Þjóðólfur - 04.08.1911, Síða 1

Þjóðólfur - 04.08.1911, Síða 1
63. árg. Reykjavík, Föstudaginn 4. ágúst 1911. M 29, Tímamót? Háttv. alþingism. og ritstjóri! Það var vel til fallið að láta Þjóð- ólf gamla flytja „Kaflann" úr ræðu séra Fr. Fr. þann 18. júní. A síðustu og verstu tímum veitir þjóðinni eigi af, að fá slíkar hugvekj- ur sem þessa. Ennfremur ritgerð biskups: „Hvert stefnir", ræðu Jóns Jakobssonar: „Ástand og horfur" o. fl. af líku tægi. Þjóðin þarfnast aldrei fremur en nú skynsamra og heiðarlegra bölsýnis- og íhalds-manna. Það er að segja, manna, er líta rétt á það, sem fram fer og sjái, hvert stefnir, og þori að segja það, og hafi svo þrek til að standa við orð sín. Henni eru þeir menn mikið þarfari og farsælli en þeir, sem lofa öllu og svíkja alt. Hvernig fór t. a. m. um efndir meiri hlutans, sem nú er, fyrir síðustu þingkosningar? Þeir, sendu þá legáta sína um alt. Bjarni frá Vogi fór t. d. um meiri hluta landsins og blekti og æsti menn. í Og hvað fékk hann svo að launum ? Nær 50,000 —- fimmtíu þúsund — kr. En það voru eigi útsendarar hans, er borguðu úr sínum eigin vösum, held- ur varð landsjóður eða þjóðin að borga af sinni eigin fátækt. Hvað fékk hún svo í staðinn? Það vita allir, sem nokkuð skilja eða fylgjast með því, er fram fer, að hún fékk alls ekkert ann- að en gremju sjálfrar sín, en aðhlátur, lítilsvirðingu eða meðaumkun erlendis, fyrir það, að hafa annan eins rnann sem Bjarna fyrir verslunarráðanaut. Og aldrei mun nokkurt alþing hafa leyft sér að lítilsvirða og fótum troða eins þjóðarviljann sem hið síðasta, með því að binda viðskiftaráðanauts- stöðuna við nafn Bjarna. Þarf eigi annað en kynna sér þingmálafundar- gerðirnar víðsvegar um land alt, til að sannfaerast um þetta. — En á þingi gleymdu þjóðmálaskúmarnir að hampa þjóðarviljanum. En legátar Björns Jónssonar, og hans liða, voru margir sumarið 1908, svo að eðlilegt var, að bitlingarnir yrðu margir og fjárausturinn svo af- skaplegur til allskonur óþarfa á þing- unuln 1909 og 1911, að nauðsynja- útgjöldin yrðu að sitja á hakanum, eins og raun bar vitni um. Von er því að spurt sé; „Hvert stefnir?" Nú spyr hver heiðarlega hugsandi ætt- jarðarvinur: Hvaða stefnu mun þjóð- in taka í haust, eftir að Iegátar meiri hlutans hafa ferðast um og beitt sinni vanalegu aðferð við kjósendur þessar- ar fátæku, blektu og táldregnu þjóðar. Þetta verður hver og einn að athuga vel, og reyna að svara sjálfum sér eins og skynsemdar- og drengskaparmanni sæmir best. Eg sný mér aftur að ræðu síra Fr. að líkja þjóðlífi voru nú við öldurótið í Keykjanes-röst. En jeg hugsa samt til Látra-rastar, því að hana hef eg séð ægilegasta af sævarröstum, þegar oíveður er, og tíð svo umhleypinga- söm, að áttaskifti verða jafnmörg sem eyktaskiftin á sólarhring. Ef skip hrekjast þá út í hana, er fátt til bjarg- ar. Röstin fleygir þeim ýmist áfram eða heldur þeim kyrrum, eðaþáhring- snýr þeim eins og skopparakringlu. Hún þeytir þeim upp á hæstu freyð- andi öldutoppana, eða sogar þau nið- ur í dýpstu hringiðuskálarnar, og þá og þegar má búast við, að hún gleypi þau niður í sjávardjúpið, svo að ljós dagsins skíni aldrei yfir þau framar. Þannig virðist mér hafi verið ástatt í þjóðlífi voru nú á síðustu tveim til þrem árum, eða þann tíma, er Sjálf- stæðis-Landvarnar-Skilnaðarflokkurinn hefur ráðið í landinu. Þannig er því varið með fjárhaginn, þannig er því varið með siðgæðið, einkum að því, er ljárglæfra, allskonar sviksemi, ósann- indi og blekkingar snertir o. fl. o. fl. Eins