Þjóðólfur - 07.07.1911, Blaðsíða 4
IOO
ÞJOÐOLFUR.
á sjötugs aldri og hafði lengi búið
þar í dalnum.
AflabrögðNorðanlands. „Norðri"
frá 22. f. m. segir þá undanfarið
fremur góðan afla á Siglufirði, og
reitingsafla af síld inni á Eyjafirði.
Síldarverð þá 15—20 kr. tunnan,
upp úr sjónum. Hringnótaveiði segír
blaðið 6 gufuskip ætla að stunda í
sumar frá Akureyri, en frá Hjalteyri
geri tvö útlend félög út til sömu veiða.
Silfnrbergsnámurnar. Umsjónar-
mann þeirra frá landstjórnarinnar
hálfu hefir ráðherra skipað Pál Torfa-
son frá Flateýri. Hefir hr. P. T. nú
verið að líta eftir Helgustaðanámunni,
og er nýlega kominn heim úr þeirri
för.
Bæjarstjórnin. Fundur 1. júní.
Samþ. að lengja Fischersund upp að
Hildibrandshúsi við Garðastræti og
bauðst Gunnar kaupm. Gunnarsson
til að kosta vegargerðina.
Samþ. að veita Jóni Eyjólfssyni
land á leigu til stakkstæðis í Skóla-
vörðuholti, upp af Óðinsgötu.
Kosnir til að athuga útsvarskærur:
L. H. B , Kr. Ó. Þ. og P. Guðm.
Þessar brunabótav. samþ.: Hús
Guðm. Guðmundssonar, Bræðrab st.
4,445 kr.; Guðm. Magnússonar Grund-
arst. 10,567 kr.; Guðr. J. Jónsdóttur,
Laugav. 4,406 kr.
Fundur 15. júní. Afsalað for-
kaupsrjetti á Ánanaustabletti fyrir
7000 kr., með þeim skilyrðum, að
bærinn eigi rétt til að taka hann til
afnota síðar og ekki verði bygt þar
annað en nauðsynleg hús til fiskverk-
unar.
Ut af tilkynning formanns minnis-
varðanefndar J. Sig. um, að nefndin
óskaði nú, að standmyndin yrði
reist á blettinum milli Stjórnarráðs-
hússins og lækjarins, sunnan götu,
lýsti bæjarstjórn því yfir, að hún hefði
ekki á móti því.
Fundur 1. júlí. Rædd fyrirspurn
frá minnisvarðanefnd J. Sig. um það,
hvort leyft yrði, að líkneskið yrði
sett á Lækjartorg. Því var neitað
af bæjarstjórn.
L. H. Bjarnason bæjarfulltrúi gerði
fyrirspurnir til borgarstjóra um 3 at-
riði. Ut af fyrsta atriðinu var borin
fram svohlj. til).:
„Bæjarstjórnin lýsir að gefnu til-
efni yfir því, að L. H. B. hafi engin
fundarspjöll gert á bæjarstjórnarfundi
15. f. m. (samþ)., og vítir það, að
borgarstjóri hefir gefið tilefni til, að
sh'k saga komst í blöð" (felt).
Ut af 2. atr. var samþ. svohlj. till.:
„Bæjarstj. skorar á borgarstjóra,
að láta fullnægja löngu tekinni álykt-
un um breikkun Tjarnargötu, þegar
eftir að ráðherra kemur heirn".
Ut af 3. atr. samþ. svohlj. tillaga :
„Bæjarstj. skorar á borgarstjóra, að
hlutast til um það, án frekari drátt-
ar, að bæjarverkfræðingurinn taki við
slökkviliðsstjórastarfinu og að fram-
kvæmdar verði sem fyrst ráðnar
breytingar á slökkvifyrirkomulaginu".
Siggeiri kaupm. Torfasyni veitt
sláturleyfi í húsum sínum á sauðfje,
eins og að undanförnu, um þriggja
mánaða tímabil í sumar og haust.
Næturvarðarstaða veitt Sighvati
Brynjólfssyni með 10 atkv.
Verðlaun íþróttamótsins voru
flest minnispeningar úr slilfri eða
bronse. Á þeim öllum er mynd Jóns
Sigurðssonar, vel gerð.
Jóns Sigurðssonar-frímerkin eru
nú komin á gang, en eru ekki falleg
og myndin á þeim ekki lík.
