Þjóðólfur - 06.04.1918, Side 3

Þjóðólfur - 06.04.1918, Side 3
' ÞJÓÐÓLFUR 11 þeim mun fyrr lokið«, dirfist hann að rita. Er hægt að hugsa sér, að með þjóð vorri væru til menn, er tækju slíku með alvöru og sýndu þessari hýenu þann sóma að ræða málið? Svona er alt orðalag grein- arinnar. Hann kveður t. d. Norðurálfu ekki hafa reynt slíkt dýrsæði siðan á dögum Atla Húnakonungs. Annars er hræðilegt að lesa lýsingar Lotis á eyðingum stríðsins og skemdum af þess völdum. Hann kom að sykur- verksmiðjum í Norður-Frakk- landi. Múrarnir lágu brotnir á jörðu, en véluin, kötlum og ásum, er tókst ekki með öllu að eyða, var rótað saman í heljar-mikla hrúgu. Af kirkju einni stóð ekki annað eftir en aftasti steinveggur. Á leið inn í bæ einn má sjá furðu-margar og stórar járnhrúgur, og í þess- um smáfjöllum getur að líta alls konar hluti og þing, ofna, eldhúsgögn, skekt og skemd járnrúm, þar á meðal mörg barnarúm. Kjörum fólks í herteknum héruðum Frakklands lýsa tvær fyrirskipanir þýzkra hershöfð- ingja, er prentaðar eru í ritl- ingi Lotis, bæði í danskri þýð- ingu og á frönsku (prentmynd af auglýsingunum á frönsku), svo að ólíklegt er, að þær séu tilbúningur Frakka. Önnurhug- lýsingin er dagsett í Holnon 20. júlí 1915 og hljóðar svo á íslenzku í lauslegri þýðingu : Allir verkamenn, konur og börn, sem eru ekki minna en 15 ára, eiga að starfa að akur- vinnu hvern dag, lika sunnu- daga, frá kl. 4 um morguninn til kl. 8 að kveldi (franskur tími). Tómstundir: Hálf stund að morgni, ein stund um hádegi, hálf stund síðdegis. 1) Verkamönnum þeim, er reynast tregir til vinnu, verður skipað í sérslakar verkamanna- deildir, er verður fenginn her- mannaskáli til dvalar í, og undir umsjón þýzkra undir- hershöfðingja. Efiir uppskeruna verður slíkum verkamönnum varpað í 6 mánaða fangelsi; þriðja hvern dag verður fæðið ein- göngu vatn og brauð. 2) Vanrækslusamar konur verða sendar til Holnon til að vinna. Eftir uppskeruna verður slikum konum varpað í sex mánaða fangelsi. 3) Lötum börnum verður refsað með barsmíðuin með sfaf (Coups de báton, Stokke- slag). Auk þess áskilur höfuðs- maðurinn sér rétt til að refsa verkamönnum, nefndum í 1. lið, með 20 stafshöggum dag hvern. Verkamönnum úr sveitinni »Vendelles« verður harðlega hegnt. Gloss. Herstjórnin. Festist upp! Hin sldpunin frá herstjórn Þjóðverja til íbúa hernuminna héraða Frakklands, sem prent- uð er i nefndum ritlingi Lotis, er á þessa leið í íslenzkri þýð- ingu: Herskipunarráðið í Noyon. Tilkynning til almennings. Samkvæmt fyrirskipun yfir- herstjórnarinnar er lýðnum hér með kunngert, að öllum karlmönnum meðal hans, sem náð hafa 12 ára aldri, ber að heilsa kurteislega öllum her- foringjum í her Þjóðverja, og liið sama öllum embættismönn- um með herforingjatign og taka ofan. Höfuðsmaðurinn hefir fengið vitneskju um, að þrátt fyrir tilskipanir eru þeir margir, og einkum meðal ungra manna, sem heilsa ekki, eða gera það ekki