Þjóðólfur - 08.09.1911, Blaðsíða 3
ÞJOÐOLFUR.
Hún segir, að jeg nú hafi fengið ann-
an mann til þess að hjálpa mjer við trú-
boðið. Sá maður, sem hún á við, And-
rew Jenson, kom ekki hingað til þess að
hjálpa mjer. Hann er hámentaður mað-
og historíuskrifari og hefur farið kringum
jörðina í erindum Jesú Krists kirkju, er
sumir nefna Mormónakirkju. Það var
hans erindi hingað, að fá fyrstu og áfram-
haldandi skýrslu af trúboði öldunganna,
sem hingað hafa verið sendir til að prje-
dika náðarboðskapinn og útfæra hans
atriði.
Hún segir, að bæði Andrew Jensson
og Josep Smith hafi reynt að þræta fyrir,
að þeir lifðu í fjölkvæni. Þetta er að
öllu leyti ósatt. President Josep F. Smith
hefur aldrei borið á móti þvi, að hann
ætti fleiri konur. Hann hefur opinber-
lega kannast við það fyrir veröldinni og
Bandaríkjastjórninni, að hann væri giftur
5 konum bæði fyrir tíma og eilífð, og að
þær hefðu verið hans konur yfir 27 ár
og hann eignast með þeim yfir 40 börn.
Flestir munu vita, að það eru 20 ár
síðan, að fjölkvæmið var með lögum af-
numið í Utah og á sjer ekki stað sfðan.
Fáeinir eru þó enn lifandi, sem áttu fleiri
konur og eiga þær enn.
Jeg kom til Utha árið 1877 frá Can-
ada og annar Islendingur sama ár frá
Kaliforníu, og hef jeg átt heima þar síð-
an og hef jeg aldrei verið krafinn til að
borga kirkjunni eða ámintur um að borga
til hennar einn eyri. Þess háttar kröfur
eiga sjer ekki stað. Engin Mormóna-
kennimaður tekur neitt fyrir embættis-
verk sín. Jeg og margir aðrir borga tí-
und til kirkjunnar, því að jeg veit og trúi,
að það sjeu lög frá upphafi. Við höfum
enga ölmusumenn í Jesú Krists kirkju og
engan sveitarómaga. Aldrei hefur þurft
að taka nokkurs manns eign til kirkjunn-
ar. Jeg er frjáls að gefa af mínu, hverj-
sem jeg vil. Jeg sem aðrir borga eigna-
skatt til sýslunnar; það má og er tekið
lögtaki, ef ekki er borgað.
Það er ekki nýlega tilkomið, að vjer
sjeum ofsóttir. Það hefur svo til gengið
sfðan guð aftur uppreisti sfna kirkju.
Jacob B. Johnson.
Gjafir lil PjDðmenjasafnins
árið 1910.
F’jóðmenningarsafnið (Forngripasafnið).
5/i Dr. Jón Þorkelsson skjalavörður:
Bókarkápa gömul úr skinni með bæki-
spjöldum, at Dihlers Reisupostillu (Skál-
holti ióqo); með allmiklu verki þryktu.
7/2 Forstöðumaður safnsins: Spávala
með formála og skýrslu.
,3/j Sigurður Sigurðsson, Reykjavík:
Glertala forn, frá landnámstíð, svört með
hvltum böndum og þremur smábólum á,
sem eru grænar í miðju, en hvftar og
rauðar umhverfis. Fundin í Viðey sum-
arið 1909.
I3/a Valgerður Hannesdóttir, Reykja-
vík: Brókarhaldshnappur steyptur úr
kopar, með fallegu verki, gröfnu, en frem-
ur algengur.
“5/a Guðbrandur Jónsson, Reykjavfk:
Skúfhólkur úr silfri, allgamali, lítill.
6/3 Jón Björnsson, Ögmundarstöðum:
Hamólahringjur einar úr kopar, þófagjarð-
arhringja úr kopar, þornlaus; brókarhalds-
hnappur, steyptur úr kopar, með gröfnu
verki, fóðraður.
aS/3 Náttúrugripasafn íslands: Tala af
talnabandi eða hálsfesti, útskorin úr svörtu
efni (surtarbrandi?), forn.
