Þjóðólfur - 24.11.1911, Page 3
ÞJOÐOLFUR.
175
er elsta «1; þjódkunnasta
blað landsins.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Arni Pálsson
saf'iifræðingrur.
Afgreiðslu og innheimtumaður:
Sigurður Jónsson
bóksali.
Lindargötu 1 B.
Pósthólf 146. Talsimi 209. lleykjarík.
Auglýsingar sendast aígreiðslu-
manni eða í prentsmiðjnna.
á einum stað. Hjer eru þau bæði
til samanburðar, hið danska fyrst:
»Rektor Universitatis Havniensis
cum
senatu Academico
(L. S.).
Qvod felix faustumque sit, in
Regia Universitate Havniensi nu-
mero civium academicoi’um ad-
scriptus est legesque ex formula
sibi tradita sancte se servaturum
promisit.
N. N.
In cujus rei íidem' has litteras
Havniae...........dedit et nomine
subscripto flrmavit«.
t*á hið íslenska:
»Rector Universitatis Islandiæ
cum
senatu Academico
L. S.
Qvod felix faustumque sit, in
Regia Universitate Islandiæ numero
civium academicorum adscriptus
est legesque Universitatis sancte se
servaturum promisit.
N. N.
In cujus rei fidem has litteras
Reykjavicæ............dedit et no-
mine suhseripto firmavit.
U. a. Rector Universilatis«.
Hjer sjest, að aðeins orðunum
»ex formula sibi tradita« er slept
af einhverjum ástæðum. Að öðru
leyti eru þau alveg samhljóða.
Þetta teljum vjer engau veginn við-
unanlegt.
Vjer dirfumst eigi að geta þess
til, að hið virðulega liáskólaráð
hafi eigi treyst sjer til að semja
sjálfstæða^ »formulu« á viðunan-
legri latínu, jafngóðum vísinda-
mönnum og það er skipað. Oss
þykir það óviðkunnanlegí í alla
staði, að Iáta hinn nýstofnaða há-
skóla vorn hefja göngu sína mark-
aðan undir danskt mark. Hann
sem er og á að vera aðal-miðstöð
alls sem íslenskl er! »Qvod felix
faustunqe sit« = guð láti gott á
vita, er að vísu góð og fögurkveðja,
en hún er eigi okkar eign; oss
virðist það væri ómótmælanleg
sönnun fyrir þvi, að vjer teldum
háskóla vorn aðeins (undir-)deild
af Hafnarháskóla, ef vjer notum
sama tnntökuskírteini framvegis.
Það er því tilgangur vor með lín-
um þessum, að heina þeirri spurn-
ingu allra þegnsamlegast til hins
virðulega háskólaráðs, — hvort eigi
væri gerlegt að fá öðruvisi orðað
háskóla-borgarahrjef, eða, hvort á
oss hvíli nokkur skylda að nota j
hið danska brjef? Vjer getum eigi
stilt oss um að segja, að guð megi
láta gott á vita, ef háskóli vor verð-
ur framvegis undir þessn marki.
Civis academicus.
Dáinii er hjer í gærdag Gísli
Helgason kaupmaður, eftir langa
legu í berklaveiki.
Hvað er að frétta?
Byltingin í Kína.
í síðasta blaði var þess getið að
líkur væru til að hán væri að sefast
með því að bæði lýðveldismenn og
umbótarmenn mundu gjöra sig ánægða
með hina nýju stjórnarskrá, sem lof-
aði þingbundinni konungsstjórn. En
nú heiur frjest að lýðveldismenn eru
í miklum meiri hluta og þykjast því
ekki þurfa að láta hlut sinn. Sagt er
að þeir hafi náð á sitt vald stórborg-
unum Kanton Tientsin og Nanking
og að höfuðborgin Peking muni að
líkindum fara sömu leið. Vuan Shi
Kai reyndi að sætta og sameina um-
bótarmenn og lýðveldismenn, en það
hefur tekist miður vel. Þó vona menn
að honum takist að koma á einhverj-
um sættum við foringja lýðveldis-
manna Liyanchung, því að margir eru
hræddir við það að ef stjórnarbylting-
in verði of gagngjör, muni samloðun
hins stóra ríkis, fara forgörðum og alt
leysast upp. — Verði ekki úr sætt-
inni mun keisarafólkið reyna að kom-
ast á burt úr Peking áður en hættan
vex því meir.
