•endurskoðendur bæarins.
22. Lög um höfn í Reykjavík.
Með fögum þessum veitir landsjóður
400,000 kr. styrk til hafnarbyggingar
í Reykjavík og ábyrgist fyrir bæinn
j,200,000 kr. lán til þess þarfa fyrirtækis.
23. Um brúargerð á Jökulsá á Sól-
.heimasandi.
Til brúargerðar á Jölulsá má verja alt
;að 78 þús. kr. úr landsjóði. Lög þessi
koma til framkvæmda, þegar veitt er fé
í fjárlögunum til brúargerðarinnar.
24. Um skoðun á síld.
1. gr. hljóðar svo: Á svæðina milli
Horns og Langaness skal skoðun fara
fram á allri nýveiddri síld, sem ætluð er
til útflutnings og veidd er í herpinót eða
reknet og söltuð er á landi eða við land.
Auk þess skal öllum á þessu svæði gefast
kostur á að fá mat á saltaðri síld, hafi
hún legið hæfilega lengi í salti.
Þá taka við reglur fyrir síldarveiða-
skipin, skipstjórá og matsmenn. Yfir-
matsmenn eiga að vera tveir með 1000
kr. launum auk ferðakostnaðar og fæðis-
peninga, er landsjóður greiðir. Brotvarða
50—2000 kr. sektum.
25. Lög um fiskiveiðar hlutafélaga í
landhelgi við Island.
Breyting á þeim lögum, um að sþegar
útlend síldarveíðaskip eru á landhelgis-
svaeðinu, þá er þeim skylt að hafa báta
sína uppi á skipinu á venjulegum stað
og nætur inni í skipinu, en þó ekki í
bátunum«.
Samþyktar þingsályktanir.
Um lyfjaverslun. »Neðri deild Alþingis
Myktar, að skora á stjórnina, að endur-
skoða* gildandi ákvæði um lyfjaverslun
bér á landi, og leggja fyrir næsta þing
frumvarp til laga um það efni«.
Feld frumvörp.
Lög um breyting á læknalögunum. Sér-
stakur læknir í Hnappdælahéraði, var felt
( efri deild.
Lög urn breyting á styrktarsjóði kenn-
ara.
Lög um sölu á jörðinni Presthólar,
felt með rökstuddri dagskrá.
Lög um löggilding Kirkjufells í Snæ-
fellsnessýslu.
Lög um frestun á framkvæmd bann-
laganna, feld í neðri deild með 15 : ro.
Fellendur voru: Bjarni, 4 Birnir, Einar,
Hálfdán, J. Magn., J. Þork., M. Bl.. Sig.
Gunn., Sig. Sig., Skúli, Stefán, Þorleifur.
En með því voru: Eggert, Benedikt,
H. Haf., J. Múla, J. Hvanná, J. Sig., J.
Ól., Ólafur, Pétur, Jóhannes.
Fjárankalögin
fyrir 1910—1911 voru rædd í gær í neðri
deild. Heistu samþyktir þar nýar voru
h á s k ó 1 i n n , sem getið er hér um á
öðrum stað, loftskeytin til Vestmannaeya
samþykt aftur, þrátt fyrir það þótt mikill
meiri hluti eyarskeggja alls ekki vilji þau,
og Blönduósskólinn samþyktur.
Stjórnarskrármálið í efri deild.
Önnur umræða um stjórnarskrármálið
fór fram í efri deild á miðvikudaginn.
Helstu breytingar er voru samþyktar þar
voru:
1. að samkomudagur þingsins skuli
vera 17. Júní.
2. að bæði meiri og minni hluti fjár-
laganefndar megi bera fram tillögu um
aukin útgjöld á fjárlögin, og að eigi sé
hægt að breyta því með lögum.
3. greinin um orður og titla er neðri
deild samþykti var felt burtu.
4. að veita mæiti hjúum og vistskyldu
fólki kosningarrétt með einföldum lögum
er bera skyldi undir alþingiskjósendur um
land alt til samþyktar eða synjunar áður
en leitað væri staðfestingar á þeim.
5. Skiftingin þingsins var samþykt svo
með 7 atkv. gegn 1.
Greinin orðist svo:
Alþingi skiftist í tvær deildir, efri þing-
deild og neðri þingdeild. I neðri deild
eiga sæti 26 þingmenn, kosnir óhlutbundn-
um kosningum f kjördæmum landsins, en
í efri deild eiga sæti 10 þingmenn, kosnir
hlutfallskosningum um land alt, og auk
þess 4 þingmenn, er sameinað Alþingi
sjálft kýs þar til með óbundnum kosn-
ingum úr flokki annara þingmanna fyrir
allan kjörtíma neðri deildar 1 fyrsta sinn,
sem það kemur saman eftir að nýar kosn-
ingar hafa farið fram. Verði nokkurt sæti
laust í efri deild meðal þessara þingmanna,
er nú voru næst nefndir, þá ganga báðar
þingdeildirnar, þegar búið er að kjósa
nýan alþingismann, saman til þess að
velja mann í hið auða sæti fyrir þann
tíma, sem eftir er af kjörtímanum.
Breyta má tölum þessum með lögum,
sé tölu þingmanna breytt.
6. 30 af þingmönnum skulu kosnir til
6 ára í sérstökum kjördæmum, óhlut-
bundnum kosningum, eftir því sem kosn-
ingarlög mæla fyrir, en 10 þingmenn
skulu kosnir hlutfallskosningum um land
alt til 12 ára, 5 þingmenn á 6 ára fresti
og jafnmargir varaþingmenn um leið og
síéríj goíí og oéýrf urvaí.