24/., Oddur Oddsson gullsmiður, Eyr-
arbakka: Skæri íslensk, handföng úr
kopar, blöð úr stáli.
Ia/s Jún hreppstjóri Jónsson, Hafsteins-
stöðum : Krókstokkur úr kopar, steyptur,
af belti eða úr hempupari; á honum eru
mótuð englahöfuð. Fundinn í gömlum
öskuhaugi.
l8/s ^tefán Jónsson, Munkaþverá:
Ljáir 4 með hinni gömlu gerð, allmjög
eyddir. A þjóunum eru þrír deplar og
önnur merki, sem munu vera smiðs-
merki.
3/6 Magnús Erlendsson gullsmiður í
Reykjavík: Draglöð gömul, íslensk, úr
dragsmiðju.
i4/ó Gísli silfursmiður Gíslason, Reykja-
vík: Nautajárn, til að binda undirfram-
fætur á nautgripum, er fara skal með á
ís. Frá Núpsstað í Fljótshverfi.
2I/6 Jón Borgfirðingur, Reykjavík: Ljós-
mynd af Katanesdýrinu (1874) gerð eftir
teikningu eftir Ben. Gröndal.
25/ö Sigríður Pjetursdóttir, Hlíðarhýs-
um í Rvík: Hvalbeinshlunnar 2; fiska-
krókar; ýsuklóra; seilarnál úr hvalbeini
og önnur úr beykitrje; kúlur 7 af mastur-
böndum, rendar úr beykitrje, kallaðar
»klúðar« (þ. e. Kloder).
27/ö Filippía Sæmundsdóttir, Þingskal-
um: Döggskór gamall úr eirblendingi;
af sverðslfðrum eða hnífskeiðum.
J9/7 Björn prestur Jónsson, Miklabæ í
Blönduhlíð: Leifar af hófhringju úr járni,
fremur lítilli, brot tvö af annari; járn-
naglar tveir, hausstórir; járnmolar, ókenni-
legir að svo stöddu. Alt fundið 1 fornri
dys á Miklabæ. Ennfremur: gjarðahringja
úr járni ferskeytt með miðbandi og þorni
á. Sögð fundin á sama stað, en virðist
ekki forn.
3I/7 Breiðabólstaðarkirkja í Vesturhópi:
Skarbftur ur járni, með einkennilegri gerð,
svipaður skærum. Virðist ekki gamall.
31/7 Sjera Hálfdán Guðjónsson, Breiða-
bólstað: Kotrutöflur tvær, rendar úr
hvalbeini, önnur hvft, en hin græn. Sagð-
ar úr kotrutafli Finns biskups Jónssonar.
2/s Þorsteinn smiður Hjálmarsson,
Hvammstanga : Skyrtunálar tvær úr silfri,
steyptar af Jakobi Snorrasyni á Húsafelli.
z/8 Sigurður Árnason í Kirkjuhvammi:
Beislishöfuðleður gamalt úr íslensku leðri
með stöngum úr járni; paramát (til þess
að búa til krókapör með), beislisstöng úr
eirblendingi, gömul; sjálfskeiðingur gam-
all úr járni. Fundinn uppi á afrjetti.
Sami: Fjöl úr furu, útskorin með stór-
gerðri leturlínu og rósastreng undir;
stendur á henni með gotnesku smástíls-
letri, líku höfðaletri: farid ut um all-
a n h e [iminn]. Að líkindum partur af
vindskeið af kirkju í Kirkjuhvammi; hún
fanst þar undir kirkjugólfi.
s/8 Sauðafellskirkja: Skarbítur úrkop-
ar með samsettum töngum. Húsið með
pressuðu verki.
l8/io Sigurjón Kjartansson frá Drangs-
hlíðardal: Kertiskragi úr kopar af ljósa-
hjálmi með gotnesku lagi. Fundinn 1
moldarbarði skamt frá Lágafelli í Mos-
fellssveit um 3’ í jörðu.