Cook
norðurfari kom til Kaupmannahafn-
ar fyrir skömmu síðan og hjelt fyrir-
lestur um pólferð sína. Hann hugsar
nú auðsjáanlega mest um það að
gjóra sjer gróða úr sinni vafasömu
frægð, enda mun hann vafalaust fá
fult hús, hvar sem hann kemur, því
að margir munu vilja sjá þennan
margumrædda mann. Hann heldur
því einlægt fram að hann hafi verið
á heimskautinu, jafnvel þótt það þyki
fullsannað að hann hafi aldrei komið
þar nærri. — Fyrst er hann ætlaði
að byrja fyrirlestur sinn, var honum
tekið með pípublæstri og óhljóðum,
en síðan er sagt að hann hafi fengið
hljóð sínu máli og sfðast verið út
leystur með lófaklappi og fagnaðar-
látum.
Nóbelsverðlannin
verða meðal anttars veitt frú Curie
sem ásamt manni sínum fann undra-
efnið Radfum. Höfðu þau hjónin áð-
ur fengið saman einn verðlaunaskerf,
en nú fær ekkjan hann óskiftan, enda
hefur hún haldið áfram rannsóknum á
þessu efni með miklum dugnaði og
tókst henni t. d. f fyrra að framleiða
Radíummálminn hreinan, en það hafði
engum tekist áður.
Balfour
lávarður kvað hafa sagt af sjer for-
mensku íhaldsflokksins á Bretlandi.
Hver tekur við í hans stað er óvíst enn.
Stjórnarskifti
hafa orðið í Austurríki. Frá völd-
um fór Gautsch fríherra en Stúrgh
greifi tók við.
Kanslaraskiftum
búast menn nú við hálft í hvoru á
Þýskalandi og kenna menn það óá-
nægju þeirri sem myndast hefur út af
Marokkósamningnum. Segja fregnir
að hún fremur magnist en minki.
Kanslari er nú sem kunnugt er Beth-
mann Hollweg.
Ófriðurinn
milli ítala og Tyrkja mun vera í
sama þófinu og síðast er frjettist.
Annars eru fregnir mjög ógreinilegar.
Þó halda menn að Itölum veiti miður.
Samt hafa þeir upp á mont innlimað
Tripolis og Kyrenaika í Ítalíuríki,
svona rjett áður en þeir missa alla
von um að halda þeim fyrir Tyrkj-
anum.
»Ceres«
fór til útlanda norður um land síð-
ast í vikunni sem leið. Meðal far-
1 þega var Bjarni frá Vogi.
»Sterling«
fór til útlanda á þriðjudagskvöldið
21. þ. m. Farþegar voru meðal ann-
ara Bernburg hðluleikari, Hermann
Stoll óg Kristjana Jónsd. (Þórarins-
sonar).
»Konstant«
flutningaskip miljónafjelagsins, lagði
af stað hjeðan fyrir nokkru með fisk
til Spánar, en hrepti illviðri, fjekk sjó
í lestarrúmið og kom inn aftur með
skemdan farm að einhverju leyti.
Úr bæjarstjórninni
eiga nú að ganga samkvæmt hlut-
kesti: frú Guðrún I ’jörnsdóttir, frú
Bríet Bjarnhjeðinsdóttir, Knútur Zim-
sen, Magnús Blöndahl og Þórður Thor-
oddsen.
Laust prestakall.
Hof í Vopnafirði er nú auglýst laust
til umsóknar samkvæmt hinum nýju
prestaiaunalögum með 150 kr. erfið-
leika-uppbót. Umsóknarfrestur til 15.
jan. 1912.