Hjónaband. í fyrra kvöld giftust
hjer í bænum Guðmundur Þorsteins-
son læknir og Margrjet Lárusdóttir
frá Seyðisfirði, dóttir L. Tómassonar
bóksala og bankagjaldkera þar.
Skúli Thoroddsen ritstj. er kom-
inn heim úr suðurför sinni.
60 ára stúdentsafmæli á Stgr.
Thorsteinsson rektor nú í vor, út-
skrifaðist 1851, þá tæplega tvítugur.
Úr eftirlitsferð til bankaútbú-
anna eru þeir nýlega komnir banka-
stj. E. Schou og B. Kristjánsson.
Yerksmiðjur á Sigluflrði. Þar
kvað vera í byrjun bygging á tveim-
ur verksmiðjum, sem eiga að vinna
lýsi úr síld og þurka hana og mala
síðan til fóðurmjöls. Önnur kvað
jafnframt eiga að vinna fóðurmjöl og
áburð úr allskonar fiskiúrgangi og
sagt, að hún muni kosta yfir 200
þús. kr.
Dáin er nýlega ekkjan Þórey Guð-
laugsdóttir á Munkaþverá í Eyjafirði.
Gagnfræðaskólinn á Akureyri.
Þaðan útskrifuðust í vor 36 nem-
endur, 32 karlmenn og 4 konur.
Lausn frá embætti hefir Axel
Tuliníus sýslumaður sótt um frá
næstk. hausti vegna eyrnasjúkdóms.
Sagt er, að hann flytji þá hingað
til Rvíkur.
•lón Migurðssou. Víðaumland
var 17. júní haldinn hátíðlegur. A
fæðingarstað Jóns, Rafnseyri við Arn-
arfjörð, var afhjúpaður bautasteinn,
en það er grásteinn mikill, sem stend-
ur á hóli rétt neðan við íbúðarhúsið,
og er greypt í hann bronseplata með
andlitsmyndJóns Sigurðssonar. Margt
manna var þarna saman komið. Síra
Böðvar Bjarnason setti hátíðina, en
Matth. Ólafsson í Haukadal talaði
fyrir minni Jóns Sigurðssonar. Marg-
ar fleiri ræður voru þar haldnar.
Kvæði voru sungin eftir H. Hafstein
og Guðm. Guðmundsson. A eftir
var leikfimi sýnd af fimleikaflokki
frá Þingeyri.
Á ísafirði flutti síra Sig. Stefáns-
son í Vigur ræðu um Jón Sigurðs-
son og starfsemi hans. „Vestri" gaf
út sérstakt minningarblað og er þar
löng grein um J. S. eftir præp. hon.
Þorvald Jónsson.
Á Akureyri var fjölmenn samkoma.
Guðl. Guðmundsson bæjarfógeti setti
hana, en ræðu fyrir minni Jóns Sig-
urðssonar hélt síra Matth. Jochums-
son. Minningarkvæði eftir síra M. J.
var sungið. Fleiri ræður voru og
haldnar. Meðal annars flutti St.
Stefánsson skólameistari ræðu um
stofnun háskólans. Leikfimissýningar
fóru og fram.
Á Húsavík var fjölmenn samkoma.
Þar flutti Stgr. Jónsson sýslumaður
ræðu um J, S.
í Vaglaskógi í Fnjóskadal var og
samkoma. Þar talaði síra Ásmundur
Gíslason fyrir minni J. S.
Samkomur voru ennfremuráGræna-
vatni við Mývatn, á Möðruvöllum í
Hörgárdal og í Axarfirðinum.
Á Seyðisfirði var stór samkoma,
haldin að tilhlutun ungmennafélag-
anna eystra. Þar voru ræður haldn-
ar af Jóni alþm. í Múla, síra B. Þor-
lákssyni, síra Einari Jónssyni og Hall-
dóri skólastj. Jónassyni. En kvæði
voru sungin eftir Guðm. Guðmunds-
son, Guðm. Magnússon, Sig. Bald-
vinsson og Þorst. Erlingsson. Er
kvæði G. M. prentað hér í blað-
inu og þar leiðrétt villa, sem bæði
er í sérprentun kvæðisins, sem sungið
var eftír, og líka í „Austra". Það
er „gestum" fyrir geislum í næst-
síðasta vo. íþróttasýningar og söng-
skemtanir voru þar einnig.
Á Vopnafirði hélt síra Sig. P.
Sivertsen ræðu um J. S., en kvæði
var sungið eftir Ingóif Gíslason lækni.