og þyrlandi öldutopparnir hafa þjóðglamrararnir og kjaftaskúmarnir þyrlast. Eins og vindstaðan og öld- urnar hafa snúist eins og snælda, hafa hringlararnir hringsnúist, og eins og | skottið fylgir skrokknum, hafa þeir | ósjálfstæðu og ósjálfbjarga flækst með. Eins og hinar dýpstu hringiðuskálar hafa dulist neðst við rætur ölduhnúk- anna, þannig hafa flærðar- og undir- úyggjumennirnir, eða jarðarormarnir svonefndu, falist, til að leita eftir bráð sinni. Eins og hákarlarnir ösla íöldu- róti rastarinnar til að gleypa í sig mannabúkana af skipum þeim, er far- ast, þannig hafa fjárglæframennirnir og þeirra snýkjudýr svamlað, til að rífa í sig alt, er tönn á festi. Hefur þá einu gilt, þótt það væri til ómet- anlegs skaða fyrir land og lýð, að eins ef það veitti þeirn stundarhagn- að, til að svala nautnarfýsn sinni, eða bjarga við takmarkalausu ráðleysi þeirra. -— Og niður í þetta forað hefur svo meiri hluti fáfróðrar og hugsunar- lítillar alþýðu sogast. Kórónan á öllu þessu hefur svo verið sú, að menn hafa árum saman talað um það með raunablandinni alvöru, hvort þeir tveir menn, er mestu hafa ráðið í meiri hlutaflokknum, og jafn- nærri hafa um eitt skeið staðið ráð- herrastöðunni, væru heilbrigðir á söns- um eða eigi. Eg segi þetta eigi til að misbjóða mönnum eða lítilsvirða þá. Hér er um sjúkdóm að ræða, sem þeim er eigi sjálfráður, og eftir því, er séð verður, eigi kominn fram fyrir sjálf- skaparvíti þeirra. Meira að segja, það er mín fasta sannfæring, að því er Björn Jonsson snertir, að það sé hið eina, er geti afsakað gerðir og athæfi hans, bæði nú og s/ðar meir, fyrir dómi sögunnar, að honum hafi eigi verið sjálfrátt. En raunalegt er til þess að hugsa, að þjóðin skuli geta sokkið svo djúpt, að hafa þá fyrir aðalleiðtoga sína, og vilja fá þeim æðstu völdin í hendur, sem deilt ef um í alvöru, bæði af meðhalds- og mótstöðumönnum, hvort séu með öllum mjalla. Nú fyrst fara menn að skilja Róm- verja á dögum Nerós og Caligula. Það var meira en lítið gerræði af B. J. og liðum hans á síðasta þingi, að knýja fram Bjargtangavitann, alveg undirbúningslaust, og án þess að nokk- ur hefði hugmynd um, hvað hann mundi kosta. Einnig þvert ofan í til- lögur þess verkfræðings, er hefir vita- málin með höndum, og þvert á móti þeirri sjálfsögðu reglu, að byggja vit- ana eftir þeirri röð, sem þörfin er brýnust fyrir þá. Hver skyldi geta trúað öðru eins óvita fimbulfambi? — En það var svo sem rétt eftir öðru frá því þingi. Auðvitað var sjálfsagt, að á sínum tímá kæmi víti á Bjargtöngum, sem um ókomnar aldaraðir lýsti út yfir Látraröst. Og svo þegar rokveðurs- umhleypingarnir ganga, þá verði hægt frá vitanum að benda út yfir ólgandi og freyðandi röstina, mann fram af manni og öld eftir öld, og segja: Svona leit þjóðlíf vor íslendinga út á stjórnartíð Björns Jónssonar og þing- liða hans. Framan á fótstall vitans ætti svo að setja „Kjötpott íslands" með upp- hleyptum myndum, og setja þar undir með óafmáanlegu letri og tilvísunar- merki á pottinn: Þannig var þjóðlíf vort á stjórnartíð Björns Jónssonar og þingliða hans. Það er eðlilegt, að alla hugsandi ættjarðarvini hrylli við því, sem á undan er gengið og horfi með sárasta kvíða móti framtíðinni, og óttist, að þjóðin gani viðstöðulaust til vesaldóms og tortímingar. En oft hefir hið fornkveðna rætst, að „þegar neyðin er stærst, er hjálpin næst". Það verður að treysta því, að enn sé svo mikill manndómur og lífs- afl eftir hjá þjóðinni, að bún láti skað- semi og ógæfu þá, er síðustu