PáSl Einarsson borgarstjóri
hjelt brúðkaup sitt á laugardaginn
var með ungfrú Sigríði Siemsen dóttur
Franz fyrv. sýslumanns.
Umsjónannaður áfcngiskaupa
hefur verið skipaður Jón Á Egils-
son bókhaldari frá Ólafsvík. Hans starf
er það, að taka við pöntunum þeirra,
er áfengi mega flytja til landsins sam-
kvæmt bannlögunum (lyfsala).
Mikill forði af áfengi
er settur á land hjer um þessár
mundir, enda ganga nú bannlögin í
gildi um nýár. „Sterling" og „Ceres"
höfðu að sögn mikinn farm af áfengi.
Svo kom skip Sam. fjel,, „Douro",
eingöngu hlaðið sömu vöru og nú
kvað eitt skipið enn vera á leiðinni
líka sökkhlaðið brennivíni og öðrum
lífsins vötnum. Óvíst er, hvort lands-
menn hefðu efni á því að veita sjer
þessa björg svona í eiilu, ef Danir
ekki hlypu hjer drengilega undir bagga.
Friðþjófnr frækni
á nú að fá minnisvarða mikinn og
veglegan á næsta sumri. Ætlar Vil-
hjálmur Þýskalandskeisari að gefaNorð-
mönnum hann í minningu þess, að
Fatnaöir fyrir fullorðna og
börn, reiðjakkar og yfirfrakkar
af öllum stærðum seljast óvana-
lega ódýrt, einnig sjerstakar bux-
ur, jakkar og vesti.
Sturla Jónsson.
pianostemning.
Maður, sem vel kann að stilla piano
og er duglegur hljóðfærasmiður, hefur
í hyggju að koma til íslands, ef hann
Setnr gert sjer von um nýja atvinnu.
Pantanir eiga að sendast til: Piauo-
steininer (>. Igum, Aarhus.
hann heimsækir þá í 25. sinn. Sagt
er, að varðinn verði 23 metrar a hæð
og kosti 200 þús. krónur.
Norðmenn
eru að dubba sjer upp eimskipalínu
til Ameríku, og er nú sagt, að þeir
hafi pantað sjer smíði á stærðar skipi
í Liverpool til þeirra ferða. — Ein-
hversstaðar kom fram sú uppástunga,
að vjer Islendingar reyndum að koma
á þó ekki væri nema einni eða tveim-
ur ferðum á ári til Ameríku til þess
að sækja hveiti, sem þar er mjög
ódýrt, beina leið, og flytja þangað ís-
lenskar afurðir, sem talið er að yrðu
þar í afarháu verði. — Væri annars
ómögulegt að senda þangað svo sem
einn eða tvo botnvörpunga til kaup-
ferða, þegar fiskilaust er? Svari nú
þeir sem vit hafa á.
í Svíþjóð
fóru fram kosningar í haust til neðri
deildar þingsins. Fengu vinstrimenn
og jafnaðarmenn þar mikinn sigur og
urðu þá þegar stjórnarskifti. Staaff,
nýi forsætisráðherrann, kom því strax
til leiðar, að efri málstofan var rofin,
og eiga nú að fara fram nýjar kosn-
ingar til hennar. Hefur þessi mál-
stofa ekki verið rofin áður svo menn
muni og þykir þetta því allmikil bylt-
ing. Annars eru kosningalög hennar
allófrjálsleg; íhanakjósa borgarstjórn-
ir og amtsráð í landinu og hefurauð-
valdið verið talið að hafa hana í hendi
sjer. Þó halda menn nú, að hægri-
menn, sem mest hafa skipað þessa
deild, muni nú týna allmjög tölu sinni
við þessar nýju kosningar.
írar
kvað nú eiga von á sinni langþráðu
heimastjórn. Er sagt, að Asquith
yfirráðherra Englendinga ætli að bera
upp frumvarp um það í parlamentinu,
og launa þannig aðstoð Ira í því að
lama veldi lávarðadeildarinnar.