"9/xo Jón hreppstj. Jónsson á Hafsteins-
stöðum : Snældusnúður úr rauðum steini,
óvenjulega stór, hálf-kúlumyndaður. Mun
hafa verið hafður á hrosshárssnældu.
Fundinn f jörðu.
Ingigerður Símonardóttir: Altaris-
brún blá með kögri, gamalleg; grafskrift
yfir Björn Ólafsson (-j- 1823)0^ Ingibjörgu
Jónsdóttur (-{- 1820) frá Tungufelli.
14/u Moritz Halldórsson læknir, Park
River, N. D.: Vínbikar (-skál) lftil úr
eiri, nær hálfkúlumynduð, hvylft upp í
botninn. Uppi við barnana er stungið
að utan með venjul. snarhandarletri:
Trinck mich aus: Leg mich nieder:
Steh ich auf: So Fúll mich Wieder:
— M-7-3- Vfnskál þessi er komin til
Ameríku frá íslandi; hún hefur lengi verið
sögðaðhafa verið ferðakaleikur prests eins
á Ríp í Skagafirði.
14/u Jóhannes Kjarval málari, Reykja-
vlk: Steinlampi, höggvinn úr gráu mó-
grjóti, kringlóttur að ofan, en að neðan
ganga út eyru beggja vegna og eru göt
á þeim; í götin hefur verið dregin ól eða
band og lampinn getað orðið hengdur
upp. Innan f skálinni er svört skán eftir
Ijósmetið. Fundið um 3 álmr í jörðu í
Geitavlk í Borgarfirði eystra.
Sami: Tveir steinlampar af líkri gerð.
Annar kringlóttur og flatur, hinn hnött-
óttur og ílangur nokkuð. Á honum er 1
skálarbarminn skarð fyrir kveikinn. Fundn-
ir á sama stað. — Það virðist nú öld-
ungis vafalaust, að þessir og aðrir líkir
bollasteinar, er víða hafa fundist hjer á
landi, sjeu lampar frá fornöld.
'9/u Thora Melsteð, Reykjavík: Hnakk-
ur Páls Melsteðs sagnfræðings. Mun vera
frá því um miðja síðustu öld.
'9/11 Ásgeir Sigurðsson, Reykjum í
Lundarreykjadal: Látúnshnappur flatur,
með gagnskornu verki, í lfkingu við blóm.
2fi/11 Jón Jónsson, Möðrufelli, Eyjafj.s.:
Fjalir með útskurði, fimm að tölu, fornar
úr byggingu. Gerðin á þessum útskurði
er helst í gotneskum stfl eða svipuð
honum. Ef til vill eru íjalirnar úr kirkju-
byggingu í nágrenninu. Þær munu naum-
ast yngri en frá 14 öld.
29/n Stefán Sigurðsson, Hvítadal:
Tóbaksbaukur úr mahogni, með nýslifur-
hringum um stútinn og tappann, og silf-
urhring um botnopið; T er skorið á
töppina; baukinn átti Tómas Guðmunds-
son, er nefndur var víðförli.
14/t2 Dr. Jón Þorkelsson skjalavörður:
Upphafsstafa-uppdráttur, stafirnir P. T. D.
skrautlega uppdregnir með bleki á pappfr.
Fundinn í gamalli bók.
24/i2 Ólafur Halldórsson, Fróðastöðum :
Snældusnúður úr fitusteini, hálfkúluroynd-
aður. Fundinn á Ásbjarnarstöðum í Mýra-
sýslu.
24/i2 Óviss gefandi: Svuntuhnappur
gamall úr silfruðu látúnsvíravirki.
Ennfremur hafa safninu bætst þessir
gripir ókeypis:
25/ö Steinasörvi fornt, eða leifar af því.
Trjebútar ryðfullir og járnbútar. 8 met
úr blýi. Leifar af spjótsoddi; falurinn
nær allur með geirnaglanum og leifum
af skaftinu. Járnnaglar og ryðklumpar.