í Borgarfirði eystra og á Eskifirði
voru einnig samkomur, og án efa á
mörgum fleiri stöðum til og frá, þótt
enn hafi eigi komið fregnir af því.
_______________________(Lögr.).
Heiðraðir kaupendnr Pjóðólfs
ern beðnir að athuga, að gjald-
dagi blaðsins var 1. júlí.
Ág’ætur staríi.
Sérhver ætti að reyna að nota tækifærið
til þess að græða mikið fé með því að selja
vörur eftir stóru myndaverðskránni minni
sem er 112 blaðsíður að stærð; þar eru
hjólhestar, hjólhestahlutar, úr, úrfestar, næl-
ur, hljóðfæri, járnvörur, glysvarningur, vindl-
ar, sápur, leðurvörur og álnavörur. 50%
ágóði. Einstaklega lágt verð. Verulega
fyrsta flokks vörur. Verðskrá og upplýsing
ar ókeypis og burðargjaldslaust.
Chr. Hansen.
Enghaveplads 14. Köbenhavn
Gjafir og áheit til Heilsuhælis-
félagsins.
A ártíðaskrána kom í mat . . 261,35
Aheit og gjafir: Guðm. Sigurðs-
son skipstj.....................25,00
Gunnlaugur Illugason .... 25,00
Eyjólfur Björnsson................20,00
Stúlka í Hf........................2,00
Kona á Akranesi....................3,00
N. N. Vatnsleysusuströnd . . 5,00
Asg. Daníelsson...................10,00
Magnús Bj. Hákonarson . . . 10,00
J. G. s/oo; H. S. Þ. 2/oo; N. N. */oo 8,00
R. Á. Rvík 5/°°i N. N. 7°® . . 7,00
Jón Sigurðsson alþingism. . . 5,00
Sig. Bjarnason Hf.................10,00
N. N. IO/o°; N. N. 5/oo . . . 15,00
Sjóm. 5/o0; L. P. 3/oo . . . 8,00
I. S. sjóm..........................5,00
Gjöf frá Brautarholti á Kjalarnesi 25,00
J. Jóh. Eyfirðingur I0/00; N. N. T/oo ir,oo
Stúlka ( Árnessýslu.................5,00
Eyfellingur.........................2,00
Kr. 462,35
Jón Rósenkrans.
er íliit t
úr Aðalstræti 8
í Skólastrseti 4,
(Crimli).
skilur á klukkust. brúttóYerð.
I 260 . . 200 — )
Hvers vegna greiða hátt verð fyrir
skilvindur, þegar vér getum boðið yður
Prímus-skílvinduna
okkar fyrir ofanritað afarlága verð?
Besta og þó ódýrasta skilvinda á heims-
markaðinum. Auðtekin sundur, auðhreinsuð
og auðvarðveitt.
Hlotið verðlaun hvarvetna á sýningum.
Biðjið um verðskrá. Umboðsmaður MöIIers Enke, Köbenhavn.
a|b B, A, Hjorth & Co,
Stockholm (Sverige).
PantiÖ sjálíir fataefni yðar
beina leið frá verksmiðjunni. Stór sparnaður. Án þess að borga
burðargjald getur sérhver tengið móti eftirkröfu 4 mtr. 130 Ctm.
breitt svart, blátt, brúnt, grænt eða grátt ektalitað alulIar-WLIiÆÐI
í fallegan, haldgóðan kjól- eða sparibúning fyrir einungis ÍO lcr.
2,50 pr. Mtr. Eða 374 Mtr. 13.3 Ctm. breitt, svart, myrkblátt eða
gráleitt hamódins efnl í sterk og falleg karlmannsföt fyrir adeins
14 kr. ,30 aur. Ef vörurnar eru eigi að óskum kaupanda verða
þær teknar aftur.
Aarhus Klædeveveri, Aarhus, Danmark.
Klxðevxver €íling, Viborg Danmark
sender Portofrit 10 Al. sort, graat, inkblaa, inkgrön, inkbrun
finulds Ceviotsklæde til en flot I>a,m.eLcjole, for kun 8 Kr. 85
Öre, eller 5 Al. 2 Al. bred sort, inkblaa, graanistret Ilenulds Stof til
en solit og smuk Herredragt for kun 13 Kr. 85 Öre.
Ingen Resikol Kan ombyttes eller tilbagetages. — Uld köbes 65
Öre Pd,, strikkede Klude 25 Öre Pd.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: *Jón ÓUifHwon.
Prentsmiðjan Gutenbreg,