Sturla Jónsson.
á sama hátt. Þingrof ná eigi til þessara
10 þingmanna. Nú deyr einhver þeirra
þingmanna, sem kosnir era í kjördæmum,
á kjörtímabilinu, eða fer frá, og skal þá
kjósa þingmann í hans stað fyrir það sem
eftir er kjörtímans. Verði á sama hátt
autt sæti meðal þeirra, aem kosnir eru
hlutfallskosningum um land alt, tekur það
sæti varaþingmaður sá, er í hlut á.
Nánari reglur um hlutfallskosningar 10
efri deildar þingmanna og varaþingmanna
skulu settar með sérstökum lögum.
Saniþ. 11 : 2 (Ágúst, Kristján).
7. í stað þess að lögbinda að bera
sambandsmálið upp fyrir alla kjósendur
til synjunar eða samþykkis var samþykt
svo orðuð grein:
Með sérstöku lagaboði má kveða á um,
að þeim lagafrumvörpum, er alþingi hefir
samþykt, megi skjóta til leynilegrar at-
kvæðagreiðslu kjósenda neðri deildar um
land alt, annað hvort til samþykkis eða
synjunar.
Heimild þessi er þó þeiim skilyrðum
bundin, að fullur þriðjungur hvorrar þing-
deildar og þrjú þúsund kjósendur neðri
deildar krefjist atkvæðagreiðslunnar, enda
sé sú krafa komin í hendur stjórnarinnar
fjörutíu dögum eftir að lögin voru afgreidd
frá alþingi. Konungsstaðfestingar skal þá
fyrst leitað, er kjósendur hafa samþykt
alþingisfrumvarpið með atkvæðagreiðslu,
eða hinn lögákveðni frestur er útrunninn
án þess að atkvæðagreiðslu hafi verið
krafist.
Undanþegin þessari atkvæðagreiðslu eru
fjárlög og fjáraukalög, svo og þau lög, er
öðlast skulu gildí áður en fjórir mánuðir
eru liðnir frá því, er þau voru afgreidd
frá þinginu,
Af feldum tillögum má geta um til-
lögu er Lárus og Jósef báru fram, að
raðherra skyldi að eins vera ’einn, en
heimíla vildu þeir fjölgun með lögum.
Með þeirri tillögu urðu að eins tillögu-
mennirnir og Ágúst Fl., hinir móti.
ijáskilinn samþyktur.
í gær varð sá merkisatburður, að há-
skóli íslands var samþyktur til starf-
rækslu báðum deildum alþingis.
í neðri deild var samþykt að stofna
hann 17. J ú n í í s u m a r.
Með því voru: En móti:
Eggert Pálsson, Björn Þorláksson,
Benedikt Sveinsson, Björn Jónsson,
Bjarni Jónsson,
Einar Jónsson,
Björn Kristjánsson,
Björn Sigfússon,
H. Hafstein,
Jón Jónsson Hvanná,
Jón Jónsson Múla,
Jón Magnússon,
Jón Ólafsson,
Jón Sigurðsson,
Pétur Jónsson,
Sig. Gunnarsson,
Stefán Stefánsson.
Jóh. Jóhannesson greiddi ekki atkv. og
var því talinn með meiri hlutanum. Sig,
Sigurðsson ekki viðstaddur,
Samþykt var því að stofna háskólann
17. Júní næstk. með 14 atkv. gegn 10.
Þessari samþykt er ekki hægt
að breyta.
Björn Kristjánsson reyndi að ónýta
samþykt þessa með tillögu um að þessi
samþykt kæmi ekki til notkunar eða
gildis nema fé yrði veitt til háskólans á
fjárlögunum, en það var felt með 13 : n,
atkvæði féllu þá eins, nema hvað Bene-
dikt Sveinsson léði því fylgi.
Ur því að háskólinn er stofnaður 17.
Júní næstk og á að starfa til ársloka, þá
hlýtur líka að leiða af því, að halda
starfsemi hans áfram, enda samþykti efri
deild það með 9 : 4, og má ganga að
því sem vísu, að neðri deild geri það
einnig. Annað væri framúrskarandi mein-
ingarleysa.
Hálfdán Guðjónss.,
Jón Þorkelsson,
M. Blöndahl,
Ól. Briem,
Skúji Thoroddsen, •
Þorl. Jónsson,
ísland.
(Sungið í samsæti Jóns alþm. i Múla).
Landið góða, landið kæra,
langtum betra’ en nokkur veit!
þér ber ætíð fyrst að færa
feginsóð o)( trygðarheit.
Hjálpi drottinn lýð að læra
líf, sem hæfir frjálsri sveit.
Framtak, hófsemd, heill og æra
hefji og göfgi hvern þinn reit.
Lifi minning Iiðins tíma,
langtum meir þó tímans starf!
Lifi og blessist lífsins glíma,
leifi framtíð göfgan arf.
Hverfi ofdrambs heimsku víma,
hefjist magn til alls, sem þarf.
Lifi og blessist lífsins glíma,
lifi og blessist göfugt starf.
Landið blíða, landið stríða,
landið hrauns og straumafalls,
landið elds og hrímgra hlíða,
hjörtum kært til fjalls og dals!
í þér kraftar bundnir bíða,
barna þinna, fljóðs og hals.
Hvert þitt býli um bygðir viða
blessi drottinn, faðir alls.
H. Hafstein.