Leifar af trje (máske spjótskafti). Spjóts-
oddur, mjög ryðbrunninn, en heldur þó
allvel laginu; þungur og sver, geirnagl-
inn er í og leifar af skaftinu. Ryðkekkir
tveir. 3 blýmet. Hnoðsaumur úr báti;
um 50 naglar með róm ; naglabrot og ryð-
molar um 100 st. Trjeflísar og viðarmold
úr sama báti. Hringja lítil úr járni,
þornið vantar. Kápunæla tvöföld að of-
an, úr bronze; hefur verið gylt; þornið
er í og um það leifar af tvenskonar
vefnaði og fljettuðum böndum. Hnífur
með trjeskafti, Járnbútar 3. Brot af stein-
potti (grýtu) úr gráleitum steini. Járn-
hringja með þorni. Brot af annari. Járn-
naglar 3. Viðarkolamolar, lítill járnbútur
og beinflís. Töflur úr hnefatafli 19 alls,
fáar heilar, allar úr beini, kringlóttar,
rendar. Járnmolar 3, litlir. Brot af járn-
mjelum. Brýnisbútur lftill. Leifar af
steinasörvi. Ennfremur töluvert af manns-
beinum, hestsbeinum og hundsbeinum. —
Allir þessir gripir eru úr dysjunum við
Dalvík, og afhentir safninu af próf. Fipni
Jónssyni1).
27/ó Prjónar 2 úr messing. Nálar 2
úr járni. Öngull úr járni. Broddar 2
með hólk eða fal á öðrum enda; munu
vera af tjaldsúlum. Saumhögg (eða skeifu-
skafl?) úr járni. Hnífsblöð tvö úr járni,
lítil og eydd. Forsteypa úr kopar.
Brot af barmi af keri (eða klukku?) úr
ljósleitum málmblendingi. Húfa lítil
úr messing (af nælu?). Laðarbrot úr járni.
Brot af keri úr prinsmetalli. Snúður,
brotinn, úr fitusteini. Brýnisbútur. Járn-
plata með gagnskornu verki. Saumnál
úr eiri, oddbrotin. Járnkrókar þrír litlir,
máske önglar. — Alt þetta er fundið á
Austasta-Reyðarv. og 1 Kongshól, eyði-
býli, sem er að blása upp skamt frá Ysta-
Reyðarvatni. (Allir þessir síðasttöldu 20
gripir komu til safnsins fyrir allmörgum
árum, en ekki skrásettir fyr). Járnmjel
stakt, með hring; lengd 9,5 sm. Fundið
við Rangá þar sem þeir Gunnar börðust.
(Löngu komið til safnsins). Húfa úr
bronze, smákrossar á hliðum og enda;
trjeleifar (af hnífskafti?) eru innan í.
Fundin við Knafahóla.
s/7 Brot úr altaristöflu allmörg; taflan
hefur verið úr eik, olíumálað spjald af
krossfestingunni. Umgjörð í »borok«-stíl
1) Sja ennfr. skýrslu hans og Daníels
Bruuns í Aarb. f. nord. Oldkh. og Hist.
1910, bls. 62—100.
131
með ártali 1644. — Frá Stafafellskyrkju.
Hökulkross forn, frá sömu kirkju.
9/7 Höklar þrír, gamlir. Bútar tveir
af fornri stólu, einkar vel saumaðir með
gullvlr og silkiþræði. Altarisklæði úr
gyllileðri, í »barok«-stíl. Altarisdúkur úr
silkidamaski. — Alt frá Hólakirkju í
Hjaltadal.
19/7 Hnífblað Ktið úr járni. Rónagli
úr járni. Fundið í dys á Miklabæ í Bl,-
hl. — Afhent af fornmenjaverði.
28/7 Mannsbein fáein og mjög fúin,
hauskúpa, handleggir o. fl. Hrossbein
allmörg og nokkrar leifar af hundsbein-
um. — Ur dysjunum hjá Dalvík. Afh.
af próf. Finni Jónssyni.
4/8 Kvarnarundirsteinn úr gljúpu hraun-
grjóti. Netsteinar 10. Brýnisbrot 4. Bein-
typpi lítið (ef til vill úr hnefatafli).
Greiðubrot 3. Hnffblöð 2 úr járni. Járn-
naglar og brot af járnverkfærum, alls 22.