á tilhlýðilegan hátt. Fyrir þvi er lýðurinn beðinn að hegða sér nákvæmlega samkvæmt ofanskráðri iýnir- skipun, svo að komist verði hjá óþægindum. Noyon 12. maí 1916. Höfuðsmaðurinn. Loti endar bækling sinn þannig: »Og þér hlutlausar þjóðir, sem blygðist yðar ekki fyrir að þola það, að slík andstygð gerist, sem raunar hefir það markmið að ráðast síðar á yð- ur sjálfar — komið hingað og reikið um á rústum vorum, — sem eg verð að ætla, að þér hugsið yður ekki eins hræðilegar og þær eru, því að það er yður hin eina afsökun fyrir afstöðu yðar. Eg þarf ekki framar að segja við Ameriku: Komdu! Því að þeir eru á leiðinni og fara hið glæsilegasta af stað. Þeir koma með gull, hermenn og sprengi- efni til hjálpar siðmenning og frelsi. Bandarikjamenn eru miklu aðdáunarverðari en þær þjóðir, er lengst hafa gætt hlutleysis í Norðurálfu, þá er þeir loks réðu með sér að ganga i lið með oss, því að þeim var að eins ógnað úr fjarska. Úthafið lilífði þeim, að minsta kosti um hríð, gegn þýzkum sæ- ferlikjum og þreififærum þeirra. Og þá er þeir nú hafa hafizt handa, ryðst þar út dýrleg gremi, hrein og dýrleg réttlætis- tilfinning og skyn á boðorðum þess. Þá er ég var síðast staddur hjá Vesturheimsmönnum, stóð Austurheimssál minni stuggur af nýtizku-brögðum þeirra, gróða-bralli og framfara-sótt. Ef til vill var það sök mín, er ég gat ekki séð né skilið, að þeir gætu af sér sýnt slíka ó- eigingirni og hugsæi. Ég bið | þá að fyrirgefa mér og leyfi mér hér með að tjá þeirn með lotningu hina dýpstu og alúð- i arfylstu aðdáun þjóðar vorrar. | Iimlendar fréttir og tíningur. Bókmentir. Lögrétia segir, að út komi í vor saga eftir Einar Hjörleifsson Kvaran, er heita á »Sambýlið«, nútíðarlýsing. Einar er og að snúa á íslenzku einni hinni frægustu skáldsögu franska skáldsins Viclors Hugo, »Aum- ingjunum« (Les Miserables). Von er og á sögu eftir Jón Trausta, er heita á »Bessi gamli«. Radínm-kaupin. Sagt er, að vel gangi söfnun peninga til Radíum-kaupa, og að von sé um, að nægilegs fjár verði aflað til þeirra um sumarmál. Því hefðu víst fæstir trúað, ef spáð hefði verið fyrir einum áratug, að hægt yrði að safna slíku fé saman á jafnstuttum tíma og raun ber nú vitni. Sýnir þetta, hvílíkur auður mönnum hefir græðst bér á landi á sein- uslu árum, miklu meira en nokk- urn liefir dreymt um, eða þorað að gera sér vonir um, að minsta kosti svo fljótt. Lögrétta flytur grein um rad- íum í næstseinasta bl., eftir Guð- mund Thoroddsen, lækni í Kaup- mannahöfn. Dáinn er nýlega hér í bæn- um Hans Andersen, verzlunar- maður, sonur H. Andersens heit- ins klæðskera og bróðir Lud- vigs Andersens klæðskera. Bana- mein hans var lungnatæring. — Hann var maður á bezta skeiði aldurs. Kvæntur var hann Halldóru Guðtnundsdóttur frá Eyrarbakka, systur Guðm. Guðmundssonar kaupfélagsstjóra. Bæjarskrá Reykjavíkur 1918 er nú nýverið koinin út. Úfgefandi er Ólafur Björnsson ritstjóri. Er þessi bæjarskrá