kosn- ingar og síðastliðið stjórnarfar leiddi yfir Iandið, verða sér að kenningu. En þetta sýna kosningarnar í kaust. Tímarnir eru því í mesta máta al- varlegir. Þótt þjóðin hafi beðið skaða, svo að líkindum skifti miljónum króna, af öllu ráðlaginu síðan sumarið 1908, og þar sem verra og sárara er, mist traust og virðingu fyrir sjálfri sér, og þar af leiðandi allra betri manna út á við, þá eru líkur til, að hún læri svo af þessu, að bætur fáist, þótt seint verðr og dýrkeyptar séu. „Ei vitkast sá, er verður aldrei hryggur, hvert viskubarn á sorgarbrjóstum liggur. Á sorgarhafsbotni sannleiksperlan skín, þann sjóinn máttu kafa, efhún skal verðaþín". Sennilegt, að þjóðin hafi þurft að kafa þann sjó, til að sjá hvað til síns friðar heyrir. En smátt og smátt virðist rofa til. Fleiri og fleiri hinna betri manna vakna til umhugsunar og fylgis við hin betri málefni þjóðarinnar, og þá er auðsætt, hvar þeir skipa sér í fylkingu. Enda má nú svo að orði kveða, að þótt leitað sé með logandi ljósi um þvert og endilangt ísland, þá finst varla einn einasti, er fylli flokkinn með mörgu nöfnunum, er sameina vit og þekkingu, drengskap, ósérplægni og alvörufestu, föðurlandsást og einlægan vilja til að vinna þjóðinni gagn. Eina eða fleiri, eða jafnvel allar af þessum dygðum hlýtur að vanta, til þess að hann eigi þar heima, en andstæðar ódygðir að koma í staðinn. Þetta er lífsteinn; annars er voðinn vís. Þeir, sem hugsa um sæmd og hagsmuni þjóðarinnar, verða vel að athuga þetta, fram yfir næstu kosn- ingar til alþingis. Það geta liðið svo aldir, að eigi renni upp aðrir dagar, sem verða örlagaþrungrari en 28. okt. nú í haust. Ábyrgð kjósenda er því þung, já aýar þung. Þjóðvegurinn er nú svo brúkaður, að lítið má herða að, til þess að hann brotni til fulls. Engan má því kjósa á þing, er stendur undir merkjum meiri hlutans. Það væri því hið mesta glapræði og þjóðarsynd, því að það er margsýnt, að þeim má alls eigi treysta fyrir sæmd og hagsmunum þjóðarinnar, heldur að eins fyrir því, að skara sem best eld að sinni eigin köku, hvað svo sem það gildir fyrir heiður og framþróun lands og þjóðar. Og út yfir öll velsæmistakmörk gengi það, ef nokkur af þeim þingmönnum næðu endurkosningu, er skilyrðislaust fylgdu siðustu stjórn að öllum málum, hversu fráleit sem þau voru. Virðingarfylst Hermann Jónasson. Suniurlausir þankar um stjórnmál og kosningar. Eg er stundum að hugsa um það, hvar eg mundi hafa staðið í pólitík, et eg hefði setið einhversstaðar úti á landshorni, og ekki þekt hana af öðru en einu eða tveimur flokksblöðum og nokkrum kjósendafundum, þar sem stundum er verið að rífast um ráð- herra, sem menn varla kunna að nefna og því síður þekkja. — Og eg vor- kenni þeim kjósendum, sem svo eru staddir, og skil vel að þeim geti svo farið á endanum, að þeir trúi engu í stjórnmálum, nema því sem uppáhalds- blaðið þeirra flytur þeim, eða þá fara í öfgar í hina áttina og trúa og treysta alls engu af stjórnmálaskrafi blaðanna. Mörgum leiðist rimman um stór- pólitíkina og óhugur er í mönnum og vantraust til fulltrúanna á þingi, enda er auðsætt, að stjórnmálasvartsýni er að ryðja sér til rúms vor á meðal, þar sem t. d. annar eins bjartsýnis- maður og hr. biskup Þórhallur Bjaruar- son segir í blaði sínu 15. júní, sama sem á aldarafmæli Jóns Sigurðssonar: „Mér er það svo innilega og hræði- lega Ijóst, að íslenska þjóðin er ein- mitt nú á beinurn glötunarvegi, sekk- ur í ánauð og svívirðingu, ef við

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.