Tennur 2 úr stórgrip. — Afhent safninu
af H. Erkes frá Köln. Kveðst hafa tínt
það úr rústunum hjá Sandmúla 11. júlf
1909 (sbr. Árb. Fornb.f. 1909, 24—31).
Brot af vefjarskeið úr hvalbeini. Snældu-
snúður úr rauðleitum steini. — Afh. af
sama; segir það fundið fyrir 5 árum á
sama stað af Jóni Þorkelss. frá Jarlsstöð-
um. Hólkur úr látúni með blýbotni í
öðrum enda. Frá sama, sagður fundinn
í sama skifti af J. Þ., en virðist ekki forn.
29/8 Steinn með boruðu gati í gegnum
annan endann, úr grágrýti. Líklega gam-
all lóðarsteinn. Fundinn í Rvík. Afh.
af tornmenjaverði.
Vidalinssafn.
Prófessorsfrú Helga Matzen, áður frú
Jóns Vfdalíns konsúls, hefur með brjefi
sínu til forstöðumanns safnsins, dags. 30.
júlí 1910, tilkynt, að hún vildi þegar af-
henda safninu þá gripi, tilheyrandi Vída-
línssafni, sem hún hafði áskilið sjer rjett
til að hafa undir höndum til æfiloka, og
samkvæmt brjefi sínu 3. september af-
henti hún gripina Jóni Krabbe, skrif-
stofustjóra íslensku stjórnarráðsskrifstof-
Unnar í Khöfn, sem veitti þeim þar mót-
töku fyrir hönd forstöðumanns safnsins,
og sendi safninu þá með brjefi dags. 10.
s. m. Gripirnir komu til safnsins 21.
september og eru þessir, sem nú skal
greina:
Söðuláklæði, 6 að tölu, glitofin,
Veggskápur, útskorinn að framan, synda-
fallið á hurðinni, og stendur »H e a 1 m a r«
uppi yfir í rúnum. Skápurinn vafalaust
eftir Hjálmar skáld Jónsson á Bólu.
Altaristafla, útskorin úr eik, Kristur á
miðju sem konungur himins og jarðar.
Verkið og gerðin öll(»barok«-stíll) bendir
helst á, að taflan sje útskorin af Guð-
mundi smið Guðmundssyni 1 Bjarnastaða-
hlíð, sem gerði skfrnarfontinn í Hóla-
kirkju og nokkra af legsteinunum þar.
Altaristafla (predella?) með kvöldmál-
tfðinni ámálaðri mjög illa.
Spjöld úr prjedikunarstól, 5 að tölu,
með ámáiuðum Kristi og guðspjallarnönn-
unum, fremur gott verk; öll sett saman í
eina umgerð.
Trafakefli, yfirkeflið, allvel útskorið úr
beykitrje; á því er með höfðaletri upphaf
af erindinu: »Heiður sje guði himnum
á« o. s. frv.
Brauðmót, skorið annarsvegar. Á því
stendur með latínuletri: Guð blessi brauð-
ið. V.
Páskalamb, útskorið úr beykitrje, kross-
fáni í hægra framfæti, geislakróna um
höfuð. Á því stendur: »Paska Lamb
Vjer Heilagt Höfum«. Virðist ekki gamalt.
Lár, dálítið útskorinn, loklaus.
Horn, útskorið, látúnsbúið; á hettunni,
sem skrúfuð er yfir stútinn, er mynd Krist-
jáns konungs 4. Stafirnir G. G. eru grafn-
ir á hornið; gamalt drykkjarhorn; máske
einnig notað fyrir púður.
Horn, útskorið og silfurbúið, opið í vfð-
ari endann, eftir Hjálmar Lárusson. Á
það eru skornir fuglar og dýr og nöfn
þeirra neðan undir, en nöfnin mynda
sljettubönd: Haukur. Lóa. Álka. Örn.
Æður. Spói. Krákur. Gaukur. Tóa. Boli.
Björn. Brimill. Kjói. Fákur.
Tintarfnur, tvær með eyrum, lokábáðum.
Hornspónn, íslenskur, nýlegur, sljettur.