hin áttunda í röðinni. í henni geta allir Reyk- víkingar, sem eru átján ára að aldri eða eldri, séð uafn sitt á prenti. Margs konar fróðleikur er í skrá þessari, sem gott er að vita. Þar er skrá félaga og stofnana. Er þar sagt, hvenær opin séu söfn og opinber hús og þess háttar. Er því auðsætt, að oft getur verið þægilegt að hafa hana sér við hönd. Sveitamenn geta og haft af henni mikið gagn, ekki sizt í þeim sveitum, er mikil viðskifti eiga við Reykjavík. Tíðin hefir verið ágæt þessa viku, þangað til í gærkveldi, að ekki var lengi að breytasl veð- ur í lofti, og alt í einu hvesti með kulda og frosti. Alþingi verður sett á mið- vikudaginn kemur, en búizt við, að það standi til mailoka. Hannes Hafstein getur ekki setið á næsta þingi, sökum heilsulasleika. Fór hann utan fyrir jólin til lækninga, en fékk þar enga bót veikinda sinna. Frétzt hefir, að Sigurjón bóndi Friðjónsson, fyrsti landkjörinn varaþingmaður Heimastjórnar- manna, sé á leið hingað suður, og leiti úrskurðar þingsins um, hvort hann skuli talca sér sæti á þingbekkjum. Eru ákvæði stjórnarskrárinnar ekki algerlega ljós um þetta, að áliti sumra fróðra manna. Fordæmi eru sögð til þess frá fyrri tíð, að menn hafa fengið sér goldinn ferðakoslnað úr Landssjóði, er þeir hafa farið til Reykjavíkur í sömu erindum og hr. Sigurjón Friðiónsson, Trúlofuð eru ungfrú Ingunn Eggertsdóttir (prests og alþm. Pálssonar á Breiðabólsstað í Fljótshlíð) og Óskar Thoraren- sen (sonur Þorsteins heitins Thorarensens) á Móheiðarhvoli á Rangárvöllum. Enn fremur eru lofuð slúdent ungfrú Áslaug Zoéga (rektors) og Hallgrímur Benediktsson stórkaupmaður. V estur-Skaf taf elltsýsla er veitt Gísla Sveinssyni lögtnanni og alþm., og ílytur hann búferlum austur í sýsiur sinar þegar eftir þinglausnir. Auk hans sóttu um sýsluna þeir Sigurður Lýðsson og Páll Jónsson háskólalögfræð- ingur. Njörður kom hingað frá Bret- landi 1. apríl eftir óvenju-flióta ferð. Aflann hafði skipið selt þar fyrir 6915 sterlingspund (yfir 100 þús.), hæsta verð, sem nokkurt íslenzkt skip hefir fengið fyrir afla sinn í Bretlandi. Njörður haíði þónokkuð af kolum meðférðis og fór fljótt út á fiskveiðar. (Eftir Morgunbl.). Bæjarfógetaembættinu hér í Reykjavík hefir nú verið tvískift. Heitir annað þeirra bæjarfógeta- embætti. Það er veitt Jóhann- esi Jóhannessyni, sýsluinanni og alþin. á Seyðisfirði. Hitt er kall- að lögreglusljóraembætti, það er veitt er Jóni Hermannssyni skrif- stofustjóra. Jóhannes bæjarfógeti er ókom- inn til embættis síns, er á leið- inni með »Lagarfossi«. Landspítalaajóðnum gaf hluta- félagið Bragi (botnvörpnngafélag) 2000,00 kr. nú í vikunni. Bæjarbruni, Óskemtilega páskadagsnótt átti fólkið á Dæli í Fljótum í Skagafjarðarsýslu. Kom þá upp eldur í bænum og brann hann til kaldra kola, en heimamenn komust með naum- indum út. Tvær kýr köfnuðu, því að fjósið var áfast bænuin.

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.